Fréttablaðið - 30.11.2011, Blaðsíða 30
HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
Interstate heilsárs- og vetrardekkin eru umhverfis-
vænni kostur. Munstrið inniheldur minna magn af
mengandi olíum og uppfyllir evrópska staðla um
efnisinnihald hágæða hjólbarða.
DUGGUVOGI 10 RVK AUSTURVEGI 52 SELFOSS PITSTOP.IS WWW
HJALLAHRAUNI 4 HFJRAUÐHELLU 11 HFJ568 2020 SÍMI
HEILSÁRS- OG
VETRARDEKK
UMHVERFISVÆNNI KOSTUR
FYRIR FÓLKSBÍLA OG JEPPA
VIÐ EIGUM FLESTAR STÆRÐIR DEKKJA Á HAGSTÆÐU VERÐI.
HAFÐU SAMBAND TIL AÐ FÁ VERÐ Í DEKK FYRIR BÍLINN ÞINN.
175/65 R14 45.900 kr. 195/65 R15 55.900 kr.
185/65 R14 49.900 kr. 205/55 R16 63.900 kr.
185/70 R14 49.900 kr. 245/75 R16 99.800 kr.
185/65 R15 51.900 kr. 225/45 R17 73.900 kr.
DÆMI UM FRÁBÆR TILBOÐ Á INTERSTATE
HEILSÁRS- OG VETRARDEKKJUM
VERÐIN ERU FYRIR FJÖGUR DEKK ÁSAMT UMFELGUN
„Norðurljósin geta breyst frá einum klukkutíma
til annars. Það er þó hægt að nálgast spár um líkur
á norðurljósum en þær ná í mesta lagi dag fram í
tímann,“ segir Einar og bendir á að einnig verði
að taka veðurskilyrði með í reikninginn. „Hér á
landi er veðrið jafnvel meiri óvissuþáttur því það
eru talsverðar líkur á því að sjá ekkert til himins í
þrjá daga samfleytt yfir vetrartímann.“
Friðrik segir þó sína reynslu af sölu norðurljósa
til ferðamanna góða. Fólk geri sér grein fyrir að
um náttúrufyrirbrigði sé að ræða og geri sér vonir
eftir því.
„Okkar reynsla er sú að langflestir sem koma til
að sjá norðurljósin gera það með opnum huga. Oft
er þetta fólk sem er gagntekið af norðurljósunum
og hefur kynnt sér þau og ferðast víðar til að sjá
þau, svo sem til Alaska, Finnlands eða Svíþjóðar.
Yfirleitt veit það einnig að þetta er náttúrufyrir-
brigði og að ekki er á vísan að róa,“ segir Friðrik.
„Það er einnig okkar reynsla á Hótel Rangá að
þar sem engin ljósamengun er og öll útiljós slökkt
þá sést oft til norðurljósanna þó þau séu dauf. Við
höldum úti vakt alla nóttina og gestir merkja við í
afgreiðslunni áður en þeir fara að sofa hvort þeir
vilji sjá meira. Næturvörðurinn vekur þá þegar
sést til norðurljósa og fólk stekkur þá ekki bara á
fætur heldur standa oft tugir manna hér úti á nátt-
fötunum um miðja nótt,“ segir Friðrik.
„Við Íslendingar tökum ljósunum sem gefnum
og horfum ekki endilega á þau þegar þau eru ekki
sem mest áberandi en þau eru alltaf mikið sjónar-
spil.“
Fræðslufundurinn fer fram milli klukkan 10 og
11.30 á morgun á Radisson Blu hótel Sögu.
Framhald af forsíðu
Norðurljósin geta verið mikið sjónarspil og áhugafólk ferðast um langan veg til að sjá þau. NORDICPHOTOS/GETTY
SMS-frímerki er nýjung hjá póstinum sem sparar tíma. Viðskipta-
vinir senda SMS með textanum F (bil) 1 í númerið 1900 og fá til baka
fimm stafa númer sem gildir sem frímerki og er skrifað efst í hægra
horn umslagsins. Hægt er að fá númer sem gildir fyrir allt að 50 bréf.
Á vefnum safetravel.
is er að finna lista
yfir öryggisráðstafanir
sem er vert að gera
áður en haldið er í
ferðalag. Mikilvægt er
að afla sér allra upp-
lýsinga um svæðið
sem farið er um, skilja
eftir ferðaáætlun,
kanna veðurspá og
hafa meðferðis búnað
sem hæfir aðstæðum.
Utan alfaraleiðar er
nauðsynlegt að hafa
kort, GPS-
tæki og
átta-
vita.
Heimild: www.safe-
travel.is