SunnudagsMogginn - 04.09.2011, Page 39
4. september 2011 39
Þ
ið getið andað léttar stelpur, það er komið í ljós að
eftir allt saman þá er alls ekkert að píkunni ykkar.
Samkvæmt niðurstöðum rannsóknar sem birtar
voru í British Journal of Obstetrics and Gynaeco-
logy eru innri skapabarmar flestra kvenna sem vilja gangast
undir lýtaaðgerð til að minnka þá hvorki of stórir né illa af
guði gerðir.
Niðurstöður af þessu tagi ættu að létta allt hugarvíl, þ.e.
þar til það rennur upp fyrir manni að ef til vill eru fræði-
mennirnir sjálfir að halda lifandi goðsögninni um hina full-
komnu píku með rannsóknum sínum. Þrátt fyrir að rann-
sakendurnir hafi komist að þeirri niðurstöðu að innri
skapabarmar 30 af 33 þátttakendum væru innan eðlilegra
stærðarmarka komust þeir samfara því að þeirri niðurstöðu
að innri barmar hinna þriggja væru „verulega ósamhverfir“,
en meðalbreidd hægri skapabarms var 26,9 mm og vinstri
skapabarms 24,8.
Mælingarnar gáfu grænt ljós á niðurgreiddar aðgerðir
heilsugæslu University College í London, þar sem rann-
sóknin var gerð. Heilsugæslan hefur aðeins leyfi til þess að
framkvæma aðgerðir á konum hvers kynfæri mælast utan
eðlilegra viðmiða.
En hvað er átt við með „eðlilegt“?
Haft var eftir kvensjúkdómalækninum Söruh Creighton,
sem leiddi rannsóknina, að „litlar upplýsingar eru til um
hvað er eðlilegt“, og hvatti rann-
sóknarteymið til þess að stærri
rannsóknir yrðu gerðar á því hver
væru eðlileg stærðarhlutföll
skapabarma. Slík orðræða gefur
til kynna að eins og gefið er í
skyn í klámi og auglýsingum eigi
píkur að hafa ákveðið útlit. Allt
utan þess ramma myndi þá teljast
„óeðlilegt“.
Staðreynd málsins er hins vegar
sú, að þegar kemur að kynfær-
unum, nú eða brjóstum eða eist-
um ef því er að skipta, er fjöl-
breytileg stærð eðlileg. Það sem er
eðlilegt er að ein hlið líkamans sé
allt frá örlítið stærri til miklu
stærri (lengri, feitari, minni) en hin hliðin. Ósamhverfa er
hið eðlilega þegar líkamshlutar fólks eru annars vegar!
Aðaláhyggjuefnið varðandi lýtaaðgerðir á kynfærum er
ekki að ákvarða hverjir ættu eða ættu ekki að gangast undir
slíka aðgerð, heldur þörfin á því að útrýma ranghug-
myndum um það hvað teljist eðlilegt, sem valda fólki hug-
arangri.
Til þess að koma í veg fyrir áhyggjur kvenna af því
hvernig píkan þeirra lítur út þurfum við að fræða konur um
mannslíkamann og áhrif menningarumhverfisins á það hvað
telst eftirsóknarvert hverju sinni. Við þurfum að halda
áfram þeirri baráttu sem konur út um allan heim heyja til
að benda á að fjölbreytni er falleg. Og við þurfum að ná til
ungra kvenna.
Meðalaldur þátttakendanna 33 var 23 ár, fjórðungur
þeirra var 16 ára eða yngri og yngsti þátttakandinn var að-
eins ellefu ára. Fjörutíu prósent þeirra langaði til að láta
minnka innri skapabarmana til þess að „bæta útlitið“ en
þessi tölfræði verður enn óhugnanlegri þegar tekið er með í
reikninginn að öllum var þeim vísað áfram í rannsóknina af
heimilislæknum sem þótti skurðaðgerð viðeigandi lausn
þeirra mála. Hversu eðlilegt er það?
Hvað er
„eðlilegt“?
’
Staðreynd
málsins er
hins vegar
sú, að þegar
kemur að kyn-
færunum, nú
eða brjóstum
eða eistum ef
því er að skipta,
er fjölbreytileg
stærð eðlileg.
Kynfræðingurinn
Dr. Yvonne Kristín Fulbright
kyn@mbl.is
vinnufélaga sem varð í fyllingu tímans að stórveldi sem hafði inngrip í
nánast öllum sviðum íslensks atvinnulífs. Sambandið var ef til vill á
mestu flugi um miðja 20. öldina, en þá var Vilhjálmur Þór í stól for-
stjóra. Sá var bæði drífandi maður auk heldur sem hans naut við þegar
stríðsgróði flæddi um þjóðfélagið allt. Það gerði þessari miklu fyr-
irtækjasamsteypu kleift að fara í iðnrekstur, tryggingastarfsemi, kaup-
skipaútgerð, bókaútgáfu, prentsmiðjurekstur, vélainnflutning og olíu-
verslun og er þá fátt eitt nefnt. Og kaupfélög ráku hvert í sinni byggð
umfangsmikla starfsemi en um árið 1960 voru þau alls 58 talsins.
Þegar kom fram yfir 1960 fór kaupfélögunum í landinu að fækka.
Þau voru hreinlega of fá og smá til þess að geta spjarað sig í samkeppni
og síkviku viðskiptaumhverfi. Og sömuleiðis fór þátttaka í samvinnu-
starfinu dvínandi. „Félagsmálaáhugi er ekki eins mikill og æskilegt
væri og ekkert í líkingu við það sem áður var, þegar menn voru að
brjótast úr sárri fátækt með samvinnustarfi, á tímum, þegar lífið sner-
ist um brauðstrit öðru fremur. Velmegun og efnishyggjan hafa deyft
félagsmálaáhuga,“ sagði forstjóri Sambandsins í áðurnefndu viðtali.
Erlendur Eianrsson var forstjóri Sambandsins frá 1955 til 1986 þegar
Guðjón B. Ólafsson tók við keflinu – en á þeim tíma voru undirstöð-
urnar í rekstri fyrirtæksins orðnar býsna feysknar. Verðbólga og verð-
trygging breyttu öllu svo skuldir Sambandsins jukust meira og hraðar
en nokkur réð við. Fór enda svo árið 1992, þegar því arðvænlegasta í
rekstrinum hafði verið komið fyrir í sjálfstæðum hlutafélögum, að
Landsbankinn gekk milli bols og höfuðs á risanum til að fá skuldir hans
innheimtar og nánast á einni nóttu „hið mikla fyrirtæki“ af sjón-
arsviðinu.
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is
’
Þegar menn
voru að brjót-
ast úr sárri
fátækt með sam-
vinnustarfi, á tím-
um, þegar lífið sner-
ist um brauðstrit
öðru fremur.
Erlendur Einarsson
Wood með samleikurnum sínum í Ideas of March, Marisu Tomei, Paul Giamatti, Philip Seymour Hoffman og
George Clooney, sem er jafnframt leikstjóri myndarinnar.
Reuters
Í hlutverki vampýrudrottningarinnar Sophie-Anne
Leclerq í sjónvarpsþáttunum True Blood.
’
Hlutverk vampýrudrottningarinnar í True
Blood passaði líka við nýjustu persónulegu
játningu Wood en í viðtali við tímaritið Es-
quire fyrr á þessu ári sagðist hún vera tvíkynhneigð.
Hundruð vampýruaðdáenda
ætla að fara í siglingu
næsta sumar í Alaska undir
nafninu „Vamps at Sea“ eða
„Vampýrur í sjóferð“. Slíkar
þemasiglingar hafa notið
vaxandi vinsælda síðustu ár
og hafa verið stílaðar inn á
allt frá fuglaáhugafólki til
maraþonhlaupara, sam-
kvæmt frétt Reuters. Í þess-
ari siglingu verður margt um að vera og m.a.
verða skoðaðir jöklar og haldin böll. Siglingin
verður í júní þannig að það er náttúrulega bjart
allan sólarhringinn þarna á þessum árstíma.
Linda Wolf, skipuleggjandi ferðarinnar, segir
að það ætti ekki að koma að sök því skipið sé
með mjög þykkar gardínur og inni geti verið
eins dimmt og gestirnir vilji. Ein af skemmt-
ununum í boði um borð verður vampýruhæfi-
leikakeppni, en ekki er greint frá því nánar í
fréttinni hvernig hún fari fram, og að sjálf-
sögðu verður líka haldið grímuball.
Vampýrusigling
í Alaska
Robert
Pattinson