SunnudagsMogginn - 30.10.2011, Blaðsíða 12

SunnudagsMogginn - 30.10.2011, Blaðsíða 12
12 30. október 2011 Mánudagur Bryndís Björgvinsdóttir Fyrirmynd allra landsmanna, Vigdís Finnboga- dóttir, keypti Fluguna í bókabúð um daginn og fékk hana áritaða – hef aldrei verið jafn- hrædd um að gera stafsetning- arvillu: Fokk, hvernig skrifar maður aftur Vigdís? Lára Björg Björns- dóttir er á leið í jóga á morgun í fyrsta skiptið á ævinni. Ein- hvers staðar í heim- inum mun kvikna í McDonalds á meðan. Þriðjudagur Bragi Valdimar Skúlason Hvers vegna í djúpfrystum dauðanum er eng- inn feisbúkkleikur þar sem hægt er að vinna apa? Ragnhildur Þórð- ardóttir „Það er að- eins ein manneskja sem tekur djúpar beygjur, er ljót í framan og urrar á meðan, og það er hún frænka mín Ragga nagli.“ Fésbók vikunnar flett Það vakti gríðarlega athygli víða um heim þegar spurðist að IBM hygðist draga sig út úr tölvufram- leiðslu fyrir sjö árum, enda hafði fyr- irtæki verið áberandi á því sviði ár- um saman. Helsta djásnið var ThinkPad-fartölvulínan, sem þóttu einkar vel heppnaðar vélar, vel hannaðar og traustar, enda mátti nánast reka niður tjaldhæla með vélunum þó að þær þættu sjálfsagt klunnalegar í dag. Fáir þekktu fyrirtækið sem keypti framleiðsluréttinn á ThinkPad tölv- unum, Lenovo, en tölvugrúskarar þekktu það reyndar undir öðru nafni, Legend, en svo hét það í það minnsta lengi vel. Lenovo er ekkert smáfyrirtæki, var helsta tölvufyr- irtæki Kínverja þegar það keypti ThinkPad og hefur sótt enn í sig veðrið, er nú næsta stærsti tölvu- framleiðandi heims, kemur næst HP. Lenovo framleiðir einnig IdeaPad- tölvur, en þær byggjast á eigin þró- unarvinnu, en ekki hugmyndum frá IBM. Af öðru má nefna að Lenovo er með spjaltölvu í smíðum sem heita mun LePad og einnig snjallsímann LePhone, sem er seldur í Kína sem stendur og væntanlega víðar síðar. Boddíið á vélinni er með stamri gúmmíhúð, allir fletir húðaðir, bæði til að verja hana fyrir hnjaski og eins til að betra sé að sýsla með hana; það er engin hætta á að hún renni úr höndunum á manni. Hliðarnar eru líka hreinlegri og meira að segja undir vélinni; allt stílhreint og vel sniðið. Tengi fyrir netsnúru, sameiginlegt eSATA og tvö USB-tengi til , DisplayPort, HDMI, og rauf fyrir SIM-kort (loks- ins!). Allir sem fást við texta þekkja það hvað lyklaborðið skiptir miklu máli. Í þeim efni hafa ThinkPad- fartölvurnar haft algera yfirburði. Lyklaborðið á þessari vél en engin undantekning, frábært að skrifa á það að öllu leyti. Það er líka einfaldað og lyklar sem enginn notaði nokkurn tímann eru horfnir en til hliðar við lyklaborðið eru hnappar til að hækka og lækka og hljóðnemastýring. Þunn og þróttmikil Þótt það eigi í sjálfu sér að vera aukaatriði, eða svo gott sem, þá vekur fátt meiri hrifningu en þunnar fartölvur og því meiri sem þær eru þynnri. Þeir sem sjá nýju Lenovo ThinkPad X1 reka líka upp undrunaróp, eða það er að minnsta kosti mín reynsla. Græjur Árni Matthíasson arnim@mbl.is Lenovo Kínverskur risi í sókn Skjárinn er gríðarbjartur og skemmtilegur, en óneitanlega nokkur glampahætta. Þar ræður mestu að í skjánum er sérstyrkt gler, svokallað Gorilla Glass, sem fátt bítur á. Í vélinni er innbyggð Intel-skjástýring, HD 3000, sem dugir vel í flesta vinnslu, en ekki vel í þunga grafíkvinnslu eða hágrafíkleiki. ThinkPad eru fínar fartölvur og hafa verið alla tíð, traustar og meðfærilegar klassavélar, en vissulega ekki þær ódýrustu. X1 sker sig ekki úr hvað það varðar þó hún sé heldur nútímalegri en síðasta gerð af ThinkPad sem ég hef skoðað. Hún er ekki nema 1,65 cm að þykkt sam- anbrotin, 33,7 cm á breidd og 23,1 cm á hæð og ekki nema ríf- lega hálft annað kíló að þyngd.

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.