Morgunblaðið - 02.07.2010, Side 19
Fréttir 19ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JÚLÍ 2010
Fyrir hálfri öld eða svo reistu Japanar háþróaðasta
framleiðsluiðnað sem veröldin hafði séð á rústum lands
sem beið ósigur í síðari heimsstyrjöldinni.
Konur tóku virkan þátt í uppbyggingunni enda vant-
aði vinnufúsar hendur eftir allt mannfallið.
Niðurstaðan varð efnahagsundur sem flest ríki
heims renndu öfundaraugum til.
Nú er efnahagsveldið að eldast og þá þarf að leita út
fyrir landsteinana til að finna kaupendur að raftækj-
unum sem renna af færiböndunum.
Samband Japana og Kínverja hefur löngum verið
stormasamt en sú saga var lögð til hliðar þegar Jap-
ansstjórn ákvað í vikunni að slaka á reglum um vega-
bréfsáritanir til landsins, gagngert í því skyni að
greiða fyrir heimsóknum vel stæðra Kínverja.
Nálgast milljón milljónamæringa
Áætlað er að nú séu yfir 750.000 milljónamæringar í
Kína og er þá miðað við eignir sem eru yfir milljón
Bandaríkjadala, eða um 130 milljónir króna á núvirði.
Sé skilgreiningin rýmkuð er ljóst að milljónir, ef ekki
tugmilljónir Kínverja eru í mjög góðum efnum.
Hópurinn stækkar dag frá degi og standa vonir jap-
ansks iðnaðar til að kaupgleði kínverskra neytenda
muni slá á minnkandi sölu á raftækjum, snyrtivörum og
öðrum dýrum og vönduðum vörum sem fólk er tilbúið
að greiða hærra verð fyrir en þegar um ódýrari merki
er að ræða. baldura@mbl.is
Japanar opna dyrnar fyrir
kaupglöðum Kínverjum
Slaka á reglum um vega-
bréfsáritanir til að örva sölu
Reuters
Kröfur Vel stæðir Kínverjar vilja það nýjasta og besta.
Alex dreifir
olíu um flóann
Heldur dró úr styrk fellibyljarins
Alex í gærmorgun er hann var færð-
ur niður um þrep og skilgreindur
sem hitabeltislægð.
Alex reið yfir Mexíkóflóa á versta
tíma en þar berjast sem kunnugt er
bandarísk yfirvöld við mikla olíubrák
í kjölfar olíuslyssins, þess mesta í
sögu landsins, í apríl.
Óttast er að Alex kunni að auka á
olíumengunina í votlendi við Missis-
sippifljót en þeir eru afar mikilvægir
fyrir lífríkið í flóanum.
Olíufangarar fluttir í land
Óvíst er hversu mikið fellibylurinn
hefur tafið olíuhreinsunina en færa
þurfti ríflega 500 olíufangara á land í
varúðarskyni. Þá var olíuhreinsun-
arskipum siglt til hafnar.
Alex olli mestum usla í Mexíkó,
Níkaragva, Gvatemala og El Salva-
dor en að minnsta kosti 11 manns
létu lífið í hamförunum síðustu helgi
er rigningar sem honum fylgdu
komu af stað aurskriðum og flóðum.
Alex olli einnig tjóni í sambands-
ríkinu Texas en hann er sá fyrsti á
fellibyljatímabilinu í ár.
Fellibylurinn, sem náði mest 2.
stigi af 5 á Saffir-Simpson-kvarðan-
um, var jafnframt sá öflugasti á
svæðinu síðan í júní 1966.
Veðurfræðingar óttast að Alex
kunni einnig að auka olíumengunina
við strendur vinsælla viðkomustaða
ferðamanna í Bandaríkjunum en það
yrði þá einnig á versta tíma þar sem
ferðahelgin vegna þjóðhátíðarhald-
anna 4. júlí er framundan.
Við öllu búin
Mexíkóski sjóherinn tefldi ekki á
tvær hættur heldur skipaði um 2.000
sjómönnum að bíða í landi á meðan
Alex ýfði flóann.
Þá var um 17.500 manns gert að
yfirgefa heimili sín við suðaustur-
strönd landsins. baldura@mbl.is
Í Mexíkó Margir leituðu skjóls.
Áhyggjur af votlendi við Mississippifljót
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Á meðan stjórnvöld margra evrópskra ríkja
eru blóðug upp fyrir axlir í einum mesta niður-
skurði síðustu áratuga ganga mörg ríki Róm-
önsku-Ameríku í gegnum góðæri.
Þróunin er gerð að umtalsefni á vef New
York Times en þar er vitnað til þeirrar spár Al-
þjóðabankans að hagvöxtur í álfunni verði
4,5% í ár, vöxtur sem fer langt með að stroka út
neikvæð áhrif niðursveiflunnar.
Álfan er rík af auðlindum og er Brasilía þar
fremst í flokki. Landið, það fjölmennasta í
Rómönsku-Ameríku, gekk í gegnum niður-
sveiflu í fyrra en nú er annað uppi á teningnum.
Brasilísk stjórnvöld spá þannig 7,3% hag-
New York Times. Þá muni Mexíkó snúa við
blaðinu og fara úr 6,5% samdrætti árið 2009 í
4% hagvöxt í ár. Segir þar einnig að meðalvöxt-
ur í álfunni hafi verið 5,3% á árunum 2003 til
2008, vöxtur sem hafinn er aftur.
vexti á árinu en til samanburðar var vöxturinn
á fyrsta ársfjórðungi um 9%. Verði þetta raun-
in hefur hagkerfi landsins ekki vaxið jafn hratt
á einu ári í tæpan aldarfjórðung.
Mexíkó hefur ekki farið varhluta af upp-
sveiflunni en þar er áætlað að hagkerfið hafi
vaxið um 4,3% á fyrsta ársfjórðungi og að vöxt-
urinn verði um 5% á árinu öllu, að því er fram
kemur í fréttaskýringu New York Times.
Samdráttarskeið að baki
Tekið skal fram að árið 2009 var almennt
samdráttarár, staðreynd sem ber að hafa í
huga þegar ofangreindar tölur eru metnar.
Engu að síður er ljóst að Rómanska-Amer-
íka er komin á beinu brautina.
Simon Romero, blaðamaður New York Tim-
es, hefur þannig eftir Mario Zamora, sem á og
rekur sex lyfjaverslanir í úthverfi Lima, höfuð-
borgar Perú, að hann hafi aldrei upplifað aðra
eins gósentíð og að undanförnu. Zamora hefur
við rök að styðjast því vöxturinn í Perú í apríl
var 9,3% miðað við sama mánuð í fyrra.
Hrakspár rættust ekki
Fram kemur á vef Alþjóðabankans að
áhyggjur af því að fjármálakreppan haustið
2008 myndi draga úr langtímavexti í álfunni
hafi reynst óþarfar.
Stærri ríki álfunnar, á borð við Brasilíu, hafi
þannig hafið viðsnúning á fyrri árshelmingi
ársins 2009 en tekið skal fram að spáin fyrir
Brasilíu hljóðar þar upp á um 6% hagvöxt í ár,
sem er nokkru minna en hjá heimildarmönnum
Uppsveifla í Rómönsku-Ameríku
Álfan nýtur góðs af eftirspurn eftir hráefnisvörum Alþjóðabankinn spáir
4,5% hagvexti í álfunni í ár Hagkerfi Brasilíu vex hröðum skrefum
Reuters
Aðalmálið Brasilíumenn fylgjast með HM.
Hann fer sér að engu óðslega maðurinn þar sem hann kemur fagurlega
ávölum leirpottum fyrir í heimasmíðuðum brennsluofni í pakistönsku
borginni Peshawar. Pottarnir verða að líkindum notaðir undir plöntur en
ekki fylgir sögunni hvað maðurinn fær fyrir erfiði sitt.
Reuters
Gerir pottana klára
Michael O’Leary,
forstjóri lágfar-
gjaldaflug-
félagsins Ryan-
air, kynnti í gær
nánari útfærslu á
hugmyndum að
„stæðum“ í 250
flugvélum félags-
ins.
Verðið á stæð-
unum verður frá
5 og upp í 8 pund, að því er fram
kom á vef Daily Telegraph, en það
samsvarar 950 til 1.520 krónum.
Farþegarnir uppréttir í beltum
Flugmálayfirvöld eiga enn eftir
að leggja blessun sína yfir hug-
myndina en hún gengur út á að
festa farþegana á bekk sem kann að
svipa til tannlæknastóls sem hefur
verið reistur upp á rönd.
Stæðin eru því í raun upprétt
sæti en ef hugmyndin hlýtur braut-
argengi verða þau staðsett aftast í
vélum félagsins.
Þá gætu hugmyndir forsvars-
manna Ryanair um að rukka fyrir
aðgang að salerni senn færst nær
veruleika en til greina kemur að
innheimta 1 pund, eða 190 krónur á
núvirði, fyrir hverja ferð.
950 kr.
á hvert
flugstæði
Farþegar Ryanair
standa í stuttu flugi
Ein hugmyndanna
að útfærslunni.
Forsíðan á opnunardaginn sagði
meira en mörg orð.
Undir rauðum borða þar sem opn-
un alþjóðlegrar útgáfu Xinhua-
fréttastöðvarinnar, málgagns kín-
verska kommúnistaflokksins, var
fagnað var boðið upp á samantekt á
hjónabandserjum stjarnanna í
myndaglugga, að Al Gore, fyrrver-
andi varaforseta Bandaríkjanna,
meðtöldum. Sem sagt efni sem talið
er höfða til vestrænna lesenda.
Pólitíkin var þó ekki langt undan
og fyrir neðan mátti nálgast frétta-
skýringar þar sem dreginn var
taumur Írana og Palestínumanna.
Umbúðirnar eru óaðgreinanlegar
frá vinsælum vestrænum fréttasíð-
um. Innihaldið er hins vegar annað
enda er markmiðið að draga upp
mynd af heiminum sem er þessum
stærsta stjórnmálaflokki veraldar-
innar þóknanleg. Áhugasömum er
bent á að í gagnasafni Xinhua má
finna nýlega frétt af því hvernig
seðlabanki Kína hafi komið „skuld-
um vafinni evrópskri eyju“ til hjálp-
ar. Sú eyja heitir Ísland.
baldura@mbl.is
Heimurinn með
augum risaveldis
CNN risaríkisins í austri í loftið
Ný Forsíða Xinhuanet.com í gær.