SunnudagsMogginn - 30.10.2011, Blaðsíða 2
2 30. október 2011
Við mælum með
4.- 6. nóvember
Icelandic Fitness and Health
Expo er íþróttahátíð og vöru-
sýning í Hörpunni. Evrópu-
meistaramót WBFF í fitness og
vaxtarrækt þar sem margir
flottustu kroppar Evrópu
mæta til leiks. Sérstakir gestir
verða margfaldir heimsmeist-
arar í fitness, Emily Stirling og
Diana Chaloux ásamt Micah
Lacerte.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Hreysti í Hörpunni
4-8 Í spegli vikunnar
Mannkyni fjölgar sem aldrei fyrr, Southampton á blússandi siglingu í
ensku knattspyrnunni og óvinur Vesturlanda.
14 Andlega skyldar
Leikkonurnar Sigrún Edda og Ilmur leika nú mæðgur í annað sinn.
Fyrst í Fólkinu í kjallaranum, nú í Kirsuberjagarðinum.
28 Hugurinn er töfrahirsla
Guðmundur Andri Thorsson sendir frá sér nýja bók, Valeyrarvalsinn.
Hann segir frá bókinni og talar um skriftir og stíl.
34 Einingartákn og merkisberi …
Í dag eru 70 ár liðin frá andláti Ingibjargar H. Bjarnason, fyrsta alþing-
ismanns Íslendinga úr hópi kvenna. Er við hæfi að minnast hennar
enda er hún í hópi merkustu Íslendinga síðustu aldar.
38 Bacon blessar nýju
Footloose
Búið er að endurgera kvikmyndina Footloose
en Kevin Bacon varð frægur fyrir dansspor
sín í upphaflegu myndinni
40 Glyðruleg grasker
Margir kætast þessa helgina og klæða sig
upp að hrekkjavökusið. Nú er rétti tíminn til
að skera út ógnandi andlit í grasker og borða nammi.
Lesbók
42 Skrifin tóku mjög mikið á …
Steinunn Sigurðardóttir hefur sent frá sér nýja skáldsögu sem nefnist
Jójó. Segir hún einn helsta drifkraft þess að hún skrifaði bókina vera
reiði og frústrasjón yfir því hvernig farið er með börn.
44 Drykkfelldur og úfinn snillingur
Charles Bukowski hefur sent frá sér skáldsöguna Hollywood.
Efnisyfirlit
Forsíðumyndina tók Kristinn Ingvarsson í Kattholti
Umsjón Sunnudagsmoggans: Pétur Blöndal, pebl@mbl.is Umsjón Lesbókar: Einar Falur Ingólfsson, efi@mbl.is Ritstjórn Sunnudagsmoggans:
Arnar Eggert Thoroddsen, Árni Matthíasson,Börkur Gunnarsson, Helgi Snær Sigurðsson, Inga Rún Sigurðardóttir, Kolbrún Bergþórsdóttir,
Kristín Heiða Kristinsdóttir, María Ólafsdóttir, Orri Páll Ormarsson, Signý Gunnarsdóttir, Silja Björk Huldudóttir, Skapti Hallgrímsson.
32
13
Augnablikið
Ó
hætt er að segja að umræðurnar hafi
verið með líflegasta móti á ráðstefnu
íslenskra stjórnvalda og Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins í Hörpu á fimmtudag. Að
minnsta kosti að teknu tilliti til fjármálakrepp-
unnar í Evrópu, því enn á eftir að leysa úr tröll-
auknum vandamálum evrusvæðisins, sem mark-
ast af greiðsluþroti Grikklands og mikilli
skuldsetningu aðildarríkjanna. En nú var tilefnið
að ræða um Ísland.
Það voru margir mættir til að hlýða á erlenda
gesti ráðstefnunnar, enda lagt upp með það af
hálfu skipuleggjenda að heyra hvaða augum er-
lendir sérfræðingar litu samstarf Íslands og Al-
þjóðagjaldeyrissjóðsins og hvernig til hefði tekist.
Almennt voru sérfræðingarnir, þar á meðal
tveir nóbelsverðlaunahafar, á því að farsælt hefði
verið að „samfélagsvæða“ ekki gríðarlegar skuldir
bankanna, enda hefði það orðið þjóðinni ofviða.
Þetta var „lykilákvörðunin“ í öllu ferlinu, sagði
hagfræðingurinn Martin Wolf, einn virtasti við-
skiptablaðamaður heims, sem er með fastan dálk í
Financial Times.
Hann sagðist hafa hrifist af því í upphafsræð-
unum er upplýst var að ríkisstjórn Íslands hefði
sett sér að bankaáhættan yrði ekki „samfélags-
vædd að fullu“, heldur yrði ríkissjóður verndaður
fyrir bönkunum:
„Ég lít á það sjónarmið sem það allra mikilvæg-
asta í efnahagsstjórn á okkar dögum, því ef þú
verndar ekki ríkissjóð fyrir bönkunum, þá ertu
búinn að vera. Svo ég held það hafi verið ótrúlega
dásamlega snjallt. Og mjög fáar aðrar ríkisstjórnir
höfðu nægt hugmyndaflug til að átta sig á þessu.“
Eins og við mátti búast fór ekki hjá því að rík-
isstjórnin hreykti sér af þeim árangri sem náðst
hefur á Íslandi í samanburði við ríki evrusvæð-
isins, þó að hún hefði á ferilskránni að draga fyrir
landsdóm manninn sem hafði frumkvæði að
neyðarlögunum, sem höfðu mest um það að segja
að bankaáhættan var ekki „samfélagsvædd“ og
voru síðan staðfest á föstudag fyrir íslenskum
dómstólum.
Það sem var dásamlegast við ráðstefnuna var
hinsvegar að ekki höfðu allir jafnmikinn áhuga á
orðum erlendu fræðimannanna, þó að gert hefði
verið mikið úr komu þeirra. Þannig leið langur
tími áður en nóbelsverðlaunahafinn Paul Krug-
man komst að í pallborði með Gylfa Zoëga hag-
fræðingi og Má Guðmundssyni seðlabankastjóra.
Þar voru raunar líka Nemat Shafik frá Alþjóða-
gjaldeyrissjóðnum, Simon Johnson frá MIT og téð-
ur Martin Wolf stýrði umræðum.
En einkum vakti aðdáun framganga Gylfa, sem
hélt uppi vörnum fyrir þann vilja ríkisstjórnar-
innar að sækja um aðild að Evrópusambandinu og
í kjölfarið að kasta krónunni fyrir evru. Svo mjög
kvað að Gylfa að þegar Martin Wolf varaði Íslend-
inga við því að ganga í Evrópusambandið í loka-
orðunum, þá greip Gylfi orðið til að andmæla. „En
þetta eru lokaorðin! Þetta leyfist ekki,“ sagði Wolf
góðlátlega áður en hann hleypti honum að – og
ekki laust við að gætti undrunar í rómnum.
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Íslendingarnir létu ekki sitt eftir liggja í pallborðsumræðunum.
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
„Ótrúlega dásamlega snjallt“
Hér má sjá söngkonuna
Lady Gaga drekka te
með hæverskum hætti
á Indlandi en myndin
er tekin á blaðamanna-
fundi í Nýju-Delhi.
Poppstjarnan er stödd
þar um helgina til að
taka þátt í hátíð-
arhöldunum í kringum
fyrsta Formúlu 1-
kappakstur landsins.
Lafðin lítur út eins
og hefðarmær með
uppsett hárið en hefð-
bundnar hefðarmeyjar
eru reyndar ekki með
litað hár, allavega ekki
í þessum litbrigðum.
Ekki er ólíklegt að
söngkonan skelli sér á
eina Bollywood-mynd
en hún er mjög hrifin
af þeirri tegund
mynda.
Veröld
Reuters
Lafðin á Indlandi 3. nóvemberHljómsveitin
Sálgæslan
heldur tónleika
í Salnum kl.
20:30. Hljómsveitin sendi ný-
verið frá sér geisladiskinn Dauði
og djöfull þar sem söngvararnir
Andrea Gylfadóttir og Stefán
Hilmarsson syngja lög Sigurðar
Flosasonar við texta eftir hann
og Aðalstein Ásberg Sigurðsson.
Hreinsun
Þjóðleikhúsið
hefur frumsýnt
Hreinsun eftir
Sofi Oksanen.
Hreinsun er meðal umtöluðustu
skáldverka undanfarin ár. Leik-
ritið var frumflutt í finnska
Þjóðleikhúsinu árið 2007 og í
kjölfarið skrifaði höfundurinn
skáldsöguna.