SunnudagsMogginn - 30.10.2011, Blaðsíða 42

SunnudagsMogginn - 30.10.2011, Blaðsíða 42
42 30. október 2011 Þ essi bók tók mjög mikið á mig sálarlega þegar ég var að skrifa hana,“ segir Steinunn Sigurð- ardóttir rithöfundur og vísar þar til nýjustu skáldsögu sinnar, Jójó, sem nýverið kom út hjá Bjarti. „Ég hef alltaf tekið það mjög nærri mér að vita af börnum sem fullorðna fólkið svíkur og hefði þess vegna frekar viljað forðast þetta verkefni. En á sama tíma fannst mér ég eiginlega ekki maður með mönn- um nema ég reyndi að leggja mitt af mörkum í skáldskap til þess að tala um börn, þann háska sem þau geta lent í og skaðann sem af getur hlotist.“ Í Jójó segir af einstöku sambandi tveggja en mjög svo ólíkra karlmanna sem bindast órjúfanlegum vináttubönd- um. Mennirnir tveir eru eins ólíkir og hugsast getur með tilliti til þjóðernis, starfs og stöðu, því annar þeirra er virðu- legur, flottur, ungur og farsæll krabba- meinslæknir meðan hinn er óhrjálegur franskur útigangsmaður sem lendir í meðferð hjá þeim fyrrnefnda. „Í ljós kemur að það er leyndarmál sem tengir þá,“ segir Steinunn og tekur fram að erf- itt sé að tala um bókina án þess að segja of mikið og spilla þar með lestrinum fyrir væntanlegum lesendum. „Ég get þó sagt að bókin byrjar á því drama að læknirinn fær í hendurnar sjúkling sem hann vill helst ekki hafa neitt með að gera og myndi helst vilja feigan. Í kjölfarið lendir hann í sálarháska því hann veit ekki hvernig hann á að höndla aðstæðurnar.“ Barnið ofurselt aðstæðum sínum Hvernig kom þessi saga til þín? „Yfirleitt veit ég voða lítið um það hvernig sögurnar mínar verða til. Sem dæmi get ég nefnt að þegar ég er spurð um tilurð Góða elskhugans þá get ég í mesta lagi sagt að það hafi verið nafn á leiði sem ég sá fyrir 20 árum sem varð kveikjan að bókinni. Ég veit reyndar ekki lengur hvar leiðið er, en aðalatriðið er að konan hét Doreen Ash. Það er hins vegar ekkert launungarmál að einn helsti drifkraftur þess að ég skrif- aði Jójó er reiði og frústrasjón yfir því hvernig farið er með börn. Þegar kemur að réttindum barna þá lifum við á mið- öldum. Ef barn er alið upp við ofbeldi eða óþolandi aðstæður þá hefur það ekki fræðilegan möguleika á því að koma sér út úr þeim ef foreldrarnir hylma nógu vel yfir það sem er að gerast á heimilinu. Barnið er ofurselt aðstæðum sínum og það er óþolandi,“ segir Steinunn og tekur fram að hún sé einnig mjög hugsi yfir því hversu erfitt geti reynst fyrir börn að segja frá ofbeldinu og vera trúað. Vandamál hvað má segja mikið Er erfitt fyrir þig sem höfund að takast á við þetta efni? „Þetta er í rauninni allt alveg djöfl- inum erfiðara. Í Góða elskhuganum leyfði ég mér að skrifa um hamingju í hluta bókarinnar. Hamingjan er gagnsæ, hún er sjálfsögð, hún er jákvæð. En í raun er miklu erfiðara að skrifa um hana en að skrifa um sorg. Í Jójó er það hins vegar miðlægt vandamál hvað má segja mikið. Hvernig miðla ég því með skýrum hætti hvað er í gangi án þess að fara yfir strik- ið.“ Nú hefur þú í síðustu bókum þínum kosið að skrifa út frá sjónarhóli karl- manna. Hvað veldur? „Það er reyndar auðveldara að skrifa út frá sjónarhóli karla, því þá fæ ég að ímynda mér eins og mér sýnist. Það er erfiðara að skrifa um kvenfólk því ég stend því nær og þá er hættan sú að fjar- lægð skorti. Þetta er hins vegar ekki til þess að búa í haginn fyrir mig heldur af því að sögurnar koma svona til mín á hverjum tíma.“ Hef aldrei skrifað neitt þessu líkt áður Talandi um fjarlægð þá vekur það at- hygli að ólíkt fyrri bókum þínum þá er Ísland víðs fjarri í Jójó. Hafa búferla- flutningar þínir frá Frakklandi til Berl- ínar árið 2008 haft sín áhrif eða ertu meðvitað að reyna að skrifa þig inn á Skrifin tóku mjög mikið á sálarlega Steinunn Sigurðardóttir hefur sent frá sér nýja skáldsögu sem nefnist Jójó. Segir hún einn helsta drifkraft þess að hún skrifaði bókina vera reiði og frústrasjón yfir því hvernig farið er með börn. Texti: Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Mynd: Kristinn Ingvarsson kring@mbl.is N emandi spurði nú í vikunni: Hvort er réttara að tala um að slíta samvistir eða slíta sam- vistum? Lítum á sögnina slíta. Sögnin slíta hefur nokkrar merkingar og hún stýrir ýmist þolfalli eða þágufalli: slíta eitthvað eða slíta einhverju, og það vill svo til að merkingin er ekki sú sama ef fallstjórnin er önnur. Slíta, í merkingunni ,skilja að, taka í sundur, slíta í tvennt eða rífa,‘ tekur með sér þolfall. Menn slíta band, snúru eða taug, slíta eitthvað upp, jafnvel með rót- um, menn verða stundum að slíta sig lausan, slíta sig frá verki þótt þeim sé það þvert um geð, og einnig er unnt að slíta einhvern af sér sem manni þykir leið- inlegur eða þreytandi. Í öllum þessum dæmum stýrir sögnin þolfalli og merk- ingin er í grundvallaratriðum hin sama: ‚taka í sundur eða skilja að‘. Náskyld þeirri merkingu er merkingin að ‚tæta sundur‘ sem algeng er í fornsögum þegar hrafnar eða úlfar slíta hræ að loknum orr- ustum. Þegar sögnin slíta stýrir þágufalli, slíta einhverju, er um tvær merkingar að ræða: Fyrri merkining er sú að eitthvað ‚eyðist, lúnar, slitnar eða þreytist af notkun eða aldri‘: Slíta má fatnaði eða áhöldum og menn verða margir hverjir slitnir af elli. Nokkuð kaldhæðið dæmi um notkun sagnarinnar slíta í þessari merkingu má finna í Gísla sögu Súrssonar þegar Börkur hinn digri heimtar af Ingjaldi í Hergilsey að hann selji fram sakamanninn Gísla Súrsson en hótar honum lífláti ella. En Ingjaldur svarar svo: „Eg hefi vond klæði og hryggir mig ekki þó að eg slíti þeim eigi gerr.“ Síðari merking sagnarinnar slíta með þágufalli er að ‚enda eitthvað eða rjúfa, ljúka einhverju eða láta eitthvað hætta‘. Menn slíta tali, slíta fundi eða þingi, þjóð- höfðingjar slíta viðræðum, par getur slitið sambandi sínu eða trúlofun sinni og í fornsögum slitu menn búi eða bardaga í þágufalli. Rétt er að geta þess að þolfalli bregður fyrir með sögninni slíta í þessari merk- ingu frá fornu fari við hlið þágufallsins. Þeir slitu talinu eða talið, slitu þinginu eða þingið, slitu veislunni eða veisluna. Orðið samvist eða samvistir er ein teg- und af samskiptum manna sem eiga sér upphaf og endi, líkt og fundur, þing, eða trúlofun og líklega er eðlilegast og al- mennast í nútímamáli að samvistum sé slitið í þágufalli líkt og fundi, þingi eða trúlofun. Að slíta samvistir í þolfalli getur samt engan veginn talist rangt. Þegar Þorgeir Ljósvetningagoði mælir fyrir kristni á Íslandi leggur Ari fróði hon- um þessi orð í munn: „Það mun verða satt, er vér slítum í sundur lögin, að vér munum slíta og friðinn.“ Hugsanlegt er að Þorgeir hafi litið á friðinn eins og þing eða samtal og að með því að slíta friðinn væri friði einfaldlega lokið. Heldur er það samt bragðdauf notkun sagnarinnar. Hitt er líklegra að Þorgeir hafi haft í huga þá merkingu sagnarinnar að ‚rífa eða tæta sundur‘ líkt og þegar hrafnar slíta hræ. Og satt að segja er ólíkt mergjaðra að hugsa sér lögin og friðinn slitin og tætt af ósætti landsmanna um hinn nýja sið. Úr því að minnst er á ófrið má geta þess að í fréttum er stundum sagt frá því að stríðandi aðilar hafi samið um vopnahlé, jafnvel varanlegt vopnahlé. Ég bið les- endur velta fyrir sér hvort hlé geti verið varanlegt og hvort hepplegra er að slíta hléið eða slíta hléinu. Framundan er dagur íslenskrar tungu. Látum oss vona að fjölmiðlaumræðan verði ekki með sama jarðarfararsniðinu og undanfarin ár. Losum okkur við gam- alþreytt tuð um málspillingu unga fólks- ins og áhrif enskunnar, og sleppum því hvað íslenskan á skammt í að bætast í flokk útdauðra tungumála í heiminum. Við getum notað daginn í svo margt ann- að, þar á meðal góða og gagnrýna umræðu um hlutverk tungumálsins í menningu og samskiptum, og hvernig við notum eða misnotum tungumálið í pólitískri um- ræðu. Það mætti til dæmis ræða við stjórnendur kennaramenntunar í landinu og spyrja hvað gert sé til að búa leik- og grunnskólakennara undir að ausa af lind- um bókmenntanna með öllum börnum og kenna þeim að nota móðurmál sitt af kunnáttu í námi, leik og starfi. Lifið heil! Slitnar friður? ’ Losum okkur við gamalþreytt tuð um málspillingu unga fólksins og áhrif ensk- unnar, og sleppum því hvað íslenskan á skammt í að bætast í flokk útdauðra tungumála í heiminum. El ín Es th er Pólfara- félagið Málið Þá er kominn tími til að slíta fundinum... Getum við ekki frekar bara hætt og farið heim? Tungutak Baldur Sigurðsson balsi@hi.is Lesbók

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.