Morgunblaðið - 17.06.2010, Qupperneq 41
Menning 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 2010
Iceland Inspires er yfirskrift landkynningartónleika sem
haldnir verða 1. júlí n.k. að Hamragörðum undir Eyja-
fjöllum, skammt frá Seljalandsfossi, og sendir út beint á
netinu í bland við myndskeið sem tekin hafa verið sér-
staklega upp fyrir viðburðinn, með íslenskum og erlend-
um tónlistarmönnum í íslenskri náttúru. Blásið verður til
þriggja klukkustunda langrar tónlistarveislu en tónleik-
arnir verða einn af hápunktum átaksins Inspired by Ice-
land. Flestir ættu að kannast við landkynningarmynd-
band átaksins sem þegar verið dreift á netinu af
Íslendingum og öðrum sem landinu unna.
Í tilkynningu vegna tónleikanna segir að heimsóknir á
vefsíðu átaksins hlaupi á þúsundum dag hvern og því eigi
að nýta sér þá athygli og meðbyr og vekja enn meiri at-
hygli á landinu og því sem það hefur upp á að bjóða með
tónleikum.
Spiritualized með íslenskri strengjasveit og kór
Að Hamragörðum koma m.a. fram
breska sveitin Spiritualized með ís-
lenskri strengjasveit og kór, Seabear,
Amiina, Dikta, Steindór Andersen,
Lay Low, Hilmar Örn Hilmarsson,
Mammút, Páll á Húsafelli og Paraból-
ur ásamt fleirum. Þá verða einnig
sýndar í beinni útsendingu á netinu
mynd- og hljóðupptökur með Damien
Rice, Glen Hansard, Gus Gus, Hjaltal-
ín, For a Minor Reflection, Retro Stef-
son o.fl.
Damien er mikill Íslandsvinur og
hefur hingað komið nokkrum sinnum,
til tónleikahalds og í upptökur. Jason
Pierce, forsprakki Spiritualized, kom
hingað til lands fyrir um ári og tók upp
myndband við eitt laga sinna. Glen
Hansard samdi tónlistina í kvikmynd-
inni Once ásamt Markétu Irglová og
hlutu þau óskarsverðlaun fyrir lagið „Falling Slowly“ úr
þeirri mynd árið 2008.
Upptökurnar sem sendar verða út á netinu samhliða
tónleikunum hafa verið unnar sérstaklega fyrir þessa út-
sendingu og teknar á nokkrum vel völdum stöðum í ís-
lenskri náttúru, m.a. í Fljótshlíð.
Allir velkomnir og hvattir til að mæta
Tónleikarnir eru öllum opnir og ókeypis og eru Íslend-
ingar hvattir til að fjölmenna á þá. Svæðið verður opnað
kl. 19, tónleikarnir hefjast klukkustund síðar og standa
til kl. 23. Sveitamarkaður verður m.a. á tónleikasvæðinu
á vegum bænda og eflaust margt annað í boði.
helgisnaer@mbl.is
Tónleikar í beinni
frá Hamragörðum
Landkynningartónleikar verða haldnir 1. júlí þar sem
fram koma margir af þekktustu tónlistarmönnum Íslands
Öllum frjálst að mæta á tónleikana sem eru ókeypis
Spiritualized Heldur tónleika á Íslandi til landkynningar.
Hamragarðar
Tónleikastaðurinn
fagri undir Eyja-
fjöllum.
Landkynningarátakið má kynna sér á vefsíðu þess:
www.inspiredbyiceland.com.
568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is
Rómeó og Júlía, magnað leikhús
Rómeó og Júlía Vesturports (Stóra svið )
Fös 18/6 kl. 20:00 aukas Sun 20/6 kl. 20:00 aukas Mið 30/6 kl. 20:00 aukas
Lau 19/6 kl. 20:00 aukas Þri 29/6 kl. 20:00 aukas
Í samvinnu Borgarleikhússins og Vesturports.
Gauragangur (Stóra svið)
Fös 3/9 kl. 20:00 Fös 10/9 kl. 20:00
Lau 4/9 kl. 20:00 Lau 11/9 kl. 20:00
Eftir Ólaf Hauk Símonarson - tónlist Nýdönsk
dreifing: smekkleysa
Afmælisþakkir
Sendi innilegar þakkir til þeirra fjölmörgu góðu
vina sem glöddu mig með margvíslegum hætti á
afmæli mínu 14. apríl sl.
Hjartanlegar kveðjur til ykkar allra
Ólöf Pálsdóttir
Barna- og fjölskylduskemmtanir,
tónleikar, dansleikir, leiktæki, ýms-
ar sýningar og götuuppákomur bera
uppi glæsilega lýðveldishátíð í dag
en 80 atriði eru á dagskrá í Reykja-
vík sem stendur frá kl.10 til 23.
Börn lýðveldisins geta þrammað
áhyggjulaus niður í bæ, hvort sem
þau eru ung eða aldin, fullviss um
skemmtilega hátíð. Um daginn verð-
ur krökkunum boðið að leika sér í
ýmsum leiktækjum og bílarmar af
skemmtikröftum munu leika þeim
listir sínar, t.a.m. hinn virti Tóti
trúður og samstarfsfélagar hans í
Iss Piss fimleikatrúðagenginu. Þá
verður Brúðubíllinn skammt undan.
Enginn ætlar sér að missa af tón-
leikunum á Arnarhóli sem hefjast
klukkan 19 en þar koma fram hljóm-
sveitirnar Lucky Bob, Feeling Blue,
Hydrophobic Starfish, Seabear,
Retro Stefson, Of Monsters and
Men, Hjaltalín, Dikta og GÁVA.
Í ráðhúsinu verður harmónikuball
þar sem Léttsveit Harmónikufélags
Reykjavíkur leikur fyrir dansi en á
Ingólfstorgi verður dansleikur með
Komið og dansið, Varsjárbandalag-
inu, Sniglabandinu og Milljónamær-
ingunum. gea@mbl.is
Lýðveldisleikar
Morgunblaðið/Ernir
Nanna Bryndís Liðsmaður hljóm-
sveitarinnar Of Monsters and Men.