SunnudagsMogginn - 30.10.2011, Blaðsíða 19
30. október 2011 19
Demir skoðar árangurinn
eftir fyrstu aðgerðina á
Göran Schillström.
Göran Schillström veitti Sunnudags-
mogganum góðfúslegt leyfi til að fylgjast
með aðgerð sinni hjá Ilter Clinic og um-
breytingu úr sköllóttum manni í hár-
prúðan.
Eins og sjá má á myndaröðinni á fyrstu
opnu, þar sem fyrst má sjá árangurinn
eftir flutning á rúmlega 2500 hársekk-
jaklösum og síðan eftir flutning á 2000
klösum í viðbót, alls um 9000 hárstráum,
hefur hann snúið náttúrulegri þróun við.
„Af hverju fór ég í aðra aðgerð eftir þá
fyrri?“ svarar Göran. „Af því að ég mundi
halda áfram að missa hárið og aftur
verða þunnhærður og við því segi ég bara
nei.“
Hann telur það hafa verið einhverja
bestu ákvörðun sem hann hefur tekið að
fara í hárflutning.
„Ég get ekki hugsað mér að hafa ekki
þann hárvöxt sem ég endurheimti. Ég
skildi það ekki áður hve miklu máli hárið
skiptir og hvað ég í raun saknaði þess.
Þegar ég horfi á ljósmyndir af mér frá því
skömmu fyrir aðgerðina finnst mér ég líta
út fyrir að vera tíu árum eldri en ég er.
Hárið hefur svo ótrúlega mikið að segja,
miklu meira en ég gat ímyndað mér.“
Tíu mánuðir eru liðnir frá því að Göran
fór í aðgerðina síðast. Hann er að mestu
hættur að hugsa um hárið á sér og finnst
hvíld í því.
„Ég er afar ánægður með árangurinn.
Staðreyndin er sú að þetta hefur gengið
framar væntingum og hver veit nema
fleiri hársekkir eigi eftir að vakna af
dvala,“ segir hann og bætir við: „Ég verð
ekki var við neinar aukaverkanir, hef
óskerta tilfinningu, engar bólur í hárs-
verðinum, engin spenna í húðinni eða
óþægindi og umfram allt engin ör. Ég er
enn með þykkt hár í vöngum og það get-
ur enginn séð að búið sé að fjarlægja
4500 hársekki. Mér finnst hárið á mér
minna á hvernig það var áður en ég fór að
missa það og sú tilfinning er mjög góð.“
Besta ákvörðun lífs míns