Morgunblaðið - 02.07.2010, Side 1
ÚTILISTAVERK
LIGGJA UNDIR
SKEMMDUM
HÁLENDIÐ
SEM
HIMNARÍKI
BÝR TIL PELÉ-
SKART ÚR
ÞÆFÐRI ULL
LIFUN ÚTIVIST 24 SÍÐUR HIN ÍSLENSKA PELÉ 10LISTAVERKAVEFUR 31
Jónas Margeir Ingólfsson
og Skúli Á. Sigurðsson
Tilmæli Fjármálaeftirlitsins og Seðlabanka Ís-
lands til fjármálafyrirtækja vegna nýfallinna
dóma Hæstaréttar um ólögmæti gengistrygging-
ar setja fjármálafyrirtækjum í sjálfsvald að meta
til hvaða samninga tilmælin taki. Fjármálafyrir-
tækin hafa þannig frjálsar hendur um hvaða
gengistryggð lán sín þau leiðrétta.
Flest fjármálafyrirtæki hafa sent frá sér yfir-
lýsingar þess efnis að tilmælin taki til gengis-
tryggðra bílalána þeirra en ekkert fyrirtæki hef-
ur, enn sem komið er, ákveðið að láta tilmælin
einnig taka til gengistryggðra húsnæðislána.
Þrátt fyrir ótvírætt fordæmisgildi hæstaréttar-
dómanna að mati fræðimanna telja fjármögnunar-
fyrirtækin ákvæði um gengistryggingu húsnæðis-
lána í samningum sínum það ólík ákvæðum um
gengistryggingu í samningum um bílalán að dóm-
ar Hæstaréttar og tilmæli Seðlabankans og FME
taki því ekki til húsnæðislána að svo stöddu.
Breyttar afborganir af lánum
Fari bankar og fjármögnunarfyrirtæki að til-
mælunum mun það leiða af sér lægri afborganir en
skuldarar þyrftu að greiða hefði gengistrygging
fengið að standa. Miðað við að eftir dóm Hæsta-
réttar standi samningsvextir verða þær næstum
fjórfalt hærri.
Í sjálfsvald sett
Fjármögnunarfyrirtækin dæma sjálf um hvort til-
mælin taki til gengistryggðra lánasamninga þeirra
Meira en fimm þúsund tónleika-
gestir í Hljómskálagarðinum voru
innblásnir af ljúfum tónum í gær-
kvöldi þegar tónleikarnir „Iceland
inspires“ voru haldnir. Regnhlífar
settu svip á tónleikasvæðið framan
af kvöldi en um tíuleytið stytti upp
og íslenska sumarið sýndi sínar
bestu hliðar. Tónleikarnir voru
hluti af kynningarátakinu „Inspir-
ed by Iceland“ eða „Undir áhrifum
frá Íslandi“ sem vakið hefur mikla
athygli víða um heim. Talið er að
tugir þúsunda hafi fylgst með tón-
leikunum á netinu í gærkvöldi.
„Vinahópurinn sem við höfum
byggt upp í tengslum við þetta átak
skilaði sér greinilega á tónleikana.
Við erum rosalega ánægð og glöð
með þennan hápunkt átaksins,“
sagði Inga Hlín Pálsdóttir, sem sit-
ur í verkefnisstjórn „Inspired by
Iceland“, að lokinni vel heppnaðri
þriggja tíma tónlistarveislu.
Meðal þeirra sem fram komu á
tónleikunum voru Damien Rice,
Lay Low, Hjaltalín, Hafdís Huld,
Gus Gus, Dikta og Mammút.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tugir þúsunda inn-
blásnir af Íslandi
Stuðningur við ríkisstjórnina
hefur aftur minnkað og mælist nú
um 42%. Þetta er niðurstaða könn-
unar sem Miðlun vann fyrir Morg-
unblaðið í síðasta mánuði. Ef mið-
að er við Þjóðarpúls Capacent
Gallup nemur þessi stuðningur
lægsta stuðningshlutfalli rík-
isstjórnarinnar síðan í kosningum.
Í þarsíðasta Þjóðarpúlsi mældist
stuðningurinn einnig 42% en í
fyrri Þjóðarpúlsum hefur stuðn-
ingur við ríkisstjórnina mælst á
bilinu 46%-50%.
Þegar litið er til aldurs að-
spurðra kemur greinilega í ljós
mikill afstöðumunur. Aðeins 35%
yngstu þátttakenda, þ.e. á aldurs-
bilinu 18 til 24 ára, sögðust styðja
ríkisstjórnina. Mestur stuðningur
mælist hins vegar í elsta hópnum,
þ.e. aldurshópnum 55-75 ára, eða
46,5%. Þróunin er einnig sú að
þeim mun menntaðri sem svar-
endur eru, þeim mun jákvæðari
voru þeir í garð ríkisstjórn-
arinnar. »4
Styður þú
ríkisstjórnina?
42%
Já, styð
ríkisstjórnina
58%
Nei, styð ekki
ríkisstjórnina
849 voru spurðir. 689 (81,2%) tóku afstöðu.
Ríkisstjórnin nýtur
minni stuðnings
Stofnað 1913 152. tölublað 98. árgangur
F Ö S T U D A G U R 2. J Ú L Í 2 0 1 0
129.934
Afborgun nú miðuð við að gengistrygging
íslensks lánsfjár hefði fengið að standa.
39.704
Afborgun nú með verðtryggingu og vöxtum
miðuð við að tilmælum SÍ og FME sé fylgt.
10.409
Afborgun nú miðuð við að vextir sam-
kvæmt samningum um gengistryggð lán
standi án gengistryggingar.
‹ AFBORGANIR AF BÍLALÁNUM ›
»
Andstaða við aðild Íslands að
Evrópusambandinu fer vaxandi, að
því er kemur fram í nýjum Þjóð-
arpúlsi Capacent Gallup er RÚV
greindi frá í gærkvöldi. Katrín
Jakobsdóttir, varaformaður Vinstri
grænna, segir niðurstöðuna ekki
koma sér á óvart en könnunin eigi
ekki að hafa áhrif á umsóknar-
ferlið. Skúli Helgason, þingmaður
Samfylkingar, tekur í sama streng
og talar um stóra dóm þegar við-
ræðum ljúki. Ólöf Nordal, vara-
formaður Sjálfstæðisflokks, segir
að um sé að ræða forystulaust
ferðalag og Íslendingar vilji fara að
einbeita sér að málum heima fyrir.
Birkir Jón Jónsson, varaformaður
Framsóknarflokks, segist enn vilja
skoða hvað viðræðurnar fela í sér
fyrir Íslendinga. »9
Andstaða við aðild
að ESB eykst meðal
þjóðarinnar
MTilmæli SÍ og FME »16 og 17