SunnudagsMogginn - 30.10.2011, Blaðsíða 25

SunnudagsMogginn - 30.10.2011, Blaðsíða 25
30. október 2011 25 komið sé með óskilaketti þangað á hverj- um einasta degi sem Guð gefur. Þeir eru misjafnlega á sig komnir. „Okkar hlutverk er að hlúa að þeim og reyna að útvega þeim heimili. Lögum samkvæmt ber okk- ur að svæfa þá eftir sjö daga séu þeir ennþá hjá okkur en það er algjört neyð- arúrræði,“ segir Elín og bætir við að veik- ustu og elstu kettirnir séu svæfðir fyrst. Rannsakandi augnaráð Elín og Anna Kristine taka á móti útsend- urum Sunnudagsmoggans þetta síðdegi ásamt Bjarti, eina kettinum sem er með lögheimili í Kattholti. Hann er arftaki hins víðfræga Emils sem sneri upp loppunum fyrir nokkrum árum. Bjartur er stæðilegur og rauðbirkinn og heilsar okkur með rannsakandi augnaráði og valdslegu mjálmi. Eins og til að minna okkur á að við erum gestir í hans húsum. Af 600 köttum sem komið hafa í Katt- holt á árinu hafa 93 snúið aftur á sitt eigið heimili og 140 fengið nýtt heimili. Um 60 eru ennþá í athvarfinu. Hinir hafa sofnað svefninum langa. Húsakynnin eru tvískipt. Annars vegar hótelið, þar sem kettir dveljast meðan eigendur þeirra bregða sér af bæ, og hins vegar álma fyrir heimilislausa eða týnda óskilaketti. Hugguleg stemning er á hótelinu enda vita kettirnir að þeir verða sóttir aftur af eigendum sínum. Nokkrir galvaskir kettir eru á vappi á gólfinu. Mest fer fyrir stæði- legum bröndóttum högna. „Þetta er hann Guðbrandur, hann ræður ríkjum hér,“ upplýsir Elín. Annar köttur, grár og hvítur, kemur kunnuglega fyrir sjónir þegar hann kemur haltrandi í áttina að blaðamanni. „Þetta er Mosi,“ segir Elín og bjöllurnar hringja. Mosi er landsfrægur köttur en eigendur hans, Anna Björnsdóttir og Halldór Guð- mundsson, skrifuðu bók um ævintýralegt lífshlaup hans fyrir nokkrum árum. Við það tækifæri heimsótti blaðamaður þá Halldór og Mosa og hafði við þá viðtal. Mosi dvelst iðulega í Kattholti þegar eig- endur hans eru í útlöndum. Andrúmsloftið er annað í óskilaálm- unni, meiri spenna og núningur. Kettirnir eru héðan og þaðan og kemur eins og gef- ur að skilja misjafnlega vel saman. Læð- urnar eru verstar, staðfestir Elín. Anna Kristine vill nota tækifærið og minna fólk á Hótel Kattholt: ,,Það er alltof oft sem við heyrum af köttum sem hafa týnst, eftir að hafa verið sendir í pössun til vina og ættingja þegar eigendur fara í frí eða á sjúkrahús, segir hún. ,,Hér fá þeir umönnun, hlýju og nóg að borða og engin hætta á að þeir stingi af héðan. ’ Meindýraeyðirinn mátti ekki koma nálægt honum og rak upp stór augu þegar ég klappaði hon- um bara eins og gömlum heimilisketti. Forvitnin skín úr hverjum svip í Kattholti.

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.