Fréttablaðið - 26.11.2011, Page 108
26. nóvember 2011 LAUGARDAGUR72
folk@frettabladid.is
LISTVINAFÉLAG HALLGRÍMSKIRKJU 30. STARFSÁR
Fluttar verða latneskar a cappella aðventu- og
jólamótettur eftir: Scarlatti, Handl, Palestrina,
Guerrero, Lassus, Viadana, Poulenc og Macmillan
Miðaverð 3.000 kr. / Afsláttarverð 2.500 kr.
Miðasala í Hallgrímskirkju Sími: 510 1000
Stjórnandi: Hörður Áskelsson
Trompetleikari: Eiríkur Örn Pálsson
www.listvinafelag.is
Aðventutónleikar
Schola cantorum
Hallgrímskirkju 2011
Með þessum tónleikum
fagnar Schola cantorum
15 ára afmæli sínu.
„Þetta verður í anda gömlu stóru
jólaballanna, þar sem börnin taka
þátt og syngja með,“ segir frétta-
maðurinn og skemmtikrafturinn
Ómar Ragnarsson.
Stórsveit Reykjavíkur heldur
jólatónleika barnanna í Háskóla-
bíói á morgun klukkan 15. Leikin
verða lög af jólaplötunni Gátta-
þefur í glöðum hópi, sem kom út
árið 1971. Gáttaþefur og Ómar
Ragnarsson sjálfur skipta með
sér söngnum á tónleikunum, en
öll lögin af plötunni verða leikin.
„Það eru nákvæmlega 50 ár síðan
ég samdi fyrstu jólatextana, Jóla-
sveinninn minn og Sjö litlar mýs.
Og það eru 40 ár frá því að þriðja
Gáttaþefsplatan kom út. Þannig
að þetta er tvöfalt afmæli,“ segir
Ómar. „Það verður mikið grín og
mikið gaman þegar Gáttaþefur
ákveður að stökkva til byggða í
einn dag. Þetta verður skemmti-
legt og fjölbreytt.“
Hefurðu alltaf jafn gaman af því
að bregða þér í þetta hlutverk?
„Þegar maður er búinn að
hvíla það svona lengi er sérstak-
lega gaman að syngja með svona
skemmtilegum útsetningum. Sum
lögin fá alveg nýtt líf. Þetta verð-
ur til þess að Gáttaþefur verður á
hálfum tónleikunum og ég sjálfur
á hinum helmingnum. Þetta svíng-
ar svo vel að ég mátti til með að fá
að syngja. Það kemur fullt af fólki
upp á svið og tekur þátt í þessu. Og
70 barna kór!“
Miðaverð er 3.000 krónur og
miðasala fer fram á Midi.is.
Ómar endurvekur
Gáttaþef á jólaballi
KEMUR MEÐ GÁTTAÞEF Ómar Ragnars-
son, Gáttaþefur og Stórsveit Reykjavíkur
halda barnaball í Háskólabíói á morgun.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Við ætlum að bjóða upp á nýtísku-
legt sushi sem er að slá í gegn úti
um allan heim ásamt suðrænum
steikum,“ segir Gunnsteinn Helgi,
einn af eigendum nýs veitingastað-
ar sem nefnist Sushisamba.
Staðurinn, sem verður opnaður á
þriðjudaginn, sérhæfir sig í matar-
gerð frá Japan og Suður-Ameríku.
Eigendur staðarins hafa fengið til
liðs við sig japanska sushi-meist-
arann Schinichiro Hara, en hann
hefur starfað við sushi-gerð úti um
allan heim og nú síðast í Mónakó.
Einnig ætla sushi-kokkurinn Ari
Alexander og Oliveira að standa
vaktina í eldhúsinu, en sá síðar-
nefndi hefur til dæmis starfað á
veitingastaðnum Sticks and Sushi í
Kaupmannahöfn. Það eru því engir
aukvisar sem ætla að elda sushi
ofan í landann.
„Við höfum verið á fullu síðustu
mánuði að koma staðnum heim og
saman en það er mjög mikilvægt
fyrir okkur að skapa réttu stemn-
inguna. Við höfum verið í sam-
bandi við fólk í Brasilíu, Perú og
Japan til að leita að réttu hlutunum
inn á staðinn,“ segir Gunnsteinn
Helgi, en meðal innanstokksmuna
á staðnum eru 50 japönsk fugla-
búr og handgerðir trémunir frá
Abaetetuba í Brasilíu.
Blöndun matargerðar frá Suður-
Ameríku og Japan er löngu þekkt í
matreiðsluheiminum og hófst strax
í byrjun síðustu aldar þegar Jap-
anar fluttust búferlum til Suður-
Ameríku. Meðal nýjunga á mat-
seðlinum eru smáréttir á borð við
hrefnu-tataki, taquitos chevice og
vatnsmelónufranskar. Staðurinn
verður sem fyrr segir opnaður á
þriðjudag og er í Þingholtsstræti.
- áp
Nýtísku sushi og
vatnsmelónufranskar
SPENNTIR AÐ OPNA Gunnsteinn Helgi stendur hér á nýja veitingastaðnum Sus-
hisamba ásamt kokkunum Eyþór Mar, Oliveira og Ara Alexander.
Aðdáendur hljómsveitar-
innar Diktu fylltu Nasa á
fimmtudagskvöldið þegar
útgáfutónleikar sveitar-
innar fóru fram. Dikta gaf
á dögunum út fjórðu plötu
sína, Trust Me, og flutti
nýju lögin við mikinn fögn-
uð viðstaddra.
DIKTA FAGNAÐI Á NASA
Sigurjón Sigurjónsson og Stefán Þór
Guðgeirsson voru ánægðir með nýju
plötuna.
Bryndís Marteinsdóttir, Hrafnhildur Sverrisdóttir, Kolbrún Ottósdóttir, Hjörtur Jónsson
og Sveinbjörn Höskuldsson.
Skúli Steinar sendiherra, Jón Ingi Stefánsson, Jón Alexander Guðmundsson og
Adrian Irwing skemmtu sér vel. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Sunddrottningin Ragnheiður Ragnarsdóttir og Helga
Sörensdóttir á Krúsku mættu saman.
Daniel Martines, Margrét Sveinsdóttir, Halldóra Ólöf Brynjólfsdóttir og
María Jónsdóttir eru miklir aðdáendur Diktu.
72 ÁR fyllir söngkonan fræga Tina Turner í dag. Turner hefur notið mikillar velgengni í skemmtanabransanum gegnum tíðina, en ferill hennar
spannar yfir 50 ár.
Hjónaband söngvarans Seal og
ofurfyrirsætunnar Heidi Klum
hefur þegar enst lengur en flest
hjónabönd í Hollywood og er
umtalað sem eitt heilbrigðasta
samband kvikmyndaborg-
arinnar. Parið hefur verið
gift í sex ár og nú hefur
Seal ljóstrað upp um lyk-
ilinn að hamingjusömu
hjónabandi þeirra, en
það segir hann að sé
einfaldlega að hafa
það gaman saman.
Seal og Klum
eiga fjögur börn og
hafa bæði í mörgu að
snúast, þannig að frítími þeirra
er af skornum skammti. Þess
vegna passa þau að gera eitt-
hvað skemmtilegt þegar þau hafa
tíma til þess að vera saman.
„Við erum bestu vinir og
við elskum að eyða tíma
hvort með öðru – fjöl-
skyldan gengur allt-
af fyrir hjá okkur,
sama hvað gerist,“
sagði Seal.
Heidi og Seal ham-
ingjusamlega gift
FYRIRMYNDARPAR
Heidi Klum og Seal
endurnýja giftingar-
heitið á hverju ári.