SunnudagsMogginn - 30.10.2011, Blaðsíða 47

SunnudagsMogginn - 30.10.2011, Blaðsíða 47
30. október 2011 47 Þ etta fór fram úr okkar björtustu vonum,“ segir Thomas Böhm um þátttöku Íslands í bókastefnunni í Frankfurt, en hann var þýskur bókmenntaráðunautur Sögueyjunnar Íslands. Einróma álit þeirra fjölmörgu sem blaðamað- ur ræddi við á bókastefnunni var að það hefði verið mikið lán að njóta krafta hans á tímabilinu, bæði vegna góðrar yfirsýnar og öflugra tengsla innan þýsks bókmenntaheims og eins vegna mikils metn- aðar fyrir hönd verkefnisins. „Við gátum verið bjartsýn, þar sem við höfðum skipulagt okkur langt fram í tímann og unnið úr helstu smáatriðum, þetta snýst jú allt um þau,“ bætir hann við. „Flestir í teyminu voru saman í Frankfurt mánuði áður en bókastefnan hófst og leystu úr flækj- um sem upp komu, hvaða höfundar kæmu, hver sækti þá, hver færi á hvaða bás, og svo framvegis. Það var aldrei einn um verkefnin, heldur unnu tveir og þrír að þeim saman. Þetta var auðvitað mikil vinna, en það var aldrei stress eða óvissa um að við réðum við þetta. Þar sem við lögðum mikla vinnu í undirbúninginn gátum við verið bjartsýn, en við gátum aldrei verið viss um hvernig uppskeran yrði – hversu dásamlegt yrði að fylgjast með gestum koma í íslenska skálann og upplifa nándina við bókaunnendur á íslenskum heimilum – fara ríkari en þeir komu. Frankfurter Allgemeine Zeitung sagði að þar hefði rifjast upp um hvað bókastefnan snerist fyrr á tímum – gleðina að lesa. Hana væri að finna í íslenska skálanum; Íslend- ingar hefðu ekki misst sjónar á tilganginum með þessu öllu saman.“ – Það er líka mikill árangur að stuðla að útgáfu á yfir 200 íslenskum höfundarverkum í Þýskalandi? „Já, en þú verður að skilgreina það betur. Annars spyr fólk sig hver hafi efni á að kaupa yfir 200 bækur eða tíma til að lesa þær. Það er ástæðan fyrir því að við gáfum út bækling fyrir þýsk bókaforlög, sem byggist á íslenska bókalistanum sem kemur út á Ís- landi fyrir hver jól. Þar veitum við yfirsýn yfir bæk- urnar sem koma út en þeim er kaflaskipt og þar eru til dæmis aðeins tæplega 40 nýjar skáldsögur. Í aðra röndina er hægt að mæla árangurinn út frá arði af verkefninu. Sala á höfundarrétti felur í sér tekjur fyrir íslensk útgáfufyrirtæki og íslenska höf- unda og við getum verið stolt af því hversu vel tókst til. En jafnframt þurfum við að gæta þess að senda út rétt skilaboð í Þýskalandi. Þetta snýst líka um fjöl- breytni og breidd samtímabókmennta á Íslandi. Margir höfundar hafa ekki enn verið þýddir. Og það er ánægjulegt að út eru að koma sígildar sögur, sem ekki hafa verið þýddar áður, bækur eftir Indriða G. Þorsteinsson og Þórberg Þórðarson, Íslendingasögurnar í nýrri þýðingu og hvern hefði dreymt um að ævisaga Snorra Sturlusonar yrði gefin út í Þýskalandi!“ – Fá Þjóðverjar ekki nóg af íslensk- um bókum? „Þetta er aðeins upphafið,“ svarar Böhm og hristir höfuðið sannfærður. „Nú hefur komist á samband milli íslenskra höfunda og þýskra forleggjara. Auðvitað munu ekki allar íslenskar bæk- ur seljast vel, við skulum ekkert vera að blekkja okkur, sumar munu ganga upp og aðrar ekki. Það getur verið tilviljun. En hingað til hefur Taxi 79 selst í yfir 10 þúsund eintökum, fyrsta upplag af öllum bókum Suhrkamp-forlagsins seldist upp og Hall- grímur Helgason komst á metsölulista Spiegel yfir harðkápubækur. Og það hefur rignt jákvæðum dóm- um, svo við skulum krossleggja fingur og vona að jólin verði íslenskum höfundum gæfurík.“ – Hvernig eiga Íslendingar að fylgja þessu eftir? „Það er ekki mitt að ákveða. Ég er ekki í því hlut- verki og ætla ekki að setjast í dómarasæti. En ég get lagt mat á það sem gengið hefur upp hjá öðrum þjóðum. Hollendingar festu í sessi það skipulag, sem mótast hafði er þeir voru heiðursgestir í Frankfurt árið 1992. Þeir starfræktu bókmenntasjóðinn áfram og héldu við upplýsingakerfinu, annars vegar til að sjá um hvernig efni væri undirbúið og kynnt fyrir erlendum útgáfufyrirtækjum og hins vegar til að upplýsa almenning. Vefsíða Sögueyjunnar Íslands er einmitt frábært fordyri íslenskrar menningar. Þetta tvennt er mikilvægt. En svo gafst líka vel hjá Hollendingum að halda í það skipulag að eftir sem áður þurfi erlendar menningarstofn- anir aðeins að þekkja eitt símanúmer til að fá aðstoð. Það brúar gjár og Hollendingar hafa áttað sig á því. Ef ég rek menningarstofnun í Þýskalandi og vil vinna með hollenskum útgef- anda, þá hringi ég í náunga sem heitir Bas Pouw. Erindið getur verið af ýms- um toga, til dæmis að mig vanti sex áhugaverða íslenska höfunda á bók- menntahátíð, fimm íslenskar útgáfur á ráðstefnu eða fimm íslenska blaða- menn í kynningarferð.“ – Spurst hefur að þú takir núna við alþjóðlegri bókmenntahátíð í Berlín. „Nei,“ segir hann og hlær. „Ég mun byrja að hugsa um það 2. janúar árið 2012. Það var skilyrði af minni hálfu þegar ég réð mig þar til starfa. Annað væri ómögulegt og myndi skaða bæði verkefnin. Ég mun ljúka starfi mínu með Íslendingum og síðan taka við keflinu í Berlín. En í nýja starfinu hlakka ég til að bjóða íslenskum höfundum til Berlínar og starfa með bókmenntahátíðinni í Reykjavík. Ég er í ágætu sam- bandi við skipuleggjendur hennar, hef sótt hana þrisvar og er öllum hnútum kunnugur, svo það væri ánægjulegt ef tækifæri gæfist að starfa með þeim.“ Texti Pétur Blöndal pebl@mbl.is Ljósmynd: Kristinn Ingvarsson kring- @mbl.is Síðasta orðið … Thomas Böhm Gátum verið bjartsýn en aldrei viss ’ En í nýja starfinu hlakka ég til að bjóða íslenskum höfundum til Berl- ínar og starfa með bókmenntahátíð- inni í Reykjavík.

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.