Morgunblaðið - 07.05.2010, Page 30
30 Velvakandi
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 2010
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
HVAÐ ERU
GEIMVERURNAR
AÐ GERA?
ÞÆR ERU AÐ
TÆMA ROTÞRÓNA
SÍNA...
GEIMVERU-
PAKK
SJÁÐU, HERSHÖFÐINGI! FLJÚGANDI
FURÐUHLUTURINN LENTI Í GARÐINUM
RÉTT ER ÞAÐ, LIÐSFORINGI!
ÞETTA ER SÖGULEG STUND
ÞAR SEM MANNFÓLK HITTIR
GEIMVERUR Í FYRSTA SINN
HÚN SAGÐI AÐ ÞAÐ VÆRI
KOMINN TÍMI TIL AÐ
STOFNA EIGIN FJÖLSKYLDU
ÉG SPURÐI HANA HVORT HÚN
LITI Á ÞETTA SEM SKREF
AFTUR Á BAK EÐA FRAM Á
VIÐ, EN ÞÁ HRINGDI BJALLAN
OG ÉG FÉKK EKKERT SVAR
ÞIÐ ÆTTUÐ AÐ HAFA
PALLBORÐSUMRÆÐUR
FRÚ RÓSA
ER HÆTT AÐ
KENNA
ÞETTA ER LARS SVEINSSON.
HANN ER ÞEKKTUR
ÚTIVISTARMAÐUR
Í HVERT SKIPTI SEM HANN KEMUR FULLUR HEIM
LÆTUR KONAN HANS HANN SOFA ÚTI Í GARÐI
VIÐ
ÁKVÁÐUM AÐ
ÆTTLEIÐA
GÓÐ
HUGMYND
HLUTI AF ÞJÁLFUNINNI
ER AÐ MÆTA SJÁLF Á
HJÓNABANDSNÁMSKEIÐ
SKILJAN-
LEGA
MEÐ
ÞÉR NÚ? AF
HVERJU?
ÉG ÆTLA AÐ FÁ
LEYFI TIL AÐ STÝRA
HJÓNABANDSNÁMSKEIÐUM
LODDARINN UNDIRBÝR
SIG FYRIR RÁNIÐ...
LÁTTU
MYNDA-
VÉLARNAR
SJÁ ÞIG
LEYFÐU
ÞEIM LÍKA
AÐ SJÁ...
HANN
!!
HVAÐ Á ÉG
AÐ GERA NÆST,
BIG-TIME?
HVERNIG ÞÚ STENDUR
ÞIG Á MÓTI ALVÖRU
KÓNGULÓARMANNI
Leiðsögumenn eða
ekki leiðsögumenn
NÝLEGA var viðtal í
Ríkisútvarpinu við
nokkra leiðsögumenn,
sem vinna við það að
sýna ferðamönnum
Ísland og segja þeim
frá ýmsu áhugaverðu
um landið okkar. Einn
þeirra sagði að allir
gætu unnið sem leið-
sögumenn hér á landi
og að ekkert próf
þyrfti til að staðfesta
hvort viðkomandi
kunni eitthvað um
landið eða geti sagt
frá því á tungumáli farþeganna.
Fróðlegt væri að fá að vita hvort
einhver sérstök kennsla fari fram
hér á landi til að búa þessa leið-
sögumenn undir þetta starf og
ennfremur hvernig slíkt próf fer
fram.
Í sjónvarpi RÚV var nýlega við-
tal við Ernu Hauksdóttur, fram-
kvæmdastjóra SAF (Samtök
ferðarekenda í ferðaþjónstu), þar
sem hún sagði að nú þyrftu allir að
taka til hendi og hjálpast að við
það verkefni sem fram undan er.
Þar átti hún við þá staðreynd að
margir erlendir ferðamenn, sem
höfðu hugsað sér að heimsækja Ís-
land á þessu sumri, hafa nú af-
pantað ferðir sínar
vegna eldgossins.
Væri ekki einmitt
núna áríðandi fyrir
eigendur ferðaskrif-
stofa að ráða frekar
þá leiðsögumenn, sem
hafa sérmenntað sig
til þessa starfs (þ.e.
að kynna landið þeim
sem heimsækja Ís-
land) heldur en ráða
bara einhverja, sem
ekkert kunna eða
jafnvel segja bara
einhvern óhróður um
landið?
Oft er sagt frá ís-
lenskum leið-
sögumönnum, sem segja tóma vit-
leysu um land og þjóð, en aldrei
kemur fram hvort hinn sami hafi
verið sérmenntaður sem slíkur.
Einnig hefur heyrst að túristum,
sem fara um Reykjavík, sé bent á
að þar sé hægt að kaupa vændi
næstum á hverju götuhorni. Fyrir
nokkrum árum voru Íslandsferðir
auglýstar erlendis sem „Dirty
weekends“. Er ekki full ástæða til
að kanna betur hvernig þessum
málum er háttað hér á landi?
Hugsandi Íslandsvinur.
Ást er…
… að senda honum
hugskeyti um að hringja.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Aflagrandi 40 | Vinnustofa kl. 9, út-
skurður kl. 13, bingó kl. 13.30.
Árskógar 4 | Smíðastofa kl. 9, bingó (2.
og 4. föstudag í mán.).
Dalbraut 18-20 | Söng-/harmonikku-
stund kl. 14.
Dalbraut 27 | Handavinna kl. 8, boccia
kl. 10.45. Listamaður mánaðarins.
Eftirlaunadeild símamanna | Fundur
um ferð á Snæfellsnes/Flatey - í Perl-
unni, 4. hæð, 10. maí kl. 15.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Fé-
lögum í FEBK og eldri borgurum í Kóp. er
boðið á tónleika Karlakórs Kópavogs 7.
maí kl. 20. Stjórnandi: Julian Hewlett.
Einsöngur Sigurður Þengilsson tenór. Pí-
anóleikari: Guðríður Sigurðardóttir.
Ókeypis aðgangur.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Dans í
Ásgarði sunnud. kl. 20, klassík.
Félag kennara á eftirlaunum | Fræðslu-
og skemmtifundur, aðalfundur á morg-
un, laugardag, kl. 13.30 á Grand Hótel.
Félagsheimilið Gjábakki | Boccia kl.
9.30, jóga kl. 10.50 og félagsvist kl.
20.30. Vorsýning í Gjábakka dagana 8.,
9. og 10. maí kl. 13-17, vöfflukaffi.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Jóga kl.
9.30, ganga kl. 10, leikfimi kl 10.30. Ár-
leg vorsýning opin kl. 13-17 þann 7., 8.
og 9. maí. Vöfflukaffi á kr. 500.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Vorsýning í Jónshúsi kl. 9.30-16, félagsv.
FEBG kl. 13, vöfflukaffi frá kl. 10.
Félagsstarf Gerðubergi | Vinnustofur
kl. 9, ma. bókband, prjónakaffi kl. 10,
gestur Benný, vinna við Grindavíkurtref-
ilinn hefst. Stafganga kl. 10.30. Spilasal-
ur opinn, kóræfing kl. 15. Myndlistarsýn-
ing í Kaffi Loka á Skólavörðuholti.
Hraunsel | Morgunrabb kl. 9, leikfimi kl.
11.30, brids kl. 12.30, dansleikur kl.
20.30-24, Þorvaldur Halldórsson leikur,
kr. 1.000. Húsið opnað kl. 20.
Hvassaleiti 56-58 | Vinnustofa kl. 9,
postulín. Myndlist kl. 13. Handverkssýn-
ing á afgreiðslutíma stöðvarinnar, kaffi-
sala.
Hæðargarður 31 | Hringborðið kl. 8.50,
gönuhlaup/thachi kl. 9, leikfimi kl. 10.
Listasmiðja kl. 9. Gáfumannakaffi kl. 15,
kvikmyndin Duggholufólkið kl. 15.30.
Íþróttafélagið Glóð | Boccia í Gjábakka
kl. 13.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Blaða-
klúbbur kl. 10.10, leikf. kl. 11, bingó kl.
13.30, kaffiv. kl. 14.30, hárgreiðslust., s.
552-2488, fótaaðgerðast., s. 552-7522.
Norðurbrún 1 | Myndlist/útskurður kl.
9, guðsþjónusta kl. 15 og sparikaffi. Eng-
in leikfimi í maí, hefst aftur í júní.
Vesturgata 7 | Frambjóðendur frá Sam-
fylkingunni koma í heimsókn kl. 15, þau
Björk Vilhelmsd., Oddný Júlíusdóttir og
sr. Bjarni Karlsson spjalla og taka lagið.
Vesturgata 7 | Skartgripa/kortagerð,
glerbræðsla kl. 9, enska kl. 11 30, tölvu-
kennsla kl. 13.30. Sungið v/flygil kl.
14.30, kaffiv. kl. 14.30, dansað í aðalsal.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja, leir-
mótun og handav. kl. 9, morgunstund kl.
9.30, leikfimi kl. 10.15, bingó kl. 13.30.
Það viðrar vel í Mývatnssveit efmarka má kveðskap Friðriks
Steingrímssonar og ekki skortir
umræðuefni frekar en fyrri dag-
inn:
Hlýnar í veðri og gæsirnar garga
graður er þröstur og víða er for.
Um kosningar sveitungar þrasa og
þvarga,
þetta er sko ótvírætt merki um vor.
Ingimar Halldórsson sendi
kveðju í Vísnahornið, þar sem
hann bendir á að vísan „Enga
þoldi auðargná“ sé eftir Ísleif
Gíslason á Sauðárkróki, en á
Vísnavef Héraðsskjalasafns Skag-
firðinga hafði hún verið eignuð
Gísla Ólafssyni frá Eiríksstöðum.
Vísuna er að finna í bókinni
,,Detta úr lofti dropar stórir“ með
ljóðaúrvali Ísleifs Gíslasonar á
Sauðárkróki, sem kom út árið
1982. Þar er yfirskriftin „Það var
orsökin“:
Enga þoldi auðargná
inn í sínu hreysi.
Var það fyrir vöntun á
vitsmunaskortsleysi.
Kristbjörg F. Steingrímsdóttir
yrkir að vori:
Vorið fagrar gjafir gefur
gleðjast þeir sem fá,
dagsins ljós nú litið hefur
lambadrottning smá.
Í tilefni af afmæli Jakobs Frí-
manns Magnússonar birti Guð-
mundur Andri Thorsson vísu á
Fésbók:
Ávallt kíminn, afar glíminn er hann.
Sest ei hrím á sannan he-man,
snýr á tímann Jakob Frímann.
Vísnahorn pebl@mbl.is
Af vori og vitsmunaskorti