SunnudagsMogginn - 30.10.2011, Blaðsíða 13
30. október 2011 13
V
ersace er nýjasta tísku-
húsið til að taka höndum
saman við hina vinsælu
sænsku fatakeðju H&M.
Litagleði og mynstur að hætti Ver-
sace verða allsráðandi en Donatella
Versace, listrænn stjórnandi þessa
ítalska tískuhúss, leitaði til fortíðar
í hugmyndavinnunni. Tilgangurinn
var að koma kjarna Versace til
nýrra viðskiptavina í gegnum
H&M. Áhersla er á kjóla í kvenfata-
línunni, eins og sést á meðfylgjandi
myndum. Herrafatnaður verður
líka til sölu og ennfremur heim-
ilisvörur en þetta er í fyrsta sinn
sem það er gert í samstarfi vinsælu
fatakeðjunnar og topphönnuða.
Samstarf H&M við fræga hönnuði
hófst árið 2004 en þá var enginn
annar en Karl Lagerfeld við stjórn-
völinn en í kjölfarið fylgdu hönn-
uðir á borð við Stellu McCartney,
Viktor & Rolf og Soniu Rykiel.
Línan kemur í um 300 H&M-
verslanir víðs vegar um heiminn og
á netið fimmtudaginn 17. nóv-
ember.
„Línan fyrir H&M inni-
heldur kjarnann af Ver-
sace,“ segir Donatella
Versace í fréttatilkynn-
ingu. Hún segir línuna
hafa allt það þekktasta
frá tískuhúsinu eins og
litrík munstur og djörf
snið. „Ég get ekki beðið
eftir að sjá hvernig
þessi stóri hópur
sem verslar
hjá H&M á
eftir að
gera fötin
að sínum,“ segir hún og tekur Marg-
areta van den Bosch, listrænn ráðgjafi
H&M, undir þetta.
„Línan er uppfull af fötum sem eru
áberandi, með skörpum litum,
munstrum og sniðum. Kvenfatalínan
er klæðileg og mikið um kjóla en her-
rafatalínan er fáguð,“ segir van den
Bosch.
Samkvæmt venju Versace
er glamúrinn skrúfaður í
botn með þessum sterku
litum, stuttu kjólum
og glitsteinum. Svo
má ekki gleyma
leðrinu sem er
jafnan áberandi hjá
Versace. Líka verða
í boði margir auka-
hlutir, skór, töskur
og fleira, og víst
að fötin
verða rif-
in út í
nóv-
ember.
Svartur og þröngur leðurkjóll, sem er aðeins
fyrir mestu rokkpæjurnar.
Ítalskur glamúr að hætti Versace, buxurnar
eru mjög þröngar og hælarnir háir.
Fjórir mismunandi litríkir og lokkandikjólar úr nýju fatalínunni.
Þessi mynd var
tekin fyrir auglýs-
ingaherferðina.
Glamúrinn
skrúfaður í botn
Líflegt og litríkt eru lykilorðin í nýrri línu,
sem ítalska tískuhúsið Versace hefur
hannað í samstarfi við sænsku fatakeðj-
una H&M. Vörurnar koma í verslanir 17.
nóvember.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Það eru líka svört föt í línunni þó þau séu
langt frá því að vera venjuleg.
Margareta van den Bosch stjóri hjá
H&M ásamt Donatellu Versace.
Ljósmyndir/H&M