SunnudagsMogginn - 30.10.2011, Blaðsíða 30

SunnudagsMogginn - 30.10.2011, Blaðsíða 30
30 30. október 2011 Á Alþjóðageðheilbrigðisdeg- inum, sem haldinn var 10. október sl., voru ungum manni, Héðni Unnsteinssyni, afhent hvatningarverðlaun forvarn- arsjóðsins ÞÚ GETUR. Af því tilefni flutti Héðinn ræðu, þar sem hann sagði m.a.: „Á þeim árum er ég kom fyrst að málaflokknum um og upp úr 1992, skömmu eftir að ég hafði upplifað mína fyrstu maníu og fengið þjónustu geð- lækna í fyrsta sinn, höfðu ekki margir tjáð sig opinberlega um eigin geðraskanir né var umræða um geðheilbrigðismál í samfélaginu almennt mikil. Menn eins og Gunnar Kvaran, sem hér spilaði fyrr í dag, hafði tjáð sig árið 1986 um eigin geðröskun.“ Héðinn Unnsteinsson hefur á und- anförnum árum unnið í tveimur ráðu- neytum, fyrst heilbrigðisráðuneyti og nú forsætisráðuneyti. Í ræðu sinni sagði hann: „Fyrir stuttu átti ég samtal við háttsettan embættismann í öðru ráðuneyti, sem spurði mig hvers vegna ég hefði skipt um ráðuneyti. Ég sagði honum að ég hefði ekki fengið það umboð, sem ég hefði óskað við það að vinna að geðheilbrigðismálum, sem ég hefði menntað mig til, öðlast reynslu til og haft ástríðu til að vinna að. Viðbrögð hans voru: „Það er skiljanlegt, þú misstir allan trúverðugleika, tiltrú og traust er þú veiktist árið 2008.“ Ég horfði á hann og þagði, en spurði svo hvort hann teldi að annað hefði verið upp á teningnum hefði ég verið frá vinnu vegna krabbameins eða sykursýki. Það var fátt um svör.“ Héðinn Unnsteinsson er einn í hópi nokkurra ungra eldhuga, sem hafa kynnzt geðröskunum af eigin raun eða vegna ná- inna tengsla við þá, sem fyrir þeim hafa orðið, gengið fram fyrir skjöldu og hafið opinbera baráttu fyrir því að auka skilning almennings á þessum sjúkdómum. Í ræðu sinni á dögunum minnti hann á þá ábend- ingu Guðrúnar Katrínar Þorbergsdóttur heitinnar forsetafrúar á Alþjóðageðheil- brigðisdeginum fyrir 16 árum, þegar hún tók berkla sem dæmi um sjúkdóm, þar sem tekizt hefði að vinna bug á hræðslu með fræðslu og með því að höfða til ríkrar sam- hjálpar í íslenzku samfélagi. Héðinn dró jákvæðar ályktanir af um- mælum embættismannsins í ræðu sinni. Hann sagði: „Ég var þakklátur embættismanninum fyrir að opinbera fyrir mér á einlægan hátt þá 9/10 hluta ísjaka fordóma, sem sjaldnast birtast í mismunun en birtust mér þarna í heild sinni. Þetta sagði mér það að …enn (er) langt í land hvað viðvíkur skilningi á geðröskunum …að glíman við fordóma er endalaus …ég (velti) fyrir mér virði þess að lifa óklofinni tilveru. Erum við að fórna starfsframa, fjölskyldulífi og því að vera tekin sem gildir meðborgarar með því að koma til dyranna eins og við erum klædd?“ Það þarf á stundum ofurmannlegan kraft til að takast á við geðsjúkdóma. En til viðbótar þarf mikinn kjark og hugrekki til að ganga fram fyrir skjöldu eins og Héðinn Unnsteinsson hefur gert og hefja baráttu fyrir stöðu geðsjúkra í samfélag- inu. Héðinn var bæði hugmyndafræðing- urinn og drifkrafturinn á bak við Geð- ræktarverkefnið fyrir nokkrum árum, sem leiddi til mikilla umræðna um þenn- an málaflokk og víðtækrar fræðslu- starfsemi. Héðinn Unnsteinsson er ekki einn á ferð en ekki ofmælt að hann sé fremstur meðal jafningja á þessu sviði. Á nokkrum undanförnum árum hefur ung kona, Unnur H. Jóhannsdóttir, látið til sín taka með afgerandi hætti, m.a. og ekki sízt hér á síðum Morgunblaðsins. Hún hefur auk þess unnið að rannsóknum á umfjöllun fjölmiðla um geðraskanir, sem starfs- menn fjölmiðla geta haft mikið gagn af að kynna sér. Fjölmiðlar geta með umfjöllun sinni dregið úr fordómum gagnvart þess- um sjúkdómum en þeir geta líka ýtt undir slíka fordóma, ef skilningur er ekki fyrir hendi á meðal starfsmanna þeirra. Það þarf að sýna varkárni, þegar fjallað er um geðsjúkdóma í tengslum við glæpi. Og það er umhugsunarefni, hvort sú ýkta mynd af geðsjúku fólki, sem stundum birtist t.d. í kvikmyndum, er til þess fallin að draga úr fordómum. Önnur kona, Herdís Benediktsdóttir, hefur hvað eftir annað á allmörgum und- anförnum árum fjallað um eigin reynslu af þessum erfiða sjúkdómi. Báðar hafa þær Unnur og Herdís sýnt mikið hugrekki og þrek, annars vegar með því að takast á við sjúkdóminn, hins vegar með því að miðla reynslu sinni af þeirri baráttu til annarra. Það hefur verið lærdómsríkt að fylgjast með þessu unga fólki og kynnast því. Krafturinn í þeim öllum þremur er aðdá- unarverður. Lífsreynsla þeirra og ann- arra, sem hafa tekizt á við þennan sjúk- dóm, er nokkuð, sem við hin munum aldrei skilja til fulls. En við getum veitt þeim stuðning og eigum að gera það. Slíkan stuðning hefur annar ungur maður veitt í verki því fólki, sem tekst á við geðraskanir. Hann heitir Hrafn Jök- ulsson. Þegar svo virtist, sem athvarfi fyr- ir geðsjúka við Hverfisgötu, sem nefnist Vin og Rauði krossinn hefur rekið, yrði lokað vegna fjárskorts hóf Hrafn Jökuls- son baráttu fyrir því að breyta þeirri ákvörðun. Hann hefur sýnt jafnótrúlegan kraft í því og þau Héðinn, Unnur og Her- dís á sínum vettvangi. Og yfirgnæfandi líkur á að honum hafi með samstarfsfólki sínu tekizt að bjarga Vin. Þetta eru eldhugar. Þau berjast af ástríðu. Þau gefast aldrei upp. Þau bíða stundum ósigur í eigin baráttu en þau rísa alltaf upp. Við hin getum margt af þeim lært. Ungir eldhugar Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@styrmir.is L eikarinn, leikstjórinn og síðar kvikmynda- gerðarmaðurinn Orson Welles var aðeins 23 ára að aldri þegar hann gerði svo raunverulegan útvarpsþátt eftir Innrásinni frá Mars (The War of the Worlds), sögu H.G. Wells, að fólk taldi í raun og veru að heimurinn hefði orðið fyrir árás Marsbúa. Þátturinn var á dagskrá CBS-útvarpsins í sviðsetningu Mercury Theatre on the Air. Þátturinn var gerður í til- efni hrekkjavökunnar og var klukkustundarlangur. Welles leikstýrði og var sögumaður í leikritinu, sem var að stórum hluta sett upp eins og röð fréttainnskota, vel þekkt form á þeim tíma. Það sem gerði þetta enn trú- verðugara var að engar auglýsingar voru í þættinum. Uppsláttur blaðanna á hræðslu almennings var mikill dagana eftir flutning útvarpsleikritsins. Þau gagnrýndu mjög að leikritið hefði líkt eftir fréttaflutningi og ýmsar opinberar persónur tóku undir þennan söng. Útvarps- leikritið var vissulega sannfærandi frásögn og enn- fremur var búið að flytja sögusviðið frá Englandi eins og í bókinni til bæjarins Grover’s Mill í New Jersey. Til að leikararnir næðu rétta tóninum í fréttaflutningnum lét Welles þá hlusta á útvarpsmanninn Herbert Morrison flytja fréttir af Hindenburg-slysinu. Leikritið innsiglaði frægð Welles, eftir þetta varð ekki aftur snúið. Undrabarn og frægðarsólin reis hratt Orson Welles var fæddur 6. maí árið 1915 í Wisconsin í Bandaríkjunum. Móðir hans var píanóleikari og faðir hans uppfinningamaður. Welles, sem var munaðarlaus frá 15 ára aldri, byrjaði að leika 16 ára. Tvítugur vakti hann athygli fyrir að setja sviðsetja Macbeth eingöngu með svörtum leikurum. Hann var 22 ára þegar hann lék vinsælustu útvarpshetju Bandaríkjana, Lamont Cran- ston eða Skugga, og ári síðar var komið að Innrásinni frá Mars. Eftir það var honum boðið að koma til Hollywood og gera nánast það sem hann vildi og hóf kvikmyndafer- ilinn á því að búa til eitt af meistaraverkum aldarinnar ekki orðinn 26 ára gamall. Það er myndin Citizen Kane, sem iðulega prýðir efsta sætið í kosningum um bestu myndir sem gerðar hafa verið enda byltingarkennd tímamótamynd. Welles lést í Los Angeles sjötugur að aldri, hinn 10. október 1985. ingarun@mbl.is Skelfing eftir út- varpsleikrit Leikstjórinn Orson Welles eins og hann leit úr árið 1937. Ljósmynd/Carl Van Vechten ’ Fólk taldi í raun og veru að heimurinn hefði orðið fyrir árás Marsbúa. Forsíður helstu dagblaða greindu frá uppnáminu sem út- varpsleikritið olli meðal almennings. Á þessum degi 30. október 1938

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.