Fréttablaðið - 26.11.2011, Síða 126
26. nóvember 2011 LAUGARDAGUR90
Styrking • Jafnvægi • Fegurð
CC Flax
Frábært gegn fyrirtíðarspennu fyrir konur á öllum
aldri og einkennum breytingaskeiðs
Heilbrigðari og grennri konur
Rannsókn sýna að konur sem hafa mikið
lignans i blóðinu eru að meðaltali með 8,5 kg
minni fitumassa en þær konur sem skortir
eða hafa lítið af Lignans.**
* Howel AB Journal of the American Medical Associaton june 2002 287:3082
** British Journal of Nutrition(2009), 102: 195-200 Cambridge University.
1 kúfuð teskeið á dag - 40 daga skammtur
Fæst í apótekum, heilsubúðum og Krónunni.
www.celsus.is
Mulin hörfræ – Lignans
Trönuberjafræ
Kalk úr hafþörungum
JÓL ÁN AUKAKÍLÓA
- Frábær árangur -
Stuðlar að hormónajafnvægi og vellíðan.
Talið gott við bjúg og vökvasöfnun, styrkir
þvagfærakerfið. Fjölbreyttar trefjar, hreinsa
og tryggja góða starfsemi ristilsins.
Lækkar kólestrólfitu, ríkt af Omega-3
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur
Umsóknardagar vegna Jólaglaðnings
Þriðjudaginn 29. Nóvember kl. 10 – 14
Fimmtudaginn 1. Desember kl. 10 – 14
Þriðjudaginn 6. Desember kl. 10 – 14
Fimmtudaginn 8. Desember kl. 10 – 14
Úthlutað verður dagana 19, 20, og 21. desember
kl. 10 – 12 og 13 – 17 að Fiskislóð 14
d
PERSÓNAN
Steinar Júlíusson, grafískur
hönnuður
Aldur: 31 árs.
Fjölskylda:
Giftur Katrínu
Karlsdóttur,
meistaranema í
skipulagsfræði,
og á dótturina
Júlíu Ósk,
fjögurra ára.
Búseta: Stokk-
hólmur.
Starf: Kvikari
hjá Acne Production.
Stjörnumerki: Steingeit.
Steinar Júlíusson er í starfsnámi hjá
fremsta framleiðslufyrirtækinu í Svíþjóð,
Acne Productions, og fékk til þess styrk
úr Hönnunarsjóði Auroru.
„Þetta er svona ekta stuðlag sem fær alla til að
vilja dansa og dilla sér,“ segir María Björk Sverris-
dóttir lagahöfundur um framlag sitt í forkeppni
Eurovision í ár.
Lag Maríu Bjarkar ber titilinn Hjartað brennur
og er samið í samstarfi við sænsku lagahöfundana
Marcus Frenell og Fredrik Randquist. Það er engin
önnur en söngkonan Regína Ósk Óskarsdóttir sem
flytur lagið, en María Björk segir að söngkonan
hafi verið hennar fyrsti kostur frá byrjun.
„Regína Ósk smellpassar við lagið enda æðis-
leg söngkona og þrautþjálfuð á sviði,“ segir María
Björk, en báðar eru þær með töluverða Eurovisi-
on-reynslu og leggur María Björk áherslu á að það
sé mjög mikilvægt í svona keppni að vera með
reynslu.
Regína Ósk vann árið 2008 með laginu This Is
My Life sem hún flutti ásamt söngvaranum Frið-
riki Ómari, en saman skipa þau hljómsveitina Euro-
bandið. Árið eftir fór María Björk til Moskvu með
söngkonunni Jóhönnu Guðrúnu, sem flutti lagið Is
It True og lenti í öðru sæti í aðalkeppninni. „Þetta
er svo skemmtilegt og ég tek þátt í keppninni til að
hafa gaman.“
María Björk hefur verið dyggur samstarfsmaður
Jóhönnu Guðrúnar gegnum tíðina, en Fréttablað-
ið greindi frá því á dögunum að NRK fjallaði um
flutning söngkonunnar ungu til Noregs. Í viðtali við
vefsíðu NRK sagði Jóhanna Guðrún að vel kæmi
til greina að keppa fyrir hönd Noregs í Eurovision.
„Mér finnst það bara gaman og spennandi tækifæri
fyrir hana,“ segir María Björk, en í ár eru það alls
fimmtán lög sem keppa í forkeppni Eurovision sem
verður á dagskrá RÚV í byrjun næsta árs. - áp
Regína Ósk syngur stuðlag Maríu Bjarkar
EUROVISION-SAMSTARF Regína Ósk og
María Björk eru báðar reynsluboltar í Euro-
vision-heiminum en snúa nú bökum saman
er Regína flytur lagið Hjartað brennur eftir
Maríu Björk í forkeppninni.
„Jú, hérna voru þrjátíu metrar á sekúndu. Og leik-
munabíll hjá okkur fauk út af veginum. En það
slasaðist enginn og allir leikmunir eru heilir. Þetta
gerðist bara í „slow-motion,“ segir Snorri Þórisson
hjá Pegasus. Tökur á bandarísku sjónvarpsþáttaröð-
inni Game of Thrones eru hafnar í Skaftafelli við
Hótel Freysnes en mikið óveður reið yfir Austur-
land á fimmtudagskvöld með fyrrgreindum afleið-
ingum.
Hins vegar var veðrið gengið niður í gær og lék
raunar við hvern sinn fingur. „Þetta er alveg eins og
þeir vilja hafa þetta, kalt og snjólag yfir öllu, ekki
samt of mikill snjór heldur alveg passlegur.“ Yfir
hundrað manns koma að tökunum hér á landi, en
þær standa yfir í tvær vikur. Samkvæmt heimild-
um Fréttablaðsins voru íslenskir statistar kallaðir í
búningamátun í gær og meðal þeirra var Pétur Örn
Guðmundsson, oftast kenndur við Jesú og hjóm-
sveitina Buff.
Pétur vildi hins vegar ekkert tjá sig við Frétta-
blaðið og sagðist vera múlbundinn af trúnaðarsam-
komulagi. „Ég má segja að ég sé í tökunum. Meira
má ég eiginlega ekki segja og meira veit ég heldur
ekki. Enda bara maður með spjót,“ segir Pétur, sem
hafði ekki séð þáttaröðina en var hins vegar byrj-
aður að lesa bækurnar sem þættirnir eru byggðir
á. „Ég er samt bara hálfnaður með fyrstu bókina og
verð því heldur betur að spýta í augun,“ segir Pétur.
- fgg
Leikmunabíll fauk út af vegi
MAÐUR MEÐ SPJÓT Pétur Örn Guðmundsson er einn þeirra
sem hefur fengið hlutverk í Game of Thrones. Tökur á
þáttaröðinni eru byrjaðar í Skaftafelli. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
„Frúin er komin á svið í Hamborg,“
segir Hallgrímur Helgason rit-
höfundur. Þýska leikhúsið Thalia
Theater í Hamborg hefur tryggt
sér réttindin að bókinni Konan
við 1000° í Þýskalandi. Og hyggst
setja upp einleik fyrir reynda leik-
konu sem ráðgert er að verði frum-
sýndur í október á næsta ári. Eins
og Fréttablaðið hefur greint frá er
Þjóðleikhúsið á Íslandi þegar búið
að tryggja sér svipuð réttindi að
leikgerðinni hér á landi.
Thalia-leikhúsið er meðal þeirra
virtustu í Þýskalandi, en það var
stofnað 1843. Hallgrími kemur
það í sjálfu sér ekki á óvart að
Þjóðverjar skuli fara þessa leið,
að setja þessa viðamiklu bók, sem
spannar marga áratugi og flakkar
á milli heimsálfa, upp í formi ein-
leiks. „Þegar ég var að kynna bók-
ina í Þýskalandi þá var oft eldri
leikkona sem las textann upp fyrir
mig, líka þegar ég var í Hamborg.
Ég fann að þær fundu sig oft vel í
þessu hlutverki og ég held að leik-
hús séu oft að reyna að finna hlut-
verk fyrir konur á þessum aldri,“
en Hallgrímur hefur ekki hugmynd
um hvernig einleikurinn verður.
„Góðar leikkonur geta náttúrlega
skapað margar persónur.“
Herbjörg María Björnsson,
konan í bók Hallgríms, á sér
raunverulega fyrirmynd í einu
af barnabörnum forsetans Sveins
Björnssonar, Brynhildi Georgíu
Björnsson-Borger. Kurr var í ætt-
ingjum Brynhildar en Hallgrím-
ur sjálfur hefur ekki mikið heyrt
af því. „Ég skil vel að það sé mjög
skrítið fyrir þá að lesa þessa bók
en hún sjálf bar þá von í brjósti
að lífshlaup hennar yrði að kvik-
mynd í Þýskalandi. Og ég held að
einleikurinn í Hamborg hefði kætt
hana mjög, hún var mjög mikið á
því svæði og Hamborg var eigin-
lega hennar heimaborg.“
Þetta er ekki fyrsta bók Hall-
gríms sem verður að leikriti í
hinum þýskumælandi heimi því
í byrjun mánaðarins frumsýndi
Borgarleikhúsið í Salzburg verk
upp úr 10 ráðum til að hætta að
drepa fólk. Hallgrímur var við-
staddur frumsýninguna og var
bara nokkuð hrifinn. „Þetta var
mjög furðuleg tilfinning, að sjá
þetta á þýsku. Þeim tókst að segja
alla þessa sögu og senuskiptin
runnu mjúklega í gegn. Það hefði
kannski mátt vera meiri húmor en
í þessum þýskumælandi löndum
er meira leiðindaþol, ef þeir fá að
hlæja á tuttugu mínútna fresti þá
finnst þeim það alveg nóg.“
freyrgigja@frettabladid.is
HALLGRÍMUR HELGASON: GAMLA KONAN VÆRI ÁNÆGÐ MEÐ ÞETTA
Saga Herbjargar verður
einleikur í Hamborg
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ÁNÆGJULEGT Hallgrímur Helgson segir
að góðar leikkonur geti skapað margar
persónur, en Thalía-leikhúsið í Hamborg
hyggst setja upp einleik byggðan á bók
Hallgríms, Konan við 1000°.