Morgunblaðið - 02.07.2010, Qupperneq 29
Dagbók 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JÚLÍ 2010
Sudoku
Frumstig
2 4 6 3 1
2 8
4 8 3 9
6 4 3
3 2
7 2 6
2 1 7 6
1 9
3
2 3 4
5
9 1 2
6 7 3
2
1 5 4
4
6 7 5 4 3 2
5 2 7 1
9 1 4 7
3 5
8
4 7 5
9 1 6 8 5
3 7
9 2 6 8
3 4
7 3 5 4 1 2 6 8 9
6 8 9 5 3 7 4 1 2
2 4 1 9 8 6 5 7 3
1 7 3 8 4 9 2 6 5
9 2 8 6 5 3 1 4 7
5 6 4 2 7 1 9 3 8
4 9 7 1 2 8 3 5 6
3 5 2 7 6 4 8 9 1
8 1 6 3 9 5 7 2 4
9 4 2 6 8 5 7 3 1
7 8 3 4 2 1 9 5 6
1 5 6 3 7 9 2 4 8
4 9 5 1 3 8 6 7 2
6 3 7 2 9 4 1 8 5
2 1 8 7 5 6 4 9 3
3 2 9 8 1 7 5 6 4
8 7 4 5 6 2 3 1 9
5 6 1 9 4 3 8 2 7
8 7 5 1 2 9 3 6 4
2 1 4 3 6 7 8 9 5
3 9 6 5 4 8 7 1 2
1 6 8 2 9 4 5 3 7
4 5 9 8 7 3 1 2 6
7 3 2 6 1 5 4 8 9
5 2 1 7 8 6 9 4 3
6 4 7 9 3 1 2 5 8
9 8 3 4 5 2 6 7 1
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er föstudagur 2. júlí, 183. dagur
ársins 2010
Orð dagsins: Lækna mig Drottinn, að
ég megi heill verða; hjálpa mér, svo að
mér verði hjálpað, því að þú ert minn
lofstír. (Jer. 17, 14.)
Ekki á að líðast að menn komistupp með að hafa viljandi rangt
við. Svind er svindl, hvort sem það á
sér stað í fjármálaheiminum eða í
fótboltanum, og ef ekki er hægt að
koma í veg fyrir það að óbreyttu á að
taka upp árangursríkari aðferðir.
x x x
Peysutog og leikaraskapur eigaekki heima í fótboltanum, en
þessi atriði hafa stundum blekkt
dómara. Í kjölfarið hafa leikmenn
verið hafðir fyrir rangri sök, fengið
spjald, jafnvel brottrekstur, víti
dæmt að ósekju, bakari hengdur fyr-
ir smið.
Þegar stjörnurnar á HM komast
upp með ósvífnina, svindlið og
svínaríið, er augljóst að börnin og
unglingarnir að ónefndum öllum hin-
um fótboltamönnunum reyna að
bera sig eins að. Ef ekki er skrúfað
fyrir lekann á efstu hæð breytist
grasrótin fljótt í svað, sama hvað vel
hefur verið unnið í henni.
x x x
Það hefur sýnt sig að dómararráða ekki við vandann. Þeir sjá
oft ekki löglega skoruð mörk og
dæma þau þess vegna ekki. Þeir sjá
hvorki peysutog né leikaraskap á
stundum og bregðast því rangt við.
Þeir valda ekki hlutverkinu. Fótbolt-
inn líður fyrir og það sem verra er –
fólk er alið upp við að það sé allt í
lagi að hafa rangt við.
x x x
Fótbolti er vinsælasta íþrótt íheimi og öllu skiptir að ósóminn
sé ekki leyfður á meðal þeirra bestu,
í HM, álfumótum og Meistaradeild-
inni, heldur tekið fyrir hann strax í
fæðingu. Það verður aðeins gert með
því að beita tækninni. Nefnt hefur
verið að nota ætti örflögur í boltum
til að sýna fram á hvort bolti hafi far-
ið yfir marklínu eða ekki og styðjast
ætti við upptökur til að sjá brot, t.d.
þegar skorað er úr rangstöðu og öll
vafaatriði í sambandi við hugsan-
legan brottrekstur. Víkverji vonar
að hinn vaski formaður KSÍ láti mál-
ið til sín taka á alþjóðavettvangi og
fylgi því eftir með öðrum góðum
mönnum. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 veldur böli, 8
mannsnafn, 9 tölum um,
10 veðurfar, 11 aflaga,
13 út, 15 þvottasnúru, 18
kýr, 21 grænmeti, 22
berja, 23 aflöng, 24
hjónavígslu.
Lóðrétt | 2 drukkin, 3
hornmyndun á húð, 4
nam, 5 grjótskriðan, 6
hæðir, 7 hneisa, 12 hátt-
ur, 14 spils, 15 slæman
félagsskap, 16 vesæll, 17
rifa, 18 vandræði, 19 vel
gefin, 20 úrkoma.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 slang, 4 hokur, 7 aldin, 8 öflug, 9 góm, 11 arða,
13 fata, 14 skæra, 15 bæli, 17 túli, 20 eta, 22 takki, 23
ungar, 24 rengi, 25 tórir.
Lóðrétt: 1 slaga, 2 andúð, 3 gang, 4 hröm, 5 kolla, 6
rugla, 10 ótækt, 12 asi, 13 fat, 15 bútur, 16 lokan, 18
úrgur, 19 iðrar, 20 eiri, 21 autt.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Staðan kom upp á hinu árlega of-
urskákmóti í Poikovsky í Rússlandi
sem kennt er við Anatoly Karpov, fyrr-
verandi heimsmeistara í skák. Rúss-
neski stórmeistarinn Dmitry Jako-
venko (2725) hafði hvítt gegn kollega
sínum Viktor Bologan (2668) frá Mol-
davíu. 44. d7! Hxd7 45. Be8! Rc5 46.
Bxd7 Rxd7 47. Ke2 hvítur er nú skipta-
mun yfir og með unnið tafl. Framhaldið
varð eftirfarandi: 47…Kf7 48. Hd6 Re5
49. Hxb6 Rxg4 50. Kf3 Rf6 51. Hb5
Kg6 52. Hxa5 Rd7 53. e4 Kf6 54. Hf5+
Kg6 55. Hd5 Rf6 56. Hd6 g4+ 57. Kf4
g3 58. Kxg3 og svartur gafst upp. Bo-
logan varð efstur á mótinu ásamt Ser-
gey Karjakin (2739) frá Úkraínu með
en báðir fengu sjö vinninga af ellefu
mögulegum. Jakovenko lenti í þriðja
sæti ásamt landa sínum Nikita Vitiu-
gov (2707) með 6 1/2 vinning.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Trylltur tölvudans.
Norður
♠--
♥--
♦ÁG7542
♣ÁDG10853
Vestur Austur
♠ÁDG104 ♠53
♥ÁD853 ♥62
♦K98 ♦D103
♣-- ♣K97642
Suður
♠K98762
♥KG10974
♦6
♣--
Suður spilar 6♦ doblaða.
Hin tápmikla tölva úthlutaði Magn-
úsi Magnússyni norðurhöndina í leik-
um við Þjóðverja á EM. Vestur vakti
fyrstur manna á sterku laufi. Og svo?
Þeir Magnús og Sigurbjörn Har-
aldsson verða seint sakaðir um undir-
búningsleysi. Hér dró Magnús upp úr
pússi sínu sagnvenju, sem fáir hafa séð
áður. Hann stökk í 5♥! Sögnin sýnir
annað hvort langlit í spaða eða báða
láglitina. Ekki beint sögnin sem Bessi
þráði að heyra, en trúr kerfinu valdi
hann betri láglit – sagði 6♦ á einspilið.
Doblið óhjákvæmilega kom strax og
vestur hitti á eitrað útspil: tromp.
Gjaldið var 1400-kall.
Hvað gerðu Þjóðverjar á hinu borð-
inu? Take a wilde guess. Auðvitað
spiluðu þeir 6♦ doblaða, en því miður
bara 800 niður.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Vertu óhræddur við að segja hug
þinn því þá munu aðrir taka mark á þér.
Forðist alla útúrdúra því þeir tefja bara
fyrir og bera ykkur af leið.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Sýndu samstarfsmönnum þínum
skilning þegar vinnuáætlanir þeirra falla
ekki alveg saman við þínar. Lærðu bara
af reynslunni og láttu það ekki gerast aft-
ur.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Ástvinir líta á athygli þína sem
verðmæta gjöf. Dagurinn í dag markar
upphaf líflegs tímabil.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Einhver kærkominn úr fortíðinni
þráir nokkuð í þínu fari sem ekki er hægt
að lýsa öðruvísi en sem áru. Sumir geta
ekki grátið.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú kemur með eitthvað nýtt, skraut-
legt eða tæknilegt inn á heimilið í dag,
hugsanlega einhverja græju. Leitaðu
þangað sem þú veist að eitthvað kemur
þér á óvart.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Hafðu gætur á bankareikningnum í
dag, nema svo heppilega vilji til að þú sért
með vasa fulla fjár. Fólk er hjálplegt og
samvinnuþýtt.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Dagurinn í dag hefur allt til að bera
sem þér finnst einkenna góðan dag. Not-
aðu kvöldið til að spjalla við góðan félaga.
Komdu félaga þínum á óvart.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Það vantar ekki mikið upp á
að þér takist að klára það verkefni sem
þér hefur verið falið. Athugaðu ferða-
möguleika gegnum ólíka hópa.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Vertu ekki niðurlútur þótt þér
finnist þú einn á báti með skoðanir þínar.
Einhver setur sig upp á móti áætlunum
þínum um ferðalög eða framhaldsnám.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Það er komið að því að þú þurfir
að taka ákvörðun í stóru máli. Gefðu þér
tíma til að líta inn á við og vittu hvort þú
kemst ekki að niðurstöðu.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú þarft fyrr eða síðar að horf-
ast í augu við staðreyndir. Aðra daga, eins
og í dag, þarftu að stýra skapinu með því
að spyrja þig: „Hvað gleður mig í lífinu?“
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú ert ánægðastur þegar þú ert í
hlutverki forystusauðs. Hvað sem því líð-
ur hefur þú þolinmæði til þess að bíða eft-
ir að óskir þínar rætist.
Stjörnuspá
2. júlí 1907
Tveir þýskir menn, jarðfræð-
ingur og listmálari, drukkn-
uðu í Öskjuvatni, dýpsta vatni
landsins. Minningartafla um
slysið var sett upp árið 1951.
2. júlí 1937
Einkasnekkja Adolfs Hitlers,
Aviso Grille, kom til Reykja-
víkur frá Kiel, án Hitlers. Til-
gangurinn var að reyna sjó-
færni skipsins, sem var 2.600
smálestir. Í áhöfn voru 240
manns.
2. júlí 2000
Bítillinn Paul McCartney, einn
þekktasti tónlistarmaður ald-
arinnar, kom til Íslands ásamt
vinkonu sinni Heather Mills.
Þau ferðuðust um landið í
nokkra daga, nutu veðurblíð-
unnar og skoðuðu helstu nátt-
úruperlurnar.
2. júlí 2004
Þingvellir voru samþykktir á
heimsminjaskrá Menningar-
málastofnunar Sameinuðu
þjóðanna (UNESCO) á fundi í
Suzhou í Kína. Á skránni eru
staðir sem taldir eru hafa ein-
stakt gildi fyrir alla heims-
byggðina.
2. júlí 2005
Björk Guðmundsdóttir kom
fram á Live 8-tónleikunum í
Japan, en þeir voru sagðir
stærsti tónlistarviðburður
sögunnar.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
„Það stóð til að vera í Akurey á Breiðafirði yfir
helgina og halda þar upp á afmælið en vegna veð-
urs þá frestast það fram á næstu helgi,“ segir Jón
Páll Ásgeirsson, yfirstýrimaður hjá Landhelgis-
gæslunni, en hann er 60 ára í dag.
Aldurinn leggst ágætlega í Jón sem segir árin
hafa verið fljót að líða.
Jón Páll hefur unnið lengi hjá Landhelgisgæsl-
unni en hann hefur verið sjómaður frá 1969. Hann
segir aðbúnað og tækjakost mikið hafa breyst og
að menn þurfi ávallt að vera opnir fyrir nýjungum.
En þó sé mikilvægt að gleyma ekki því gamla.
„Ég hef verið á þessu flestu, togurum, fraktskipum og svo nú lengi
á varðskipunum. Það má því segja að ég sé orðinn ansi sjóaður,“ segir
Jón Páll og hlær.
Jón Páll reynir að komast reglulega í Akurey en þar hefur fjöl-
skyldan lengi haft afdrep. „Þegar ég get þá fer ég á grásleppu með
bróður mínum og syni hans í Breiðafirði og það er árlegur viðburður.
Nú er alveg á hreinu að ég reyni að komast um næstu helgi,“ segir
Jón Páll og bætir því við að þá stefni jafnvel í einhver veisluhöld með
nánustu fjölskyldu og vinum. hjaltigeir@mbl.is
Jón Páll Ásgeirsson yfirstýrimaður sextugur
Er orðinn ansi sjóaður
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is