Fréttablaðið - 26.11.2011, Blaðsíða 54
heimili&hönnun6
viðarparket
Verðdæmi:
Eik 3ja stafa kr. 4.290 m2
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755
„Við erum voða heimakær og förum
sem minnst út úr húsi,“ segir Lilja
Katrín Gunnarsdóttir, ritstjóri Séð
og heyrt, í gamansömum tón þegar
Fréttablaðið fær að kíkja til hennar
í innlit. Hún lýsir stílnum á heim-
ilinu sem „úti um allt“ og segist ekki
eltast við vörumerki.
„Ég hef engan ákveðinn stíl.
Mér finnst gaman að blanda saman
gömlu og nýju og safna að mér alls
konar dóti. Við Hjalti erum líka
bæði uppfull af hugmyndum, en
hann smíðaði til dæmis sófaborð-
ið okkar úr vörubretti. Ég er líka
mikið fyrir að gera kjarakaup og
finna ódýra hluti en vinir mínir
stríða mér oft á því,“ segir hún hlæj-
andi. „Eldhússtólarnir eru til dæmis
úr Rúmfatalagernum. Ég tók mig
svo til og lakkaði þá alla í mismun-
andi litum eina vikuna,“ segir Lilja.
Gamalt útvarp úr tekki á fótum
fangar augað en ofan á því standa
smáhlutir, meðal annars bollar sem
Lilja fékk á markaði í Kaupmanna-
höfn. Útvarpið virkar og fær að
hljóma á tyllidögum. „Tengdapabbi
minn kom með það á pallbílnum
sínum frá Sauðárkróki. Hann ætl-
aði með það á Sorpu en við björguð-
um því,“ segir Lilja. „Það er mikil
stemning að hlusta á Gullbylgjuna
í því.“
Á vegg hangir árituð mynd af
innanríkisráðherra og Lilja Katrín
skellir upp úr þegar hún er krafin
frekari skýringa á henni. „Ég fékk
hana í afmælisgjöf frá Tobbu Mar-
inós og Karli Sigurðssyni. Þegar ég
vann sem blaðamaður á DV þurfti
ég oft að hringja í Ögmund vegna
frétta. Hann var alltaf svo liðlegur
að ég var orðin hálf skotin í honum.
Allt þó á platónskum nótum,“ segir
hún hlæjandi og bætir við að mynd-
in sé góður ísbrjótur í samvæmum.
„Það hafa allir sterkar skoðanir á
honum.“
Þegar Lilja Katrín er spurð
um uppáhaldshúsgagnið á heim-
ilinu nefnir hún alls ekki húsgagn.
„Amelía Björt er uppáhaldið á heim-
ilinu. Ég gæti alveg búið í pappa-
kassa þess vegna ef ég hefði hana.“
- rat
Ögmundur ísbrjótur
● Lilja Katrín Gunnarsdóttir, ritstjóri Séð og heyrt, býr ásamt Hjalta Rúnari Sigurðssyni og
Amelíu Björt í Árbænum. Hún segir þau heimakær og eiga oft notalegar stundir í sófanum.
Lilja Katrín Gunnarsdóttir, ritstjóri Séð og heyrt, á góðri stund í sófanum með dóttur
sinni Amelíu Björt. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Litla froskinn fékk Amelía Björt í jólagjöf
frá vinkonu Lilju. Hann var trekktur ótal
sinnum upp á aðfangadagskvöld þar til
hann bilaði. Þá fór hann á hilluna. Bláu
matrúskuna keypti Lilja í Moskvu.
Hvítmáluð hirsla. Lilja Katrín hefur
gaman af að blanda saman gömlu og
nýju og safnar að sér alls konar hús-
gögnum.
Árituð mynd af Ögmundi Jónasyni
innanríkisráðherra hangir uppi á
heiðursstað. Lilja Katrín segir hana
ágætis ísbrjót í samkvæmum.
Ljúffengar bollakökur á bleikum diski taka sig vel út á borðinu.
Gömlu tekkgræjurnar kom tengdafaðir Lilju einn daginn með á pallbíl frá Sauðár-
króki. Hann ætlaði að fara með þær í Góða hirðinn en Lilja fékk að kippa þeim inn í
stofu. Plötuspilarinn er bilaður en útvarpið virkar.
Fyrsta jólaskrautið komið upp. Vængina keypti Lilja Katrín í Tiger og hengdi á svefn-
herbergishurðina.
Amelía Björt er hæstánægð með eld-
hússtólana, en mamma hennar eyddi
nokkrum kvöldum í að lakka þá í
hressandi litum.