Morgunblaðið - 02.07.2010, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JÚLÍ 2010
Hún er bastarður, hún erúrkynja samsafn vafa-samra hugmynda, húner sambland af alls-
kyns tónlist sem á svo sem ekki
erindi við einn eða neinn sér-
staklega, sem heild.“ Svona lýsir
nýja sumarplötunni Hitaveitan
sér, en hún kom út fyrir
skemmstu frá Kimi Records-
útgáfunni. Það er varla hægt að
finna betri lýsingu á því hvað
þessi plata í raun og veru er, en
þessa.
Hitaveitan inniheldur 14 sjóð-
heit sumarlög með sveitum sem
flestar eru innan vébanda hinnar
fjölbreyttu Kima-samsteypu, sem í
eru hljómplötuútgáfurnar Kimi,
Brak og Borgin. Lögin er flestöll
ný eða nýleg og í nokkrum þeirra
sameina hljómsveitir krafta sína
og er afrakstur þess samstarfs oft
afar áhugaverður. Sem dæmi má
nefna Prófessorinn og Memfismaf-
íuna, Reykjavík! og Mugison,
Retro Stefson og Miri undir
merkjum Metro Sirion, Skakkam-
anage og Prins Póló og Hjálma og
Helga Björns, svo nokkur séu
nefnd.
Fönk-Prófessorinn sjálfur ríður
á vaðið með Memfismafíunni í lag-
inu „Dýrin á Diskó“ og fer með
hlustendur með sér til diskóeyju
sem fjölmörg diskódýr kalla heim-
ili sitt. Rokkið tekur svo við með
lögum frá Morðingjum og vest-
firsku samstarfi Reykjavík! og
Mugison. Egill S, Retron og Me,
the Slumbering Napoleon mat-
reiða flotta indí-poppaða-stóner-
proggsýru áður en Snorri Helga
og FM Belfast róa á rólegri mið í
lögunum „Ólán“ og „Listen To
You“. Gleðin tekur svo aftur völd-
in þegar Retro Stefson og Miri
fara í ferðalag og nær hún há-
marki hjá DJ Flugvél og Geimskip
áður en Skakkamanage og sjálfur
Prins Póló halda inn í þykka
„Partíþokuna“. Smellurinn „Húsið
og ég“ í flutningi Hjálma og Helga
Björns er svo loksins klæddur í
réttan reggíbúning. Hjaltalín róar
svo ögn niður stemninguna í „Very
Slow Bossanova“ áður en Sudden
Weather Change og Nolo fara á
flug og sjá um að enda Hitaveit-
una á sjóðandi heitum nótum.
Sumarið er svo sannarlega að
finna á Hitaveitunni og ná lögin á
henni að breyta ískalda Atlants-
hafinu og kol-
svarta sandinum
í kristaltæran
sjó við hvíta
strönd á af-
skekktri eyju í
suðurhöfum. Það
er því tilvalið að hækka í ofnunum,
skella sér á stuttbuxur og hlýra-
bolinn og svo hrista sér í eitt
hressilegt sumar-hanastél með
marglitum regnhlífum. Hitaveitan
er vel heppnuð sumarplata sem
fær sólina svo sannarlega til að
skína.
Hlýrabolir, stuttbuxur og hanastél
Brjálað stuð Skakkamanage á Sumargleði Kimi Records síðastliðið sumar.
Geisladiskur
Hitaveitan - Ýmsir flytjendur
bbbbn
Kimi Records 2010
MATTHÍAS ÁRNI
INGIMARSSON
TÓNLIST
Morgunblaðið/Eggert
ÞEIR VORU PLATAÐIR - ÞEIR VORU SVIKNIR - HEFNDIN ER ÞEIRRA
MISSIÐ EKKI AF FYRSTU STÓRMYND SUMARSINS!
„Brjálaður hasar”
-J.I.S. - DV
„The A-Team setur sér það einfalda markmið að
skemmta áhorfendum sínum með látum, og henni
tekst það með stæl. Ekta sumarbíó!”
-T.V. - Kvikmyndir.is
„Sumarið er komið með
kúlnaregni”
-S.V. - Mbl.
Sýnd kl. 5:40, 8 og 10:20
SÝND Í SMÁRABÍÓI
Killers kl. 5:45 - 8 - 10:15 B.i. 12 ára Snabba Cash kl. 6 B.i. 16 ára
Grown Ups kl. 5:45 - 8 - 10:15 LEYFÐ Robin Hood kl. 9 B.i. 12 ára
Get Him to the Greek kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 12 ára
Sýnd kl. 4 - 3D gleraugu seld aukalega Sýnd kl. 4 - ÍSLENSKT TAL
Sýnd kl. 5:50, 8 og 10:10
Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
Í S ÁRABÍÓI
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10
„The A-Team setur sér það einfalda markmið
að skemmta áhorfendum sínum með látum, og
henni tekst það með stæl. Ekta sumarbíó!”
-T.V. - Kvikmyndir.is
ÞEIR VORU PLATAÐIR - ÞEIR VORU SVIKNIR - HEFNDIN ER ÞEIRRA
MISSIÐ EKKI AF FYRSTU STÓRMYND SUMARSINS!
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓ Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó
ef þú greiðir með kreditkorti
tengdu Aukakrónum
www.laugarasbio.is
50 kr. afsláttur ef þú kaupir bíómiðann á
-bara lúxus
Sími 553 2075
gdu Aukakrónum!