Fréttablaðið - 14.10.2011, Side 27
LYKLAR&LÁSAR
FÖSTUDAGUR 14. OKTÓBER 2011 Kynningarblað Smíði, viðgerðir, neyðarþjónusta og rafræn aðgangsstýring
Protector SX1
Stafrænn lás, lykill
til vara – frábær
stærð fyrir heimilið.
9.950 kr
7.462kr
MP2 Öryggisskáður
Uppgjörin eru örugg í
þessum, fyrir verslanir
og þjónustufyrirtæki.
86.292 kr
64.719kr
Vopnaskápur
Lykillæstur og
öruggur.
48.492 kr
36.369kr
EM 15 öryggisskápur
Klukkustundar eldvörn,
stafrænn lás, vinsælasti
eldvarði skápurinn.
49.500 kr
37.124kr
M
eð fyrirvara um
prentvillur og uppseldar vörur. Ö
ll verð m
eð V
S
K
.
Einn lykill
möguleikar...
Smíðum og þjónustum
allar
stærðir af lyklakerfum
. Það
getur verið þægilegt a
ð hafa
einn lykil í stað margr
a og
einnig er mikið atriði
að
vera viss um að engin
n sé
með lykil af þinni eign
nema
þú vitir af því.
Allt frá því að Neyðarþjónust-an var stofnuð árið 1991 hefur hún aðstoðað þá sem þurfa að
láta opna læsta hluti. „Bílar, peninga-
skápar og sílendrar eru engin fyrir-
staða fyrir okkar starfsmenn að sögn
Ólafs Más Ólafssonar, framkvæmda-
stjóra Neyðarþjónustunnar. Óðinn,
Páll og Sigurður eru sérfræðingar á
sínu sviði.“ Hann tekur fram að nafn
fyrirtækisins segi ekki alla söguna.
„Þetta er ekki bara einhver neyðar-
sími, heldur verslun ásamt verkstæði
með lásasmíði og lásaviðgerðum
eins og fjölmargir þekkja. Fyrirtæk-
ið vinnur mjög náið með öðru fyrir-
tæki sem heitir Gler og lásar og er í
eigu sömu aðila en það sinnir opn-
unarútköllum í heimahús fyrir þá
sem læstir eru úti auk bráðalokana
vegna gler- og innbrotstjóna. Þessi
þjónusta er í boði allan sólarhring-
inn,“ útskýrir hann.
Ólafur Már segir flestar gerðir bíl-
lykla smíðaðar hjá Neyðarþjónust-
unni, með og án fjarstýringa. „Í gegn-
um tíðina hafa bílaframleiðendur
lagt áherslu á forritaða bíllykla og því
þarf mikla þekkingu ásamt dýrum
búnaði til að framleiða slíka lykla.
Neyðarþjónustan hefur lagt mikinn
metnað í að bæta sig og vera í fremstu
röð á þessu sviði með fjárfestingum
í búnaði og þjálfun starfsmanna hér
heima og erlendis,“ segir Ólafur og
getur þess að starfsmenn hafi farið
um allt land að forrita svisslykla, því
yfirleitt þurfi að tölvutengja lyklana
við bílinn svo hann fari í gang.
Skrár, læsingar, sílendrar og lykla-
kerfi eru til í miklu úrvali hjá Neyðar-
þjónustunni. „Við höfum hannað og
smíðað fjöldann allan af lyklakerfum
fyrir húsfélög, fyrirtæki og stofnanir.
Það getur verið gott að vera bara með
einn lykil í stað margra á kippunni,“
segir Ólafur Már en hann mælir ein-
dregið með því að fólk skipti alltaf
um sílendra þegar það flytur í notaða
fasteign. „Enginn veit hversu margir
lyklar að íbúðinni eru í umferð,“ segir
hann og bendir á að hægt sé að taka
sílendra úr hurðum og koma með í
Neyðarþjónustuna til að endurraða
þeim og búa til nýja lykla. „Það er
jafnvel hægt að samræma alla sí-
lendra í viðkomandi húsi fyrir að-
eins einn lykil.“
Spurður hvort það komi ekki
stundum upp skemmtileg atvik svar-
ar Ólafur að slíkt gerist alltaf annað
slagið. „Ég fékk símtal um daginn
þar sem útlendingar höfðu læst
lyklana í skottinu á bílaleigubílnum
sínum en þeir voru staddir á Ísafirði.
Kona ein úr verslun í nágrenninu
var að hjálpa þeim í þessum vand-
ræðum. „Flugið er eftir 20 mínút-
ur,“ sagði hún við mig. Að sjálfsögðu
náðum við að smíða lykil og koma
honum á flug og fengum mikið hrós
fyrir. Útlendingarnir sögðu við kon-
una að þetta hefði aldrei verið mögu-
leiki í þeirra heimalandi. Svona er Ís-
land í dag, við hjálpumst að,“ segir
Ólafur að lokum.
Þetta er ekki
bara einhver
neyðarsími, heldur
verslun ásamt verkstæði
með lásasmíði og
lásaviðgerðum eins og
fjölmargir þekkja.
Við opnum nánast allt
Flestir lenda einhvern tíma í því að týna lyklum og þá er að leita til Neyðarþjónustunnar á Laugavegi 168 því þar geta
menn opnað nánast allt. Hvort heldur það eru peningaskápar, tengdamömmubox, hvers kyns skápar eða skrín, og nýr
lykill er smíðaður á stuttum tíma. Þar starfa þaulreyndir og duglegir menn með Ólaf Má Ólafsson í forsvari.
GOTT AÐ VITA
Neyðarþjónustan hefur
tuttugu ára reynslu í lásavið-
gerðum, lyklasmíði og opnun á
hvers konar læsingum. Það var
eitt fyrsta fyrirtækið á landinu
sem bauð útkallsþjónustu allan
sólarhringinn fyrir þá sem voru
læstir úti.
Núverandi eigendur Neyðar-
þjónustunnar tóku við rekstr-
inum 1. ágúst 2007 og reka auk
þess Gler og lása sem sérhæfa
sig í þjónustu allan sólarhring-
inn.
Neyðarþjónustan hefur
á undanförnum árum keypt
hátæknibúnað til að forrita
lykla í flestar tegundir bíla. Það
er nauðsynleg,t að sögn Ólafs
Más framkvæmdastjóra, þar
sem ræsivörn bíla verður sífellt
flóknari.
Yfir tíu þúsund gerðir af
lyklum eru til í Neyðarþjónust-
unni og nánast alltaf er hægt
að útvega þá lykla sem beðið
er um.
Peningaskápaeign hefur farið
vaxandi á heimilum síðustu ár.
Þar geymir fólk passa, vísakort,
peninga og skart. Neyðar-
þjónustan selur margar gerðir
peningaskápa fyrir heimili og
fyrirtæki.
„Bílar, peningaskápar og sílendrar eru engin fyrirstaða fyrir okkar starfsmenn,“ segir Ólafur. Frá vinstri: Sigurður Birgir Sigurðsson, Ólafur
Már, Óðinn Sigurðsson rekstrarstjóri og Páll Rafnsson. MYND/GVA