Morgunblaðið - 01.09.2010, Síða 9

Morgunblaðið - 01.09.2010, Síða 9
Fréttir 9INNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 2010 Kristján J. Gunnars- son, fyrrverandi skólastjóri og fræðslustjóri í Reykjavík, lést 30. ágúst sl., 90 ára að aldri. Hann fæddist í Marteinstungu í Holtahreppi, Rang- árvallasýslu, 29. nóv- ember 1919, sonur hjónanna Gunnars Einarssonar og Guð- rúnar Kristjáns- dóttur. Kristján lauk kennaraprófi árið 1942. Hann var kennari við barnaskólann á Suðureyri 1942-1943, skólastjóri barnaskólans á Hellissandi 1943-1952, yfirkennari við Langholtsskóla í Reykjavík 1952- 1961 og skólastjóri þar til ársins 1973. Hann gegndi embætti fræðslustjóra í Reykjavík frá 1973-1982. Kristján tók mikinn þátt í sveitar- stjórnarmálum. Hann var oddviti hreppsnefndar í Neshreppi utan Ennis á Snæfellsnesi 1946-1952 og borgarfulltrúi í Reykjavík frá 1970-1973. Hann starf- aði í fjölmörgum ráðum og nefndum og var m.a. í fræðsluráði Reykjavíkur. Kristján var mjög at- kvæðamikill í málefnum barnaskóla og síðar grunnskóla. Hann var skipaður í fræðslulaga- nefnd 1969 og gegndi mikilvægu hlutverki þeg- ar lög um grunnskóla voru undirbúin og síðar sam- þykkt 1974, en þau tóku við af lögum um barna- fræðslu og skólaskyldu, sem giltu frá 1907-1974. Kristján gaf út nokkrar ljóðabæk- ur og eina skáldsögu. Hann ritstýrði Skólaljóðunum og Lesbók barnanna í Morgunblaðinu 1957-1971. Kona Kristjáns var Þórdís Krist- jánsdóttir hjúkrunarkona, f. 1918 á Suðureyri. Þau eignuðust fimm börn. Þórdís lést árið 2002. Kristján verður jarðsunginn frá Áskirkju miðvikudaginn 8. sept- ember kl. 15. Andlát Kristján J. Gunnarsson ÚR BÆJARLÍFINU Líney Sigurðardóttir Þórshöfn Bylting varð í samgöngumálum hér við Þórshöfn þegar Hófaskarðsleið yfir Hólaheiðina var opnuð og má líkja fögnuði íbúa hér við frelsi úr ánauð. Þetta er mikil breyting frá holóttum forarvegum sem varla gátu talist fólksbílafærir en nú er ekið á malbiki alla leið til Reykjavíkur og leiðin til Húsavíkur styttist um rúma fimmtíu kílómetra. Enn er nokkur frágangur eftir við veginn þótt búið sé að opna og vegfarendur því beðnir að sýna aðgát og virða hraðatak- markanir.    Skólastarf er hafið á ný eftir sumarfrí, bæði í grunnskólanum og í framhaldsskóladeildinni á Mennta- setrinu. Framhaldsskólanemendur eru nú tólf, í fyrsta og öðrum bekk, þar af sjö nýnemar og er það framför að nemendur geti nú lokið fyrstu tveimur árum framhaldsnáms í dag- skóla í heimabyggðinni. Verkefnis- stjóri framhaldsskólans er Anna Þor- steinsdóttir sem segir samstarfið við Laugaskóla hafi gengið mjög vel í alla staði en nemendur hefja veturinn á tveggja vikna námslotu í framhalds- skólanum á Laugum.    Nýr skólastjóri hefur verið ráðinn við Grunnskólann á Þórshöfn, Arn- fríður Aðalsteinsdóttir, en auk henn- ar eru allmargir nýir kennarar við skólann þetta skólaár. Arnfríður er með víðtæka menntun og reynslu og hlakkar til að takast á við verkefni vetrarins með nemendum, foreldrum og samstarfsfólki en tæplega áttatíu nemendur eru nú í grunnskólanum.    Sparisjóður Þórshafnar og ná- grennis hefur ráðið nýjan sparisjóðs- stóra til starfa, Írisi Björnsdóttur, sem er viðskiptafræðingur að mennt og með meistaragráðu í banka- starfsemi og fjármálum frá Lux- embourg School of Finance. Íris tek- ur við af Guðna Haukssyni sem áður gegndi starfinu og líst henni vel á starfið og lífið hér á landsbyggðinni.    Síldarfrysting og -bræðsla stendur nú sem hæst hjá Ísfélaginu en vaktavinna hófst af fullum krafti kringum miðjan júlí. Unnið er allan sólarhringinn svo fólk úr nærliggj- andi byggðarlögum þarf að leggja fram krafta sína.    Vistvænt skref var stigið í Langanesbyggð þegar breyting varð á sorphirðumálum og flokkun tekin upp. Með því minnkar það sorp sem fer til urðunar en endurvinnsla og nýting eykst. Samið var við Íslenska gámafélagið um sorphirðu og moltu- gerð og kynntu starfsmenn fram- kvæmdina fyrir íbúunum í sum- arbyrjun. Þrjár tunnur eru nú við flest heimili og eru íbúar komnir vel í gang með þetta umhverfisvæna átak. Á malbiki til Reykja- víkur Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Fyrsti skóladagurinn Mikið verð- ur sungið í grunnskólanum í vetur. Ríkiskaup óskaði eftir tilboðum í leigu á björg- unarþyrlu fyrir Landhelgisgæslu Íslands í raðaug- lýsingum Morg- unblaðsins síðast- liðinn laugardag. Óskað er eftir björgunarþyrlu af tegundinni Super Puma til gæslu og björg- unarstarfa á og við Ísland í eitt ár frá og með haustmánuðum 2010, með heimild til framlengingar í allt að fimm árum. Georg Lárusson, forstjóri Land- helgisgæslunnar, segir Landhelgis- gæsluna vera að framfylgja stefnu ráðherra en LHG hefur einungis tvær vel útbúnar björgunarþyrlur sem takmarki tæknilega getu henn- ar. „Stefnan er að reyna að berja í brestina. Við vorum með fjórar björgunarþyrlur en þær eru bara tvær núna. Það sem við ætlum að reyna að gera eftir að við náum okk- ar tækjum og mannskap heim úr verkefnum víðsvegar um heiminn er að kanna hvort við getum komið okkur upp annarri vél og bætt í mannskapinn til að hafa tvær vaktir allan sólarhringinn,“ segir Georg sem kveður það ekki formlega ákveðið. „Það sem við erum að gera er að kanna hvernig markaðurinn er, hvort við eigum einhverja möguleika og hvort eitthvað er til á leigu sem við höfum efni á,“ segir Georg sem kveðst vongóður um að jákvætt svar fáist og vonast til þess að nýta megi þyrluna í verkefni í útlöndum til að afla tekna. jonasmargeir@mbl.is  Forstjóri Landhelgisgæslunnar von- ast til að fá þriðju þyrluna í flotann Þyrla Landhelgisgæslan hefur nú einungis tvær þyrlur í rekstri. Georg Lárusson Landhelgisgæslan óskar eftir þyrlu Morgunblaðið/Eggert Full búð af nýjum haustvörum Hæðasmára 4 - Í sama húsi og Bílaapótek fyrir ofan Smáralind Símar 555 7355 og 553 7355 www.selena.is Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigur 5 • Sími 581 2141 • www.hjahrafnhildi.is Hönnunarlínan frá Berlín komin Matreiðslunámskeið NLFR Grænt og gómsætt - hollustan í fyrirrúmi Námskeiðið verður haldið á Heilsustofnun NLFÍ Hveragerði Laugardaginn 4. september frá kl. 14:00-17:00 • Gómsætir grænmetis- og baunaréttir matreiddir í sýnikennslu og kennd meðhöndlun hráefnisins. • Sameiginlegt borðhald í lokin • Nemendur fá uppskriftabækling Kennari: Jónas B. Ólafsson yfirmatreiðslumaður HNLFÍ Takmarkaður fjöldi Verð kr. 5.500 Félagsmenn kr. 3.500 Skráning á skrifstofu NLFR kl. 10:00-12:00 sími 552 8191 eða netfang nlfi@nlfi.is Laugavegi 53, s. 552 1555 TÍSKUVAL Opið virka daga kl. 10-18, lau. kl. 11-16 Úrval af gallabuxum Frábær snið • Svartar, bláar, brúnar Jónas Margeir Ingólfsson jonasmargeir@mbl.is Á fundi ríkisstjórnarinnar í gær var samþykkt tillaga heilbrigðis- ráðherra og dómsmála- og mann- réttindaráðherra um að áfengis- lögum verði breytt þannig að bann við áfengisauglýsingum verði virt. Athygli vekur að nú þegar ligg- ur slíkt frumvarp fyrir þinginu en Ögmundur Jónasson flutti það hinn 2. desember 2009. Málið bíður nú umfjöllunar hjá allsherjarnefnd. Ögmundur kveðst undrandi á þessum tvíverknaði en leggur áherslu á að aðalatriðið er að breyt- ingin hljóti brautargengi. „Ég er búinn að flytja þetta frumvarp á hverju ári í mörg ár. Það á að vera lítið mál að kippa þessu í liðinn. Það er fagnaðarefni ef þetta á loksins að verða að veruleika. Þetta hefur lengi legið fyrir þinginu. Ég veit ekki betur en þetta liggi fyrir þinginu núna,“ segir Ögmundur sem hyggst ekki láta ríkisstjórnina vita af tvíverknaði sínum. Vilja loka því gati Í greinargerð með frumvarpinu segir: „Auglýsingar á áfengi og ein- stökum áfengistegundum eru bann- aðar hér á landi og hefur verið svo lengi. Það hefur þó aukist að fram- leiðendur og dreifingaraðilar áfengra drykkja reyni að koma þeim á framfæri í auglýsingum með því að nota líkar umbúðir og nöfn á óáfenga drykki sem þeir svo auglýsa. Flutn- ingsmenn vilja með frumvarpi þessu reyna að loka því gati sem virðist vera á löggjöfinni þannig að fram- leiðendur og dreifingaraðilar geti ekki farið í kringum bannið eins og að framan er lýst.“ Frumvarp Ögmundar felur þannig í sér að óheimilt verði að aug- lýsa drykki sem valdið geta ruglingi á milli áfengu framleiðslu framleið- anda og þeirrar sem verið er að aug- lýsa vegna nafns á vörunni, umbúða eða annarra einkenna. Tvíverknaður við algert bann áfengisauglýsinga  Eins frumvarp liggur nú þegar fyrir Villandi Sumir vilja meina að létt- ölsauglýsingar séu ruglandi. „Við erum enn að afla gagna. Þetta hefur verið í skoðun hvað flug- tækniatriðin varðar. Þeirri vinnu er ekki lokið,“ segir Kristján Möller samgönguráðherra, aðspurður um þá frétt fréttavefjar Financial Times að ECA, hollenskt fyrirtæki sem hyggst setja upp aðstöðu á Keflavík- urflugvelli fyrir óvopnaðar herþotur, sé nálægt því að fá samþykki ís- lenskra stjórnvalda með skilyrðum. Til frekari tíðinda dró í málinu í gær þegar BelTechExport, vopna- sölufyrirtæki í Hvíta-Rússlandi, neitaði að það vissi af samkomulagi um að selja hollenska fyrirtækinu Program 15 Sukhoi Su-27-herþotur. Það hafði þó áður staðfest slíkt sam- komulag við FT. Talsmaður ECA segir að þoturnar hafi verið smíð- aðar í Rússlandi en verði endur- nýjaðar í Hvíta-Rússlandi og þær fyrstu afhentar í október nk. Herþotumál til skoðunar AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.