Morgunblaðið - 17.06.2010, Side 26

Morgunblaðið - 17.06.2010, Side 26
26 Minningar MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 2010 ✝ Jóhann Erlends-son flugvirki var fæddur í Reykjavík 17. maí 1940 og lést í El Pasó í Texas 2. september 2009. Foreldrar hans voru Þuríður Ásta Þorgrímsdótir hús- móðir, f. 3. febrúar 1909, d. 1. maí 1981, og Erlendur Jóhanns- son húsgagnasmiður, f. 19. desember 1908, d. 28. október 1990. Jóhann var elstur þriggja bræðra og eru bræður hans Höskuldur, f. 6. júlí 1943, gift- ur Ástu Kröyer, f. 17. desember 1946, og Kjartan, f. 7. mars 1948, d. 27. október 1983. Jóhann fór til Bandaríkjanna 1957 að læra flug- virkjun, kom heim og vann hjá Flugfélagi Íslands í 10 ár. Hann fór út aftur 1969 og bjó þar og starf- aði. Hann kom ekki mikið heim eftir það. Jóhann lætur eftir sig tvö börn hér á landi og eina stúlku í Bandaríkjunum en hún er gift og á einn dreng. Jóhann á átta barnabörn og tvö langafabörn hér á landi. Jóhann var skáti frá unga aldri og átti sá hópur góð- ar stundir saman. Jó- hann bjó með Corinne Von Berg í um 30 ár og var hún hans stoð og stytta er halla fór undan fæti, og þakka Höskuldur og fjölskylda hans henni fyrir alla umhyggjusemina í hans garð og óska henni velfarnaðar. Bálför fór fram í El Pasó 14. september 2009 og jarðsett var 17. maí 2010 í Fossvogsgarði að hans ósk. Hann Jóhann Erlendsson gamli vinur minn hefði orðið sjötugur í dag en hann lézt í Bandaríkjunum áður en hann náði þeim áfanga. Við kynntumst tveir strákar í Vesturbænum árið 1946 þegar við byrjuðum í Melaskólanum sem þá var nýjasta og flottasta mennta- mannvirki landsins. Hann innfædd- ur borgarbúi en ég aðfluttur lubbi frá Akranesi. Við urðum strax góðir vinir og brölluðum margt saman í því gós- enlandi sem umhverfið var. Svæðið á Melunum að byggjast upp og Kamp-Knox á milli heimila okkar með öllum þeim ævintýralegu möguleikum sem þar leyndust fyrir hressa krakka. Við höfðum báðir áhuga á flugvélum eins og flestir strákar og ætlaði ég mér að verða flugmaður en Jóhann, sem hafði verið heilsuveill sem ungbarn, hafði áhuga á læknisfræði. Hlutirnir snerust síðan við. Hann sem hafði ætlað að verða læknir fór í flugið en ég sem hafði svo mikinn áhuga á flugi varð læknir. Örlögin réðu því að Jóhann flutt- ist til Bandaríkjanna þar sem hann fór í flugvirkjanám og settist síðan þar að og stundaði sitt ævistarf. Samband okkar varð því strjált. Alltaf þegar við hittumst var hann sami hressi strákurinn með fallega brosið og smitandi skelli- hláturinn. Vinskapur okkar hélst órofinn og minningin um þennan jákvæða og heiðarlega mann mun lifa með okkur um ókomna tíð. Blessuð sé minning Jóhanns Er- lendssonar. Guðmundur K. Jónmundsson. Ég kynntist Jóhanni fyrst á lær- lingsárunum mínum frá 1961 hjá Flugfélagi Íslands en þá var hann nýkominn úr virtum flugvirkja- skóla í Kaliforníu. Það kom fljótt í ljós að Jóhann var algjör listasmið- ur í öllu sem hann gerði, hvort sem það voru flugvélar, bílar eða hús en allt gat hann og gerði og kom smið- seðlið í ljós þegar hann byggði þetta flotta einbýlishús í Silfurtúni yfir sig, konu, börn o.fl. Ég sjálfur flutti af landi með ævintýraþrá, eins og margir af vinnufélögum mínum, sem fylgir unga aldrinum um vorið 1969, en fæ fljótlega bréf frá Jóa og reyndar fleirum en Jói biður mig um að útvega sér vinnu enda voru erfiðleikar á vinnumark- aðnum á Íslandi á þessum tíma, og ekkert mál; Jói kom enda með góða reynslu við F 27 flugvélarnar og bætti upp að hann var góður í raf- magnskerfinu á þeim svo þetta var auðleyst og Jói kom til Alaska. Við fundum fyrir hann íbúð en hann hafði alltaf í huga að kona og börnin kæmu til hans en tíminn leið og hann beið sem endaði með al- gjörum og sorglegum sam- bandsslitum og húsið hans á Ís- landi var selt án hans leyfis og vitundar. Þarna í Alaska árið 1969/ 70 var einn niðurbrotinn maður og þetta tók líka á okkur félagana en þá var kominn smá kjarni af ís- lenskum fjölskyldum í Fairbanks, Alaska. Það er vert að geta þess að Jói var góður félagi allra og hjálpsam- ur öllum sem kynntust honum en þeir urðu líka hans bestu vinir. Þetta átti við bæði á Íslandi áður en hann fór af landi brott og í Alaska og var oft sagt í gamni að þetta væri skátaeðlið í honum þar sem hann var skáti frá unga aldri en Jóhann var bara svona gerður. Það er vert að minnast þess að þeg- ar Jói var að bíða fjölskyldu sinnar í Alaska þá byrjaði hann strax á að byggja upp heimili og keypti þetta líka stóra píanó sem við félagarnir bárum upp í íbúð hans og þar spil- aði hann sjálfum sér og okkur til afþreyingar en sumir okkar voru líka að bíða eftir fjölskyldum okkar en þetta voru ljúfar stundir enda kunni hann stórverk, s.s. eftir Bach o.fl. alveg utanbókar og auðvitað líka á léttari kantinum. Saga Jóa er löng og ekki í mínu valdi að segja hana alla enda spannaði hún yfir mörg lönd en hann var í Grænlandi, Afríku, Suð- ur-Ameríku en í þessum löndum ýmist bjó hann nokkur ár eða vann við sitt fag með heimili í Bandaríkj- um. Í Alaska bjó hann í nokkur ár og eins og segir í ýmsum fylkjum í Bandaríkjunum en endaði síðustu áratugi í El Paso í Nýju-Mexíkó þar sem hann lést eftir erfiðan sjúkdóm sem hann taldi sig líklega hafa fengið þegar hann vann fyrir ameríska CIA við viðhald flugvéla en þeir voru í kókaínherferð gegn Kólumbíumönnum við að úða pesti- cide eitri yfir kókaínakrana, en í síðasta bréfinu sem ég fékk frá honum þá sagði hann: Valdi, líklega heyrir þú ekki frá mér meir, sem svo kom á daginn en samband okk- ar var búið að vara í nær 50 ár. Við Alaska-félagarnir vottum samúð okkar eiginkonu hans, Co- ren, og eftirlifandi bróður Höskuldi og fjölskyldu, en þau sýndu honum umhyggju á hans lífsleið, og svo vottum við barnabörnum hans sömuleiðis dýpstu samúð. Valdimar. Jóhann Erlendsson Ég kynntist Bóbó þegar ég fór að vinna sem unglingur í frystihúsinu hér á Siglufirði. Þetta var í Ríkinu, seinna gamla Rammanum. Tækjasalurinn var niðri í frystihúsinu og snyrtisal- urinn uppi. Ásamt Bóbó unnu líka í tækjasalnum Mikki, Jói á Nesi og Sveinn Björns (hennar Hansínu), allt öðlingar. Þegar ég fór að vinna í stimp- ilkompunni hafði ég mikil samskipti við Bóbó og samstarfsmenn hans. Ég bjó sem sagt til kassana fyrir fiskinn, sá um að líma þá og merkja. Í stimpilkompunni var stórt gat á gólfinu sem járnhleri lá yfir og þann hlera opnaði ég og henti niður köss- unum fyrir þau tæki sem þeir voru að slá úr. Í minningunni þá var Bóbó alltaf í góðu skapi, alltaf að gantast og svo var hann bara svo góður við mig. Ýmislegt var nú Ásgrímur Guðmundur Einarsson ✝ Ásgrímur Guð-mundur Ein- arsson, ávallt kall- aður Bóbó, fæddist 7. nóvember 1929 á Siglufirði. Hann lést á heilbrigðisstofn- uninni á Siglufirði 19. maí 2010. Útför Ásgríms fór fram frá Siglufjarð- arkirkju 28. maí 2010. brallað t.d. vatn fryst í smokkum, svo var smokkurinn tekinn af og klakinn eins og hann var nú í laginu látinn renna inn á færibandinu með fisk- inum í vinnslusalnum uppi. Það kom nú á sumar konurnar en oftast var mikið hlegið af þessu öllu saman. Ég heimsótti líka karlana, þeir kunnu líka fullt af bröndur- um sem margir voru fremur svæsnir fyrir ungling eins og mig. Þeir hlógu alveg ógurlega þegar ég roðnaði eða varð vand- ræðaleg, þeir kunnu líka fullt af sögum. Á síðasta degi vinnuvikunn- ar þurftum við að vinna lengur, því það þurfti að klára að slá úr tækj- unum. Þá þurfti ég að fara í gegnum vinnslusalinn (í myrkri), niður í gegnum salinn með fatabásunum (líka í myrkri) til að komast út, því allir aðrir voru löngu farnir heim. Ég var að sjálfsögðu alveg skít- hrædd. Strákarnir sem unnu í tækjasalnum áttu það til að hrekkja mig. Þar var Raggi Mikk fremstur í flokki. Hann kom skyndilega stökkvandi út undan einhverju borðinu í vinnslusalnum eða út úr einhverjum fatabásnum, bara til að gera mér illt við. Mér brá alltaf jafn mikið og öskraði af öllum lífs og sál- ar kröftum. Svo fór að ég neitaði að fara þessa leið heim. Þá sagði Bóbó: „Komdu bara niður stigann á bakvið og svo út um gluggann“. Ég gerði það. Samt var ég hrekkt. Að lokum sagði ég við Bóbó: „Nú fer ég hvor- uga leiðina, ég kem bara í gegnum gatið, getið þið Mikki ekki bara gripið mig? „Jú, jú,“ sagði Bóbó og ég lét mig bara detta niður í gegn- um gatið og þeir gripu mig. Ég treysti þeim 100%. Eftir það fór ég alltaf þessa leið heim. Það var samt ekki þannig að ég væri eitthvað reið út í strákana, heldur var þetta bara fyndið. Bóbó hló líka að þessu og hláturinn í honum var óviðjafnan- legur, það ískraði í honum þegar hann sagði: „Þeir náðu þér eina ferðina enn.“ Seinna þegar ég var orðin full- orðin og hitti Bóbó á förnum vegi, rifjuðum við oft upp gamlar minn- ingar frá frystihúsárunum. Þá sagði hann alltaf við mig: „Manstu þegar þú lést þig detta niður í gegnum gatið? Manstu þegar þú sagðist ekk- ert skilja í því að þú værir búin með alla peningana þína, í búðinni hjá Önnu Láru?“ (sú saga verður ekki sögð hér) og fleira og fleira. Svo var hlegið. Eitt er alveg víst að fyrir ungling eins og mig þá var alveg ómetanlegt að fá að kynnast Bóbó og hefur mér einfaldlega alltaf þótt vænt um hann síðan. Hann var það sem maður kallar traustur vinur. Ég á eftir að sakna hans mikið, en minningarnar á ég og þær lifa áfram. Ég votta aðstandendum Bóbó samúð mína. Margrét Steinunn Þórðardóttir. Allt sem við veitum athygli, verðum fyrir eða hugsum um, vex og dafnar innra með okkur. Bæði hið já- kvæða sem og hið neikvæða. Spurningin er hinsvegar hvaða áhrif við leyfum því sem við verðum fyrir eða tökum inn að hafa á okkur? Hvern- ig við vinnum úr atvikunum, hvort við veljum að láta hið neikvæða, það sem miður fer og dregur okk- ur niður móta okkur og stjórna eða setjum það í reynslubankann og drögum lærdóm af á leið okkar inn í framtíðina. Að vera til blessunar Flestir ef ekki allir þrá að fá að njóta blessunar í lífinu. Ef þú vilt njóta blessunar skaltu leitast við að vera til blessunar. Með því að bera raunverulega umhyggju fyrir samferðafólki þínu. Með umvefj- andi og hlýlegu viðmóti, með já- kvæðri og uppbyggilegri gagnrýni og með því að hlusta, sýna skiln- ing, uppörva og gleðja, styðja og hvetja. Þeir sem hugsa fyrst og fremst um eigin hag og láta allt snúast um eigin þarfir verða ekki til blessunar í umhverfi sínu. Þeir sem alltaf eru neikvæðir, þurfa að toppa allt sem sagt er eða gert, eru tilbúnir að setja út á allt og alla og tala öðruvísi um fólk en þeir koma fram við það verða heldur ekki til bless- unar. Þeir sem eru sjálfselskir, sérhlífnir og sjálfumglaðir, sí- fellt neikvæðir, með allt á hornum sér. Þess vegna er svo mikilvægt að ganga út í daginn með því meðvitaða hug- arfari að ætla sér að verða til blessunar. Öll erum við kölluð inn í þennan heim til þess að vera til blessunar. Tökum því meðvitaða ákvörðun um það í dag að verða til bless- unar. En það kostar sannarlega þrautseigju og þolinmæði, úthald og sjálfsaga. Verum til blessunar Eftir Sigurbjörn Þorkelsson Sigurbjörn Þorkelsson » Flestir ef ekki allir þrá að fá að njóta blessunar í lífinu. Ef þú vilt njóta blessunar skaltu leitast við að vera til blessunar. Höfundur er rithöfundur og áhuga- maður um lífið. BRÉF TIL BLAÐSINS Oftast erum við mannfólkið önnum kafið við að sinna því sem við telj- um nauðsynlegt að afgreiða sem fyrst og brunum svo áfram frá einu verkefninu til annars. Ýmsir stórviðburðir bætast við hversdagslega atburði í lífi og starfi, í fjöl- skyldu og sam- félagi, og valda raski og róti á huga manna. Smátt og stórt fyllir tilveruna og krefst athygli og tíma. Fjölbreytni mannlífsins er mikil og sífellt þurfa menn að bregðast við því sem að höndum ber, sumu leiðigjörnu, öðru ánægjulegu. En það er hollt að kasta mæð- inni stöku sinnum og leiða hugann að sjóndeildarhringnum fjær og upp í óendanlegan himininn. Þrátt fyrir brauðstrit og annríki frá degi til dags ættum við að minnast þess að við eigum heima í víðari heimi en við alla jafna hugsum út í og erum leikendur um stund í stórkostlegra leikriti en við í ys og þys líðandi stundar gefum gaum að. Við eigum að sönnu heima á einstæðri Jörð í undraverðum al- heimi og erum á vappi stutta stund. Óðar en varir er komið að okkur að stíga af sviðinu. Sólstöð- ugangan um Öskjuhlíð í Reykjavík mánudagskvöld 21. júní nk. er í aðra röndina farin til að minna á þetta þótt hún sé að öðru leyti óhátíðleg hressingarganga í sam- fylgd kunnugra og ókunnugra. Nú er aldarfjórðungur síðan fyrsta sólstöðugangan var gengin hér í Reykjavík og nágrenni. Ef til vill verður hún að hefð og ef til vill eflist hún um síðir svo að úr verði fjölþætt sólstöðuhátíð. Upp- hafsmenn þessa viðburðar vona það og gera sér jafnvel vonir um að slík hátíð gæti skotið rótum í öðrum löndum og verði haldin er fram líða stundir samtímis um alla Jörð. Sólstöðuhátíðir eiga sér mörg þúsund ára sögu með mannkyninu og er t.d. frá því greint í læsilegri bók á ensku sem nefnist „Cele- brate the Solstice“ eftir Richard Heinberg. Ævafornar vetrar- og sumarsólstöðuhátíðir voru und- anfari ýmissa hátíða nú á dögum, svo sem jóla og Jónsmessu. Ná- granna- og vinaþjóð okkar, Græn- lendingar, kusu sumarsólstöður 21. júní til að fagna sjálfstæði sínu og framtíð í frjálsu landi. Við sam- fögnum þeim og líka öllum öðrum hér á landi og erlendis sem velja þennan dag til að hylla líf og Jörð – og lífgjafa okkar, sjálfa sólina. Sólstöðugangan er eins konar friðarganga. Meðan á henni stend- ur hvílir göngufólk sig á karpi og deilum og nýtur í stað þess nátt- úrunnar í Öskjuhlíð, eða annars staðar, og samfylgdar ungra og gamalla. Þess má að lokum geta að frek- ari upplýsingar um sólstöðugöng- una má finna á „facebook“ (sem ég kalla Vinatorg) á netinu. Þar er hópur eða vefsíða sem kallast um þessar mundir enska heitinu „Uni- versal Solstice Celebration“. Um 600 manns hafa skráð sig á vefsíð- una. Lesandi er hvattur til að for- vitnast og lesa þar eins konar yf- irlýsingu Sólstöðugöngu. Að vísu er hún þar einungis í enskri þýð- ingu en frumútgáfa á íslensku mun vera glötuð. Í Sólstöðugönguna sem kölluð hefur verið „meðmælaganga með lífinu og menningunni“ eru allir velkomnir. Safnast verður saman við Perluna rétt fyrir klukkan átta að kvöldi sólstöðudags og þar end- að eftir tveggja til þriggja tíma rólega göngu stóran hring um Öskjuhlíð. ÞÓR JAKOBSSON, veðurfræðingur og í undirbún- ingshópi Sólstöðugöngu. Sólstöðuganga um Öskjuhlíð – byrjun á hefð? Frá Þór Jakobssyni Þór Jakobsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.