Morgunblaðið - 11.11.2010, Síða 25
MINNINGAR 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2010
✝ Sigurður Magn-ús Jónsson, við-
skiptafræðingur og
framkvæmdastjóri,
fæddist í Reykjavík
18. mars 1957. Hann
lést á heimili sínu í
Garðabæ 1. nóv-
ember sl.
Foreldrar Sig-
urðar eru Jón Krist-
ófer Sveinsson, fyrr-
verandi fram-
kvæmdastjóri, f.
22.1. 1929 í Reykja-
vík og Sigurlaug
Kristjánsdóttir, f. 28.9. 1930 í
Stykkishólmi, d. 8.6. 2006 á vist-
heimilinu Holtsbúð í Garðabæ.
Systkini Sigurðar eru 1) Krist-
ján Þ. Jónsson, f. 29.5. 1948,
maki Sveinbjörg Guðmarsdóttir,
f. 15.9. 1951. Börn þeirra eru
Rakel Linda, f. 29.7. 1969, og
Sigurlaug, f. 15.7. 1974. Fyrir
átti Kristján synina Sigurð Þ., f.
22.10. 1967, og Birgi Æ., f. 14.2.
1968. 2) Inga Sveinbjörg Jóns-
dóttir, f. 15.8. 1953, ógift og
barnlaus. 3) Jóna Fríður Jóns-
dóttir, f. 4.8. 1955, maki Þor-
bæjar (Vörðuskóla), þaðan sem
hann tók landspróf. Sigurður
stundaði síðan nám við Versl-
unarskóla Íslands og útskrif-
aðist þaðan sem stúdent árið
1976. Að námi loknu starfaði
Sigurður á verkstæði Jóns
Sveinssonar & Co. fram til árs-
ins 1990 þegar það fyrirtæki
hætti rekstri. Fór hann þá út í
sjálfstæðan atvinnurekstur við
þakviðgerðir, en hann starfaði í
umboði bandaríska fyrirtæk-
isins SWEPCO (Southwestern
Petroleum Corporation) og
flutti inn málningar- og þakvið-
gerðarvörur frá þeim. Um alda-
mótin skráði Sigurður sig á við-
skiptafræðiskor Háskóla Íslands
og útskrifaðist þaðan með BS
próf í viðskiptafræði vorið 2003.
Að háskólanámi loknu rak Sig-
urður bókhaldsþjónustu undir
nafninu SMCO – reikningshald
og ráðgjöf, allt þar til hann
varð bráðkvaddur á heimili sínu
1. nóvember sl. Í frítíma sínum
lagði Sigurður einkum stund á
veiðiskap, bæði silungsveiði og
skotveiði og var írski setter-
hundurinn Pjakkur (1991-2010)
iðulega með í för. Þess utan
hafði hann ánægju af lestri
góðra bóka.
Útför Sigurðar fer fram frá
Fossvogskirkju í dag, 11. nóv-
ember 2010, og hefst athöfnin
kl. 13.
steinn Ingi Jóns-
son, f. 31.1. 1955.
Barn þeirra er
Lísa Björk, f.
13.7. 1987. 4)
Svala Rún Jóns-
dóttir, f. 22.4.
1959, maki Guð-
mundur Óli Reyn-
isson, f. 17.7.
1954. Börn þeirra
eru Gunnar Ingi,
f. 14.4. 1984,
Heiða Rut, f.
28.10. 1987, og
Ólöf Rún, f. 31.3.
1992. Fyrir átti Guðmundur
dótturina Margréti Erlu, f.
22.11. 1979.
Sigurður kvæntist aldrei, en
þann 27. maí 1980 eignaðist
hann soninn Jón Þorstein með
þáverandi sambýliskonu sinni,
Kristínu Þorsteinsdóttur, f. 6.1.
1956. Þau slitu samvistum 1984.
Sigurður ólst upp að Lauga-
vegi 105 í húsi sem Sveinn Eg-
ilsson afi hans byggði undir
fyrirtækjarekstur sinn. Hann
gekk í Barnaskóla Austurbæjar
og svo Gagnfræðaskóla Austur-
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
(Vald. Briem)
Pabbi minn, nú þegar kallið er
komið og þú hefur kvatt, sit ég
eftir og hinkra við. Eftir langa en
samt alltof, alltof stutta vegferð
með þér í gegnum lífið sit ég og
vermi mig gegn kulda sorgarinn-
ar með hlýjum minningum þeirra
stunda sem við áttum saman.
Þessar minningar ná allt frá
fyrstu teinunum í járnbrautinni
sem við lögðum saman á Bald-
ursgötunni út í það að sitja með
þér á brottfararpallinum, dott-
andi eftir amstur dagsins heima í
Tjaldanesi, laugardaginn rétt fyr-
ir brottför þína úr þessu lífi.
Veiðiferðirnar, göngutúrarnir
með Pjakk, samtölin við þig í
kjallaranum um heimsins sögu,
pólitík, tjaldferðirnar og allt það
sem við gerðum saman er eitt-
hvað sem ég mun geyma hjá mér
um ókomna tíð. Lífsgildin þín
voru oft erfið úrvinnslu og stund-
um þurfti ég góðan tíma til þess
að átta mig á þeim og sumum er
ég ekki enn búinn að vinna úr.
Mikilvægast er þó að fortíðin er
að baki og framtíðin framundan,
og þökk sér þér, hef ég verkfæri
fortíðar í höndunum til að smíða
mér framtíð í þeirri nútíð sem ég
ferðast í eftir járnbrautarteinum
sem þú hjálpaðir mér að leggja.
Við ætluðum að hittast á mánu-
deginum í síðustu viku og fara yf-
ir málin. „Komdu bara á morgun
Nonni minn og við klárum þetta,“
voru þín síðustu orð til mín. Að
klára þetta, það er nákvæmlega
það sem ég ætla mér að gera,
nema hvað að ég fæ ekki að hafa
þig með mér í þeirri vegferð sem
eftir er og mun ég sakna þess
mjög um ókomna tíð.
Hafðu mikla þökk fyrir allt og
allt og meira til, farðu í friði.
Þinn sonur,
Jón Þorsteinn Sigurðsson
(Nonni).
Elsku Siggi minn. Það voru erf-
ið spor að kveðja þig langt fyrir
aldur fram aðeins 53 ára. Aldrei
hefði ég trúað að þú yrðir næstur í
röðinni og aldrei er maður búinn
undir svona áföll. Þú í blóma lífs-
ins, hraustur og hress að sjá, skul-
ir vera farinn.
Guð minn, ó, græddu mín
geigvænu sár,
huggaðu hjartað hrellt,
heftu mín tár.
Hjá þér ég huggun finn,
himneski faðir minn,
þar mýkist sérhvert sinn
söknuðurinn.
(Guðrún Jóhannsdóttir)
Minningar um liðna tíð og góðar
stundir liðinna ára streyma um
hugann. Mikið þótti mér gott að
hafa hitt þig í vikunni áður, er við
systkinin hittumst og ræddum
málin eins og í gamla daga og góð-
látlegir brandarar fuku okkar á
milli. Þar sem aðeins tvö ár voru á
milli okkar þá vorum við mikið
saman sem börn í skóla og leik, og
ófáar minningar á ég þar sem við
lékum okkur að rannsóknardótinu
sem þú fékkst ein jólin að gjöf við
að rannsaka flugur, ryk og margt
fleira með smásjánni þinni. Eða
þegar við vorum að byggja okkur
kofa með spýtunum sem voru úti á
löggustöð þegar verið var að
byggja hana við Hverfisgötuna.
Ég man líka eftir því þegar við
fengum bæði hlaupabólu samtímis
og lágum heima veik klórandi
okkur til skiptis og mamma að
stjana við okkur. Svo loksins gát-
um við farið í skólann, fyrst ég í
einn dag og svo þú, en nei þá vor-
um við aftur orðin veik og þá með
skarlatssótt. Mikið vorkenndi ég
mömmu eftir á að lenda í þessu og
hvað hún með sína ómældu þol-
inmæði hjúkraði okkur, en við
styttum okkur stundir með því að
metast um hvor okkar gæti tekið
stærri klessur af skinni þegar við
byrjuðum að flagna. Ég man líka
þegar mamma varð veik og fór á
spítala, en við fórum saman í
sveitina með Jónu systir að Ökr-
um. Hvað okkur fannst gaman að
vera þar og hvað okkur þótti gott
að vera saman þar.
Þú varst mikill snyrtipinni og
hafðir allt í röð og reglu í kring
um þig svo af bar. Sjaldan hefur
maður séð reglusamara heimili
þar sem aðeins karlmaður býr þar
sem allt er þrifið, hreint og þveg-
ið. Já, svona varstu og við gátum
ekki annað en brosað þegar við
litum yfir íbúðina þína og sáum
alls ekkert drasl. Þetta átti svo
sem ekki að koma okkur á óvart,
því oft hafðir þú kallað okkur til
þín þar sem þú varst búinn að
setja á blað plan með öllum út-
reikningum og jafnvel teikningu
svo það færi ekki á milli mála
hvað þú meintir. Það voru engir
lausir endar hjá þér sem þú hafðir
ekki farið yfir og klárað.
Vertu sæll, Siggi minn, þakka
þér fyrir liðna tíð og guð geymi
þig.
Ég kveð þig, hugann heillar minn-
ing blíð,
hjartans þakkir fyrir liðna tíð,
lifðu sæl á ljóssins friðar strönd,
leiði sjálfur Drottinn þig við hönd.
(Guðrún Jóhannsdóttir)
Nonni minn, sendi þér mínar
innilegustu samúðarkveðjur og
megi guð styrkja þig á þessum
erfiðu tímum. Þín systir,
Svala Rún.
„Dáinn, horfinn“. Hvílíkt orð
mig dynur yfir. Okkur setti hljóða
í Höndinni þegar frétt um sviplegt
andlát Sigurðar barst okkur til
eyrna mánudaginn 1. nóvember sl.
Ég ætla ekki að rekja æviferil
hans heldur einungis að þakka
honum fyrir innilegt og gott sam-
starf og vináttu er við áttum sam-
an gegnum hans starf sem endur-
skoðandi og ráðgjafi
Handarinnar.
Sigurður var glæsimenni á velli,
einstakt ljúfmenni, hjálpsamur og
greiðvikinn. Hann var einn þeirra
mörgu manna sem vinna störf sín
í kyrrþey, sem sjaldan er getið en
allir njóta ávaxtanna af verkum
þeirra er til þekkja.
Sigurður var sannur íhaldsmað-
ur af gamla skólanum er vildi hafa
alla hluti í röð og reglu og í föst-
um skorðum, er svo gjörla kom
fram í störfum hans sem við-
skiptafræðings. Hann var velvirk-
ur, sanngjarn og glöggur á tölur.
Eins var hann spaugsamur í
meira lagi og mörg gamansagan
sögð um menn og málefni er kom
manni til að skella upp úr.
Sigurður var bjartur yfirlitum,
sviphreinn og drengur góður í hví-
vetna og laus við allt fals og und-
irferli. Það var huggun harmi
gegn að við gátum notið samvista í
síðustu viku októbermánaðar. –
Umræðuefnið, heimspeki, stjórn-
mál, já, mannlífið í heild sinni. Við
ræddum um giftu og gæfuleysi,
gleði, sorg, lífið og dauðann. –
Þetta voru yndislegar stundir sem
saman voru hnýttir og stilltir
strengir á vegi lífsgöngunnar. En
nú er ganga þín á þessari jörð á
enda runnin og þú heldur yfir
móðuna miklu á vit feðra þinna.
Dauðinn er blanda tíma og eilífðar.
Þegar góður maður deyr eygjum
við
eilífðina gegnum tímann.
(Goethe)
Ég undirritaður og Höndin
sendum syni hans, Jóni Þorsteini,
föður, systkinum og öðrum ástvin-
um okkar dýpstu samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning þín, Sigurður
minn. Þú átt góða heimkomu vísa.
Eyjólfur Magnússon
Scheving.
Sigurður Magnús
Jónsson
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og
langafi,
SIGURÐUR ÁRNI VILHJÁLMSSON
bifreiðastjóri,
Hólmavík,
sem lést á Landspítalanum Fossvogi föstudaginn
5. nóvember, verður jarðsunginn frá Hólmavíkur-
kirkju laugardaginn 13. nóvember kl. 13.00.
Aðalheiður Ragnarsdóttir,
Elsa Björk Sigurðardóttir, Ólafur Björn Halldórsson,
Bryndís Sigurðardóttir, Ingvar Þór Pétursson,
Jón Vilhjálmur Sigurðsson, Júlíana Ágústsdóttir,
Hrefna Sigurðardóttir, Ásgeir Andri Karlsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur frændi okkar og vinur,
EYJÓLFUR INGI EIDE EYJÓLFSSON,
Ásgarði,
Fáskrúðsfirði,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Neskaupstað
mánudaginn 8. nóvember.
Útför hans fer fram frá Fáskrúðsfjarðarkirkju
laugardaginn 13. nóvember kl. 13.00.
Ingimar Guðjón Harðarson,
Alberta, Ingþór, Sigrún, Egill, Helgi
og aðrir aðstandendur.
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma
og systir,
SVEININNA ÁSTA BJARKADÓTTIR,
sem lést á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja
föstudaginn 22. október, verður jarðsungin frá
Landakirkju laugardaginn 13. nóvember kl. 14.00.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir, en
þeim sem vilja minnast hennar er bent á
líknarfélög.
Hjálmar Guðmundsson,
Hafsteinn Hjálmarsson,
Reynir Hjálmarsson, María Ásgeirsdóttir,
Bjarki Hjálmarsson, Birna Björnsdóttir,
barnabörn, tengdamóðir og systkini hinnar látnu.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
HÖRÐUR GUNNLAUGSSON,
Ölveri 41,
Akranesi,
varð bráðkvaddur á heimili sínu aðfaranótt
föstudagsins 5. nóvember.
Útför hans fer fram frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði
föstudaginn 12. nóvember kl. 13.00.
Jónína Björg Hilmarsdóttir,
Hilmar Þór Harðarson, Hulda Heiðrún Óladóttir,
Brynhildur Ásta Harðardóttir, Ólafur Brjánn Ketilsson,
Elín Rut Harðardóttir,
Katla Mist og Ottó Loki.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
HEKLA ÁRNADÓTTIR,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir mánudaginn
1. nóvember.
Útförin fer fram frá Áskirkju föstudaginn
12. nóvember kl. 13.00.
Geir Guðmundsson,
Margrét Geirsdóttir, Gestur Jónsson,
Árni Jón Geirsson, Sigríður Þ. Valtýsdóttir,
Guðrún Geirsdóttir, Jón Friðrik Jóhannsson,
barnabörn og barnabarnabörn.