Fréttablaðið - 14.10.2011, Qupperneq 13
FÖSTUDAGUR 14. október 2011 13
Delta og American Airlines, SAS,
Air France eða British Airwa-
ys,“ segir Matthías og hrósar
Icelandair sérstaklega fyrir það
hvernig fyrirtækið hefur staðið
sig á þessum harða markaði.
Það sprakk ekkert
Matthías segir þó að aldrei hafi
slegið í brýnu á milli hans og
Pálma.
„Pálmi á náttúrulega þetta félag
og er stjórnarformaður þess. Það
er eðlilegt að hann hafi sterkar
skoðanir á því sem fram fer í
rekstri þess. Ég vil ekki segja að
það hafi slest neitt upp á okkar
samskipti. Það er kannski fyrst og
fremst að áherslurnar hafi verið
ólíkar og hafi þróast í ólíkar áttir.“
Ekkert eitt atriði hafi gert
útslagið í þeirra samskiptum. „Það
sprakk ekkert,“ segir hann.
Aðspurður hvort hann hafi verið
hissa á því að eftirmaður hans
hafi sagt upp starfinu einungis
tíu dögum eftir að hann tók við
því segir Matthías:. „Ég kannast
aðeins við Birgi. Hann er drengur
góður. Hann hefur komið þarna inn
með ákveðnar hugmyndir og sýn
sem hann hefur ætlað að fram-
fylgja en fljótlega áttað sig á því
að þær hugmyndir fóru ekki saman
við hugmyndafræði eigandans og
stjórnarinnar og nutu ekki stuðn-
ings. Það er bara eins og það er.“
Framtíð Express getur verið björt
Nýjasti forstjóri Iceland Express
er náinn samstarfsmaður Pálma
til margra ára, Skarphéðinn
Berg Steinarsson. Í ljósi þess
að Matthías og Pálmi voru ekki
að öllu leysi sammála um hvert
félagið skyldi stefna, er hann þá
bjartsýnn á framtíð þess?
„Ég held að framtíð Iceland
Express geti alveg verið björt,“
segir hann. „Sérstaklega ef menn
halda rétt á spilunum.“ Iceland
Express veiti Icelandair mikilvæga
samkeppni, einkum yfir vetrar-
tímann þegar fáir aðrir fljúga til
Íslands. Og hann telur þrátt fyrir
allt að Iceland Express geti veitt þá
samkeppni, enda sé þar starfandi
margt gott fólk.
Spennandi ferðaiðnaður
Matthías situr nú auðum höndum í
fyrsta sinn í fimm ár. Hvað tekur
við hjá honum? „Ég er með nokkur
járn í eldinum og þetta verður bara
að koma í ljós. Ég er að minnsta
kosti ekki tilbúinn til að gefa neitt
út um það eins og er,“ segir hann.
Hann segir ferðaiðnaðinn vax-
andi og spurður hvort hann hafi
áhuga á að starfa þar áfram kveðst
hann ekki vilja útiloka það. „Ég sé
mörg tækifæri þar og það væri
mjög spennandi,“ segir hann.
„Núna er til dæmis verið að
fara af stað með mjög áhugavert
átak sem gengur út á að reyna að
fá ferðamenn hingað í lengri tíma
yfir árið og yfir veturinn líka,
enda hefur ferðamennskan þróast
þannig að langstærstur hluti ferða-
manna kemur yfir sumarmánuðina
þrjá og einnig í september,“ segir
Matthías, og hann hefur ákveðnar
hugmyndir um hvað þyrfti til að
dreifa ferðamönnunum meira um
landið.
„Ég lít á það sem framtíðarverk-
efni, ekki bara að dreifa ferða-
mönnum meira yfir árið heldur
líka að bæta innviðina – ekki síst
samgöngukerfið – til að auðvelda
ferðafólki að njóta alls landsins.“
Mikil tækifæri felist í því byggja
upp ferðamannaiðnaðinn á lands-
byggðinni, sérstaklega þegar litið
sé til minni fyrirtækja í ferðaiðn-
aði.
„Sprotafyrirtæki í ferðaþjónustu
víða um land held ég að gætu skil-
að okkur miklu. Þar skiptir miklu
máli að fólk horfi út fyrir kass-
ann, geri eitthvað nýtt og spenn-
andi fyrir ferðamennina en skoði
jafnframt hvað hefur tekist vel
annars staðar,“ Hann fagnar einn-
ig áhuga erlendra aðila á að reka
ferðaþjónustu á Íslandi. „Það verð-
ur til dæmis skemmtilegt að sjá
hvað verður úr þessu ævintýri á
Grímsstöðum. Þar sjá menn tæki-
færi sem við höfum ekki séð sjálf,“
segir hann.
Hann kallar eftir auknum stuðn-
ingi ríkisvaldsins við sprotafyrir-
tæki. „Þeir peningar myndu skila
sér margfalt til baka til samfélags-
ins, jafnvel þótt ekki nema lítill
hluti sprotanna nái að dafna.“
Ferðamenn í milljón á örfáum
árum
Matthías telur að til þess að hægt
sé að laða ferðamenn til landsins
allan ársins hring séu samgöngu-
bætur lykilatriði. „Það væri gott
fyrir ríkisvaldið að fjárfesta meira
í ferðaþjónustunni og sérstaklega
í innviðunum,“ segir Matthías.
„Verkefni sem eru á teikniborðinu
og myndu skila þessum áhrifum
eru til dæmis Suðurstrandavegur,
betri vegatengingar á Snæfellsnesi
og tvöföldun Hvalfjarðarganga.“
Hann bendir einnig á að Kefla-
víkurflugvöllur sé sprunginn á
ákveðnum, afmörkuðum tímum.
„Álagstímarnir eru á milli sjö og
níu á morgnana og svo frá þrjú
til sex á daginn. Eitt af því sem
ég sæi fyrir mér til að laða að
ný flugfélög væri að bjóða upp
á mikla afslætti af lendingar-
gjöldum og sköttum ef þú færir
á tímum utan háannatíma. Þann-
ig væri hægt að nýta flugvallar-
mannvirkin miklu betur og það
gæti leitt til þess að fleira fólk
kæmi til landsins,“ segir Matthías.
„Ég sé fyrir mér að ef þetta
gengur allt eftir þá væri hægt að
fjölga ferðamönnum úr sex hundr-
uð þúsundum á ári í milljón á örfá-
um árum. Til þess þyrftu aðilar í
þessum geira hins vegar að vinna
enn nánar saman.“
Ég sé fyrir mér að ef þetta gengur
allt eftir þá væri hægt að fjölga
ferðamönnum úr sex hundrum
þúsundum á ári í milljón á ör-
fáum árum.
Ásthildur Sturludóttir
bæjarstjóri Vesturbyggðar
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir
oddviti Tálknafjarðarhrepps
Andrea Björnsdóttir
oddviti Reykhólahrepps
Vestfjörðum 14. október 2011.Láglendisveg strax!
Háttvirtu þingmenn.
Vegamál á sunnanverðum Vestfjörðum eru í ólestri og hafa verið árum saman. Áralöng bið eftir
Höfum í huga að:
öruggra láglendisvega.
Greiðfær og öruggur láglendisvegur um Barðastrandasýslu er nauðsynlegur til að stuðla
að áframhaldandi byggð og framþróun í samfélags- og atvinnumálum á sunnanverðum
Vestfjörðum.
Á síðustu árum og áratugum hefur mun minna fjármagni verið varið til vegagerðar á
samgangna og öryggi vegfarenda er stefnt í voða.
hefur verið á áætlun Vegagerðarinnar í sjö ár. Vegna deilna um vegstæði er þessi sjálfsagða
vegabót nú í uppnámi.
Tillaga ráðherra felur ekki í sér ásættanlegar vegabætur. Vegstæðið verður áfram í sömu hæð
Láglendisvegur er eina lausnin í samgöngumálum svæðisins og hefja þarf vinnu við hann
ekki bið.
Við treystum á stuðning þingmanna úr öllum kjördæmum í þessu
mikilvæga byggða- og samfélagsmáli.
Finna þarf nýja láglendisleið sem sátt er um.