SunnudagsMogginn - 30.10.2011, Blaðsíða 26

SunnudagsMogginn - 30.10.2011, Blaðsíða 26
26 30. október 2011 Hvað ætli sé á seyði úti í hinum stóra heimi? Starfsemi Kattholts er á helj- arþröm, að sögn Önnu Krist- ine Magnúsdóttur, enda kostar það skildinginn að annast um og fæða 60 til 100 ketti á hverjum einasta degi – svo vel sé. „Á þessu ári fengum við í fyrsta skipti í tuttugu ára sögu athvarfsins tvær milljónir króna á fjárlögum. Það dugar hins vegar skammt,“ segir Anna Kristine. „Staða mála er skelfileg. Við erum með einn starfsmann á launum, Elínu forstöðukonu en hún og sjálf- boðaliðarnir ná rétt að gefa köttunum að éta og drekka. Ef ekki kæmu til matargjafir frá stórum fyrirtækjum væri búið að loka athvarfinu.“ Reykjavíkurborg greiðir 1.500 krónur með hverjum ketti í sjö daga, líka Mosfells- bær og Seltjarnarnes. Önnur sveitarfélög á höfuðborgar- svæðinu leggja Kattholti hins vegar ekki til krónu. Að áliti Önnu Kristine ættu þau að koma að rekstrinum líka, ekki verði farið í „kattgreinarálit“ eftir sveitarfélögum. ,,Ekki hugsum við þegar komið með óskilakött hingað: ,,Nei, við skulum henda þess- um út aftur, hann er úr Hafn- arfirði!“ Raunar koma kettirnir mun víðar að, frá Selfossi, Stokks- eyri, Grindavík og Keflavík, svo dæmi séu tekin, enda ekki í önnur hús að venda fyrir óskilaketti. Anna Kristine hvetur líka félagsmenn í Kattavinafélaginu til að greiða félagsgjöldin en heimtur eru ekki nema um 50%. „Það verða allir að leggj- ast á eitt til að bjarga Katt- holti. Ef það hverfur versnar ástandið til muna. Það þarf að hvetja fólk til að greiða fé- lagsgjöldin sín gegnum Net- banka, það sparar tíma fyrir alla og auðveldar okkur lífið.“ Mikil smithætta Smithætta er mikil í Kattholti. Veikist einn köttur breiðir pestin fljótt úr sér. Tveir dýra- læknar frá Dýraspítalanum í Víðidal sinna eftirliti í athvarf- inu í sjálfboðavinnu. Ekki þarf bara að bæta þjónustuna í Kattholti, að dómi Önnu Kristine. Aðbún- aður mætti vera betri. Brýnt er að útvega stærri búr fyrir kettina, auk þess sem núver- andi húsnæði við Stangarhyl er að mörgu leyti óhentugt. „Okkur dreymir um betra húsnæði. Það er ekkert laun- ungarmál.“ Þrifalegt er í Kattholti enda nýbúið að mála. „Málning gaf okkur málninguna og kunnum við þeim hugheilar þakkir fyr- ir,“ segir Anna Kristine. Lausaganga katta er víða vandamál og Anna Kristine brýnir fyrir fólki að láta gelda högnana sína. Nýtt frumvarp liggur nú fyrir Alþingi þess efnis að finnist ógeltur högni á víðavangi tveimur dögum eftir að hann hverfur er eigandinn réttlaus. Anna Kristine segir Kattavinafélagið vilja lengja þennan tíma í sjö daga en sýnir málinu að öðru leyti skilning. „Þetta er eina leiðin til að bregðast við offjölgun katta.“ Anna Kristine tók við for- mennsku í Kattavinafélaginu fyrr á þessu ári. „Ég fékk bara tölvupóst frá ágætum bókaút- gefanda hér í borg þess efnis að ég hefði verið ráðin í emb- ættið og gat ekki skorast und- an því,“ segir hún brosandi en bókaútgefandinn er vitaskuld Anna Kristine Magnúsdóttir og Elín G. Folha K. hugsa vel og vandlega um kettina í Kattholti. Hver getur pyntað mál- leysingja?

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.