Morgunblaðið - 01.09.2010, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 01.09.2010, Blaðsíða 6
6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 2010 „Þetta verður gríðarlega stór dag- ur,“ segir Elías Jónatansson, bæjar- stjóri í Bolungarvík, um opnun Ós- hlíðarganga en stefnt er að henni laugardaginn 25. september næst- komandi. Í tengslum við opnunina er verið að undirbúa hátíðahöld í Bolungarvík og segir Elías að mikið standi til. Um helgina var lokið við að mal- bika göngin en sú vinna tók ellefu daga. Rúnar Ágúst Jónsson, stað- arstjóri hjá Ósafli, sem vinnur að gerð ganganna milli Bolungarvíkur og Hnífsdals, segir að fram- kvæmdir hafi gengið vel og nú sé aðeins lokafrágangur eftir. Verið sé að ganga frá rafbúnaði og setja upp skilti og merkingar. Byrjað sé að taka niður aðstöðu Ósafls í Hnífsdal og brottflutningur véla og tækja sé hafinn, en frágangi eigi að vera lokið 1. desember. Framkvæmdir hófust í maí 2008 og er verkið nokkurn veginn á áætlun. Göngin eru um 5,1 km löng og breidd þeirra er um 8 m. Tíu út- skot eru í göngunum og þar af tvö fyrir stærri flutningabíla. Í sumar unnu um 60 manns í göngunum og þar af um 45 manns á vegum Ósafls en auk þess komu undirverktakar að málum. steinthor@mbl.is Búið að malbika og stefnt að opnun Óshlíðarganga laugardaginn 25. september Hátíðahöld undirbúin í Bolungarvík Lósmynd/Halldór Sveinbjörnsson Óshlíðargöng Um helgina var lokið við að malbika göngin og er stefnt að opnun þeirra 25. september. Kristján Jónsson kjon@mbl.is „Reglan hjá okkur er sú að vera ekki með miklar yfirlýsingar nema í sam- ráði við viðkomandi einstakling og ekki liggur fyrir ákvörðun í þessu máli. En mér finnst þetta afar sér- kennileg málsmeðferð og vinnu- brögðin lítt vönduð á alla enda og kanta. Annars vegar að það skuli dragast svona úr hömlu að fá nið- urstöðu í mál og hins vegar að meiri- hluti stjórnar skuli ekki ráða,“ segir Kristín Ástgeirsdóttir, fram- kvæmdastýra Jafnréttisstofu, um ráðningu forstjóra Íbúðalánasjóðs. Kona sem sótti um starfið, Ásta H. Bragadóttir, hefur dregið sig í hlé enda þótt hún njóti stuðnings meiri- hluta stjórnar stofnunarinnar og segir hún ráðherra ekki styðja sig. Kristín segir umsækjandann ekki hafa leitað með mál sitt til Jafnrétt- isstofu en vel sé fylgst með málinu. Erfitt sé auk þess fyrir hana að tjá sig um Íbúðalánasjóðsmálið, hún hafi setið sjálf í stjórn sjóðsins í eina tíð og þá kynnst Ástu vel. Stofnunin heyrir undir félags- málaráðherra, Árna Pál Árnason, og á m.a. að fylgjast með þróun jafn- réttismála. Henni ber samkvæmt lögum að veita stjórnvöldum og fleiri aðilum ráðgjöf í tengslum við jafn- rétti kynjanna. Lögfræðingi Jafn- réttisstofu, Ingibjörgu Elíasdóttur, er ekki kunnugt um að ráðherra hafi fari fram á ráðgjöf. Jafnréttisstofa getur vísað málum til kærunefndar jafnréttismála. En það er þó einvörðungu gert í málum einstaklinga ef þeir biðja um það, að sögn Kristínar. Tók karlmann fram yfir konu Félagsmálaráðherra tók sem kunnugt er fyrir skömmu karlmann fram yfir konu í nýtt embætti Um- boðsmanns skuldara. Niðurstaðan varð að vísu að konan, Ásta Sigrún Helgadóttir, fékk að lokum starfið eftir að karlmaðurinn sagði af sér. „Við vorum í sambandi við Ástu Sig- rúnu en áður en eitthvað varð úr að- gerðum var málið leyst á farsælan hátt,“ segir Kristín. Dregist hefur mánuðum saman að skipa í forstjórastöðuna eftir að Guð- mundur Bjarnason hætti hjá Íbúða- lánasjóði. Ásta H. Bragadóttir, sem naut stuðnings fjögurra af fimm stjórnarmönnum, hefur dregið um- sókn sína til baka og ber því við að hún telji ekki að ráðherra álíti sig hæfa. Fullyrt hefur verið að Árni Páll vilji koma samflokksmanni sín- um, Yngva Erni Kristinssyni, í stöð- una. Árni Páll hefur hins vegar sagt að hann hafi enga afstöðu tekið til umsækjenda. „Afar sérkennileg málsmeðferð“  Framkvæmdastýra Jafnréttisstofu segir stofnunina fylgjast vel með máli Íbúðalánasjóðs  Segir hefð fyrir því að tjá sig ekki mikið um mál einstaklinga nema þeir leiti til stofnunarinnar Ásta H. Bragadóttir Kristín Ástgeirsdóttir Landhelgisgæslan gerir ráð fyrir að fá nýja varðskipið Þór afhent í Chile um mitt næsta sumar. Afhenda átti skipið í maí sem leið en það skemmdist í jarðskjálfta um mánuði fyrr og því dregst afhendingin. Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, segir að skemmdirnar hafi verið meiri en upphaflega hafi verið áætlað. Lang- an tíma hafi tekið að kanna rétt- arstöðuna, fara yfir tryggingamál og verkfræðiúttektir, en nú sé verk- ið farið í gang á ný og unnið sam- kvæmt raunhæfum áætlunum. Tjónið hafi eingöngu verið í vélar- rúmi og falli það á skipasmíðastöð- ina en tjón Gæslunnar felist í seink- un á afhendingu og auknum eftirlitskostnaði að mjög óverulegu leyti. „Beint fjártjón okkar er ekk- ert,“ segir Georg. Framkvæmdir hófust í Asmar- skipasmíðastöðinni í Chile vorið 2007. Bíða þarf eftir nýjum vélar- hlutum en eftir afhendingu fer skip- ið annaðhvort í leigu erlendis eða í gæslu innanlands. steinthor@mbl.is Nýja varðskipið Þór afhent í Chile eftir tæplega ár  Töf vegna jarð- skjálfta en kostn- aður óbreyttur Nýtt varðskip Varðskipið Þór var sjósett í Chile í lok apríl 2009. Til stóð að afhenda það um ári síðar en Landhelgisgæslan fær það næsta sumar. Hæstiréttur tekur til starfa í dag að loknu sumarhléi. Það mál sem beð- ið er með mestri óþreyju hefur verið sett á dag- skrá mánudaginn 6. september, þ.e. mál Lýsingar gegn einum skuldara sínum, sem tek- ið hafði bílalán í erlendri mynt. Verð- ur þar tekist á um vexti af láninu. Málið munu dæma reyndustu dóm- arar réttarins, þau Ingibjörg Bene- diktsdóttir, Árni Kolbeinsson, Garðar Gíslason, Gunnlaugur Claessen og Markús Sigurbjörnsson. Hæstiréttur tekur til starfa í dag eftir réttarhlé Kjarasamningur Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutninga- manna við launanefnd sveitarfé- laga var samþykktur með níu at- kvæða mun í atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna LSS sem lauk á mánudag. Samningurinn var und- irritaður 20. ágúst sl. en hann byggist á tillögu sem ríkissátta- semjari lagði fram þegar viðræður virtust vera að sigla í strand. 237 voru á kjörskrá. Atkvæði greiddu 213 eða 90%, já sögðu 109 (51%) og nei sögðu 100 (47%). Auðir seðlar og ógildir voru fjórir. Samningur sam- þykktur naumlega Jafnréttisstofa heyrir undir fé- lagsmálaráðherra og á m.a. að fylgjast með þróun jafnréttis- mála í þjóðfélaginu. Henni ber samkvæmt lögum að veita stjórnvöldum ráðgjöf í tengslum við jafnrétti kynjanna. Jafnréttisstofa getur vísað mál- um til kærunefndar jafnréttis- mála hafi hún rökstuddan grun um að lög hafi verið brotin. Veitir stjórn- völdum ráð JAFNRÉTTISSTOFA ódýrt og gott Grillaður kjúklingur, Pepsi eða Pepsi Max, 2 l 998kr.pk.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.