Morgunblaðið - 07.05.2010, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 2010
FRÉTTASKÝRING
Eftir Önund Pál Ragnarsson
og Helga Bjarnason
HJÓNIN á bænum Nykhóli við
Pétursey, þau Guðjón Harðarson og
Jóhanna Jónsdóttir, segja verulega
farið að þrengjast um í fjárhúsunum
hjá þeim. Þau eru með fjögur
hundruð fjár þegar allt er talið og
búast við því að um 650 lömb komi í
heiminn hjá þeim þetta vorið. Sauð-
burður er aðeins um það bil hálfn-
aður. Á sama tíma er ekki þorandi
að setja neitt út á tún, að sögn Jó-
hönnu, og sífellt þrengir meira að.
Nágranni þeirra á Eystri-Péturs-
ey hafði sett kindur út á heimatún-
ið, eftir rigningarskúr um morg-
uninn, en reiknaði með að taka þær
aftur inn seinni partinn, þegar allt
var þornað.
Ókennileg lykt í loftinu
Öskufall var á Nykhóli í gær-
morgun þegar hjónin fóru á fætur.
„Þá var hérna einhver mjög óþægi-
leg lykt í loftinu sem við höfum
aldrei fundið áður,“ segir Jóhanna.
Askan sem þá féll hafi líklega verið
á einhvern hátt mengaðri en í upp-
hafi gossins. Landbúnaðar-
ráðunautur sem var hjá þeim fyrr
um daginn hafði viðrað sömu skoð-
un og varað við því að fé yrði sett
út. Sem þumalputtareglu hafði hann
stungið upp á því að hvítu papp-
írsblaði væri strokið eftir grasinu á
túnum. Ef það kæmi aska á blaðið
ætti ekki að setja féð út.
Féð rúmast ekki allt á húsi
Venjan er sú að hafa nýbornar
kindur í sérstakri kró með lömbum
sínum í nokkra daga, áður en þær
eru settar út. Smám saman fjölgar
krónum og plássið minnkar. Guðjón
segir það fjarri lagi að allir bændur
hafi nóg pláss til að hafa allt fé á
húsi, með lömbum. Verði ekki hægt
að setja neitt út áður en sauðburður
klárist verði húsakosturinn sprung-
inn undan fjöldanum.
Þau hjónin eru samt nokkuð róleg
yfir þessu enn sem komið er. Segja
ekkert neyðarástand orðið enn. Jó-
hanna segir þó líklegt að þau þurfi
að sleppa því að heyja á hluta af
jörðinni, til þess að geta beitt kind-
unum á þau tún, ef það verður
hægt. Hún kveðst þó ekki hafa sér-
stakar áhyggjur af heyjum. Nóg
eigi að vera til af því í landinu og al-
mennt hægt að verða sér úti um
það.
Hins vegar sárvantar orðið rign-
ingu á þessu svæði. Jóhanna segir
það vel þekkt að Mýrdalurinn og
þetta svæði séu oft einhver þau vot-
viðrasömustu á landinu. Af og til
komi þó ár þar sem hann hangi
mjög þurr. Nú virðist ætla að stefna
í það.
Mikið mál að flytja lambfé
„Mér heyrist menn taka einn dag
í einu og bændur bera sig nokkuð
vel,“ segir Borgar Páll Bragason,
ráðunautur hjá Búnaðarfélagi Ís-
lands. Hann hefur heimsótt sauð-
fjárbændur á öskufallssvæðunum í
Vestur-Skaftafellssýslu undanfarna
daga ásamt héraðsráðunautum.
Sauðburður er víðast byrjaður og
sums staðar langt kominn. Borgar
Páll segir að þar sem sauðburður er
langt kominn sé víða orðið þröngt í
fjárhúsum. Ástandið sé betra þar
sem bændur hafi verið að fækka fé
og hafi nóg húspláss.
Fanney Ólöf Lárusdóttir, ráðu-
nautur hjá Búnaðarsambandi Suð-
urlands, hefur verið að heimsækja
bændur þótt hún standi sjálf í sauð-
burði. Hún segir að allir bændur
séu að reyna að finna lausnir á
vandanum. Víða séu tóm hús en
mikið mál að flytja lambfé og eng-
inn mannskapur til að hirða um það
á mörgum stöðum.
Katrín Andrésdóttir héraðs-
dýralæknir segir að mælingar sýni
að askan sé mikið menguð af flúor
og það þurfi að rigna töluvert mikið
til að mengunin skolist úr. Hún var-
ar bændur sérstaklega við að fé
komist í mengað skolvatn.
Dilkar verða rýrari í haust
Hætt er við að smitsjúkdómar nái
sér af stað í þröngum fjárhúsum og
lömbin geta flæmst frá ánum. Katr-
ín bætir því við að ærnar séu vanar
því að komast út á græn grös og því
mjólki þær minna inni. Hún segir að
erfitt geti verið að ráða við ærnar
þegar þeim er sleppt út, þær séu
vanar að fara í sína haga.
Vandamál sé með afréttina, víða
mikil aska og ekki hægt að hleypa
þangað fé. Katrín segir mælt með
því að bændur girði af skika heima
við bæina, hreinsi af þeim ösku og
gefi út rúllur og hafi rennandi vatn.
Hún telur ljóst að öskufallið leiði til
þess að dilkar verði rýrari í haust.
Morgunblaðið/Kristinn
Bændurnir á Nykhóli Hjónin Guðjón Harðarson og Jóhanna Jónsdóttir standa nú í ströngu í sauðburði. Þau reikna með að beita kindum á ræktarlandið í sumar og sleppa því að heyja hluta þess.
Lambféð sprengir utan af sér
húsin en ekki má setja það út
Sauðburður víða langt kominn á öskufallssvæðum en ekki er einfalt að halda öllu á húsi fram á sumar
Eldgosið í Eyjafjallajökli
Þurrkað af Stór hópur fólks þreif allt í byggðasafninu í Skógum í gær.
Safnið er nú opið ferðamönnum og öðrum gestum, eins og venjulega.
Þrjátíu og fimm starfsmenn frá
söfnum víðsvegar um landið tóku
til hendinni í Skógum í gær. Hóp-
urinn þreif allt hátt og lágt, en
safnið hefur orðið fyrir barðinu á
öskunni úr Eyjafjallajökli. Þórður
Tómasson safnstjóri segir öskuna
ekki síst smjúga inn í gömlu end-
urbyggðu húsin. „Hér var allt í ösku
eftir þetta fyrsta öskufall. Hún
þrengir sér hér inn í öll hús,“ segir
Þórður. „Nú er þetta að verða gott
og aðgengilegt, búið að þrífa þetta
af vandvirkni, af fólki sem kann til
verka,“ bætir hann við og er hæst-
ánægður með liðsaukann. Hann
segir engar skemmdir hafa orðið á
munum safnsins. Alls engar.
Byggðasafnið var aftur opnað
heimsóknum á laugardaginn var og
er stefnt að því að halda því opnu í
sumar eins og venjulega.
Nýverið var haft eftir Þórði að
tveir ömurlegustu morgnar í lífi
hans hefðu verið þegar Hekla byrj-
aði að gjósa 1947 og svo núna þeg-
ar gosið byrjaði í Eyjafjallajökli.
Hann segir ákveðið öryggisleysi
um framhaldið, en ekki megi gefast
upp og því verði safnið opið. Stað-
urinn hafi þrátt fyrir allt sloppið
nokkuð vel. „Hins vegar ef það
hreyfir vind í góðu veðri er hér
komið myrkur, hálfgert. Það má bú-
ast við því að það haldi áfram fram
eftir sumri.“
Byggðasafnið í Skógum nýþrifið og öllum opið
Morgunblaðið/Kristinn