SunnudagsMogginn - 30.10.2011, Blaðsíða 35

SunnudagsMogginn - 30.10.2011, Blaðsíða 35
30. október 2011 35 stjórnarinnar, Landspítalasjóðs Íslands. Jafnframt var stofnaður Minningargjafasjóður Landspítalans til styrktar fátækum, sem þyrftu á spítalavist að halda, og var Ingibjörg einnig formaður hans. Þessi sjóður sinnti afar mikilvægu starfi enda hafði almanna- tryggingum ekki verið komið á fót þegar hér er kom- ið sögu. Var Ingibjörg formaður beggja sjóða til ævi- loka. Beitti hún áhrifum sínum fyrir málinu hvar sem hún gat, m.a. á Alþingi. Var hún skipuð í nefnd til að ákveða lóð, stærð og byggingargerð væntanlegs Landspítala og síðar í byggingarnefnd spítalans. Ingibjörg vann þrotlaust að fjársöfnun fyrir Land- spítalann og var 19. júní ætíð helsti söfnunardagur sjóðsins. Þegar upp var staðið dugðu framlög úr Landspítalasjóðnum til að standa straum af fjórðungi kostnaðar vegna áætlaðs stofnkostnaðar spítalans. Telur einhver að það væri áhlaupsverk að safna svo stórum upphæðum fyrir opinberri byggingu með frjálsum framlögum landsmanna á okkar dögum? Við vígslu spítalans fengu aðstandendur Landspít- alasjóðsins miklar þakkir hvaðanæva af landinu. Sagt var að framlag sjóðsins hefði ráðið úrslitum en ekki skipti minna máli sú barátta fyrir málinu, sem Ingi- björg leiddi á Alþingi. Ekki fengu þessar konur síður þakkir fyrir það að hafa opnað Landspítalann fyrir fátæklingum. Eftir að spítalinn var risinn og tekinn til starfa 1930 hélt Landspítalasjóðurinn áfram starfsemi og var veitt úr honum síðar til byggingar annarra húsa spítalans. Fyrsti þingmaður úr hópi kvenna Ingibjörg hafði verið svo sjálfkjörin í forystusveit í Landspítalamálinu að það kom nokkurn veginn af sjálfu sér að hún skipaði efsta sæti á landslista kvenna til Alþingis árið 1922. Hún var þá þegar orðin landskunn sem skólastjóri Kvennaskólans og fyrir önnur störf að menntamálum auk þess að vera helsti forsvarsmaður Landspítalasjóðsins. Enginn kjósandi efaðist um að hún myndi beita kröftum sínum á Al- þingi í þágu þessara mála. Það gustaði um Ingibjörgu á Alþingi eins og við var að búast. Ekki er víst að það hafi verið þægilegt að vera ein kvenna á þingi og víst er að hún mátti þola athugasemdir og áhrínsorð um kynferði sitt. Til sam- anburðar má nefna að þegar konur buðu fram Kvennalistann 1908 náðu þær fjórar kjöri og höfðu því styrk hver af annarri. Í blaðagrein frá 1930 fjallaði Ingibjörg um þetta og sagði þá m.a.: „Fyrstu konurnar, brautryðjendurnir, verða auðvitað fyrir ýmsu hnjaski aðeins vegna þess að þær eru konur – en slíkt má ekki setja fyrir sig. Þegar konunum fjölg- ar á Alþingi Íslendinga hverfur það að ráðist sé á þær sérstaklega af því að þær eru konur.“ Réttur stúlkna til bóknáms Á Alþingi beitti Ingibjörg sér fyrir fjölmörgum málum og voru mörg þeirra síður en svo „sérmál kvenna“. Auk byggingar Landspítalans má t.d. nefna bætt húsakynni og afnám óhollra íbúða. En það stóð henni nær að berjast gegn óréttlæti í löggjöf, sem bitnaði á konum, og beitti hún sér t.d. fyrir réttarbótum vegna launamála og hjúskapar þeirra. Hún var formaður menntamálanefndar um hríð og barðist fyrir því að stúlkur öðluðust sama rétt og piltar til að ganga í menntaskóla. Í fyrstu mætti hún skilningsleysi margra þingmanna en hafði sigur að lokum. Töldu þessir þingmenn að menntaskólar væru fyrst og fremst fyrir pilta en stúlkur ættu að fara í húsmæðra- skóla ef þær vildu mennta sig frekar. Tók hún margar rimmur um þetta mál í þingsölum við Jónas frá Hriflu og gaf hvorugt nokkuð eftir. Við andlát Ingi- bjargar skrifaði Jónas um hana með virðingu í minn- ingargrein. Ingibjörg sat á átta þingum Nokkru eftir að hún varð þingmaður gekk hún til samstarfs við Íhaldsflokkinn, síðar Sjálfstæðisflokk- inn. Var hún gagnrýnd fyrir það en eflaust taldi hún sig eiga meiri möguleika á því að vinna baráttu- málum sínum framgang í stórum flokki frekar en þingmaður utan flokka. Hún leit jafnframt á sig sem þingmann allra landsmanna, en ekki einungis mál- svara kvenna, og sætti hún einnig ámæli fyrir það. Ingibjörg lést 30. október 1941. Á Alþingi kvaddi forseti sameinaðs þings, Haraldur Guðmundsson, hana m.a. með þessum orðum: „Hún mun jafnan verða talin í fremstu röð þeirra kvenna er tóku að sinna almennum þjóðmálum með fullum réttindum eftir stjórnarskrárbreytinguna 1915 þá er konum var veittur kosningaréttur.“ Brautryðjandi Ingibjörg var virðuleg og skyldurækin kona. Hún giftist ekki og eignaðist ekki börn en varði kröftum sínum óskiptum í hin fjölmörgu þjóðþrifaverkefni, sem hún tók sér fyrir hendur. Henni er lýst svo að hún væri fríð kona og gervileg. Hún þótti einörð og það sópaði að henni hvar sem hún fór. Ljóst er að Ingibjörg er í hópi merkustu Íslendinga á síðustu öld og ættu fleiri að þekkja sögu hennar en raun ber vitni. Hún var sannkallaður brautryðjandi á mörgum sviðum; í menntamálum, heilbrigðismálum, réttindamálum kvenna, íþróttamálum og menningar- málum. Gísli Jónsson íslenskukennari skrifaði m.a. um hana að hún hefði í glæsileik sínum og öðrum mannkostum árum saman verið einingartákn ís- lenskra kvenna. Við ritun þessarar greinar hefur einkum verið stuðst við grein Bjargar Einarsdóttur um Ingibjörgu, sem birtist í öðru bindi greinasafns Bjargar „Úr ævi og starfi íslenskra kvenna“. Höfundur er borgarfulltrúi í Reykjavík. íslenskra kvenna Af tólf börnum Hákons Bjarnasonar og Jóhönnu Þorleifs- dóttur komust upp fjórir synir og ein dóttir og urðu þau öll þjóðkunnir menn. Þorleifur, f. 1863, yfirkennari við Mennta- skólann í Reykjavík, Brynjólfur, f. 1865, kaupmaður í Reykjavík, Lárus, f. 1866, alþingismaður og hæstarétt- ardómari, Ágúst, f. 1875, prófessor í heimspeki við Háskóla Íslands, og Ingibjörg, alþingismaður og skólastjóri Kvenna- skólans í Reykjavík. Málverk af Ingibjörgu H. Bjarnason, fyrsta íslenska alþingismann- inum úr hópi kvenna, er á vegg í Alþingishúsinu. Mynd af Ingibjörgu H. Bjarnason þar sem hún heldur ræðu á Austurvelli 1915. ’ Ingibjörg var virðuleg og skyldurækin kona. Hún giftist ekki og eignaðist ekki börn en varði kröftum sín- um óskiptum hinum fjölmörgu þjóðþrifa- verkefnum, sem hún tók sér fyrir hendur.

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.