SunnudagsMogginn - 30.10.2011, Blaðsíða 37

SunnudagsMogginn - 30.10.2011, Blaðsíða 37
30. október 2011 37 J æja þá er veturinn kominn á dagatalinu, þó svo manni hafi fundist hann hafa komið fyrr með köldu veðri, næturfrosti, hálku, kvefi, flensu og öðrum fylgikvillum. Þegar ég var strákur voru mun meiri hátíðahöld á sumardaginn fyrsta en á fyrsta vetrardag. En nú er ansi mikið að gerast í kringum fyrsta vetrardag og tengist það íslensku kjötsúpunni sem er frábært, kaupmenn á höfuðborgarsvæðinu og víða um land gera kjötsúp- unni hátt undir höfði og síðustu fjögur eða fimm ár hefur þetta verið gert skipulega af frumkvæði www.lambakjot.is í samstarfi við framleiðendur, kaupmenn og aðra. Átakið er vel kynnt og aug- lýst í blöðum og víðar, það er gaman að sjá t.d. Hagkaup og Krón- una auglýsa saman kjötsúpudaginn. Meira að segja sænska versl- unarundrið Ikea býður upp á kjötsúpu í tilefni dagsins. Einhvers staðar heyrði ég að hópur húsbílaeigenda hefði mætt í Ikea í kjöt- súpu, gist í bílum sínum á planinu um nóttina og snætt síðan þar morgunverð áður en hann hélt til síns heima. Þeir sem skara fram úr í kjötsúpugleðinni að mínu mati eru veitingamenn og versl- unareigendur við Skólavörðustíg og nágrenni. Þeir safnast saman á nokkrum stöðum og bjóða gestum og gangandi upp á dýrindis súpu með Úlfar Eysteinsson í broddi fylkingar, hann stóð fyrir framan Hegningarhúsið á Skólavörðustíg með súpu og sitt fólk. Úlfar er ekki óvanur að taka þátt í stórum matarhátíðum, enda einn af máttarstólpum og skipuleggjendum Fiskidagsins mikla á Dalvík. Reyndar finnst mér svolítið skrítið að segja ekki orðið „hvalur“ í sömu setningu og „Úlfar Eysteinsson“, en hann er mik- ill fagmaður og er jafnstoltur af íslenskri kjötsúpu og ég og margir starfsbræður okkar. Það er algjörlega til fyrirmyndar hvað versl- unareigendur á Skólavörðustígnum taka mikinn þátt með alls kyns tilboðum og uppákomum. Upplifunin minnti mig á Portobello- eða Camden Town-markaðina í London eða jafnvel Le Boqueria á Römblunni í Barcelona. Ég var með veislu þetta kvöld þar sem ég bauð ekki upp á kjötsúpu og ég hálfskammaðist mín fyrir það, hef ákveðið á næstu árum muni ég alltaf bjóða upp á íslenska kjötsúpu fyrsta vetrardag, enda er súpan gott dæmi um þjóðlegan mat sem hefur tekið breytingum og lagað sig að breyttum matarvenjum í gegnum tíðina. Ég, systkini mín og frænkur gerum t.d. kjötsúpu sem ættuð er frá afa, öll tölum við um að við séum að gera súpuna hans, þrátt fyrir að súpuna gerum við oft með beinlausu kjötu, fersku grænmeti, hjá sumum með hrísgrjónum, öðrum byggi og einhverjum haframjöli, fæstir nota súpujurtir og hjá öllum er minni fita. Öll berum við réttinn fram í súpudisk, en ekki súpuna í hliðardiski þar sem kjötið á beini og kartöflur eru á aðaldiskinum eins og hjá afa. Að endingu vil ég þakka þeim sem koma að þessu verkefni og hvetja þá til enn frekari dáða á næstu árum. Lifi íslenska kjötsúpan! Matur Friðrik V Morgunblaðið/Kristján þrjá ákæruliði sem Óli Björn telur hafa vegið þyngst í ljósi þess sem síðar gerðist. Í þriðja hluta bókarinnar er farið yfir þær afleiðingar sem niðurstaða dómstóla hafði fyrir íslenskt samfélag og starfs- hætti viðskiptalífsins. „Það versta sem fyrir kemur í rétt- arríkinu er að dómstólarnir sveiflist eftir almenningsálitinu,“ segir Óli Björn. „En dómstólarnir brugðust með tvennum hætti; þeir viku sér undan því að taka efnislega afstöðu til mikilvægra ákæru- liða. Í öðru lagi teygðu þeir sig ótrúlega langt í lögskýringum til að komast að niðurstöðu sem ég held fram að sé röng. Þá er ég ekki að taka afstöðu til sektar eða sýknu þeirra sem sættu ákæru. Dómaframkvæmd hefur áhrif á sam- skipti einstaklinga og fyrirtækja. Í þessu tilviki var það okkur ekki til góðs. Það leiddi til verri niðurstöðu en annars. Hluti af skýringunum er vegna skipu- lags dómsmála sem er fráleitt sem stend- ur. Það hvernig staðið er að skipun dóm- ara eftir lagabreytingarnar árið 2010 er jafnvel verra en það var. Núna er nefnd sem metur þá ein- staklinga sem sækja um að verða dóm- arar. Við erum ennþá með þaðkerfi að lokaður klúbbur örfárra manna ræður því í raun hverjir eru skipaðir og hverjir ekki til setu í Hæstarétti. Í gömlu lög- unum var skylt að leita umsagnar Hæsta- réttar á umsækjendum en dómarar tóku sér vald og röðuðu umsækjendum í sér- staka hæfnisröð. Engin lagastoð var fyrir því að Hæstiréttur væri með huglægt mat á hæfi og hæfni. En með þessu var rétt- urinn einfaldlega að reyna að tryggja völd sín og áhrif. Lagabreytingin árið 2010 gerir sér- stakri dómnefnd skylt að taka afstöðu til þess hvaða umsækjandi er hæfastur. Nýju lögin styrkja því stöðu þessa fá- menna hóps manna innan dómskerfisins. Það er ekki eðlilegt að svona fámennur hópur ráði því hverjir sitji í æðsta dóm- stól ríkisins. Afleiðingin er sú að lögfræð- ingar halda að sér höndum við gagnrýn- ina og aðhaldið verður lítið, því margir þeirra gera sér kannski vonir um að hljóta náð og vera skipaðir í Hæstarétt.“ Opnar yfirheyrslur í Alþingi Aðspurður hvort fyrirkomulagið hafi verið eitthvað betra þegar ráðherra gat ráðið valinu einn segir hann að það hafi ekki heldur verið gott, en þó skárra. „Hvorttveggja er slæmt en ráðherra ber þó pólitíska ábyrgð og sækir umboð sitt til kjósenda,“ segir Óli Björn. „En auð- vitað á þetta ferli að vera opnara. Opnar yfirheyrslur í Alþingi þar sem skoðuð er afstaða umsækjenda til stjórnarskrár- innar og aðrar skoðanir hans og svo væri það bara Alþingi sem annaðhvort myndi samþykkja eða synja. Það væri miklu heilbrigðara kerfi. Almenningur getur fylgst með og myndað sér sjálfstæðar skoðanir. Og það er mikilvægt þegar kemur að æðsta dómstóli landsins. Það er örugglega hægt að finna enn aðrar leiðir en eins og er þá er þetta kerfi mjög slæmt. Þetta er fimm manna dómnefnd sem sér um valið og Dómsmálaráðherra er bundinn af niðurstöðu þessarar nefnd- ar.“ Aðspurður hvort hann hafi þegar feng- ið einhver viðbrögð frá lögfræð− ingum segir hann að bókin sé svo ný− komin út. „En ég er samt búinn að fá viðbrögð frá nokkrum starfandi lögfræðingum sem virðast vera í flestu sammála því sem ég er að skrifa. Nú verða lagðar fram ákærur í um- fangsmiklum málum og ég hef ástæðu til að óttast að réttindi þeirra sem sæta ákæru séu ekki jafn varin og menn vilja halda. Staða hugsanlegra sakborninga sé veikari núna en við gerum kröfu til í rétt- arríki vegna andrúmsloftsins í samfélag- inu. Ég er að hvetja til að dómstólarnir láti ekki hrekja sig út í eitthvert fen. Að ekki sé verið að nota almenningsálitið til að hafa áhrif á dómstólana,“ segir Óli Björn. Morgunblaðið/RAX ’ Opnar yfirheyrslur á Alþingi þar sem skoðuð er afstaða umsækjenda til stjórn- arskrárinnar og aðrar skoðanir hans og svo væri það bara Alþingi sem ann- aðhvort myndi samþykkja eða synja. Það væri miklu heilbrigðara kerfi.“

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.