Morgunblaðið - 01.09.2010, Side 31

Morgunblaðið - 01.09.2010, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 2010 Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is „Þetta eru björgunaraðgerðir í þágu þjóðarhagsmuna. Ef eitthvert sjónvarpsefni á heima á heimsminjaskrá undir menningarviðburðum sem mega alls ekki leggjast af tel ég Spaugstofuna eiga að vera efsta á lista,“ sagði Ari Edwald, forstjóri 365 miðla, í Þjóðmenningarhúsinu í gær þegar undirritaður var samstarfssamningur á milli Stöðvar 2 og Spaugstofunnar. Samningurinn er til tveggja ára og fer fyrsti Spaug- stofuþátturinn í loftið á stöðinni 9. október næstkomandi. Sýningartími þáttanna breytist ekki þótt þeir flytjist á milli stöðva, þeir verða áfram á laugardögum kl. 19.35 en nú í læstri dagskrá. „Stöð 2 er stolt af því að geta fært íslenskum almenningi áfram þetta eiginlega þjóðarleikhús sem Spaugstofan er,“ sagði Ari. Í sjöunda himni Framleiðandi Spaugstofunnar fyrir Stöð 2 verður Saga- film og Karl Ágúst Úlfsson, Pálmi Gestsson, Örn Árnason og Sigurður Sigurjónsson verða allir áfram á sínum stað. „Við erum algjörlega í sjöunda himni félagarnir og vilj- um þakka stjórnendum Stöðvar 2 fyrir þessar ánægjulegu viðræður sem við höfum átt undanfarna daga og þessa skemmtilegu niðurstöðu sem á vonandi eftir að verða öll- um til góðs. Við erum mjög ánægðir með að starfa áfram, við þurfum vettvang því okkar starfi er ekki lokið,“ sagði Karl Ágúst og Sigurður bætti við að þeir teldu sig eiga mikið inni. „Leiktíðinni hjá okkur er bara alls ekki lokið.“ Spaugstofumenn höfðu séð um skemmtiþætti fyrir Rík- isútvarpið í 21 ár þegar forráðamenn RÚV ákváðu í byrjun ágúst að Spaugstofan yrði ekki á dagskrá í vetur, ástæðan var sögð 9% niðurskurður sem RÚV þarf að fara eftir. Spaugstofan verður áfram með sama sniði og und- anfarin ár. „Við munum starfa með sama sniði en við höfum svo sem alltaf gert einhverjar breytingar á þátt- unum á milli ára. Flutningar yfir á Stöð 2 kalla ekki á neinar breytingar en eflaust verður þátturinn ekki al- veg eins og síðasta vetur. Við erum með alveg frjálsar hendur enda ekki hægt að ritstýra Spaugstofunni. Það mun nýtt fólk starfa með okkur og auðvitað kall- ar það á einhverjar nýjar hugmyndir og breytingar. Við höfum kallað til okkar gestaleikara undanfarin ár og við ætlum að reyna að halda því áfram,“ sagði Karl Ágúst. Ekki hræddir um stöðu sína Aðspurðir sögðust Spaugstofumenn ekki vera hræddir um að missa stöðu sína sem þjóðfélagsrýnar við að fara í læsta dagskrá. Ari Edwald sagði að þeir gerðu sér vonir um að áskrifendum fjölgaði við þessar breytingar. „Spaug- stofan kemur örugglega til með að hjálpa Stöð 2, gald- urinn á bak við sjónvarp er að búa til dagskrá sem fólk hefur áhuga á að horfa á. Það er klárt að Spaugstofan hefur verið vinsælasta sjónvarpsefni Íslands síðustu ár og verður áfram,“ sagði Ari. Skjár einn hafði einnig sýnt áhuga á að fá Spaug- stofuna til sín en ekki náðust samningar þar um. „Þeirra hugmynd var að gera einfaldari gerð af þætti en við sáum hag okkar bestan með því að hafa þáttinn óbreyttan,“ svaraði Örn þegar spurt var hvers vegna samningar náðust ekki. Spaugstofumenn eru sælir með nýjan vinnustað. „Fyrir okkur félagana er þetta skemmtileg áskorun, nýr vinnustaður og nýtt fólk að vinna með og við erum mjög lukkulegir og bjartsýnir á framhaldið,“ sagði Sig- urður og lokaði þar með blaðamannafundinum. Morgunblaðið/Golli Handsalað Örn Árnason, Pálmi Gestsson, Ari Edwald, Karl Ágúst Úlfsson og Sigurður Sigurjónsson takast í hend- ur eftir að hafa skrifað undir samtarfssamning til tveggja ára í Þjóðmenningarhúsinu í gær. „Okkar starfi er ekki lokið“  Spaugstofan verður sýnd á Stöð 2 í vetur í læstri dagskrá  Fyrsti þátturinn fer í loftið 9. október  „Við munum starfa með sama sniði,“ sagði Karl Ágúst Úlfsson Spurður hvort það hafi komið þeim á óvart hvað margir sóttust eftir þeim eftir uppsögnina á RÚV sagðist Örn Árnason hafa orðið mjög ánægður með viðbrögðin. „Mig grunaði það nú að menn myndu færa það í tal en það voru fjölmargir sem höfðu samband og ekki bara sjónvarpsstöðvar. Það eru ekki allir sammála um að þetta sé orðin gömul og þreytt lumma,“ segir Örn og bætir við að það hafi aldrei hvarflað að þeim að hætta. „Þetta er sjónvarpsframleiðsla sem okkur finnst mjög skemmtileg og við erum orðnir mjög færir í henni. Við erum með mikla reynslu og þetta er það sem okkur finnst ofboðslega gaman að gera. Sjónvarpið er okkar vettvangur, þjóðfélagsrýnin verður áfram hin sama og það verður ekkert slegið af.“ Ekki gömul og þreytt lumma EFTIRSÓTTIR Örn Í einu Spaugstofuhlutverki sínu. SÍMI 564 0000 12 16 16 12 14 10 L L L SÍMI 462 3500 12 16 12 14 10 SCOTTPILGRIM VS THEWORLD kl. 8-10.10 THEEXPENDABLES kl. 8-10 VAMPIRESSUCK kl. 6 SALT kl. 6 SÍMI 530 1919 18 16 14 L THE HUMAN CENTIPEDE kl. 10.10 THEEXPENDABLES kl. 5.40-8-10.20 SALT kl. 5.50-8-10.10 THEKARATEKID kl. 6-9 .com/smarabio NÝTT Í BÍÓ! SCOTTPILGRIM VS THEWORLD kl. 5.30-8-10.30 THEEXPENDABLES kl. 5.40-8-10.20 THEEXPENDABLESLÚXUS kl. 5.40-8-10.20 VAMPIRESSUCK kl. 4-6-8-10 SALT kl. 8-10.10 THELASTAIRBENDER3D kl. 3.20 LJÓTIANDARUNGINNOGÉG kl. 3.30(650kr.) KARATEKID kl. 5.10 SHREK4 2D ÍSLTAL kl. 3.30 Sýnd kl. 5:45, 8 og 10:15 (POWERSÝNING) HHHHH Fyrir alla KARLMENN í heiminum þá er þessi mynd mesta veisla sem hægt er að fara á. Það er einfaldlega upplifun að sjá þessa mynd. Gillz - DV HHH T.V - Kvikmyndir.is HHHH „Magnad madur, magnad” ÞÞ-FBL HHH The Expendables uppfyllir það sem hún lofar... S.V. - MBL TOPPMYNDIN Í DAG Á ÍSLANDI! ALLAR SVÖLUSTU HASARHETJURNAR Í EINNI FLOTTUSTU MYND ÁRSINS Sýnd kl. 5:45, 8 og 10:15 FRÁ LEIKSTJÓRA HOT FUZZ OG SHAUN OF THE DEAD KEMUR EIN FYNDNASTA OG FRUMLEGASTA MYND ÁRSINS 2 VIKUR Á TOPPNUM! Sýnd kl. 8 og 10:15 HHHH -Þ.Þ., FBL HHH -M.M., Bíófilman HHH S.V., MBL HH E.E., DV Sýnd kl. 5:45 (3D) - 3D gleraugu seld sér POWE RSÝN ING Á STÆ RSTA DIGIT AL TJALD I LAN DSINS KL. 10 :15 www.laugarasbio.isÞú færð 5% endurgreitt ef þú greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónum -bara lúxus Sími 553 2075 -bara lúxus Sími 553 2075 Nýtt í bíó - www.laugarasbio.is Þú færð 5% endurgreitt ef þú greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.