Fréttablaðið - 14.10.2011, Page 44
14. október 2011 FÖSTUDAGUR
SENDU SMS SKEYTIÐ
ESL THOR
Á NÚMERIÐ 1900
OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ!
VINNINGAR AFHENTIR Í ELKO LINDUM. 149 KR/SKEYTIÐ.
MEÐ ÞVÍ AÐ TAKA ÞÁTT ERTU KOMINN Í SMS KLÚBB.
WWW.SENA.IS/THOR
FULLT AF VINNINGUM:
BÍÓMIÐAR
TÖLVULEIKIR - DVD MYNDIR - GOS OG FLEIRA!
HEIMSFRUMSÝND 14. OKTÓBER
...OG 10 ÖÐRUM STÖÐUM UM LAND ALLT
VILTU
VINNA
MIÐA?
Fyrsta íslenska
teiknimyndin
í fullri lengd.
Fyrsta íslenska
teiknimyndin
í þrívídd.
Frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna!
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Föstudagur 14. október 2011
➜ Tónleikar
17.15 The Vintage Caravan, Dark
Harvest, Dimma, Wicked strangers, Two
tickets to Japan, Fönksveinar, Monsoon
Drive, Kalli Tender og Heima spila á
Dillon. Aðgangur er ókeypis.
18.30 Treasure of Grundo, Nuke
Dukem, Hjaltalín, Beatless, Vigri,
Reykjavík!, Mammút spila á B Waves á
Bakkusi. Aðgangur er ókeypis.
21.00 Skúli mennski, Gímaldin, Hek,
Gunnbjörn Þorsteinsson, Magnús Ein-
arsson, Hjalti Þorkelsson og Hermann
Stefánsson koma fram á Obladi Oblada,
Frakkastíg 8. Aðgangur er ókeypis.
21.00 Beggi Mood heldur tónleika á
Café Rosenberg.
21.30 Skuggamyndir frá Býsans spila á
Café Haiti. Aðgangseyrir er kr. 1.000.
22.00 Hvanndalsbræður spila á Græna
hattinum. Miðaverð er kr. 2.000.
23.00 Emmsjé Gauti, Úlfur Úlfur og Dj
Gay Latino Man koma fram á Prikinu.
➜ Iceland Airwaves off-venue
12.00 Jón Jónsson, Einar Stray og
Dream Central Station spila fyrir gesti
Munnhörpunnar. Allir velkomnir.
13.00 Other lives, The Twilight Sad,
Hjaltalín, John Grant, Caged Animals
spila á Kexi Hostel. Aðgangur ókeypis.
13.00 Úlfur, Dad rocks!, Mimas, Team
me, Jenny Hval og Ólafur Arnalds koma
fram í Norræna húsinu. Allir velkomnir.
14.00 Ylja, Útidúr, Íris Þórarins, II, Sing
for me Sandra, Japanese Super Shift
og Stolið spila fyrir gesti í Reykjavík
Backpackers. Allir velkomnir.
14.00 Low Roar spilar á tónleikum á
Laundromat. Aðgangur er ókeypis.
15.00 Hellvar og Úlfur spila á tón-
leikum í Smekkleysu. Allir velkomnir.
15.00 Matthew Hemerlein, Ghost
Town Jenny, Vibeke Falden, Elephant
Stone og Lockerbie á Reykjavík Down-
town Hostel. Aðgangur er ókeypis.
16.00 Caged Animals, Murmansk,
Ter Haar og K-X-P spila á tónleikum á
Hressó. Aðgangur er ókeypis.
16.00 Vigri, Vicky og Sykur spila á tón-
leikum í Hjartagarðinum. Allir velkomnir.
16.00 Berndsen, Hermigervill, Oculus,
President Bongo með Högna Egilssyni
og Earth, Rabbi Bananas, Snorri Helga-
son, Sykur og Þórunn Antonía koma
fram á Ingólfsstræti 8. Allir velkomnir.
16.00 Hyrrrokkin, Just Another Snake
Cult, Sindri Eldon, Instrument project,
Miri, Úlfur, Guðmundur Úlfarsson, Baku
Baku og oFF koma fram á Kaffistofunni.
Aðgangur er ókeypis.
17.00 Hellvar, Úlfur Úlfur, Less Win,
Bárujárn og Deathcrush spila á Bar 11.
Aðgangur er ókeypis.
17.00 Útidúr og Sóley spila í Eymunds-
son í Austurstræti. Aðgangur er ókeypis.
17.00 Borko og Retro Stefson spila í
Kormáki og Skildi. Aðgangur er ókeypis.
17.00 Spaceships are cool, TechSoul,
The Esoteric Gender, Þórunn Antonía,
Möllerdiskó, Nana, Magga og Ragga
og Haffi Haff koma fram á Barböru.
Aðgangur er ókeypis.
17.30 Mógil og Helgi Rafn Jónsson
spila í versluninni 12 Tónum. Allir
velkomnir.
18.00 Dj AnDre, Subminimal, Ahma,
Beatmakin Troopa spila tónlist á vegum
Extreme Chill í Vesturbæjarlauginni.
18.00 Dikta, Rakel Mjöll og Gabby
Maiden koma fram á Hemma og Valda.
Aðgangur er ókeypis.
18.10 Hauschka, Nadia Sirota og
Valgeir Sigurðsson, Guðrið, Bedroom
Community DJ, Karlakór Kaffibarsins
og DJ Kári halda uppi stuðinu á Kaffi-
barnum. Aðgangur er ókeypis.
➜ Leiklist
20.00 Leiksýningin Alvöru menn er
sýnd í Austurbæ. Miðaverð er kr. 3.500.
20.00 Gálma er sýnt í Norðurpólnum,
Sefgörðum 3. Miðaverð er kr. 1.800.
20.00 Nemendaleikhús Listaháskóla
Íslands sýnir Á botninum í Smiðjunni.
Miðaverð er kr. 1.500.
➜ Fyrirlestrar
12.00 Guðbjörg Linda Rafnsdóttir
prófessor í félagsfræði fjallar um ólíka
upplifun kynjanna á Hallveigarstöðum,
Túngötu 14.
12.00 Hjörleifur Sveinbjörnsson flytur
fyrirlesturinn Huang Nubo og kínversk-
íslenski menningarsjóðurinn í Árnagarði
301 í Háskóla Íslands.
12.00 Dr. Gunilla Herolf flytur fyrir-
lesturinn Breytingar á
öryggissamvinnu
í Evrópu - áhrif á
stofnanir og smáríki
í stofu 201 í Odda í
Háskóla Íslands.
14.00 Harpa
Arnardóttir,
leikkona og
leikstjóri, flyt-
ur fyrirlestur
í Ketilhúsinu
í Listagili.
Aðgangur er
ókeypis.
➜ Eldri borgarar
09.30 Korpúlfarnir standa fyrir sund-
leikfimi í Grafarvogssundlaug kl. 9.30 og
listasmiðju á Korpúlfsstöðum kl. 13.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is.
Tónleikar ★★★★
Björk
Silfurberg í Hörpu
Iceland Airwaves, 12. okt. 2011
Það ríkti mikil eftirvænting í Silf-
urbergssal Hörpu á miðvikudags-
kvöldið, en þar fóru fram fyrstu
tónleikarnir í Biophiliu-tónleikaröð
Bjarkar í Hörpu sem um leið voru
hennar fyrstu tónleikar á Iceland
Airwaves-hátíðinni. Þegar geng-
ið var í salinn blasti við óvenjuleg
uppsetning. Stórt svið var í miðjum
salnum, en áhorfendum var raðað
út frá því í fjórar áttir. Á sviðinu
mátti sjá skrýtin hljóðfæri, þar
á meðal fjóra þriggja metra háa
pendúla. Yfir því héngu svo skjáir
í hring sem í upphafi sýndu Biophi-
liu-stjörnukortið.
Þegar tónlistarfólkið hafði
komið sér fyrir á sviðinu kynnti
rödd Davids Attenborough Bio-
Lifandi vísindi Bjarkar
philiu-verkefnið í nokkrum orðum
og tilfinningin sem maður fékk
var meira eins og að vera staddur
á einhverri vísindasýningu en tón-
leikum. Áður en fyrsta lagið, Thun-
derbolt, hófst seig stórt búr niður
úr loftinu, en í því voru tvö Tesla-
kefli sem neistuðu eldingum þegar
bassalínan í laginu hljómaði. Mjög
tilkomumikil sjón.
Björk flutti öll lögin af Bio-
philiu-plötunni á tónleikunum, en
að auki nokkra eldri smelli, m.a.
Hidden Place, Isobel og Mouth‘s
Cradle. Það voru þrír hljóðfæra-
leikarar á sviðinu með henni;
tölvu- og hljómborðsleikarinn
Matt Robertson, slagverksleikar-
inn Manu Delago og Jónas Sen sem
lék í nokkrum lögum og fékk m.a.
þann heiður að leika á sérsmíðaða
selestu. Mest fór samt fyrir stelp-
unum úr Graduale Nobili-kórnum
sem voru yfir tuttugu talsins og
sungu og dönsuðu í flestum lög-
unum.
Þetta voru mjög óvenjulegir tón-
leikar. Biophiliu-lögin voru flest
mjög lík útgáfunum á plötunni, en
eldri lögin voru í nýjum útsetning-
um í anda plötunnar. Það var mikil
hreyfing á sviðinu allan tímann,
Björk sneri sér til skiptis að áhorf-
endum allt í kringum sviðið og
stelpurnar voru á stöðugri hreyf-
ingu. Á skjáunum var sýnt mynd-
efni sem tengdist lögunum sem
var verið að spila, oftast náttúru-
og vísindatengt. Biophilia fjallar
um tengsl tónlistar við náttúru og
tækni og oft fannst manni maður
vera staddur á einhvers konar
náttúruvísindasýningu. Það er
samt líka alltaf ævintýrablær hjá
Björk, sem á miðvikudagskvöldið
kom m.a. fram í litskrúðugum og
glansandi búningum kórstelpn-
anna og þessari stóru og skrýtnu
rauðu hárkollu sem Björk hafði á
hausnum.
Eftir fimmtán lög hvarf Björk
af sviðinu, en kom aftur eftir upp-
klapp og flutti lögin One Day, Nátt-
úra (sem hún tileinkaði Eyjafjalla-
jökli „og Kötlu ef hún stendur sig“)
og Declare Independence, við mik-
inn fögnuð. Útsetningin á One Day
var einn af hápunktum kvöldsins
en í því var enginn annar undir-
leikur en hang-ásláttur Manus
Delago.
Á heildina litið var þetta einstök
kvöldstund. Þetta voru ekki bara
tónleikar, heldur flókin og úthugs-
uð margmiðlunarsýning. Ég hefði
alveg verið til í að heyra aðeins
fleiri gömul lög til að létta stemn-
inguna aðeins, en þetta var samt
mjög flott. Mikilfenglegt. Ég hefði
ekki viljað missa af þessu.
Trausti Júlíusson
Niðurstaða: Tónleika-, margmiðlun-
ar- og vísindasýning Bjarkar í Hörpu
á miðvikudagskvöldið var einstök
upplifun.