Morgunblaðið - 11.11.2010, Page 16

Morgunblaðið - 11.11.2010, Page 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2010 Lögreglan hvetur fólk til að láta vita um grunsamlegar mannaferð- ir, ekki síst í íbúðahverfum. Inn- brot á heimili eiga sér oft stað að degi til og þá geta upplýsingar, t.d. frá nágrönnum, ráðið miklu. Það sem fólki kann að finnast lítilfjör- legt getur einmitt orðið til þess að upplýsa mál, segir í tilkynningu. Hér er m.a. átt við lýsingu á mönn- um og bifreiðum en gott er að skrifa slíkt hjá sér ef fólk tekur eft- ir einhverju óvenjulegu í sínu nán- asta umhverfi. Sama gildir um bíl- númer en þau geta komið lögreglu á sporið. Ef óskað er eftir skjótri aðstoð lögreglu skal undantekningarlaust hringja í 112. Ef erindið er af öðr- um toga, og þolir e.t.v. einhverja bið, vinsamlegast hafið samband við þjónustuver lögreglunnar á höf- uðborgarsvæðinu í síma 444-1000. Fólk sé á verði Í síðustu viku afhenti Sigurður Wí- um gjafir til Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja að andvirði 2.060.000 krónur. Um er að ræða lyfjadælu og sprautupumpu sem notaðar eru til lyfjagjafa, vökvadælu, loftdýnu, flutningsdýnu, upplýsingaskjá sem tengist bjöllukerfi og leðursófa í setustofu starfsfólks. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Sigurður kemur færandi hendi því að frá árinu 2007 hefur hann fært Heilbrigðis- stofnun Suðurnesja gjafir að and- virði 7.750.000 króna. Í tilkynn- ingu frá stofnuninni segir að það sé svo sannarlega ljós í niður- skurðarmyrkrinu að vita til þess að enn séu til aðilar sem vilja og geta lagt sitt af mörkum fyrir samfélagið og engin spurning sé um að þessi gjöf muni nýtast vel. Svona gjafir séu ómetanlegar fyrir stofnanir sem hafa engin fjárráð til tækjakaupa. Afhending Sigurður Wíum og stjórnendur HSS við afhendingu gjafarinnar. Heilbrigðisstofnun Suðurnesja fær gjafir að andvirði 2.060.000 krónur Samtök sykursjúkra hafa um ára- bil haldið hátíðlegan Alþjóðadag sykursjúkra, hinn 14. nóvember, en dagurinn var fyrir nokkrum ár- um viðurkenndur formlega af Sameinuðu þjóðunum og hefur nú sömu stöðu og t.d. alnæmisdag- urinn. Þennan dag eru stórhýsi um allan heim lýst upp með bláu ljósi, en blár er litur IDF, Alþjóða- samtaka sykursjúkra. Merki dags- ins er blár hringur, sem táknar einingu allra þjóða í baráttunni við þann vágest sem aukin tíðni sykur- sýki er. Samtök sykursjúkra ætla í ár að selja barmmerki með bláa hringn- um og auk þess hálsmen sem Sif Jakobs skartgripahönnuður hefur hannað með merkinu. Barmmerk- in verða seld í öllum apótekum og kosta 1.000 krónur og hálsmenin, sem kosta 8.500 krónur verða seld í völdum verslunum. Salan fer fram dagana 3.-16. nóvember og rennur söluandvirðið óskipt til Samtaka sykursjúkra til eflingar fræðslu um sjúkdóminn, afleið- ingar hans og forvarnir gegn hon- um. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Blátt Höfði upplýstur í tilefni dagsins. Selja til styrktar sykursjúklingum Í dag, fimmtudag kl. 12-13, stendur umhverfisráðuneytið fyrir opnum fundi í Tjarnarbíói þar sem kynnt verður að- gerðaáætlun í loftslagsmálum. Áætlunin er hugsuð sem tæki sem stjórnvöld geta notað til að draga úr nettólosun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi í því skyni að standa við stefnu stjórnvalda og skuldbindingar í loftslagsmálum. Í áætluninni eru tíu lykilaðgerðir settar fram til að ná allt að 30% samdrætti í losun fyrir árið 2020. Á fundinum mun Halldór Björnsson verkefnisstjóri loftslagsrannsókna á Veðurstofu Íslands fjalla um stöðu mála í loftslagsrannsóknum, Ellý Katrín Guðmundsdóttir sviðsstjóri umhverfis- og samgöngusviðs Reykjavíkur fjallar um loftslagsmál í sveitarfélögum, Hugi Ólafsson skrifstofustjóri í um- hverfisráðuneytinu fjallar um aðgerðir í loftslagsmálum og fulltrúi fjár- málaráðuneytisins fjallar um breytingar á sköttum á bíla og eldsneyti. Þá mun Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra flytja ávarp. Aðgerðaáætlun í loftslagsmálum Svandís Svavarsdóttir Félag viðskiptafræðinga og hag- fræðinga stendur fyrir hádegis- verðarfundi um peningamálastefnu og gjaldeyrishöft í Víkingasal Hót- els Loftleiða í dag fimmtudag kl. 12. Aðalræðumenn fundarins eru Már Guðmundsson, seðlabanka- stjóri og Illugi Gunnarsson, alþing- ismaður. Að framsögum loknum munu þeir Már og Illugi sitja fyrir svörum í pallborði ásamt Steingrími J. Sig- fússyni, fjármálaráðherra, Kristínu Pétursdóttur, forstjóra Auðar Capital, Gísla Haukssyni, fram- kvæmdastjóra GAMMA og Ragnari Árnasyni, prófessor við hagfræði- deild Háskóla Íslands. Ræða peningamál STUTT ÚR BÆJARLÍFINU Skapti Hallgrímsson Akureyri Undirskriftum er nú safnað hér og þar í bænum þar sem boðuðum nið- urskurði til öldrunarmála er mót- mælt. Verði niðurskurðurinn í fjár- lagafrumvarpinu að veruleika fækkar hjúkrunarrýmum um sjö frá og með áramótum á Akureyri en á þessu ári fækkaði þeim um þrjú.    Átján eru á biðlista eftir hjúkr- unarrými á Öldrunarheimilum Ak- ureyrar. Verði af niðurskurðinum þykir ljóst að loka verði einni deild. Það eru fulltrúar starfsmanna, að- standenda, Félags eldri borgara og stéttarfélaga sem hrundu söfnuninni af stað. Undirskriftir verði afhentar bæjarstjóra fljótlega eftir helgi.    Það eru engar ýkjur að stuðn- ingsmenn Akureyrarliðsins í hand- bolta fylgjast grannt með sínum mönnum. Bekkurinn er jafnan þétt setinn á heimaleikjunum og hvorki fleiri né færri en rúmlega 2.000 manns að meðaltali hafa fylgst með beinum textalýsingum á heimasíð- unni það sem af er vetri.    Á heimasíðu Akureyrar – hand- bolta kemur fram að frá upphafi hafi verið teljari á lýsingasíðunni, og að flestir hafi notfært sér þjónustuna þegar Akureyri mætti Haukum syðra í síðustu umferð N1- deildarinnar í vor; sæti í úr- slitakeppninni var í húfi og 5.737 fylgdust með lýsingunni!    Það eru greinilega ekki bara norðanmenn sem nýta sér þjón- ustuna á vefsíðu Akureyrarliðsins því fjöldi fólks fylgist einnig með heimaleikjunum, örugglega flestir stuðningsmenn gestaliðsins.    Vert er að geta þess að 1. mars 2009 léku HK og Akureyri bikarúr- slitaleik í 2. aldursflokki, leiknum var lýst á síðunni og alls fylgdust 1.729 með þeirri útsendingu.    Brúðu sem notuð er í áhættu- atriði í sjónvarpsþáttunum Tíma nornarinnar var stolið úr bíl í miðbæ Akureyri á dögunum. Góðglaðir nátthrafnar eru sagðir hafa fengið brúðuna lánaða en henni var síðar skilað á lögreglustöðina. Verið er að taka upp þætti eftir þessari fínu bók Árna Þórarinssonar.    Skíðagöngubrautin í Hlíðar- fjalli hefur verið opin í nokkra daga og skíðamenn bíða spenntir eftir því að brekkurnar verði tilbúnar. Fjallið er hvítt en líklega ekki alveg nógu mikill snjór. Kannski best að nota Reykjavíkuraðferðina; stinga upp á að svæðinu verði lokað og þá fer að snjóa.    Aflið, samtök gegn kynferðis- og heimilisofbeldi, hefur gert sam- starfssamning til fjögurra ára við Akureyrarbæ. Bæjarfélagið styrkir samtökin um 1.230.000 krónur á ári á samningstímanum en því miður er mikil þörf fyrir starfsemina – og fer vaxandi að sögn forráðamanna.    Árið 2009 leituðu 94% fleiri til Aflsins en árið á undan, aukningin í fyrra var 14% og ljóst að enn fleiri leita til samtakanna á þessu ári.    Fólk hefur fyrst og fremst leitað til Aflsins vegna kynferðisofbeldis, að sögn formannsins, Sæunnar Guð- mundsdóttur „en það breyttist eftir hrunið. Þá fjölgaði þeim sem leituðu til okkar vegna heimilisofbeldis mik- ið,“ sagði Sæunn í gær.    Boðið verður upp á djass á Græna hattinum í kvöld þegar ASA tríóið treður upp og annað kvöld fara félagarnir í Dúndurfréttum yfir klassísku rokksöguna; flytja tónlist Led Zeppelin, Deep Purple, Pink Floyd, Uriah Heap og fleiri.    Barði Jóhannsson og hljómsveit hans Bang Gang halda svo tónleika á Græna hattinum á laugardags- kvöldið og telst það sannarlega til tíðinda. Hann hefur unnið mikið í Frakklandi undanfarið en tilefni tónleikanna nú er nýútkomin safn- plata með vinsælustu lögum Bang Gang. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Aflið Sæunn Guðmundsdóttir formaður Aflsins og Eiríkur Björn Björg- vinsson bæjarstjóri á Akureyri við undirritun samstarfssamnings í gær. Mikill áhugi á handbolta og illu heilli mikil þörf fyrir Aflið Grafalvarlegt og galsafengið nýtt smásagnasafn eftir Óskar Magnússon Lífskokteill á bók „Það er einfaldleikinn og tilgerðarleysið sem er aðall frá- sagnanna. Skemmtileg bók.“ Einar Kárason

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.