Morgunblaðið - 02.07.2010, Side 4
Þróun frá kosningum - stuðningur við ríkisstjórnina
skv. Þjóðarpúlsi Capacent
%
60
50
40
30
20
10
0
49% 47% 48% 47%
46%
50%
47%
47%
42%
47%
Könnun Morgunblaðsins
Ágúst
2009
Sept.
2009
Okt.
2009
Nóv.
2009
Des.
2009
Jan.
2010
Feb.
2010
Mars
2010
29.mars-
11.apríl
12.-29.
apríl
Júní
2010
42%
Gísli Baldur Gíslason
gislibaldur@mbl.is
Stuðningur við ríkisstjórnina fer
minnkandi og mælist nú um 42%.
Þetta er niðurstaða könnunar sem
Miðlun ehf. vann fyrir Morgunblaðið
í síðasta mánuði.
Ef tekið er mið af niðurstöðu úr
Þjóðarpúlsi Capacent Gallup þá nem-
ur þessi 42% stuðningur lægsta
stuðningshlutfalli ríkisstjórnarinnar
síðan í kosningum. Raunar mældist
stuðningurinn í næstsíðasta Þjóðar-
púlsi einnig 42% en í könnuninni þar
á eftir fjölgaði stuðningsmönnum um
fimm prósent. Í öðrum Þjóðarpúlsum
hefur stuðningur við ríkisstjórnina
mælst á bilinu 46% til 50%.
Í niðurstöðu könnunar Miðlunar
kemur einnig fram að ríkisstjórnin er
óvinsælli hjá körlum en konum.
Bæði á höfuðborgarsvæðinu og á
landsbyggðinni styðja um 42% svar-
enda ríkisstjórnina, svo ekki er mun-
ur þar á.
Munur á aldurshópum er
greinilegur í afstöðu til stjórnarinn-
ar. Aðeins 35% yngstu þátttakend-
anna, á aldursbilinu 18 til 24 ára,
styðja ríkisstjórnina. Stjórnin nýtur
mesta stuðningsins meðal elsta
hópsins, þeirra sem eru á aldrinum
55 til 75 ára, eða um 46,5%.
Þá haldast menntun svarenda
og afstaða í hendur. 53% svarenda
með háskólapróf styðja stjórnina en
31% svarenda sem eru með grunn-
skólapróf styður hana. Þróunin virð-
ist vera sú að því menntaðri sem
svarendur eru, þeim mun vinsælli er
ríkisstjórnin.
Alls voru 849 manns spurð
hvort þau styddu ríkisstjórnina. Þar
af tóku 689 afstöðu. Úrtakið var til-
viljanaúrtak einstaklinga á aldrinum
18-75 ára. Könnunin var framkvæmd
á tímabilinu 11. til 28. júní.
Færri styðja stjórnina en fyrr
Stuðningur við ríkisstjórn Samfylkingar og VG minnkar og mælist nú 42%
Aðeins um 35% þátttakenda á aldursbilinu 18 til 24 ára styðja ríkisstjórnina
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JÚLÍ 2010
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Nýliðinn júní var óvenju hlýr um mikinn hluta
landsins og það fór eins og menn grunaði. Hita-
metin féllu í Stykkishólmi, þar sem mælt hefur
verið frá árinu 1845, og í Reykjavík, þar sem
mælt hefur verið frá 1871. Þetta kemur fram í
yfirliti Trausta Jónssonar veðurfræðings. Að
mati Trausta er hér um veðurfarsleg stórtíðindi
að ræða. Mjög þurrt var víðast hvar á landinu í
júní og þurrkar háðu víða gróðri.
Meðalhiti í Reykjavík var 11,4 stig (2,4°C yf-
ir meðallagi) og hefur aldrei mælst hærri í júní.
Júnímánuðir hafa verið óvenju hlýir frá aldamót-
um, allir nema einn (2001) yfir meðallaginu 1961-
1990 og allir nema tveir yfir meðallaginu 1931-
1960. Methiti (10,8°C) mældist einnig í Stykk-
ishólmi.
Á Hveravöllum var einnig methiti í júní, en
þar hefur aðeins verið mælt frá 1965. Athygli
vekur að maí var einnig methlýr á Hveravöllum,
líklega er það snjóleysi á hálendinu að þakka.
Meðalhiti á Akureyri var 11,2°C og er það
2,1 stigi yfir meðallagi. Þetta er sjöundi hlýjasti
júnímánuður á Akureyri en mælingar hófust þar
haustið 1881. Meðalhiti á Höfn í Hornafirði
mældist 10,1 stig. Að tiltölu varð kaldast á an-
nesjum austanlands en hiti var þar þó vel yfir
meðallagi, segir Trausti.
Mjög þurrt var víðast hvar á landinu.
Þurrkmet voru þó ekki slegin nema á stöðvum
þar sem aðeins hefur verið athugað í stuttan
tíma. Úrkoman í Reykjavík mældist 29,5 milli-
metrar, sama og í maí, og eru það um 60 prósent
af meðalúrkomu. Er þetta fjórði þurri júnímán-
uðurinn í röð í Reykjavík. Í Stykkishólmi mæld-
ist úrkoman 10 millimetrar og er það um fjórð-
ungur meðalúrkomu. Þetta er minnsta úrkoma í
júní í Stykkishólmi síðan 1998. Aðeins tveir milli-
metrar mældust á Akureyri og eru það sjö pró-
sent meðalúrkomu. Enn minni úrkoma mældist
á Akureyri í júní 2007.
Þegar skoðaðar eru hitatölur fyrstu sex
mánuði ársins hafa þær aðeins þrisvar orðið
marktækt hærri í Reykjavík en nú. Það var árið
1929 (vetrarhlýindi), 1964 (vetrarhlýindi) og
2003 (allir mánuðir hlýir nema maí). Álíka hlýtt
varð 1972 (mikil vetrarhlýindi) og 1974 (óvenju-
leg vorhlýindi).
Hitametin féllu víða um land í júní
Methiti í Stykkishólmi, þar sem mælt hefur verið samfellt frá árinu 1845 Metin féllu einnig
í Reykjavík og á Hveravöllum Úrkoman á Akureyri í mánuðinum var aðeins tveir millimetrar
Morgunblaðið/Ernir
Veðurblíða Landsmenn nutu góða veðursins.
Sólin skein skært nyrðra
» Sólskinsstundir í Reykja-
vík mældust 158 í júní og má
það heita í meðallagi.
» Mjög sólríkt var á Ak-
ureyri. Þar mældust sólskins-
stundirnar 256 sem er 79
stundum umfram meðallag.
» Þetta er sólríkasti júní þar
síðan 2000 en þá mældust sól-
skinsstundir þar 285.
» Loftþrýstingur í Reykjavík
mældist 1015,6 hPa í júní og er
það 5,5 hPa yfir meðallagi.
Þetta er sjöundi mánuðurinn í
röð þar sem þrýstingurinn er
yfir meðallagi.
Heldur var hún slök stemningin á opnunardegi
sumarmarkaðarins á Thorsplani í Hafnarfirði í
gær. Veðurguðirnir voru verslunarmönnum
vondir og hvass- og votviðri varð til þess að bás-
um var lokað mun fyrr en ætlað var.
Víða olli veðrið þó meiri vandræðum en í
Hafnarfirði því bílar og hjólhýsi fuku víða um
land af vegum. Ferðalangar sem komu með Nor-
rænu til Seyðisfjarðar í gær lentu nokkrir í
vandræðum, m.a. festust þýskir ferðamenn í hús-
bíl sínum þegar hann fauk af veginum við Sand-
fell í Öræfum og húsbíll franskra ferðamanna
fór sömu leið á svipuðum slóðum. Öllum var
bjargað og engar fregnir höfðu borist af alvar-
legum slysum á fólki vegna veðurs í gærkvöldi.
Morgunblaðið/Ernir
Veðrið setti strik í reikning verslunarmanna
Borgarfulltrúar
Sjálfstæðisflokks
og Vinstri
grænna spurðu
um störf
stjórnar-
formanns Orku-
veitu Reykjavík-
ur á fundi
borgarráðs í gær
og óskuðu m.a.
eftir áliti borgar-
lögmanns á lögmæti þess að stjórn-
arformaður væri í fullu starfi. Þá
var óskað eftir svari við því hver
tæki ákvörðun um að miða laun
stjórnarformanns við laun sviðs-
stjóra og á hvaða forsendum.
Um kvöldmatarleytið í gær barst
fjölmiðlum tilkynning frá
aðstoðarmanni borgarstjóra þar
sem m.a. segir að eigendur OR hafi
samþykkt einróma að stjórnar-
formaðurinn yrði tímabundið í
fullu starfi. Launin taki mið af
launum sviðsstjóra án fríðinda.
„Það þótti eigendum hæfilegt mið-
að við umfang starfsins og
ábyrgð,“ segir í tilkynningunni.
Stjórnarformanni hafi þó ekki ver-
ið falin önnur en lögboðin verkefni.
Spurt um
stjórnarfor-
mann OR
Launin þykja hæfileg
miðað við ábyrgð
Orkuveituhúsið
Pólverjar komust
upp fyrir Íslend-
inga á Evr-
ópumótinu í brids
í Belgíu í gær og
var íslenska liðið
í fjórða sæti eftir
daginn, með 218
stig eftir 24 um-
ferðir. Auk þess
að tapa fyrir Pól-
verjum gerði liðið jafntefli við Svía,
16:16, og við Eista, 15:15.
Ítalir tóku forystuna af Ísraelum í
gær og voru eftir daginn með 243
stig. Ísraelar fylgdu fast á hæla
þeim með 240,5 stig og svo Pólverj-
ar í þriðja sæti með 232 stig. Enn
getur margt gerst enda fjórar um-
ferðir eftir en sex efstu sætin
tryggja þátttökurétt á heims-
meistaramótinu í haust.
Íslenska
liðið í fjórða
sæti í gær
Brids Krefst mik-
illar útsjónarsemi.