SunnudagsMogginn - 30.10.2011, Blaðsíða 35
30. október 2011 35
stjórnarinnar, Landspítalasjóðs Íslands. Jafnframt var
stofnaður Minningargjafasjóður Landspítalans til
styrktar fátækum, sem þyrftu á spítalavist að halda,
og var Ingibjörg einnig formaður hans. Þessi sjóður
sinnti afar mikilvægu starfi enda hafði almanna-
tryggingum ekki verið komið á fót þegar hér er kom-
ið sögu. Var Ingibjörg formaður beggja sjóða til ævi-
loka.
Beitti hún áhrifum sínum fyrir málinu hvar sem
hún gat, m.a. á Alþingi. Var hún skipuð í nefnd til að
ákveða lóð, stærð og byggingargerð væntanlegs
Landspítala og síðar í byggingarnefnd spítalans.
Ingibjörg vann þrotlaust að fjársöfnun fyrir Land-
spítalann og var 19. júní ætíð helsti söfnunardagur
sjóðsins. Þegar upp var staðið dugðu framlög úr
Landspítalasjóðnum til að standa straum af fjórðungi
kostnaðar vegna áætlaðs stofnkostnaðar spítalans.
Telur einhver að það væri áhlaupsverk að safna svo
stórum upphæðum fyrir opinberri byggingu með
frjálsum framlögum landsmanna á okkar dögum?
Við vígslu spítalans fengu aðstandendur Landspít-
alasjóðsins miklar þakkir hvaðanæva af landinu. Sagt
var að framlag sjóðsins hefði ráðið úrslitum en ekki
skipti minna máli sú barátta fyrir málinu, sem Ingi-
björg leiddi á Alþingi. Ekki fengu þessar konur síður
þakkir fyrir það að hafa opnað Landspítalann fyrir
fátæklingum.
Eftir að spítalinn var risinn og tekinn til starfa 1930
hélt Landspítalasjóðurinn áfram starfsemi og var veitt
úr honum síðar til byggingar annarra húsa spítalans.
Fyrsti þingmaður úr hópi kvenna
Ingibjörg hafði verið svo sjálfkjörin í forystusveit í
Landspítalamálinu að það kom nokkurn veginn af
sjálfu sér að hún skipaði efsta sæti á landslista
kvenna til Alþingis árið 1922. Hún var þá þegar orðin
landskunn sem skólastjóri Kvennaskólans og fyrir
önnur störf að menntamálum auk þess að vera helsti
forsvarsmaður Landspítalasjóðsins. Enginn kjósandi
efaðist um að hún myndi beita kröftum sínum á Al-
þingi í þágu þessara mála.
Það gustaði um Ingibjörgu á Alþingi eins og við var
að búast. Ekki er víst að það hafi verið þægilegt að
vera ein kvenna á þingi og víst er að hún mátti þola
athugasemdir og áhrínsorð um kynferði sitt. Til sam-
anburðar má nefna að þegar konur buðu fram
Kvennalistann 1908 náðu þær fjórar kjöri og höfðu
því styrk hver af annarri. Í blaðagrein frá 1930
fjallaði Ingibjörg um þetta og sagði þá m.a.: „Fyrstu
konurnar, brautryðjendurnir, verða auðvitað fyrir
ýmsu hnjaski aðeins vegna þess að þær eru konur –
en slíkt má ekki setja fyrir sig. Þegar konunum fjölg-
ar á Alþingi Íslendinga hverfur það að ráðist sé á þær
sérstaklega af því að þær eru konur.“
Réttur stúlkna til bóknáms
Á Alþingi beitti Ingibjörg sér fyrir fjölmörgum málum
og voru mörg þeirra síður en svo „sérmál kvenna“.
Auk byggingar Landspítalans má t.d. nefna bætt
húsakynni og afnám óhollra íbúða. En það stóð henni
nær að berjast gegn óréttlæti í löggjöf, sem bitnaði á
konum, og beitti hún sér t.d. fyrir réttarbótum vegna
launamála og hjúskapar þeirra. Hún var formaður
menntamálanefndar um hríð og barðist fyrir því að
stúlkur öðluðust sama rétt og piltar til að ganga í
menntaskóla. Í fyrstu mætti hún skilningsleysi
margra þingmanna en hafði sigur að lokum. Töldu
þessir þingmenn að menntaskólar væru fyrst og
fremst fyrir pilta en stúlkur ættu að fara í húsmæðra-
skóla ef þær vildu mennta sig frekar. Tók hún margar
rimmur um þetta mál í þingsölum við Jónas frá
Hriflu og gaf hvorugt nokkuð eftir. Við andlát Ingi-
bjargar skrifaði Jónas um hana með virðingu í minn-
ingargrein.
Ingibjörg sat á átta þingum
Nokkru eftir að hún varð þingmaður gekk hún til
samstarfs við Íhaldsflokkinn, síðar Sjálfstæðisflokk-
inn. Var hún gagnrýnd fyrir það en eflaust taldi hún
sig eiga meiri möguleika á því að vinna baráttu-
málum sínum framgang í stórum flokki frekar en
þingmaður utan flokka. Hún leit jafnframt á sig sem
þingmann allra landsmanna, en ekki einungis mál-
svara kvenna, og sætti hún einnig ámæli fyrir það.
Ingibjörg lést 30. október 1941. Á Alþingi kvaddi
forseti sameinaðs þings, Haraldur Guðmundsson,
hana m.a. með þessum orðum: „Hún mun jafnan
verða talin í fremstu röð þeirra kvenna er tóku að
sinna almennum þjóðmálum með fullum réttindum
eftir stjórnarskrárbreytinguna 1915 þá er konum var
veittur kosningaréttur.“
Brautryðjandi
Ingibjörg var virðuleg og skyldurækin kona. Hún
giftist ekki og eignaðist ekki börn en varði kröftum
sínum óskiptum í hin fjölmörgu þjóðþrifaverkefni,
sem hún tók sér fyrir hendur. Henni er lýst svo að
hún væri fríð kona og gervileg. Hún þótti einörð og
það sópaði að henni hvar sem hún fór.
Ljóst er að Ingibjörg er í hópi merkustu Íslendinga
á síðustu öld og ættu fleiri að þekkja sögu hennar en
raun ber vitni. Hún var sannkallaður brautryðjandi á
mörgum sviðum; í menntamálum, heilbrigðismálum,
réttindamálum kvenna, íþróttamálum og menningar-
málum. Gísli Jónsson íslenskukennari skrifaði m.a.
um hana að hún hefði í glæsileik sínum og öðrum
mannkostum árum saman verið einingartákn ís-
lenskra kvenna.
Við ritun þessarar greinar hefur einkum verið
stuðst við grein Bjargar Einarsdóttur um Ingibjörgu,
sem birtist í öðru bindi greinasafns Bjargar „Úr ævi
og starfi íslenskra kvenna“.
Höfundur er borgarfulltrúi í Reykjavík.
íslenskra kvenna
Af tólf börnum Hákons Bjarnasonar og Jóhönnu Þorleifs-
dóttur komust upp fjórir synir og ein dóttir og urðu þau öll
þjóðkunnir menn. Þorleifur, f. 1863, yfirkennari við Mennta-
skólann í Reykjavík, Brynjólfur, f. 1865, kaupmaður í
Reykjavík, Lárus, f. 1866, alþingismaður og hæstarétt-
ardómari, Ágúst, f. 1875, prófessor í heimspeki við Háskóla
Íslands, og Ingibjörg, alþingismaður og skólastjóri Kvenna-
skólans í Reykjavík.
Málverk af Ingibjörgu H. Bjarnason, fyrsta íslenska alþingismann-
inum úr hópi kvenna, er á vegg í Alþingishúsinu.
Mynd af Ingibjörgu H. Bjarnason þar sem
hún heldur ræðu á Austurvelli 1915.
’
Ingibjörg var
virðuleg og
skyldurækin
kona. Hún giftist ekki
og eignaðist ekki börn
en varði kröftum sín-
um óskiptum hinum
fjölmörgu þjóðþrifa-
verkefnum, sem hún
tók sér fyrir hendur.