Morgunblaðið - 02.07.2010, Qupperneq 33
Menning 33FÓLK
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JÚLÍ 2010
á Nasa 1.-3. júlí
Miðaverð 1000 kr. á hvert kvöld
Í kvöld, föstudaginn2. júlí
aðar 500 blöðrur hjá skipuleggjendum listahá-
tíðarinnar Jónsvöku, ásamt því að nota sínar
eigin í bygginguna.
„Við buðum fólki að telja. Það var krakki
sem komst upp í 300 áður en hann gafst upp.
Seinna um kvöldið voru svo nokkrir gaurar að
leika sér með turninn og hann slitnaði frá
styttunni af Jóni Sig, þar sem við ætluðum
bara að hafa hann. Við bjuggumst reyndar
aldrei við að hann myndi lifa af nóttina. Við
ákváðum að taka hann upp Laugaveginn og
gáfum fólki í partíi sem var að fagna nýbreytt-
um hjónalögum, sem var mjög skemmtileg til-
viljun. Það eru víst nokkrar blöðrur eftir
þarna. Þetta gengur líka út á þetta, við byggj-
um hann og sjáum svo bara til hvar hann end-
ar.“
Hópurinn hefur verið duglegur við sýn-
ingahald undanfarna mánuði og tekið þátt í og
sett upp fjölmargar sýningar víðsvegar um
Reykavík. Framundan hjá MOMS í vetur er
svo þátttaka í listasýningu í Lundúnum þar
sem sýndir varða skúlptúrar eftir hópinn og
svo mun hópurinn sýna á Fiac-sýningunni í
Frakklandi seinna í haust.
Rétt skilyrði fyrir blöðrur á suðurskautinu
Ljósmynd/Oliver Lenz
Áberandi Listhópurinn MOMS gekk með blöðruturninn um Feneyjar og afhenti Ragnari Kjartanssyni að gjöf.
Söng- og leikkonan
Jennifer Hudson, sem
missti móður sína, bróður
og sjö ára frænda í skotárás
í október árið 2008, segist
hafa þjáðst af verulegu þung-
lyndi í kjölfar atburðarins.
„Ég var í áfalli. Það var eins
og ég væri ekki ég sjálf. Í
næstum tvær vikur fór ég
ekki út fyrir hússins dyr og
var umkringd fjölskyldu og
vinum,“ segir Hudson í við-
tali við New Weekly.
Hún segist þakka tæp-
lega ársgömlum syni sín-
um fyrir að hafa dregið
sig upp úr hyldýpinu, því
hann hjálpi sér að minn-
ast móður sinnar.
„Ég sakna hennar því
hún var frábær móðir.
Ég vil veita syni mín-
um sömu ást og ég
hlaut frá henni.“
William Balfour,
mágur Hudson,
hefur verið
ákærður fyrir
morðin, en hann
hefur neitað sök.
Avatar-leikkonan Zoe Saldana er sögð hafa
játast kærasta sínum, Keith Britton, en hún
hefur sést með risastóran demantshring á
hinum svonefnda giftingarfingri. „Þau eru
búin að vera saman í heila eilífð. Þau er frá-
bært par,“ sagði heimildarmaður í samtali
við tímaritið Us Weekly.
Saldana leggur áherslu á að halda ást-
arlífi sínu fyrir utan sviðsljósið, en hún neit-
ar að kynna Britton sem ástmann sinn.
„Hún vill ekki einu sinni kynna hann sem
kærasta sinn. Hún segir bara „Þetta er
Keith“.“ Einkalífið er nokkuð sem hún vill
ekki deila með öllum. Hún vill frekar að fólk
einbeiti sér að leikferli hennar,“ sagði sam-
eiginlegur vinur parsins.
Saldana, sem er 32 ára gömul, hefur verið
með Britton í 10 ár.
Reuters
Saldana
trúlofuð
Glöð Leikkonan Zoe Saldana vill eiga
kærastann út af fyrir sig.
Matthías Árni Ingimarsson
matthiasarni@mbl.is
Stór og langur blöðruturn í miðbæ Reykjavík-
ur vakti verðskuldaða athygli þeirra sem þar
áttu leið um og sáu hann teygja sig tugi metra
upp til skýjanna. Turninn var upprunalega
settur upp á Austurvelli sem hluti af listahá-
tíðinni Jónsvöku en rataði svo upp á Lauga-
veg þar sem hann endaði á svölum risíbúðar.
Blöðruturninn er verk eftir listahópinn
MOMS, en að hópnum standa þeir Friðrik
Svan Sigurðarson, sem er einnig þekktur sem
Morri, Guðmundur Hallgrímsson, eða Mundi
Vondi, Ragnar Fjalar Lárusson og Banda-
ríkjamaðurinn Schuyler Jack Maehl. Friðrik
segir þá félaga reyndar ekki hafa séð Maehl í
rúm tvö ár, vegna þess hve erfiðlega gekk að
fá atvinnuleyfi fyrir hann hér á landi, en þeir
séu þó að leita leiða til að flytja hann inn aftur.
-Hvernig kom það til að þið fóruð allir að
vinna saman?
„Ég og Mundi kynntumst í Listaháskól-
anum í grafískri hönnun og Schuyler kom til
landsins sem lærlingur og til að prófa að búa í
Reykjavík.Við kynnumst í gegnum sameig-
inlegan vin og fórum að vinna veggmálverk á
skemmtistaðnum Barnum. Síðan unnum við
með Klink og Bang-galleríi þegar Gelitin-
hópurinn kom hingað til lands. Í kjölfarið af
því höfum verið að vinna slatta með þeim. Svo
bættist Ragnar Fjalar við á miðri leið, en
hann er gamall vinur Munda úr skóla.“
Verk hópsins eru mjög fjölbreytt og hika
þeir félagar ekki við að prófa sig áfram með
ýmsa mismunandi miðla.
„Við erum ekki bara að teikna. Svo erum
við kannski ekki allir með nákvæmlega sömu
hæfileikana. En okkur finnst gaman að takast
á við áskoranir. Ef það er t.d. einhver list sem
okkur finnst vera skrítin eða öðruvísi, þá er
jafnvel ágætt að prófa að takast á við hana.
Okkur langar eiginlega bara að gera allt,“
segir Friðrik.
Blöðruturninn
-Hvernig verður blöðruturninn svo til?
„Hún Ilaria Bonacossa hélt fyrirlestur
hérna í Listaháskólanum, en hún er ungur og
upprennandi sýningarstjóri sem við könn-
uðumst aðeins við. Þetta var sirka mánuði fyr-
ir Feneyjatvíæringinn og við vorum reyndar
ekkert á leiðinni út , en langaði með turninn
út og það var því skemmtileg tilviljun að hún
vildi fá að sýna turninn á tvíæringnum. Þessi
hugmynd var reyndar búin að vera í mag-
anum í smátíma en okkur fannst frekar ólík-
legt að við myndum framkvæma hana.“
Hug-
myndin var
að byggja
turn sem myndi teygja sig fleiri kílómetra upp
í loftið. Þeir félagar fóru svo að velta því fyrir
sér hvort þetta væri yfir höfuð hægt og
ákváðu að láta á það reyna.
„Þetta er kannski smá glíma við eitthvað
sem ætti að vera ómögulegt. Ég er reyndar
aðeins búinn að kanna hvar best væri að búa
til turn og svo virðist vera sem bestu veð-
urskilyrðin með blankalogni séu á suð-
urskautinu,“ segir Friðrik.
Gjöf til Ragga Kjartans
Sama dag og MOMS var að byggja turninn
í Feneyjum var verið að opna sýningu Ragn-
ars Kjartanssonar í íslenska skálanum. Um
miðjan dag fór að rigna og turninn lagðist nið-
ur. Þá var ákveðið að labba með hann í gegn-
um borgina og færa Ragnari að gjöf í skál-
anum.
„Þannig að við fylltum skálann af blöðrum.
Svo átti að binda hann fyrir utan og þegar ég
var að því þá slitnaði hann frá og sveif þarna
yfir borgina.“
Blöðruturninn var svo endurbyggður um
síðastliðna helgi þar sem MOMS fékk úthlut-
Ljósmynd/Oliver Lenz
Blöðrur Í Reykjavík gáfu þær lífinu lit.
Hudson
glímdi við
þunglyndi
Hudson Syrgir
fjölskyldumeðlimi.