SunnudagsMogginn - 30.10.2011, Blaðsíða 6

SunnudagsMogginn - 30.10.2011, Blaðsíða 6
6 30. október 2011 Southampton hefur aldrei orðið enskur meistari í knattspyrnu en hafnaði í 2. sæti mótsins 1983- 84. Þá vann félagið enska bik- arinn 1976 eftir frækinn sigur á Manchester United. Sigurmarkið gerði Bobby gamli Stokes. Margir tóku ástfóstri við Dýr- lingana í upphafi níunda áratug- arins þegar Kevin Keegan lék með liðinu ásamt Mike Channon, sem er markahæsti leikmaður Southampton, David Armstrong, Steve Moran, Steve Williams, Mark Wright, Ivan Golac og fleir- um. Þóttu þeir leika knattspyrnu af hugmyndaauðgi og innlifun. Seinna á níunda áratugnum gerðu Wallace-bræðurnir garðinn frægan hjá Southampton, einkum Danny, sem rétt losaði 1.60 metra og Rod, sem var tröll við hlið hans, 1.70 metrar á hæð. Ray, tvíburabróðir Rods, náði líka nokkrum leikjum en stóð bræðr- um sínum hvergi nærri á sporði. Ástsælasti leikmaður South- ampton er þó án efa ólíkindatólið Matthew Le Tissier, einn skemmtilegasti sparkandinn í Englandssögunni. Þá stóð Peter Shilton um tíma milli stanganna hjá Southampton og Alan Shearer hóf þar feril sinn. Það gerði líka Alex Oxlade-Chamberlain, sem gekk milli bols og höfuðs á Joll- ungunum okkar um daginn. Þar sem undrin una sér vel Goðsögnin Kevin Keegan. Óborganlegur, Matthew Le Tissier. H ið fornfræga félag Southampton hefur farið mikinn á þessu hausti og situr makindalega á toppi b-deildar ensku knattspyrnunnar með þriggja stiga forskot á næsta lið, West Ham United, þegar flaut- að verður til leikja helgarinnar. Kemur þetta gengi mörgum sparkspekingnum í opna skjöldu en Dýr- lingarnir, eins og þeir eru gjarnan nefndir, léku í c-deildinni á liðinni leiktíð. Ekki nóg með það, einungis er hálft þriðja ár síðan félagið fór í greiðslustöðvun og minnstu munaði að það yrði hreinlega lagt niður. Undanfarinn áratugur hefur verið mikil rússí- banareið fyrir stuðningsmenn Southampton. Vor- ið 2003 lék liðið til úrslita um enska bikarinn (laut í lægra haldi fyrir Arsenal) og lauk keppni í átt- unda sæti úrvalsdeildarinnar. Þá tók gengið að síga. Veturinn 2004-05 var ákaflega erfiður og um vorið féll Southampton úr úrvalsdeildinni eftir 27 ára samfellda veru meðal hinna bestu. Á ýmsu gekk í b-deildinni, þar sem Dýrling- arnir dvöldust næstu fjögur árin, og mögulega vakti félagið á þeim tíma mesta athygli fyrir að hafa fóstrað tvo af umtöluðustu ungu leikmönn- unum í Englandi, Theo Walcott, sem Arsenal keypti dýrum dómum 2006, og Gareth Bale, sem gekk til liðs við Tottenham Hotspur ári síðar. Gengið var skrykkjótt og örla fór á erfiðleikum í rekstri félagsins. Illa gekk að útvega nýtt hlutafé en ýmsir auðkýfingar voru orðaðir við félagið, þeirra á meðal Íslandsvinurinn Paul Allen, stofn- andi Microsoft. Haustið 2007 var ljóst að Southampton rambaði á barmi greiðslustöðvunar. Sviptingar héldu áfram á vettvangi stjórnarinnar og markvisst var dregið úr kostnaði til að halda félaginu á floti, leikmenn meðal annars seldir og lánaðir út um allar trissur. Allt kom fyrir ekki, vorið 2009 fór Southampton í greiðslustöðvun. Til að bíta höfuðið af skömminni féll liðið í c- deildina, þar sem það mátti sætta sig við að hírast í fyrsta skipti í hálfa öld. Hafi það ekki verið nægi- legt áfall var Southampton gert að hefja leik með 10 stig í mínus vegna greiðslustöðvunarinnar. Staðan var á allan hátt ömurleg, félagið gat ekki staðið skil á launagreiðslum og starfsmenn voru beðnir að vinna kauplaust þar til lausn var fundin. Ljóst var að nýir eigendur urðu að koma að félag- inu ætti ekki að leggja það niður. Brúnin lyftist loks á stuðningsmönnunum þegar skýrt var frá því að Matthew Le Tissier, einn dáðasti leikmaður félagsins frá upphafi, hefði safnað um sig hópi fjárfesta í því augnamiði að reisa Southampton úr öskustónni. Þau áform runnu á hinn bóginn út í sandinn. Eigandinn lést úr hjartaslagi Inn á sviðið steig í staðinn Markus Liebherr, sviss- neskur kaupsýslumaður, og bjargaði félaginu frá því að leysast upp í frumeindir sínar. Stuðnings- mennirnir voru uggandi í fyrstu en Liebherr sýndi frá fyrstu mínútu að honum var alvara með yfir- tökunni, á fyrstu sex mánuðunum varði hann 3 milljónum sterlingspunda til leikmannakaupa. Ekki stór upphæð í úrvalsdeildarsamhengi en samt meira en nokkuð annað félag í c-deildinni hafði svigrúm til á sama tímabili. Land tók að rísa á ný enda þótt brekkan væri of brött til að snúa strax aftur í b-deildina. Það gerði Southampton hins vegar með bravör síðastliðið vor og hefur engin áform um að horfa um öxl. Heiðruðu menn með þeim hætti minningu eig- andans en Markus Liebherr lést af völdum hjarta- slags í ágúst í fyrra. Félagið þarf þó ekki að kvíða framtíðinni en kyrfilega var búið um alla hnúta varðandi reksturinn. Southampton er nú í eigu dánarbús Liebherrs og stýrt af viðskiptafélaga hans, Ítalanum Nicola Cortese. Bjart er yfir suðurströndinni þessa dagana en Southampton hefur ekki byrjað betur í 75 ár. Heimavöllurinn er lykillinn að góðu gengi en liðið hefur unnið hvorki fleiri né færri en þrettán leiki í röð á St. Mary’s. Síðasta félagið til að fara þaðan með sigur var Manchester United í bikarnum. Dýrlingarnir rísa upp frá dauðum Southampton siglir aftur seglum þöndum eftir fúlviðri Sóknarmiðvellingurinn Adam Lallana er í miklum metum á St. Mary’s. PA Wire/Press Association Images Vikuspegill Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Skipt hefur verið um knatt- spyrnustjóra eins og sokka á St. Mary’s en undanfarinn áratug hafa hvorki fleiri né færri en þrettán menn spreytt sig á starfinu. Þeirra á meðal Harry Redknapp, George Bur- ley, Nigel Pearson og Alan Pardew. Nigel Adkins stýrir Southampton nú með þess- um líka prýðilega árangri – all- tént enn sem komið er. Tíð stjóraskipti Stjórinn: Nigel Adkins. holabok.is/holar@holabok.is Glæsilegt ættfræðirit. Ómissandi fyrir þá sem eru af Engeyjarætt sem og áhuga- menn um ætt- fræði og þjóð- legan fróðleik. ENGEYJARÆTT

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.