Fréttablaðið - 26.11.2011, Síða 40
26. nóvember 2011 LAUGARDAGUR40
Arnór Guðjohnsen lék með Anderlecht í Belgíu árið 1983
þegar heimavöllur liðsins var
endur byggður. Í tilefni af því að
ný stúka var vígð komu gestir frá
Katalóníu í heimsókn, lið Barce-
lona, með Maradona innanborðs.
Hann var keyptur til liðsins frá
Boca Juniors í Argentínu, þá fyrir
metfé, fimm milljónir punda, árið
1982. „Þetta var nú frekar rólegur
leikur enda ekkert í húfi. Maradona
hafði sig lítið í frammi í leiknum,
en allir sáu langar leiðir að hann
var sérstakur. Nokkru eftir þennan
leik spiluðum við á æfingamóti
ásamt Barcelona og Dortmund.
Við leikmennirnir horfðum saman
á leik Barcelona og Dortmund og
sáum þá Maradona í essinu sínu.
Hann var ótrúlega góður alhliða
leikmaður á þessum tíma. Við trúð-
um því varla hversu góður hann
var. Hann skoraði eina markið í
þessum leik, sneri sér leiftur snöggt
og þrumaði í þak netið, eins og að
drekka vatn. Hann hafði gríðarlega
tækni, hraða, jafnvægi, skottækni,
líkamlegan styrk og leikskilning.
Bókstaflega allt. Árin á eftir sá
maður hann verða að besta leik-
manni í veröldinni, og í mínum
huga besta knattspyrnumanni sem
uppi hefur verið.“
Arnór sá hann aftur spila árið
1989, í undanúrslitum Evrópu-
keppninnar, og segir það hafa verið
hreina upplifun. „Ég var staddur
í München í læknis meðferð og
læknir inn gaf mér miða á leik
Napoli og Bayern. Fyrir leikinn
voru leikmenn að hita upp og
hvergi sást Maradona. Þegar leik-
menn beggja liða voru að koma
til búnings herbergja kom hann
skokkandi út á völlinn, með ein-
hverja menn sér við hlið, aðstoðar-
þjálfara líklega. Áhorfendur fóru
strax að púa og láta í sér heyra.
Það fór mikill kliður um áhorf-
endur þegar hann lét sjá sig, enda
var hann stærsta nafn íþróttanna
á þessum tíma og hafði þar
að auki mikið aðdráttarafl sem
persóna. Hann hélt boltanum
nokkrum sinnum á lofti, veifaði til
stuðningsmanna Napoli og fór svo
aftur inn í klefa. Hitaði nánast ekk-
ert upp. Svo kom hann út á völl-
inn og var langbestur! Hann lék sér
að leikmönnum Bayern, sem var
með frábært lið. Maður hallaði sér
bara aftur og horfði á þennan snill-
ing sýna listir sínar. Það sem skilur
hann frá öðrum, t.d. Messi núna,
var kannski helst það að hann
hafði þann eiginleika að geta fallið
mjög aftarlega á völlinn og stýrt
gangi leikja, án þess kannski að
leggja upp mörk eða skora. Hann
tók leikinn oft til sín, eins og sagt
er, var gjörsamlega einráður þegar
kom að taktinum í leikjunum. Það
er afar sjaldgæfur eiginleiki. Þetta
gerði hann einmitt í þessum leik,
lék í raun sem afturliggjandi miðju-
maður, en var svo mættur fremst á
völlinn þegar þurfti.“
Arnór segir það sorglegt
hvernig farið hafi fyrir Maradona
utan vallar. Það eigi þó ekki að
skemma minningarnar um besta
knattspyrnumann fyrr og síðar að
hans mati. „Það er sorglegt hvernig
það hefur farið með orðspor hans
sem leikmanns. Menn muna of
lítið eftir honum, margir hverjir.
En fyrir mér er hann algjörlega
ógleymanlegur. Sérstaklega smá-
atriðin í leik hans, fyrsta snerting
og augað fyrir spili. Fullkomlega
ótrúlegur knattspyrnumaður.“
Á sgeir Sigurvinsson, einn allra besta knattspyrnumaður
sem Ísland hefur átt, spilaði á móti
Diego Armando Maradona með
Stuttgart í tveimur úrslitaleikjum í
Evrópukeppni félagsliða árið 1989.
Ásgeir var prímusmótor í liði sínu
á miðjunni og þótti einn allra besti
miðjumaður Evrópu þegar hann var
upp á sitt besta. Hann tók auka-
spyrnur og horn með eitruðum
vinstri fæti og stjórnaði spilinu hjá
Stuttgart. Fremst á miðjunni hjá
Napoli var hins vegar Maradona,
eins og kóngur í ríki sínu. Á þessum
tíma var hann ekki alveg á hátindi
ferilsins en var þó fremstur meðal
jafningja, að sögn Ásgeirs. „Ég man
að við töluðum um að spila okkar
leik, reyna að hugsa sem minnst
um stemninguna sem var á vell-
inum og allra síst um að Maradona
væri að keppa á móti okkur. Hann
var auðvitað stórkostlegur knatt-
spyrnumaður, með mjög næman
leikskilning og tækni sem ég hef
sjaldan eða aldrei séð. Viðhorfið hjá
okkur var hins vegar að spila okkar
leik og gera okkar besta. Það gekk
vel í fyrri leiknum í Napoli þó að við
höfum tapað honum 2-1. Það voru
ótrúleg læti á vellinum. Mikil öskur
og hvatning frá áhorfendum, og
mikil persónudýrkun gagnvart Mara-
dona. Það var því ekkert sjálfgefið
að halda góðri einbeitingu í þessum
aðstæðum,“ segir Ásgeir.
Hann segir marga aðra leikmenn
Napoli hafa verið frábæra, einkum
Brasilíumennina Careca, sem var
í framlínunni, og varnarmiðju-
manninn Alemao. „Þeir voru afar
góðir í að halda boltanum innan
liðsins. Það er ekkert jafn erfitt og
að spila á móti leikmönnum sem
ráða vel við að halda boltanum
og hafa góða skilning á leiknum. Í
minning unni var Napoli-liðið heil-
steypt í þessum atriðum, og síðan
með snillinginn Maradona fremstan
í flokki og einnig Careca sem var
baneitraður framherji. Maradona
var kannski ekki alveg á toppi
ferilsins þegar við mættum honum
en það mátti aldrei líta af honum.
Hann var í algjörum sérflokki þegar
kom að leikskilningi og boltatækni,
og oftar en ekki var maður minntur
á það í leikjunum. Í seinni leiknum
í Stuttgart vorum við í miklum
vandræðum. Napoli réð ferðinni
og stýrði leiknum, þó að hann hafi
endað 3-3. Þá minnti Maradona á
hæfileika sína með því að leggja
upp tvö mörk og vera sérlega erf-
iður þegar kom að hlaupum fremst
á vellinum. Hann tímasetti þau
með sínum einstaka leikskilningi
og gerði okkur lífið leitt. Það er
þannig með svona snillinga eins og
Maradona, og Messi nú á dögum,
að það þýðir ekkert að ætla sér að
stöðva leikmennina með því að
dekka þá stíft. Þeir ráða alltaf við
það að fá leikmenn í sig á fullri ferð
og nærast raunar svolítið á því. Í
minningunni reyndum við að spila
okkar leik og hugsa sem minnst um
að einn besti leikmaður sögunnar
væri inn á. Það gekk að mörgu leyti
vel. En það var kannski lýsandi að
það gekk ekki betur en svo að við
töpuðum að lokum, ekki síst vegna
úrslitasendinga frá Maradona, þó
að hann hafi ekki skorað sjálfur.“
T
veir af bestu leikmönn-
um Íslands frá upphafi,
Ásgeir Sigurvinsson og
Arnór Guðjohnsen, upp-
lifðu það að leika á móti
einum besta og umtalaðasta knatt-
spyrnumanni sögunnar, Argentínu-
manninum Diego Armando Mara-
dona. Arnór mætti honum þegar sá
síðarnefndi var á hraðri leið með
að verða besti leikmaður heims,
árið 1983, á meðan Ásgeir mætti
honum síðar á ferlinum, árið 1989,
í tveimur úrslitaleikjum í Evrópu-
keppni félagsliða. Maradona var
drif fjöðurin í liði Napoli sem
umbreyttist í eitt besta félagslið
í heimi eftir að hann gekk óvænt
til liðs við það frá Barcelona árið
1984. Við tók ótrúlegt uppgangs-
tímabil hjá Napoli. Félagið varð
í tvígang ítalskur meistari, sem
hafði fram að komu Maradona
verið fjarlægur möguleiki, ekki
síst vegna þess hve vel mönnuð
stórveldin AC Milan, Inter Milan
og Juventus voru á þessum tíma.
Mögnuð frammistaða
Stjarna Maradona skein þó aldrei
skærar en árið 1986 þegar hann fór
fyrir liði Argentínu á HM í Mexíkó.
Enn í dag er talað um frammi-
stöðu hans á mótinu sem mögnuð-
ustu einstaklingsframmistöðu sem
sést hefur á HM. Hann bar höfuð
og herðar yfir andstæðinga sína og
tætti liðin í sig með mögnuðum ein-
leik og spilamennsku.
Eftir árið 1990 fór að halla
undan fæti hjá Maradona. Sam-
kvæmt frásögnum í bók breska rit-
höfundarins Jimmy Burns, Hendi
Guðs (The Hand of God), glímdi
Maradona við djúpstæða eiturlyfja-
fíkn á þeim tíma, auk þess sem
ökklameiðsli gerðu honum lífið
leitt. Þetta kom ekki veg fyrir að
hann bæri fyrirliðabandið í lands-
liði Argentínu á HM á Ítalíu árið
1990, sem endaði með sigri Þjóð-
verja í úrslitaleik við Argentínu-
menn. Maradona skapaði sér
gríðar legar óvinsældir með því að
ögra ítölskum að dáendum í undan-
úrslitaleiknum gegn Ítölum. Hann
niðurlægði þá síðan endanlega með
því að skora úr víti í vítaspyrnu-
keppninni. Hann rúllaði boltanum
þá laflaust hægra megin við mark-
vörðinn fræga Walter Zenga, sem
skutlaði sér í öfugt horn. Maradona
hljóp brosandi í burtu.
Tekinn í vímu
Um það bil ári síðar, árið 1991, var
Maradona handtekinn ásamt fíkni-
efnasala í Napoli. Fyrir utan húsið
þar sem hann var handtekinn biðu
tugir ljósmyndara og blaðamanna
og horfðu á hann leiddan inn í
bifreið ásamt lögreglumönnum.
Niður lægingin var algjör. Hann
var síðan dæmdur í leikbann og
hætti hjá Napoli í kjölfarið. Árið
1994, á HM í Bandaríkjunum, féll
hann síðan aftur á lyfjaprófi. Hann
var dæmdur aftur í bann. Hann lék
sinn síðasta keppnisleik árið 1997
með Boca Juniors, félaginu þar
sem hann er í guðatölu eftir dvöl
sína þar á yngri árum.
Maradona hefur viðurkennt í
sjálfsævisögu sinni að hafa verið
háður kókaíni allt frá árinu 1988
og fram að síðasta leik sínum tíu
árum seinna. Enn fremur segist
hann hafa prófað efnið fyrst þegar
hann var að ganga í gegnum erfið-
an meiðslakafla hjá Barcelona,
árið 1983. Öllum má ljóst vera
að eiturlyfjafíknin gerði hann að
verri leikmanni. Eftir að ferlinum
lauk dýpkaði fíkniefnavandinn
enn frekar og endaði með því að
hann næstum dó árið 2004 af þeim
sökum. Frá þeim tíma hefur honum
gengið betur að halda sér edrú en
glímir þó enn við gamlar syndir,
skuldir þar helst. Honum tókst að
koma Argentínumönnum á HM í
Suður-Afríku í fyrra en náði aldrei
góðum tökum á stjörnum prýddu
liði. Hann þjálfar nú lið Al Wasl í
Dubai. Ítölsk yfirvöld segja hann
skulda 23 milljónir evra í skatta
frá tíma hans hjá Napoli. Hann
hefur sjálfur aðeins greitt 42
þúsund evrur til baka, auk
úrs og skartgripa. Hann
segist ekki skulda meira
en það.
Kepptu við
kónginn
Ásgeir Sigurvinsson og Arnór Guðjohnsen
ræddu við Magnús Halldórsson og sögðu það hafa
verið upplifun að mæta Argentínu manninum
Maradona á vellinum. Ásgeir segir að ekki sé
hægt að dekka leikmenn eins og Maradona.
Arnór upplifði það sem áhorfandi að sjá hann
setja á svið „sýningu“ í München.
Á FULLRI FERÐ Maradona og Ásgeir Sigurvinsson sjást hér kljást um boltann í seinni úrslitaleik í Evrópukeppni félagsliða árið
1989. Leiknum lauk með 3-3 jafntefli, og Napoli vann samanlagt 5-4, eftir að hafa unnið fyrri leikinn 2-1. MYND/GETTY
■ ÞAÐ ÞÝÐIR EKKERT AÐ DEKKA SVONA MENN STÍFT
■ TRÚÐI ÞVÍ VARLA HVERSU GÓÐUR HANN VAR
FERILL MARADONA:
BOCA JUNIORS 1978 – 1982
BARCELONA 1982 – 1984
NAPOLI 1984 – 1991
SEVILLA 1992 – 1993
NEWELL‘S OLD BOYS 1994 – 1995
BOCA JUNIORS 1995 – 1997