SunnudagsMogginn - 04.09.2011, Side 41
4. september 2011 41
LÁRÉTT
1. Hlaup og urg hjá keltneskum. (8)
6. Passir sig á góðum. (6)
9. Segja öðruvísi vegna flugumorðanna. (6)
10. Sá ræfrið einhvern veginn í stokknum. (8)
12. Ansans í sjó flækist fiskurinn. (8)
14. Enginn fékk svörð frá sjaldgæfum. (10)
16. Ruglaðir Danir káli presti. (9)
17. Ílát fyrir eiturlyf reynist vera grænmeti. (7)
18. Leita feitra með því að hreinsa. (7)
19. Gráða í beiskum vökva gefur okkur staf. (6)
20. Gullhamstur veldur fyrirhöfn. (6)
21. Arabískt með flækjum og baksi. (9)
26. Spurnarorð nær að lyfta og velta. (10)
27. Tvöfaldur sársauki kemur af aukaeintaki. (6)
29. Mamma með mikið úthald eignast þá með
langlundargeð. (10)
31. Hryggja fjallaleiðangra. (5)
33. Ábreiða sem hefur afl er sérstök ábreiða. (9)
34. Sandra fær lama og skriðdýr. (10)
35. Orðtækin geta gefið okkur sérhæfðan orða-
forða. (8)
LÓÐRÉTT
1. Erta Agnar einhvern veginn til að ábyrgjast. (9)
2. Fuglar í Kjósinni eru þeir sem fá að velja. (9)
3. Flúinn frá trénu. (7)
4. Frú gneisti einhvern veginn út af ginningu. (9)
5. Er aftar að finna óþokka. (6)
7. Hressingarganga með lélegt hljóðfæri. (6)
8. Nær arður að komast einhvern veginn í tölurnar.
(8)
11. Tímamælir fyrir gang hjá hestum? (11)
13. Ódýrt er í því sem telst vera sælgæti. (8)
15. Næstum því öfug fær lager af dýrahóp. (8)
19. Bætið sök einhvern veginn á stað. (8)
22. Áætli lím einhvern veginn í máli. (8)
23. Dans í rugli Einars ná að setja í jafnvægi. (10)
24. Hvort er Símon trassi eða grobbari? (8)
25. Gefi skata lista yfir dýr. (8)
28. Vanar á jurtamarkaði. (5)
29. Kláraðist gáta. (5)
30. Kærustupar við mynni sjá eyðslusaman. (5)
32. Kertastjakarnir innihalda hnetu. (5)
Verðlaun eru veitt fyrir rétta lausn
krossgátunnar. Senda skal þátt-
tökuseðilinn í umslagi merktu:
Krossgáta Morgunblaðsins, Há-
degismóum 2, 110 Reykjavík.
Frestur til að skila úrlausn kross-
gátu 4. september rennur út á há-
degi 9. september. Nafn vinnings-
hafans birtist í blaðinu 11.
september. Heppinn þátttakandi hlýtur bók í vinn-
ing. Vinningshafi krossgátunnar 28. ágúst er Sverrir
Haraldsson, Selsundi, Hellu. Hann hlýtur í verðlaun
bókina Bankastræti núll eftir Einar Má Guðmunds-
son. Mál og menning gefur út.
Krossgátuverðlaun
Meistaramót Hellis sem nú stendur
yfir ber uppá 20 ára afmæli félags-
ins. Stofnendur þess Gunnar
Björnsson og Andri Áss Grétars-
son, höfðu verið miklir stólpar í
félagsstarfi Taflfélags Reykjavíkur
en gert lítilsháttar ágreining vegna
byggingar félagsheimilis TR í Faxa-
feni. Á haustmánuðum 1991 hófst
starfssemi Hellis og verður ekki
annað sagt en að vel hafi gengið
enda margir stofnfélaga sér-
staklega ræktarsamir við félagið.
Á meistaramótinu í ár teflir
sigurvegari síðasta árs, Hjörvar
Steinn Grétarsson, og einnig sjö-
faldur meistari Hellis, Björn Þor-
finnsson. Þessir tveir eru stiga-
hæstir og jafnir í efsta sæti en
ýmsir kunnir meistarar sækja fast
að:
1.–2. Hjörvar Steinn Grétarsson
og Björn Þorfinnsson 5 v. (af 5)
3.–7. Páll Sigurðsson, Guðmundur
Kjartansson, Bragi Halldórsson,
Þorvarður Ólafsson, Einar Hjalti
Jensson. 8.–10. Nökkvi Sverrisson,
Oliver Jóhannesson og Unnar Þór
Bachman 3½ v.
Hjörvar Steinn og Björn mætast í
úrslitaskák mótsins í sjöttu umferð
sem fram fer nk. mánudagskvöld.
Fyrir mótið var Guðmundur
Kjartansson allt eins líklegur til að
hreppa efsta sætið og í skák hans
við Björn Þorfinnsson, sem hér fer
á eftir, var hann með unnið tafl
lengst af. Alltaf annað veifið virðist
Björn Þorfinnsson finna þörf hjá
sér til að ramba fram á ystu brún
hengiflugsins og er hér komið rak-
ið dæmi. Hann lét ófriðlega strax í
3. leik og hleypti svo öllu í bál og
brand með fullkomlega óábyrgum
10. leik. En þegar Guðmundur
virtist vera að innbyrða vinninginn
uggði hann ekki að sér. Með að-
ferðum í ætt við sjónhverfingar
náði Björn að snúa taflinu við og
ná mátsókn í endatafli:
Meistaramót Hellis 2011, 4. um-
ferð:
Guðmundur Kjartansson –
Björn Þorfinnsson
Kóngspeðsleikur
1. e4 e5 2. Rc3 Rc6 3. g3 f5 4.
exf5 Rf6 5. Rf3 d5 6. d4 exd4 7.
Rxd4 De7 8. Be3 Rxd4 9. Dxd4 c5
10. Df4 g5??!
Engin þörf var á þessum fífl-
djarfa leik því svartur heldur vel í
horfinu með 10. … d4.
11. fxg6 hxg6 12. Bb5+ Kd8 13.
Rxd5!
Svartur er glataður eftir þennan
leik, 13. O-O-O vinnur einnig.
13. … Rxd5 14. O-O-O Hh5 15.
Bc4 Be6 16. Bxd5 Bxd5 17. c4 Bh6
18. Df3?
Of mikil tilslökun. 18. Hxd5+!
Hxd5 19. Dxh6 He5 20. Hd1+ Kc8
21. Dxg6 vinnur létt.
18. … Kc7 19. cxd5 Hf8 20. d6
Dxd6 21. Hxd6
Og hér var einfaldara að leika
fyrst 21. Dxb7+! og síðan 22.
Hxd6.
21. … Hxf3 22. Hxg6 Bxe3 23.
fxe3 Hf2 24. h4 He5 25. He1
Í svona stöðum er yfirleitt gott
að ná uppskiptum á einu hróka-
pari. Öruggast var því 25. Hg5
Hxg5 26. hxg5 Hf3 27. g4 Hg3 28.
Hh4 og hvítur á að vinna.
25. … He4 26. Kb1 c4 27. h5 c3!?
28. b3??
Hrikalegur afleikur. Eftir 28.
Hc1! Hxb2+ 29. Ka1 vinnur hvítur
án vandkvæða.
28. … Hb2+ 29. Ka1 Hh2! 30.
Hc1 Hxe3 31. g4 b5!? 32. b4 a5 33.
bxa5
– sjá stöðumynd –
33. … Hc2!
Nú má hvítur passa sig því
kóngsstaðan er orðin afar við-
kvæm.
34. Hf1 Hf3! 35. Hd1
Eina vörnin fólst í 35. Hg7+ og
þá ætti hvítur að ná jafntefli. En
það er erfitt að sjá hugmyndina
sem kemur upp eftir t.d. 35. …
Kc6 36. Hg6+ Kc5 37. Hg5+! og
eftir 37. … Kc4 kemur 38. Hgf5!
o.s.frv.
35. … Hff2!
Svartur er kominn með mát-
sókn!
36. Hg7+ Kc6 37. Hg6+ Kc5 38.
Hg5+ Kc4!
Óvænt endalok. Hvítur gafst
upp.
Helgi Ólafsson helol@simnet.is
Darraðadans á afmælismóti Hellis
Skák
Nafn
Heimilisfang
Póstfang
Krossgáta