SunnudagsMogginn - 30.10.2011, Side 9

SunnudagsMogginn - 30.10.2011, Side 9
30. október 2011 9 K ynþáttafordómar eru gamalkunnugt vandamál á knattspyrnuvöllum heimsins og til skammar. Síðustu daga hefur blossað upp hávær um- ræða um þess konar níð bæði í Englandi og á Spáni; þeldökkur leik- maður ásakar mótherja um óviðeigandi ummæli í sinn garð, tengd lita- rafti, og allt verður vitlaust. Eins og gjarnan áður stendur fólk með „sínum“ manni; starfsmenn Manchester United (og stuðningsmenn sjálfsagt) segjast trúa Frakkanum Patrice Evra, sem sakaði úrúgvæska framherjann hjá Liverpool, Luis Suárez, um að hafa hvað eftir annað svívirt sig þegar liðin mættust á dögunum. Liverpool-menn á hinn bóginn segjast ekki telja sannleikskorn í því að Suárez hafi komið fram við Evra eins og Frakk- inn lýsir. Rannsókn enska knattspyrnu- sambandsins er hafin. Enski landsliðsmaðurinn John Terry hjá Chelsea kallaði afar óviðurkvæmileg orð í átt að Antoni Ferdinand, leikmanni QPR, og það mál hefur skyggt á deilur Evra og Suárez, ekki síst vegna þess að þar sést á sjónvarpsupptöku hvaða orð Terry lætur falla, auk þess sem hann er fyrirliði enska landsliðsins. Leikur þar gjarnan við hlið Rios Ferdinands, bróður Antons, en það er önnur saga. Ekki fer á milli mála að Terry segir; fyrirgefið orðbragðið: „Helvítis svarti skíthæll.“ En kannski er ekki allt sem sýnist; út- skýring Terrys er sú að í leiknum hafi Anton sakað sig um að hafa viðhaft þessi orð, en hann svarað því til að hann hafi ekki kallað mótherjann „helvítis svarta skíthæl“. Líklegt má þá telja að það hafi verið einhver annar leikmaður Chelsea, þó enginn hafi nefnt þann möguleika. Ólíklegt er að ofheyrn hrjái Anton Ferd- inand. Á Spáni sló Malímaðurinn Frédéric Ka- nouté Spánverjann Cesc Fàbregss í leik Sevilla og Barcelona og hlaut rauða spjaldið að launum. Kanouté sagði ástæðu þess að hann reiddist kynþátt- aníð úr munni Spánverjans sem ekki kannast við neitt. Kynþáttafordómar einskorðast ekki við knattspyrnuvelli heldur virðist þennan fjanda að finna á öllum völlum mannlífsins. Alveg er ótrúlegt hve mannskepnan þroskast hægt. Hvaða máli skiptir það, í hinu stóra samhengi, hvernig fólk er á litinn? Ekkert get ég að því gert að vera hvítur á hörund. Ekki hafði Martin Lut- her King neitt um það að segja hvort hann fæddist svartur, hvítur eða gulur. Var samt skotinn til bana fyrir að eiga sér draum. Þegar hugsað er til baka er með ólíkindum ástandið sem var þegar King og fólk af hans kynslóð barðist fyrir mannréttindum. Þeldökkir menn fengu ekki að ganga í sömu skóla og hvítir, ekki að aka um í sömu stræt- isvögnum eða borða á sömu veitingastöðum. Ekki eru nema fáeinir áratugir síðan. Þroskað fólk man fyrirsögn í Akureyrarblaðinu Degi: Negri í Þistilfirði. Það var fyrir tæpum hálfum þriðja áratug og þótti ekki niðrandi. Orðið negri stóð ekki í fólki og dvöl hins unga manns frá Gana var fréttnæm vegna þess að þeldökkur maður – eins og örugglega yrði tekið til orða um vinnumann Jóhannesar bónda á Gunnarsstöðum, væri hann starfandi þar í dag – hafði ekki sést á þeim slóðum áð- ur. En tímarnir breytast. Nú þykir n-orðið niðrandi en sumir brúka það samt. Kyn- þáttafordóma hlýtur að mega rekja til vanþekkingar, heimsku, jafnvel minnimátt- arkenndar. Slík framkoma lýsir vanþroska og almennu virðingarleysi gagnvart öðru fólki. Það er ekki bara knattspyrnuyfirvalda að útrýma þeim fordómum, en ekki skaðar að þeir sjái til þess að leikmenn sýni gott fordæmi. Unga fólkið hermir ekki bara eftir þeim kúnstir með knöttinn. Þeldökkur í Þistilfirði Meira en bara leikur Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is ’ Kynþáttafordómar eru alvarlegra mál en svo að hægt sé að fylkja sér á bak við „sinn mann“ að eilífu Liverpool-maðurinn Luis Suarez, t.v., og Patrice Evra, leikmaður Manchester Utd. Reuters Frederic Kanoute, leikmaður Sevilla, með þjálfara sínum, Marcelino Garcia. Reuters Skar og skarkali | 12 Þorgrímur Kári Snævarr

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.