SunnudagsMogginn - 30.10.2011, Page 45
30. október 2011 45
Lesbók
M
ikill er máttur fjöl-
miðla. Um daginn
réðu Kolbrún
Bergþórsdóttir og
Páll Baldvin Baldvinsson sér ekki
af kátínu yfir frumraun sænska
rithöfundarins Jonasar Jonas-
sonar, Gamlinginn sem skreið út
um gluggann og hvarf, í Kiljunni,
bókmenntaþætti Egils Helgason-
ar, og viti menn, bókin seldist
upp daginn eftir og hefur verið
mest selda bókin á Íslandi síðan.
Það er reyndar ekki að furða
því að bókin er bráðskemmtileg
lesning og fær mann jafnvel til að
hlæja upphátt hvað eftir annað,
nokkuð sem ekki hefur gerst frá
því að Góði dátinn Svejk var síð-
ast á náttborðinu. Velgengni
bókarinnar er því fullkomlega
verðskulduð, en hún hefði lík-
lega aldrei orðið með þessum
hætti ef ekki væri fyrir Kiljuna.
Nú er engin nýlunda að sjón-
varpsþættir hafi áhrif á sölu
bóka. Oprah Winfrey hefur rekið
bókaklúbb í sjónvarpsþáttum
sínum og þeir höfundar, sem
komast að hjá henni, detta í
lukkupottinn.
Matt Haig, höfundur bók-
arinnar Radley-fjölskyldan,
sagði þegar hann var gestur bók-
menntahátíðar í Reykjavík í
haust að kynningarmál á bókum
á Bretlandi væru komin í öng-
stræti. Á Bretlandi eru Richard
og Judy þekkt nöfn í bókarýni.
Þau voru stjórnendur sjónvarps-
þáttar um bækur. Árið 2004
stofnuðu þau bókaklúbb, sem
snerist um það að tíu bækur voru
teknar sérstaklega fyrir á ári og
að endingu voru veitt sérstök
verðlaun fyrir bók ársins í þeirra
nafni þar sem atkvæði almenn-
ings réðu úrslitum.
Haig lýsti því hvernig bækur,
sem komust að í þættinum, voru
sérstaklega kynntar þannig í
verslunum og það hefði haft
gríðarleg áhrif á sölu að komast
að hjá þeim og bætti við að það
hefði verið borgað með bók-
unum.
Að
mæra
bækur
’
Velgengni bók-
arinnar er því
fullkomlega
verðskulduð, en hún
hefði líklega aldrei
orðið með þessum
hætti ef ekki væri fyr-
ir Kiljuna.
Orðanna
hljóðan
Karl Blöndal
kbl@mbl.is
Húshjálpin er fyrsta skáldsaga
Kathryn Stockett og byggir
hún hana að einhverju leyti á
sinni eigin lífsreynslu þó að
hún sé ekki fædd fyrr en árið
1969. Þetta er óður hennar til
æsku sinnar. Sagan segir frá
lífi þriggja kvenna í suð-
urríkjum Bandaríkjanna á sjö-
unda áratugnum. Á þessum
tíma voru aðstæður einkenni-
legar þar sem svartar konur
gengu börnum hvítra kvenna
svo að segja í móðurstað. Á
sama tíma og þær sáu um
heimilin undir stöðugu eftirliti
þurftu þær að sitja þegjandi
undir kvörtunum. Ein aðal-
persónan, Skeeter, er hvít
háskólastúlka sem leitast við
að skrifa sögu um kjör og að-
stæður svartra kvenna í sam-
félagi sínu. Hinar tvær aðal-
persónurnar eru svartar, afar
ólíkar, konur sem starfa við
húshjálp og segja Skeeter sögu
sína. Annarri helst vel á starfi
sínu og sinnir hún því óað-
finnanlega á meðan hin missir
hvert starfið á fætur öðru þar
sem hún svarar fyrir sig þyki
henni að sér vegið. Að segja
frá og rita niður var lífs-
hættulegt á þessum stað og
þessum tíma.
Sjónarhornið flakkar á milli
aðalpersónanna og er frásögnin
öll í fyrstu persónu. Ætla má
að það flæki málin fyrir les-
andanum en það gengur
furðuvel upp og færir lesand-
ann fyrir vikið nær öllum
þessum persónum. Á einum
stað er meðvitað stílbrot þar
sem farið er í þriðjuper-
sónufrásögn og er það miður
þar sem það er algjörlega
óþarfi fyrir söguna.
Þó að fyrirfram mætti búast
við ljótleika eins og morðum
og hvers kyns líkamlegu of-
beldi þar sem slíkir viðburðir
fylgja þessu sögusviði er öðru
nær. Ljótleikinn er vissulega í
umhverfi þessara kvenna og
þær þurfa að lifa við ýmiss
konar ofbeldi, annaðhvort
horfa upp á það eða sæta því
sjálfar, en það er ekki það sem
er áhrifaríkast í sögunni. Ljót-
leikinn er áhrifamestur í
hræsni, athöfnum og orða-
notkun hvítra kvenna. Í bók-
inni segir að það sé ódulið
hatur svartra kvenna á hvítum
konum en það sé líka óútskýr-
anlega ást og er það rauði
þráðurinn í gegnum söguna
alla. Hatrið er ljóst en ástin
líka. Á meðan málefnið er
þungt og þarft og má aldrei
gleymast er bókin uppfull af
húmor. Persónusköpunin er
einstök en höfundi tekst best
upp í samskiptunum. Þýðingin
er fín og samtölin þægilega
flæðandi. Þó að bókin sé svo-
lítið lengi í gang er persónanna
saknað að lestrinum loknum.
Húshjálpin hefur verðskuldað
farið sigurför um heiminn og
er allt í senn bráðskemmtileg,
upplýsandi og sorgleg.
Húmor og harmur
Bækur
Húshjálpin bbbbn
Eftir Kathryn Stockett. JPV gefur út
526 bls.
Signý Gunnarsdóttir
LISTASAFN ÍSLANDS
Söfn • Setur • Sýningar
ÞÁ OG NÚ
22.9.-31.12. 2011
FJÖLSKYLDUSMIÐJA 30. okt. kl. 14
- Leiðsögn og listsmiðja.
SAFNBÚÐ
Listaverkabækur, kort, plaköt, íslenskir listmunir og gjafavara.
SÚPUBARINN, 2. hæð
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600,
OPIÐ daglega kl. 11-17, lokað mánudaga.
Allir velkomnir! www.listasafn.is
ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ
Þúsund ár - fjölbreytt verk úr safneign Listasafns Íslands
frá 19. öld til nútímans. Fyrsti áfangi nýrrar grunnsýningar
um þróun íslenskrar myndlistar.
„Óskabarn – Æskan og Jón Sigurðsson“
Sýning um æsku og lífsstarf þjóðhetjunnar,
undirbúin í samvinnu við Afmælisnefnd Jóns Sigurðssonar. Sýn-
ingin höfðar sérstaklega til barna og ungs fólks á skólaaldri.
Áhugaverður viðburður fyrir alla fjölskylduna.
Handritin – Saga þeirra og hlutverk um aldir.
ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ, Hverfisgötu 15, Reykjavík
Opið daglega kl. 11.00-17.00. www.thjodmenning.is
Listasafn Reykjanesbæjar
Holdtekja
– The Carnal Imperative
Guðný Kristmanns
22.október - 4. desember
Byggðasafn Reykjanesbæjar
Bátasafn Gríms Karlssonar
Opið virka daga 12.00-17.00
helgar 13.00-17.00
Aðgangur ókeypis
reykjanesbaer.is/listasafn
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Nýjar sýningar:
Hjálmar R. Bárðarson í svarthvítu
Skipulag og óreiða. Teikningar Ólafar Oddgeirsdóttur
Aðrar sýningar:
Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár
Guðvelkomnir góðir vinir! Útskorin íslensk horn
Þetta er allt sama tóbakið! - Útskornir kistlar
Hádegiserindi þriðjudaginn 1. nóvember kl. 12:05:
Myndheimur hornanna. Lilja Árnadóttir
fjallar um útskorin íslensk horn.
Glæsileg safnbúð og Kaffitár
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200,
www.thjodminjasafn.is, thjodminjasafn@thjodminjasafn.is
Opið þriðjudaga-sunnudaga kl. 11-17. Lokað á mánudögum
ALMYNSTUR
Arnar Herbertsson
JBK Ransu
Davíð Örn Halldórsson
Kaffistofa – Leskró – Barnakró
Opið fim.-sun. Kl. 12-18
AÐGANGUR ÓKEYPIS
www.listasafnarnesinga.is
Hveragerði
29. október–30. desember 2011
Samræmi
Hildur Bjarnadóttir og Guðjón Ketilsson
Hamskipti
Hildur Yeoman og Saga Sigurðardóttir
Sunnudag 30. október
- Listamannsspjall
Hildur Bjarnadóttir
Þriðjudag 1. nóvember
- Hádegistónleikar
Jóhanna Ósk Valsdóttir
- Morð og mæður
Opið 12-17, fim. 12-21, lokað þri.
www.hafnarborg.is sími 585 5790
- Aðgangur ókeypis
Verið velkomin á
Eyrarbakka
Opið samkvæmt samkomulagi
í vetur
Byggðasafn Árnesinga
Sjóminjasafnið
www.husid.com
15. október til 6. nóvember 2011
Inga Þórey
Jóhannsdóttir
og
Þorbjörg
Þorvaldsdóttir
Opið 13-17, nema mánudaga.
Freyjugötu 41, 101 Rvk
www.listasafnasi.is
Aðgangur ókeypis.
LISTASAFN ASÍ
HLUTIRNIR OKKAR
(9.6.2011-4.3.2012)
PIA HOLM:
Textílhönnun fyrir MARIMEKKO
(7.10. – 13.11.2011)
Ný sýning:
HVÍT JÓL
(28.10.2011 – 15.1.2012)
Ókeypis aðgangur á miðvikudögum
Opið alla daga nema mán. kl. 12-17.
Verslunin KRAUM í anddyri.
Garðatorg 1, Garðabær
www.honnunarsafn.is