Morgunblaðið - 02.07.2010, Side 40
FÖSTUDAGUR 2. JÚLÍ 183. DAGUR ÁRSINS 2010
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200
1. Lést í slysi á Grundartanga
2. Íslenskir karlmenn eru graðir
3. 40.000 króna atvinnuauglýsing
4. Bifreiðarnar fara ekki fet
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Myndin Prince of Persia: The Sands
of Time er orðin tekjuhæsta bíómynd
sem gerð hefur verið eftir tölvuleik.
Myndin, sem skartar Gísla Erni Garð-
arssyni í aukahlutverki, hefur skilað
313 milljónum dollara í aðsókn-
artekjur og fellir úr efsta sætinu fyrri
Tomb Raider-myndina.
Tekjuhæsta myndin
byggð á tölvuleik
Morgunblaðið
hefur heimildir
fyrir því að leik-
arinn Gísli Örn
Garðarsson sé á
leiðinni út á næst-
unni í prufur fyrir
Hobbitann, sem
byggð verður á
hinum gríðarlega
vinsæla forleik Lord of the Rings.
Samkvæmt heimildum mun hann
lesa hlutverk álfakonungsins
Thranduils, föður Legolasar.
Gísli Örn Garðarsson í
prufur fyrir Hobbitann
Vestur-Íslendingurinn John Krist-
jan Samson var nýverið gerður að
tónlistarsendiherra Winnipeg, en
hann er forsprakki kanadísku hljóm-
sveitarinnar The Weakerthans. Hann
hefur komið tvisvar til
Íslands og er heillaður
af íslensku arfleifð-
inni. John segir land-
inu svipa til Winnipeg,
enda land-
fræðilega
einangraðir
staðir. »
32
Tónlistarsendiherra í
Winnipeg
Á laugardag Norðaustan 8-13 m/s norðvestanlands, en annars hægari. Rigning nyrðra
og eystra, en annars víða skúrir, einkum síðdegis. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast suðvestan til.
Á sunnudag og mánudag Norðlæg átt og dálítil rigning á Norðurlandi, en annars
vestlæg eða breytileg átt og skúrir. Hiti breytist lítið.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austan og norðaustan 5-10 m/s og skúrir, einkum síðdegis. Hiti 10
til 20 stig, hlýjast á Vesturlandi.
VEÐUR
KR-ingar unnu í gær örugg-
an 3:0-sigur á Glentoran frá
Norður-Írlandi þegar liðin
áttust við í fyrstu umferð
forkeppni Evrópudeildar
UEFA í knattspyrnu karla.
KR-ingar eru því í góðri
stöðu fyrir seinni leikinn
sem fram fer á heimavelli
Glentoran, The Oval, í Bel-
fast að viku liðinni. Fylkis-
menn fengu hins vegar skell
gegn Zhodino frá Hvíta-
Rússlandi. »2 og 4
KR með vænlega
stöðu til Belfast
Átta liða úrslit heimsmeistaramóts-
ins í fótbolta hefjast í dag klukkan 14
þegar Holland og Brasilía eigast við í
sannkölluðum stórleik. Dunga, þjálf-
ari Brasilíumanna, segir að hollenska
liðið sé afar erfiður mótherji og það
spili eins og Suður-Ameríkumenn. Í
kvöld eigast svo við lið Úrúgvæ og
Gana en þar getur Gana orðið fyrst
Afríkulanda til að tryggja sér sæti í
undanúrslitum HM. »3
Holland spilar eins og
Suður-Ameríkumenn
Víkingur R. vann í gærkvöldi stór-
sigur á ÍR, 4:0, og kom sér þar með
upp að hlið Leiknis R. á toppi 1. deild-
ar karla í knattspyrnu en Leikn-
ismenn gerðu 2:2-jafntefli við HK á
sama tíma. Skagamenn unnu stór-
sigur á botnliði Gróttu, 4:1, og komu
sér upp í 7. sæti en leik Fjarðabyggð-
ar og Fjölnis fyrir austan varð að
fresta vegna vallaraðstæðna. »2
Víkingar jafnir Leikni á
toppi 1. deildarinnar
ÍÞRÓTTIR
Jónas Margeir Ingólfsson
jonasmargeir@mbl.is
Kristín Laufey Ingólfsdóttir, sem
gengur jafnan undir nafninu Lauf-
ey, fagnar hundrað ára afmæli
sínu í dag. Hún hefur alla tíð verið
mikil félagsvera og býður því vin-
um og vandamönnum til mikillar
veislu þar sem aldarafmælinu
verður fagnað.
Laufey harðneitaði að veita öðr-
um blaðamönnum Morgunblaðsins
en sonarsyni sínum viðtal.
Laufey fæddist í Stykkishólmi 2.
júlí árið 1910. Þegar hún var
tveggja ára fluttist fjölskylda
hennar til Reykjavíkur en að
hennar sögn var fátæktin mikil á
þeim tíma. „Skólasystur mínar
sem bjuggu í næsta húsi voru illa
klæddar og áttu ekki neitt.
Mamma átti prjónavél og prjónaði
húfur og vettlinga á þessi börn.
Móðir þeirra var afar glöð með
þetta en börnin dóu mörg. Kuldinn
var mikill en klæðnaðurinn og pen-
ingarnir engir. Ég kynntist alvö-
rufátækt þarna. Ég sé ekki þessa
fátækt í kreppunni í dag. Það er
kannski ekkert að marka mig, ég
sé ekki neitt,“ segir Laufey hlæj-
andi og gerir grín að sjóndepurð
sinni.
Gekk á Viðeyjarsundi
Laufey var átta ára gömul
frostaveturinn mikla 1918.
Spænska veikin hrjáði þá marga
en Laufey veitti þar sjúkum að-
stoð.
„Ég fór heim til fólks og hlúði
að því, gaf því vatn. Ég fór einnig
heim til skólasystkina minna sem
lágu mörg veik. Þau lifðu nú flest
af en það dóu margir hér um bil í
höndunum á fólki. Þegar ég fór út
að leika mér þennan vetur þá var
enginn krakki úti á götu,“ segir
Laufey og bætir við að hún hafi
gengið Viðeyjarsund sama vetur.
„Það var klaki yfir öllum sjónum
við Reykjavík. Pabbi ætlaði að
labba með mig út í Akurey, við gát-
um hæglega gengið alla leið út í
Viðey. Systir mín kom með en
henni varð svo kalt að við snerum
við á miðri leið.“
Ferðast um allan heim
Laufey kynntist manni sínum,
Margeiri Sigurjónssyni, og
saman fluttust þau til Færeyja
fyrir stríð og bjuggu þar öll
stríðsárin. „Mér þykir voða-
lega vænt um Færeyingana.
Ég lærði færeysku á því
að setjast á stéttina
með börnunum í
hverfinu og
spjalla við
þau,“ segir
Laufey sem enn er í góðu sam-
bandi við vini sína í Færeyjum en
nokkrir þeirra hafa boðað komu
sína í afmælisveisluna.
Laufey ferðaðist í kringum
hnöttinn á þeim tímum sem utan-
landsferðir voru óalgengar á Ís-
landi. Hún fylgdi Margeiri í við-
skiptaferðum til Japans, Havaí og
fleiri landa á sjöunda áratugnum
en Margeir sýslaði með fisk og
veiðarfæri. „Hann Margeir keypti
oft veiðarfæri af Japönum og seldi
í Þórshöfn, þetta voru stórmerki-
legar ferðir. Það eru nú margar
sögur af þeim og mörgu öðru sem
ég gæti sagt þér en ég segi þær
seinna. Við geymum þær bara
fram að tvö hundruð ára afmælis-
viðtalinu,“ segir Laufey að lokum
og kímir.
Hundrað ára og heldur veislu
Lék sér einsömul
á götunum frosta-
veturinn mikla
Morgunblaðið/Ernir
Partíljón Kristín Laufey Ingólfsdóttir heldur fjölmenna veislu í tilefni hundrað ára afmælisins. Vinir hennar og ætt-
ingjar hvaðanæva úr heiminum eru komnir til landsins til að halda upp á daginn með henni.
Langlífi virðist algengt í ætt
Laufeyjar en amma hennar,
María Andrésdóttir, varð hundr-
að og sex ára gömul.
Þá varð föðursystir Laufeyjar,
Ingibjörg, hundrað og þriggja
ára en hún og eiginmaður
hennar náðu þeim fágæta
áfanga að halda upp á sjötíu
og fimm ára brúðkaups-
afmæli sitt. Föðurbróðir
Laufeyjar, Guðmundur
Daðason, varð þá hundrað
og fimm ára.
Hár aldur
ÆTTGENGT LANGLÍFI