SunnudagsMogginn - 30.10.2011, Síða 29

SunnudagsMogginn - 30.10.2011, Síða 29
30. október 2011 29 „Ég hef aldrei fundið til þess og held að ég hafi bara grætt á því hvernig sem á það er litið. Við erum reyndar ansi ólíkir pennar, ég líkist móður minni meira í því hvernig ég skrifa að minnsta kosti. Svo er líka auðvitað spurning um hvað maður gerir sér rellu yfir hlutunum. Þetta hefur að minnsta kosti örugglega verið erfiðara fyrir hann þegar hann var að byrja sinn rithöf- undarferil og tókst að verða sameiningartákn í miðju kalda stríðinu því bæði vinstrimenn og hægrimenn fórnuðu höndum yfir því hvað þessi maður vildi upp á dekk.“ Var hann áhrifavaldur í lífi þínu? „Já auðvitað. Við vorum mjög nánir alla tíð og hann var alltaf mjög eindreginn í stuðningi sínum við allt sem maður tók sér fyrir hendur, gerði það meira að segja fyrir mig að þykjast hafa gaman af alls konar músík sem maður var að halda að honum. Svo var hann stundum að minnast á þetta löngu eftir að maður sjálfur var hættur að hlusta á það: „Hann var nú ansi góð- ur, hann þarna Emerson og Lake og Palmer, var það ekki?“ Hann sýndi okkur Chaplin-myndir og Eisenstein, las Íslendingasögurnar og Dodda- bækur og tók mann með sér í bæinn á pósthúsið og að heimsækja Kjarval, á tónleika og hingað og þangað og spjallaði við mann á leiðinni um lífið og mennina. Svo þagnaði hann smástund áður en hann sagði: „Og svo tjöllum við okkur í rallið“ eða „rimsírams og flimsíflams og bal- líbæ“.“ Aðstoðaðir þú hann eitthvað við skriftirnar? „Hann las fyrir. Hann skrifaði í vasakompur og stílabækur sem hann las upp úr og skáldaði út frá. Í mörg ár meðfram fullri vinnu vélritaði mamma textann eftir honum og editeraði jafn- harðan og svo tók ég við. Mig minnir að Grá- mosinn hafi verið fyrsta bókin sem ég sló inn fyrir hann. Hann var sískrifandi og skilur eftir sig ókjör af vasabókum með dagbókarfærslum, skáldskap, hugrenningum, teikningum, rissi og öðru sem nær allt aftur til Parísaráranna, kring- um 1950 þegar hann er að verða til sem lista- maður. Vasabókin – eiginlega var hún hans list- form.“ Þú hlýtur að sakna hans. „Hann var fyrirferðarmikil og stundum krefj- andi persóna, gæddur „geði hvers veðurs“ eins og Þorsteinn frá Hamri orðaði það svo vel í ljóði sem hann orti eftir pabba og hann skilur eftir sig stórt skarð í lífi okkar allra sem voru nánust honum. Hann skildi eftir sig mikla orku sem maður finnur að er lengi að setjast. Þetta er já- kvæð orka og henni fylgir góð nærvera.“ Þú finnur fyrir honum? „Já.“ Trúirðu á líf eftir dauðann? „Á þennan hátt geri ég það.“ Sambland af pokapresti og krata Þú skrifar reglulega um þjóðfélagsmál í Frétta- blaðið, er ekki alveg greinilegt að þú ert vinstrimaður? „Ég skrifa nú bara í þau blöð sem biðja mig um það. Ég held ég hafi ósköp lítið spennandi skoðanir, ætli ég sé ekki sambland af pokapresti og krata. Það er voða erfitt að vera öfgasinnaður krati. Pistlarnir eru meira svona uppástungur um umræðuefni en beinlínis ætlaðir til skoð- anamótunar enda finnst mér að fólk eigi sífellt að endurskoða og endurmeta allt. Ég skrifa þessa pistla yfirleitt á sunnudagsmorgnum. Þá virkja ég lítinn kall í hausnum á mér sem hefur alls konar meiningar.“ Hvernig finnst þér íslenskt þjóðfélag vera, er það ekki dálítið leiðinlegt í öllu þessu nöldri? „Það eru fleiri að tjá sig en nokkru sinni og það er gott, nú er kaffistofuskvaldrið og sund- laugapottaspjallið komið í meira opinbert rými, sem er netið og útvarpsstöðvar sem bjóða upp á símaspjall. Þá flýtur náttúrlega ýmislegt með og sumir hafa hátt sem kenna hruninu um allar sínar ófarir í lífinu. Fólk tjáir sig líka á misjafn- lega fágaðan hátt og þótt það segi „ég vill“ er ekki þar með sagt að það hafi ekkert fram að færa. En auðvitað er mikið gargað og sterk öfl sem róa undir. Það er tekist á um gríðarlega hagsmuni. Það er mikið verið að tala um pen- inga og skuldir og afskriftir sem eru víst mestar hjá þeim sem sýnt hafa með óyggjandi hætti að þeir kunni ekkert með fé að fara en engar hjá þeim sem alltaf hafa staðið í skilum. Það er enn einhver grundvallarmeinsemd í okkar þjóðfélagi sem sést til dæmis á því að þessir bankasýslumenn létu sér detta í hug að þeir gætu ráðið þar forstjóra mann sem kom síðast nálægt bankastarfsemi til að gefa sam- flokksmönnum sínum heilan banka til að tæma. Ólafur Ólafsson, sem fékk bankann, hefur feng- ið tvær Hörpur afskrifaðar. Ég held að hér væri hægt að búa til frábært lítið samfélag, ef höfð væri ofurlítil skynsemi og sanngirni að leið- arljósi, það eru allar forsendur til þess. Mér hef- ur dottið í hug að við séum enn ekki alveg búin að ná okkur eftir herinn og hermangið. Það voru ekki bara Suðurnesin sem fóru illa út út því heldur öll þjóðin – þjóðarsálin.“ Aftur að skáldskapnum. Ertu yfirleitt ánægð- ur með bækur þínar? „Mér finnst þær frábærar þegar ég hef nýlokið þeim, svo ágætar, síðan sæmilegar og loks – hvað var það nú aftur – áfátt? En ég las reyndar Náðarkraft sem útvarpssögu síðasta sumar og þá fannst mér hún miklu betri en mig minnti, eig- inlega bara skratti góð. Þannig að þetta er nú ekki einhlítt. Mér finnst þessi nýja bók núna auðvitað alveg frábær en þú sérð nú hvað er að marka það.“ Hvernig tekurðu gagnrýni? „Illa. Ég kvíði því að lesa hana, líður eins og nú eigi að afhjúpa mig. Gagnrýni á ekkert að vera handa höfundum – hún er handa öðru fólki.“ Morgunblaðið/Kristinn

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.