SunnudagsMogginn - 04.09.2011, Blaðsíða 35
4. september 2011 35
grunn í arkitektúr eða verkfræði. Þetta
er greinilega ástríða hjá mönnum, ég
kynntist til að mynda frönskum arki-
tekt sem seldi húsið sitt og lækkaði
lífsstaðalinn til að geta látið drauminn
rætast, að setja líkön af byggingum inn
á Google Earth. Það er alltaf gaman að
hitta fólk sem lætur hjartað ráða för.“
Hann segir andann í hópnum ein-
staklega góðan og ekkert mönnum fjær
en samkeppni. „Menn eru mjög áhuga-
samir hverjir um verk annarra og
boðnir og búnir að veita ráð og að-
stoð.“
Frá Póllandi hélt hluti hópsins til
Japans til að vera heimamönnum innan
handar við uppbygginguna eftir jarð-
skjálftana miklu. „Þessi tækni kemur í
góðar þarfir í því tilliti,“ segir Páll.
Þess verður að líkindum ekki langt
að bíða að Páll hitti kollega sína á ný,
en Google leggur hart að honum að
mæta á næstu ráðstefnu sérfræð-
ingahópsins sem fram fer í Barcelona í
október næstkomandi. Vonast hann til
að geta þekkst boðið.
Eins og að ganga inn í Legoland
Páll rak upp stór augu þegar hann kom
í útibú Google í Wrocław. „Það var eins
og að ganga inn í Legoland. Slík var
litadýrðin. Ég hef aldrei séð neitt þessu
líkt. Umhverfið er ákaflega lifandi og
skrifstofurnar fullar af hæfileikaríku
fólki,“ segir Páll, en á annað hundrað
manns starfa hjá Google í Wrocław.
Þess má til gamans geta að höf-
uðstöðvar Google í Sviss eru tíu sinnum
stærri.
Leikmaður gæti haldið að um feyki-
lega flókna tækni sé að ræða þegar lík-
önum af byggingum er komið fyrir í
sýndarheimum. Páll hafnar því. „Þetta
er í raun sáraeinfalt. Börn geta hæglega
gert þetta. Fljótlega eftir að ég byrjaði á
þessu kom sonur minn til mín og rak
upp stór augu. „Pabbi, ert þú líka að
leika þér í þessu?“ spurði hann og
kannaðist greinilega við viðmótið,“
segir Páll hlæjandi og bætir við að í
grunninn sé hann að vinna með ljós-
myndir sem hann búi til þrívídd utan
um.
Google Earth-forritinu hefur alls
verið hlaðið niður 500 milljón sinnum.
Það er ekkert smáræði. „Það er und-
arlegt til þess að hugsa fyrir mig, sem
er einn að gaufa við þetta uppi á Kjal-
arnesi, að vinnan mín sé aðgengileg
milljónum,“ segir Páll en bætir við að
auðvitað séu ekki milljónir að skoða
myndirnar hans. „Ekki ennþá!“
Hann hlær dátt.
Búinn að stofna fyrirtæki
Til að bregðast við vaxandi áhuga á
verkefninu hefur Páll sett á laggirnar
fyrirtækið GAIA ásamt tveimur fé-
lögum sínum, Jóni Pálssyni rekstrar-
verkfræðingi og Degi Hilmarssyni,
grafískum hönnuði. Gangi allt upp mun
Reykjavíkurverkefnið taka drjúgan
tíma á næstu misserum en Páll segir
margt annað koma til álita. „Þessi
tækni er ekki bara fyrir túrista, hún
getur á margan hátt verið hagnýt,“
segir hann og nefnir sem dæmi kynn-
ingu á deiliskipulagi og annað í þeim
dúr.
Páll Heimir Pálsson á að óbreyttu
eftir að verja drjúgum tíma í sýnd-
arheimum á komandi misserum. Ekki
svo að skilja að það sé honum á móti
skapi. „Þegar ég byrjaði sá ég aldrei
annað fyrir mér en að Google Earth
yrði pínulítið hobbí. Nú er þetta mitt
aðalstarf – og meira.“
Stella og önnur hús í Bankastrætinu. Páll segir tæknina sáraeinfalda.
Höfði, eitt af húsunum sem Páll staulaðist í kringum á hækjum þegar hann var fótbrotinn.
Google Earth er sýndarheimsforrit gefið út af
Google sem gerir notendum kleift að sjá loft-
myndir og kort af jörðinni í þrívídd. Upp-
runalega var forritið framleitt af Keyhole, Inc
en Google keypti fyrirtækið árið 2004. Með
því að nota Google Earth er hægt að skoða
upphleypt kort af jörðinni, en myndirnar eru
teknar með gervihnöttum. Sumar stórar
borgir eru líka með þrívíddarlíkön af bygg-
ingum sem hægt er að skoða með forritinu.
Google Earth leyfir notendum að stilla sjón-
arhorn, til dæmis er hægt að skoða kortið
frá jörðu niðri eða úr lofti.
Heimild: Wikipedia.
Sýndarheimsforrit
„Best of 3D Warehouse“ er safn 1.300
bygginga sem Google Earth vekur sérstaka
athygli á. Líkönunum er raðað eftir ein-
kunnagjöf skoðenda og á Páll fimm af tíu
efstu líkönunum á listanum, Þjóðmenning-
arhúsið, Hljómskálann, Dómkirkjuna, Þjóð-
minjasafnið og Brautarholtskirkju á Kjal-
arnesi.
Það er raunar tilviljun að síðastnefnda
húsið er yfir höfuð á Google Earth.
„Skömmu eftir að ég byrjaði á verkefninu fót-
braut ég mig og varð fyrir vikið að einbeita
mér um tíma að byggingum sem auðvelt var
að staulast í kringum á hækjum,“ segir Páll.
„Þess vegna varð Brautarholtskirkja fyrir val-
inu. Það er virkilega ánægjulegt að gestir
Google Earth kunni að meta kirkjuna enda er
hún ákaflega falleg.“
Annað líkan sem nýtur vinsælda, Páli til
undrunar, er kindakofi sem getur að líta á Ár-
bæjarsafninu. Hróður íslensku sauðkind-
arinnar berst víða.
Á fimm af tíu bestu líkönunum