Morgunblaðið - 02.07.2010, Side 23
Minningar 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JÚLÍ 2010
✝ Gísli Guðni Þor-bergsson fæddist
í Hraunbæ í Álft-
arveri 15.11. 1929.
Hann lést 26.6. 2010
á líknardeild Land-
spítalans.
Foreldrar Gísla
voru Þorbergur
Bjarnason frá Efri-
Ey í Meðallandi, f.
4.5 1902, d. 22.11.
1994 og Guðlaug
Marta Gísladóttir frá
Norðurhjáleigu í
Álftaveri, f. 4.9.
1903, d. 2.9. 1989. Systkini Gísla
eru: Þóra Þorbergsdóttir, f. 6.7.
1927, maki Hjálmar Böðvarsson, f.
8.10. 1906, d. 27.11. 1990. Bjarni
Þorbergsson, f. 4.8. 1928. Vil-
hjálmur Þór Þorbergsson, f. 4.8.
1931, d. 17.2. 1992, maki María
Henley. Guðrún Erla Þorbergs-
Metúsalem Björnsson, f. 3.8. 1935,
d. 27.11. 2009. Vilhjálmur Þor-
bergsson, f. 17.10. 1944, maki
Ingveldur Ásta Hjaltadóttir, f.
22.3. 1950. Sigurveig Jóna Þor-
bergsdóttir, f. 23.12. 1945, maki
Kristján Hálfdánarson, f. 9.6.
1945.
Árið 1960 kvæntist Gísli Sigur-
björgu Valmundsdóttur, f. 28.10.
1930. Foreldrar hennar voru Val-
mundur Björnsson, f. 4.12. 1898,
og Steinunn Jónsdóttir, f. 1.11.
1905. Þau eignuðust Valmund
Steinar, f. 7.2. 1964, sem er í sam-
búð með Eyrúnu Ragnarsdóttur, f.
1.3. 1963, saman eiga þau tvö
börn: Írisi Ósk, f. 23.10. 1991 og
Gísla Steinar, f. 9.6. 1995. Eyrún
átti fyrir Ragnar Þór Óskarsson, f.
19.8. 1978. Foreldrar Eyrúnar eru
Ragnar Magnússon, f. 19.6. 1935,
og Sigríður Guðjónsdóttir, f. 8.5.
1933.
Gísli var með meistararéttindi í
bifvélavirkjun og vann við það hjá
Ræsi og einnig vann hann við
vélaviðgerðir og smíðar hjá Vega-
gerð ríkisins.
Útför Gísla fer fram frá Nes-
kirkju í dag, 2. júlí 2010, kl. 13.
dóttir, f. 1.7. 1933,
maki Albert Jóhanns-
son, f. 25.9. 1926, d.
26.12. 1998. Einar
Þorbergsson, f.
25.10. 1934, maki
Arnþrúður Halldórs-
dóttir, f. 2.10. 1936,
d. 27.10. 1994. Fjóla
Þorbergsdóttir, f.
25.10. 1934, maki Ás-
geir P. Jónsson, f.
27.6. 1926, d. 12.5.
2003. Guðlaug Þor-
bergsdóttir, f. 7.12.
1935, maki Böðvar
Kristjánsson, f. 25.11. 1925. Jón
Þór Þorbergsson, f. 27.4. 1937,
maki Margrét María Guðmunds-
dóttir, f. 29.7. 1944. Anna Sigríður
Þorbergsdóttir, f. 23.7. 1938, maki
Guðgeir Sumarliðason, f. 29.10.
1937. Guðrún Þorbergsdóttir, f.
25.3. 1941, d. 17.3. 1997, maki
Elsku tengdapabbi, hún er ólýs-
anleg sorgin við fráfall þitt, þó ég
hafi um tíma vitað í hvað stefndi er
samt svo erfitt að kveðja.
Þú tókst svo vel á móti mér þegar
við Valmundur vorum nýtekin sam-
an, sá ég þá hve einlægur þú varst
og fannst mér ég strax vera partur
af þinni fjölskyldu.
Ég man svo vel þegar við Val-
mundur eignuðumst börnin hvað þú
varst stoltur og hve þú ljómaðir.
Ég á ekki nógu sterk orð til að
lýsa því hve góður og natinn þú
varst við okkur og börnin, þín verð-
ur sárt saknað og verður þú ávallt
með okkur í hjörtum okkar.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Elsku Sibba, þú hefur staðið eins
og klettur við hlið Gísla í hans veik-
indum og verið okkur öllum góð fyr-
irmynd.
Ég bið Guð að veita þér styrk og
megi englar vaka yfir þér.
Eyrún
Ragnarsdóttir.
Elsku afi, nú hefur þú kvatt okk-
ur.
Við vitum að þú hefur það gott
núna en munt örugglega fylgjast
með okkur áfram í gegnum lífið. Í
huga okkar eru margar góðar minn-
ingar, minningar sem aldrei munu
gleymast. Þú kenndir okkur svo
margt um náttúruna og dýrin frá því
við vorum lítil. Stundum saman sast
þú með okkur í fanginu með stóru
fuglabókina og það tók ekki langan
tíma þar til við kunnum allt sem í
henni var.
Elsku afi, við eigum eftir að sakna
svo margs og erum óendanlega
þakklát fyrir allan þann tíma sem
við áttum saman. Við trúum því að
við munum hitta þig aftur síðar.
Takk fyrir allt, elsku afi, hvíl þú í
friði.
Fel þú, Guð, í faðminn þinn,
fúslega hann afa minn.
Ljáðu honum ljósið bjarta,
lofaðu hann af öllu hjarta.
Leggðu yfir hann blessun þína,
berðu honum kveðju mína.
(LEK)
Elsku amma, Guð veri með þér.
Íris Ósk og Gísli Steinar.
Nú er fallinn í valinn góðvinur
minn, Gísli Þorbergsson. Ég sá
Gísla fyrst árið 1979 þegar við Gerð-
ur giftum okkur. Í tilefni af því buðu
þau hjónin, Gísli og Sigurbjörg Val-
mundsdóttir, okkur í veglega brúð-
kaupsveislu. Gísli var mikill á velli
og meitlaður af átökum lífsbarátt-
unnar enda hafði hann frá blautu
barnsbeini unnið erfiðisvinnu bæði
til lands og sjávar.
Gísli var borinn og barnfæddur í
Hraunbæ í Álftaveri austan við
Mýrdalssand. Þar vann hann sem
drengur sveitastörf á búi foreldra
sinna í hópi 13 systkina. Þegar tók
að togna úr drengnum fór hann á
vetrarvertíð í Vestmannaeyjum. Á
manndómsárunum nam hann fræði
um bíla í Iðnskólanum og gerðist
bifvélavirki hjá Ræsi. Síðar fór
hann að smíða brýr í Skaftafells-
sýslu og vann við það til starfsævi-
loka.
Við götu eina í Vík í Mýrdal, fæð-
ingarbæ Sigurbjargar, stóð kofi
einn, fyrrverandi geymsla. Gísli
gerði úr honum heilsárssumarbú-
stað. Þar vantaði bókstaflega ekk-
ert. Fremri stofan er í senn forstofa,
stássstofa og eldhús og aftari stofan
gott svefnherbergi. Bústaðurinn
stendur utan í grýttri hæð. Gísli
ruddi grjóti úr vegi og gerði þar sal-
erni með öllum þægindum, geymslu
og blómagarð. Götumegin gerði
hann rúmgóða verönd. Með vexti
bústaðarins inn í hæðina og út að
götunni var litli geymslukofinn orð-
inn að rúmgóðri lítilli sumarhöll.
Þau hjónin, Gísli og Sibba, eins og
þau voru kölluð, nutu verunnar í
Mýrdalnum í fyllsta mæli. Þau voru
hluti af samfélaginu og oft var litið
inn hjá þeim þegar menn áttu leið
fram hjá.
Eftir að kallið kom þráði Gísli litlu
sumarhöllina og með samráði við
lækni var ætlunin að koma þangað í
hinsta sinn, en þá greip Eyjafjalla-
jökull inn í og fyllti unaðsreitinn af
svartri ösku.
Gísli var í eðli sínu dulur maður,
en traustur. Hann hafði sterkar
skoðanir á þjóðfélagsmálum. Gest-
risni var þeim hjónum í blóð borin
og áttum við margar ánægjustundir
með þeim, bæði hérlendis og erlend-
is, þessa þrjá áratugi sem liðu með
þeim. Við sendum Sigurbjörgu, Val-
mundi, Eyrúnu, Írisi og Gísla inni-
legar samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning mæts manns.
Egill Sigurðsson,
Gerður Jóhannsdóttir.
Gísli Guðni
Þorbergsson
V i n n i n g a s k r á
9. útdráttur 1. júlí 2010
A ð a l v i n n i n g u r
Kr. 2.000.000 kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
6 6 8 6 3
V i n n i n g u r
Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur)
1 6 7 8 4 8 8 5 3 6 7 5 5 5 6 7 6 7 0
V i n n i n g u r
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
446 5660 22372 34323 54374 67448
3438 22015 27763 40944 56487 70283
V i n n i n g u r
Kr. 15.000 Kr. 30.000 (tvöfaldur)
4 2 8 1 0 9 5 8 1 7 2 3 1 2 5 5 3 7 3 9 5 7 3 4 7 7 5 5 6 0 4 8 6 7 2 8 4 7
1 0 6 7 1 1 8 1 5 1 7 9 3 6 2 5 7 4 5 4 1 1 7 4 4 8 1 6 2 6 0 5 3 8 7 3 6 7 2
3 0 5 3 1 4 1 0 7 1 8 9 5 5 2 8 7 1 0 4 1 3 0 5 4 8 5 9 9 6 1 3 9 9 7 3 6 9 1
3 2 2 8 1 4 7 0 7 1 9 3 5 9 2 9 3 3 4 4 3 2 9 1 5 0 3 1 8 6 3 1 5 2 7 3 7 5 8
3 5 3 8 1 4 8 3 2 1 9 6 1 2 3 2 8 4 4 4 4 9 4 1 5 0 8 9 2 6 4 9 5 9 7 4 7 9 0
5 9 5 7 1 4 9 1 0 1 9 6 8 1 3 4 6 8 7 4 5 0 8 3 5 2 9 5 1 6 7 3 1 0 7 5 8 5 3
6 3 6 7 1 5 0 6 7 2 0 6 4 3 3 6 4 5 6 4 5 3 6 6 5 3 8 6 9 7 0 6 6 8 7 5 9 2 0
8 5 7 1 1 6 4 4 4 2 0 7 9 4 3 7 3 5 5 4 5 4 0 2 5 4 3 6 5 7 2 0 3 1 7 7 2 5 6
1 0 7 8 7 1 6 6 8 5 2 1 8 1 9 3 8 0 2 3 4 6 3 6 6 5 6 0 7 1 7 2 0 8 8 7 8 7 2 3
1 0 8 7 7 1 7 1 8 3 2 3 4 9 2 3 9 3 5 0 4 6 5 5 7 6 0 4 0 7 7 2 5 2 3 7 9 1 5 1
V i n n i n g u r
Kr. 7.000 Kr. 14.000 (tvöfaldur)
487 7644 15421 23809 30788 38892 48113 56288 62934 71469
698 7700 15826 23841 31027 38923 48906 56533 63738 71578
1431 7712 16975 24088 31073 38925 49151 56638 63941 71976
1691 7879 17004 24158 31111 38972 49215 56646 63950 72175
1967 8387 17009 24262 31658 39306 49294 56700 63956 72225
1998 8394 17051 24332 32423 39702 49534 56747 63992 73421
2261 9077 17082 24708 32693 39931 49987 56874 64101 73500
2808 9092 17330 24715 32800 40209 50125 56960 64293 73567
2848 9141 17532 25016 32962 41061 50202 57157 64466 73663
2856 9208 17679 25131 33160 41114 50647 57355 64492 73731
3001 9382 18688 25327 33347 41223 50652 57509 64574 73848
3403 9551 18840 25505 33405 41231 51088 58183 64584 74103
3407 9565 18919 25536 33458 41569 51148 58215 64834 74459
3582 9738 19096 25630 33708 41968 51162 58289 64951 74751
3684 9939 19204 25928 33907 42165 51721 58306 65330 75015
3819 9940 19256 25993 34036 42315 52238 58396 65333 75241
3868 9988 19409 26171 34157 42754 52282 58424 65735 75387
4070 10180 19460 26339 34590 42997 52285 58683 65790 75394
4325 10317 19713 27230 35108 43288 52370 58829 66250 75431
4596 10335 19962 27394 35245 43442 52465 59000 66459 75495
4831 10381 20887 27826 35374 43502 52647 59992 66549 75528
4872 10459 21036 28097 35425 43542 52665 60835 66673 75727
5002 10510 21763 28404 35498 43611 52728 60910 66688 76085
5078 10550 22020 28410 35537 44031 52753 60940 67940 76240
5326 10942 22203 28549 35728 44263 52800 60982 67990 76523
5523 10981 22214 28841 36123 44348 53198 61059 68105 76707
5625 11312 22278 28934 36582 44432 53424 61117 68263 76899
6314 11326 22283 29007 36973 44769 53461 61146 68432 77222
6393 11545 22588 29080 37315 45013 54104 61167 68897 77280
6446 12106 22644 29169 37392 45438 54226 61717 69245 77389
6519 12652 22665 29352 37771 45845 54329 62006 69405 77633
6642 12764 22812 29418 37825 45881 54492 62054 69432 77871
6657 13125 22821 29703 37936 45894 54758 62437 69585 77925
6723 13640 23030 29854 37940 46012 55245 62457 69955 77999
6839 13850 23071 29870 38080 46729 55258 62497 70077 78557
7108 14137 23231 29944 38180 46756 55266 62595 70226 79518
7173 14896 23284 30214 38190 47008 55283 62738 70386 79558
7250 15008 23361 30219 38504 47278 55302 62849 70717 79762
7462 15117 23478 30242 38555 47449 55562 62893 70968 79769
7601 15383 23620 30746 38601 47939 56161 62930 71302 79999
Næstu útdrættir fara fram 8.júlí, 15. júlí, 22. júlí & 29. júlí 2010
Heimasíða á Interneti: www.das.is
Við Njörður vorum
svilar, eiginkonur
okkar eru systur. Hann var nokkur
örlagavaldur í lífi mínu og minnar
fjölskyldu. Þau bjuggu á Akranesi
er við vorum um það bil að ljúka
námi og hefja störf í Reykjavík.
Hann vakti athygli i mína á, að þá
væri að losna starf í mínu fagi á
✝ Njörður Tryggva-son bygging-
arverkfræðingur
fæddist á Akureyri
28. janúar 1937. Hann
lést á Landspít-
alanum í Fossvogi 18.
júní 2010.
Útför Njarðar fór
fram frá Akra-
neskirkju 24. júní
2010.
Akranesi, sem byði
upp á mikla vinnu og
góða afkomumögu-
leika. Ég tók því fá-
lega í fyrstu, þar sem
ég hafði þegar ráðið
mig til starfa í
Reykjavík og skuld-
bundið mig þar til
nokkurra ára og hafði
reyndar aldrei gert
ráð fyrir öðru en að
starfa í höfuðborginni,
þar sem ég var fædd-
ur og uppalinn. Ég lét
þó undan og við flutt-
um til Akraness, þar sem ég hugðist
starfa í eitt til tvö ár, meðan við
værum að koma undir okkur fót-
unum. Síðan eru nú liðin fjörutíu og
tvö ár og enn erum við hér á Akra-
nesi. Njörður var skarpgreindur,
minnugur og víðlesinn og óspar á að
miðla öðrum af þekkingu sinni og
reynslu. Var hann skorinorður og
skoðanafastur og fljótur til ákvarð-
anatöku og framkvæmda. Hann var
því á ýmsan hátt vel til forystu fall-
inn. Var hann áhugasamur um þjóð-
og sveitarstjórnarmál og hafði sínar
stjórnmálaskoðanir en tók ekki
beinan þátt í stjórnmalastarfi enda
talið störf sín tengdari ráðgjöf og
embættismennsku en stjórnmála-
þátttöku. Við Njörður gengum sam-
tímis í Rótarýklúbb Akraness
haustið 1969. Varð hann þar fljótt
mjög virkur félagi og ég, sem enn
starfa í kúbbnum, minnist þess ekki
að starfið hafi nokkru sinni verið
jafnöflugt og árið sem Njörður var
þar forseti.
Kristrún og Njörður voru einkar
samrýnd um áhugamál. Þau stund-
uðu golf saman sér til ánægju, en
listheimurinn, sköpun, hönnun og
hvers konar myndlist var þeirra
stærsta áhugasvið. Ber heimili
þeirra því glöggt vitni. Lúxusvæð-
ing og þægindaásókn nútímanns
náði þó ekki alvarlegum tökum á
þeim, hvorki í hlutlægu né óhlut-
bundnu tilliti. T.d. fóru þau með
börnunum sínum, þegar þau voru
unglingar, í lestarferð (interrail) vítt
og breitt um Evrópu með svefn- og
bakpoka á bakinu og gistu á far-
fuglaheimilum. Hann var mikil fjöl-
skyldumaður og voru þau hjón og
börnin þeirra einstaklega samrýnd.
Barnagæla var hann mikil og náði
einstaklega vel til barna. Tókst hon-
um einkar vel að vekja áhuga þeirra
á jákvæðum áhugamálum og við-
fangsefnum og eigum við hjónin
honum mikið að þakka hvað þetta
varðar fyrir börn okkar og barna-
börn. Hann á einnig miklar þakkir
skildar af okkar hálfu fyrir húsið
okkar hér á Akranesi, sem er stolt
okkar og sælureitur, sem hann og
félagar hans á Verkfræði- og teikni-
stofunni hönnuðu og önnuðust alla
verkfræðilega vinnu við. Síðast en
þó ekki síst viljum við hjónin bæði
þakka Nirði fyrir samfylgdina í yfir
fjörutíu ár. Þótt við höfum ekki allt-
af verið samferða á allri þeirri veg-
ferð hafa samskiptin við Njörð
auðgað líf okkar, sem við nú, er leið-
ir skilur, erum ákaflega þakklát fyr-
ir.
Ingjaldur Bogason.
Njörður
Tryggvason Morgunblaðið birtir minningar-greinar endurgjaldslaust alla út-
gáfudaga.
Skil | Greinarnar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins.
Smellt á reitinn Senda inn efni á for-
síðu mbl.is og viðeigandi efnisliður
valinn.
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi
tveimur virkum dögum fyrr (á föstu-
degi ef útför er á mánudegi eða
þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að
senda lengri grein. Lengri greinar
eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt
er að senda örstutta kveðju,
HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur.
Ekki er unnt að tengja viðhengi við
síðuna.
Minningargreinar