SunnudagsMogginn - 30.10.2011, Blaðsíða 20
20 30. október 2011
hárlosi. Tæplega helmingurinn hefur gengist undir að-
gerð annars staðar áður, sumir vilja láta græða í ör eða
hylja önnur lýti, aðrir vilja láta laga augabrúnir og enn
aðrir þétta skeggvöxt en hann getur haft félagslega þýð-
ingu í sumum samfélögum.
Þeir sem leggjast í stólinn hjá Demir Ilter koma hvað-
anæva og margir frá Íslandi.
„Meðfram náminu í HR veiti ég ráðgjöf og tek viðtöl
við Íslendinga sem hafa hug á að fara í hárflutning, þeim
að kostnaðarlausu,“ segir Ásdís. „Þór Jónsson fór í hár-
flutning hjá Ilter Clinic og sýndi það í sjónvarpinu á Stöð
2. Hann hefur oft verið með mér í viðtölunum því að
margir vilja sjá árangurinn með eigin augum. Þeim
nægir ekki að horfa á myndir af fólki fyrir og eftir að-
gerð. Þeir vilja í mörgum tilvikum fá að þreifa á hárinu
til að sannreyna að það hangi fast,“ segir hún og hlær.
Íslendingarnir skipta mörgum tugum sem hafa lagt
land undir fót til að endurheimta hárvöxt sinn á Ilter
Clinic sem er til húsa í glæsilegu tvílyftu húsi á fögrum
stað í útjaðri Stokkhólmsborgar. Þeim fækkaði þó eftir
bankahrunið 2008. Gengi íslensku krónunnar gagnvart
þeirri sænsku varð svo óhagstætt.
„Við gerum okkur grein fyrir því og þar sem Íslend-
ingar hafa alltaf verið mikilvægir viðskiptavinir okkar
reynum við hvað við getum til að hagræða fyrir þá og
bjóða afslátt frá reglulegri gjaldskrá.“Demir hress í brgaði eftir velheppnaða aðgerð. Svo er bara að b́íða í nokkra mánuði eftir að hársekkir vakni úr dvala.
’
Flestir viðskiptavina
Ilter Clinic eru karl-
menn en þangað leita
líka konur sem eiga um sárt
að binda út af hárlosi.