Morgunblaðið - 02.07.2010, Side 21
21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JÚLÍ 2010
Nei, ekki sekta mig! Andrés önd rekur hér upp stór augu og horfir áhyggjufullur á stöðumælavörð í Pósthússtræti. Hann virðist hafa áhyggjur af því að fá sekt en mun hafa sloppið í þetta skipti.
Eggert
Nú liggur fyrir að
fjöldi einstaklinga og
fyrirtækja, þ. á m.
fjármálafyrirtækja,
er í fullkominni rétt-
aróvissu um verð-
tryggingar- og vaxta-
kjör svokallaðra
gengistryggðra lána.
Þessir aðilar þurfa að
fá úrlausn mála sinna
fyrir dómstólum, enda dómstólar
einir bærir til að leysa úr þeim
málum. Þeir dómar Hæstaréttar
sem fyrir liggja á réttarsviðinu
fjalla eðlilega aðeins um þau sér-
greindu sakarefni sem voru lögð
fyrir dómstólinn, en lánasamning-
arnir eru svo mismunandi að gerð
að líklegt er að reyna þurfi á
mörg mál í viðbót fyrir dómstól-
unum; hugsanlega einhverja tugi
mála. Skjót niðurstaða um óviss-
una felur í sér gríðarlega hags-
muni fyrir íslensku þjóðina, ekki
síst fjármálakerfið. Eina leiðin til
að greiða úr þessari réttaróvissu
sem fyrst, er að hraða meðferð
þessara dómsmála eins og kostur
er.
Á síðustu dögum þingsins kom
fram frumvarp til laga um breyt-
ingu á lögum um meðferð einka-
mála sem fól í sér flýtimeðferð
dómsmála sem varða gengistrygg-
ingu lána. Það frumvarp fékk ekki
afgreiðslu fyrir sumarleyfi þings-
ins. Ef frumvarpið hefði komist á
dagskrá þingsins og verið sam-
þykkt hefði mátt vænta dóma
Hæstaréttar um alla flækjuna í
október eða nóvember nk. Í stað-
inn þarf búa að við réttaróvissu í
langan tíma, jafnvel mörg ár. Við
undirritaðir fáum ekki séð hvaða
rök standa til þess að taka málið
ekki á dagskrá Alþingis. Við skor-
um hér með á ríkisstjórnina að
veita þessu brýna þjóðþrifamáli
brautargengi sem allra fyrst með
því að kalla Alþingi saman til að
afgreiða lagafrumvarp af þessu
tagi.
Eftir Þorstein
Einarsson og Stef-
án Geir Þórisson
» Við skorum hér
með á ríkisstjórn-
ina að veita þessu
brýna þjóðþrifamáli
brautargengi sem allra
fyrst …
Höfundar eru hæstaréttarlögmenn.
Eyðum réttaróvissunni sem fyrst
Stefán Geir ÞórissonÞorsteinn Einarsson
Skýrsla Rannsókn-
arnefndar Alþingis
leiðir margt í ljós þótt
mörgum stórum spurn-
ingum sé enn ósvarað
um orsakir hrunsins
haustið 2008. Í 5. hefti
af skýrslu nefndarinnar
er m.a. fjallað um lög-
gjöf um fjármálamark-
aðinn og áhrif aðildar
Íslands að EES. Fjár-
málaeftirlitið sem kom til sögunnar
með setningu laga nr. 87/1998 var sú
stofnun sem mest ábyrgð hvíldi á um
eftirlit með fjármálastarfsemi og
hafði margháttaðar valdheimildir til
inngripa. Yfir stofnunina er sett
þriggja manna stjórn sem fylgjast
skal með starfsemi og rekstri eft-
irlitsins og er formaður hennar skip-
aður af viðskiptaráðherra. Forstjóri
eftirlitsins frá árinu 2005 til 2009 var
Jónas Fr. Jónsson og formaður
stjórnar frá ársbyrjun 2008 var Jón
Sigurðsson, hagfræðingur og fyrr-
verandi ráðherra.
Ræturnar í EES-samningnum
Með setningu laga á árinu 1993 um
viðskiptabanka og sparisjóði og aðr-
ar lánastofnanir voru innleiddar
nokkrar tilskipanir Evrópusam-
bandsins um fjár-
málamarkaðinn. Með
þeim voru felldar niður
ýmsar takmarkanir á
umsvif þessara stofn-
ana samkvæmt eldri
lögum. Aðalbar-
áttumenn fyrir EES-
samningnum hérlendis
voru þáverandi ráð-
herrar Alþýðuflokks-
ins, Jón Hannibalsson
utanríkisráðherra og
Jón Sigurðsson við-
skiptaráðherra. Í
skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis
er ítrekað vakin athygli á að um-
ræddar tilskipanir ESB fólu í sér lág-
markssamræmingu um stofnun og
rekstur lánastofnana en bönnuðu
hins vegar ekki aðildarríkjum að við-
halda eða setja sér strangari reglur.
Þessi möguleiki var hins vegar ekki
nýttur heldur voru ákvæði viðkom-
andi tilskipana yfirtekin að mestu
óbreytt. Rannsóknarnefndin telur
ástæðuna hafa verið „að íslensk
stjórnvöld töldu að slík löggjöf myndi
draga úr samkeppnishæfni íslenskra
fjármálafyrirtækja“ svo og að hags-
munasamtök og stjórnendur beittu
sér gegn því að strangari kröfur yrðu
til þeirra gerðar (hefti 5, s. 10-12). –
Það er reyndar frekar regla en und-
antekning að íslensk stjórnvöld ger-
ist kaþólskari en páfinn þegar um yf-
irtöku ESB-tilskipana er að ræða og
þyrfti að skoða þann þátt sér-
staklega.
Mat forstjórans í ágúst 2008
Í skýrslu Rannsóknarnefndar
kemur fram að Fjármálaeftirlitinu er
ekki aðeins ætlað að sjá til þess að
formlegum lagafyrirmælum sé fram-
fylgt „heldur einnig að því hvort
starfsemi sé að öðru leyti í samræmi
við heilbrigða og eðlilega við-
skiptahætti“ (hefti 5. s. 51-52). Til
þess að stofnunin ræki slíkt hlutverk
þurfa starfsmenn og stjórn hins veg-
ar að halda vöku sinni. Um það bera
hins vegar ekki vott eftirfarandi um-
mæli Jónasar Fr. Jónsonar forstjóra
fyrir Rannsóknarnefndinni 6. ágúst
2009, en þar var hann spurður hvort
FME hefði á árinu 2008 verið búið að
koma auga á veikleika Landsbank-
ans:
„Ja, við sáum náttúrulega það að
þrýstingurinn var […] að aukast […]
það var alveg ljóst og lá fyrir í mörg-
um spám að íslenska efnahagslífið
var að snúast til hins verra. Ég meina
það var fjármálakrísa, en við getum
sagt að hún gekk í ákveðnum bylgj-
um, þannig að tímabilið og fram ein-
hvern tíma í svona lok júlí var svona
tiltölulega þægilegt andrúmsloft,
svona lognið á undan storminum,
[…] við virtumst svona allavegana
vera í ákveðnu vari, sem síðan fer
upp einhvern tímann í ágúst og verð-
ur alveg bölvanlegt endanlega í sept-
ember. Þannig að svona hlutlægt lít-
andi á gögn, lítandi á uppgjör
Landsbankans sem var nýkomið, lít-
andi á þau gögn sem við vorum að fá
frá þeim, lausafjárskýrslu og annað,
þá var ekkert sem benti til þess að
þeir væru að sigla inn í einhver
vandamál […] það var fundur sem
Landsbankinn var nú með held ég
23. september um hvað lang-
tímahorfurnar væru nú ágætar og
það eru nú reyndar ágætis upplýs-
ingar sem koma þar fram.“ (hefti 5, s.
75-76).
Engir stjórnarfundir sumarið
2008
Af skýrslu Rannsóknarnefnd-
arinnar verður ekki séð að stjórn
FME hafi haft þyngri áhyggjur en
forstjórinn af ástandi og horfum. Um
þetta segir m.a. varðandi árið 2008:
„Ekkert er bókað um mat stjórn-
enda eða stjórnar á stöðu og horfum
á fjármálamarkaði. … Í aðdraganda
hrunsins árið 2008 hélt stjórn Fjár-
málaeftirlitsins fundi mánaðarlega
frá ársbyrjun og fram á sumar. Í
júnímánuði voru haldnir tveir fundir.
Frá 30. júní kom stjórn ekki saman
aftur fyrr en 12. september.“ (s. 166)
Fram kemur að Jón Sigurðsson,
stjórnarformaður FME, hafi beitt
sér fyrir fundum með bankastjórum,
m.a. um þann kost að færa starfsemi
erlendra útibúa yfir í dótturfélög.
„Að mati Jóns hefði Fjármálaeft-
irlitið hins vegar ekki haft neina
heimild til að krefjast þess að bank-
inn gripi til þessara aðgerða.“ (s. 167)
Ekkert kemur fram um frumkvæði
af hans hálfu til að afla slíkra heim-
ilda.
Litið til viðskiptaráðuneytisins
tekur ekki betra við. Að sögn skrif-
stofustjórans Áslaugar Árnadóttur
hafi „áherslan í ráðuneytinu verið
meiri á svið iðnaðar en fjár-
málamarkað … og sökum fárra
starfsmanna hefði ekki verið tími til
mikils annars en að innleiða tilskip-
anir á fjármálamarkaði.“ (s. 134)
Þannig lokaðist hringurinn í blind-
ingjaleik stjórnmálamanna sem
misstu öll tök á fjármálamarkaði sem
þeir höfðu gefið lausan tauminn.
Eftir Hjörleif Gutt-
ormsson » Tilskipanir ESB fólu
í sér lágmarks-
samræmingu um fjár-
málastofnanir en bönn-
uðu ekki aðildarríkjum
að viðhalda eða setja sér
strangari reglur.
Hjörleifur Guttormsson
Höfundur er náttúrufræðingur.
Fjármálaeftirlitið sem brást svo hörmulega