Morgunblaðið - 26.11.2010, Síða 35
DAGBÓK 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 2010
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
HEFURÐU SÉÐ
BRÓÐUR MINN?
HVAR
SÁSTU HANN
SÍÐAST? NÁKVÆM-
LEGA ÞAR SEM ÞÚ
LIGGUR NÚNA
GEFUR
VEINHVER VOSAÐ VIG
VUNDAN VONUM!
FANN
HANN!
ÞÚ ERT
ÖMURLEGUR
STÓRI
BRÓÐIR!
HREKKJUSVÍNIÐ HRINTI
MÉR OG ÞÚ GERÐIR
EKKERT Í ÞVÍ!
ÞÚ HEFÐIR ÁTT AÐ REYNA AÐ
HJÁLPA MÉR, ÞRÁTT FYRIR AÐ
HANN HEFÐI BARA
LAMIÐ ÞIG!
ÆTLI ÉG HEFÐI EKKI
ORÐIÐ BETRI
LITLI BRÓÐIR
ÞETTA ER
STAÐUR FYRIR
HÖRKUTÓL, EKKI VERÐA
MÉR TIL SKAMMAR! GOTT
OG VEL!
HVAÐ
MÁ BJÓÐA
YKKUR
STRÁKAR?
ÉG ÆTLA AÐ FÁ
ÓBLANDAÐ ROMM MEÐ
SVELLKÖLDUM ÍSMOLUM!
ÉG ÆTLA AÐ
FÁ ÓBLANDAÐA
MJÓLK MEÐ
SVELLKÖLDUM
ÍSMOLUM!
HVERT ERUM VIÐ AÐ
FARA RUNÓLFUR?
ÉG
VEIT ÞAÐ
EKKI
GUÐRÚN
ÉG VAR AÐ VELTA
ÞVÍ FYRIR MÉR HVORT VIÐ
ÆTTUM EKKI BARA AÐ
RÚNTA UM OG SPJALLA
SAMAN
SJÁLF-
SAGT
ELSKAN MÍN!
VILTU VINSAM-
LEGAST SLÁ INN
ÁFANGASTAÐ!
FENGU
FORELDRAR ÞÍNIR
FUNDARLAUN FYRIR AÐ
FINNA ÞRJÓTINN?
JÁ,
ÞAU FENGU
MEIRA EN
HANN STAL
FRÁ ÞEIM
HVAÐ ÆTLA
ÞAU AÐ
GERA VIÐ
PENINGANA?
ÉG
VEIT ÞAÐ
EKKI, EN ÞAU
KOMA ÞEIM
EFLAUST
FYRIR Á
ÖRUGGUM
STAÐ
VIÐ ÆTLUM AÐ FÁ
STÆRSTU DÝNU SEM ÞÚ ÁTT
LEYFÐU
MÉR AÐ
STYÐJA ÞIG
ÉG EFAST
UM AÐ ÉG GETI
GENGIÐ ALLA
LEIÐINA HEIM
ÞÚ ÞARFT ÞESS EKKI MAY
FRÆNKA, ÉG BÝ NEFNILEGA
YFIR OFURKRAFTI
JÁ, ÞÚ
HEFUR ALLTAF
KUNNAÐ AÐ
FLAUTA HÁTT!
Leiðarljós
Það kemur ekkert
svar frá RÚV enda er
þeim alveg sama, við
borgum hvort sem er.
Eina vonin er að
Skjár1 taki við Leið-
arljósi. Ég veit um
fólk sem er ekki
áskrifendur í dag, en
myndi strax verða það
ef það fengi Leið-
arljós. Látið nú heyra
í ykkur og talið við
Skjá1. Það eru fleiri
en ellilílfeyrisþegar
sem horfa á Leið-
arljós. Fólk á spítöl-
um, veikt í heimahúsum og fang-
elsum.
Áskrifandi Morgunblaðsins.
Myndavél tapaðist
Stafræn myndavél tapaðist á Lækj-
artorgi eða á leiðinni þaðan að Berg-
staðastræti, sunnudaginn 21. nóv-
ember sl. á milli kl. 17 og 18. Hún er
af gerðinni Canon PowerShot
SD1100 IS Digital ELPH 7,1 MP og
var í aðeins of stóru Olympus-
myndavélarhulstri.
Finnandi hafi sam-
band við Önnu Þórs-
dóttur í síma 695-1303.
Góðkunningjar
Ég get ekki orða bund-
ist og hefur maður svo
sem heyrt þetta orða-
tiltæki lögreglunnar
áður, eða maður verð-
ur að ætla að þetta séu
orð hennar þegar haft
er eftir henni í frétt-
um: Þetta voru góð-
kunningjar okkar. Ég
vil mótmæla því að
lögreglan, sem er í
þjónustu íbúa þessa
lands, skuli leyfa sér
að láta sér slíkt um munn fara, eftir
að þessir óyndismenn eru búnir að
ryðjast inn á heimili saklauss fólks
með bareflum og núorðið einnig með
hnífum. Ég vona að lögreglan, sem
oft stendur sig prýðilega og yfirleitt
á allt gott skilið, átti sig á þessum
röngu skilaboðum út til afbrota-
manna.
HHK
Ást er…
… það sem hjálpar
þér að taka lífinu af
minni alvöru.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Aflagrandi 40 | Vinnustofa kl. 9, bingó
kl. 13.30.
Árskógar 4 | Smíðar kl. 9, bingó kl.
13.30.
Dalbraut 18-20 | Söngstund með Lýð
kl. 14.
Dalbraut 27 | Handavinnustofa kl. 8,
botsía kl. 10.45.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Bingó
í Gjábakka kl. 13.30. Gleðigjafarnir í Gull-
smára koma saman og syngja kl. 14. Eft-
ir söng mun Hákon Sigurgrímsson lesa
úr bók sinni.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Bók-
menntahópur kl. 13. Námskeið – Kjal-
nesingasaga kl. 14. Kvöldvaka kl. 20.
söngur, gamanmál og dans. Dansleikur
sunnudagskvöld kl. 20. Klassík leikur.
Félagsheimilið Boðinn | Leikfimi kl. 12.
Pálmar stjórnar söng og spilar á harm-
onikku kl. 13.30. Aðventukaffi kl. 14,
söngur, sögur, glens, gaman.
Félagsheimilið Gjábakki | Botsía,
málm- og silfursmíði kl. 9.30 og kl. 13,
jóga kl. 10.50, félagsvist 20.30. Á morg-
un, laugardag, frá kl. 13 er okkar árlegi
laufabrauðsdagur en auk laufa-
brauðsgerðar verður handverksmark-
aður og ýmsir kórar í Kópavogi munu
syngja inn aðventuna. Heitt súkkulaði
með rjóma og aðventubakkelsi í boði.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Vefn-
aður kl. 9, jóga kl. 9.15, ganga kl. 10, leik-
fimi kl. 10.30, bingó kl. 13.45. Gleðigjaf-
arnir kl. 14.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Vatnsleikfimi kl. 8.15/9.15, málun kl. 10,
leðursaumur/jólabingó kl. 13, sala á
jólahátíð 4. des. í Jónshúsi í dag kl.
12.30-15, verð kr. 6.000, ekki tekið við
greiðslukortum.
Félagsstarf eldri borgara í Mos-
fellsbæ | Sala á fallegum munum 27.
nóv. kl. 12-15 í Listasal Bókasafns Mos. í
Kjarna, Þverholti 2. Kór eldri borgara,
Vorboðar, syngur frá kl. 13.30. Ágóði af
sölu rennur til bágstaddra.
Félagsstarf Gerðubergi | Vinnustofur
kl. 9, m.a. bókband. Prjónakaffi kl. 10,
stafganga kl. 10.30. Frá hád. er spilasal-
ur op. Kóræf. kl. 15.30. Mánud. 29. nóv.
kl. 14.30 les Guðrún Ögmundsd. úr bók
sinni. Miðvikud. 1. des bíóferð Með hang-
andi hendi og kaffiveitingar, skrán. á
staðnum og s. 5757720.
Háteigskirkja – starf eldri borgara |
Bridsaðstoð kl. 13.
Hraunsel | Rabb kl. 9, leikfimi kl. 11.30,
brids kl. 12.30, billjard/pílukast.
Hvassaleiti 56-58 | Lífsorkuleikfimi kl.
8.30, 9.30 og 10.30. Vinnustofa kl. 9.
Námskeið í myndlist kl. 13.
Hæðargarður 31 | Hringborðið/
dagblöð/morgunsopi kl. 8.50, gönu-
hlaup/thaichi kl. 9. Tíurnar kl. 10. Lista-
smiðjan kl. 9, myndlist. Gáfumannakaffi
kl. 15. Hæðargarðsbíó kl. 16.
Íþróttafélagið Glóð | Botsía í Gjábakka
kl. 13.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Blaða-
klúbbur kl. 10.10, leikfimi kl. 11, opið hús
vist/brids kl. 13.
Norðurbrún 1 | Myndlist og útskurður
kl. 9, stórbingó kl. 13.30.
Vesturgata 7 | Skartgripa/kortagerð kl.
9, enska kl. 11 30, tölvukennsla kl. 13.30,
sungið v/flygil kl. 14.30, dans í aðalsal
kl. 14.30.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Jóla- og að-
ventufagnaður 10. des kl. 18. Jólahlað-
borð og mikið til skemmtunar. Uppl. og
skrán. í síma 411-9450.
Smiðja, leirmótun kl. 9, handav., morg-
unstund kl. 9.30, bingó kl. 13.30.
Blönduhlíðarfjöllin og reyndarfoldin öll skörtuðu fögrum lit-
um í síðdegissólinni í miðri viku.
Lítill snjór var á jörð, en þó grátt
yfir að líta og fjöllin hvít. „Skamm-
degið getur verið fallegt ekkert síð-
ur en aðrir tímar ársins,“ sagði Jón
Gissurarson og bætti við:
Snævi skrýðist foldin fríð
fögur víða höllin.
Sólin þíðir björt og blíð
Blönduhlíðarfjöllin.
Sama dag var lítið um sól og
blíðu á Akureyri. Davíð Hjálmar
Haraldsson sagði að það væri „skít-
kalt og fönn og svell á jörð“:
Sést hér varla sólarlog,
sofa blómin rósa.
Tapa holdum tófur og
tittlingarnir frjósa.
Sigrún Haraldsdóttir ráðlagði
Davíð að stökka strax upp í bílinn
sinn og …
Nú keyrðu burt af kuldaslóð
úr kreppunni svo að losnir.
Hér trygg er birta og tíðin góð
og tittlingar ekki frosnir.
Konráð Erlendsson tók sér
skáldaleyfi er hann lýsti fjöllunum í
Reykjadal:
Af Reykjadalnum rísa fjöll
roðin geislum sólar.
Þó glitri svell og glói mjöll
gráta fúnir njólar.
Að síðustu orti Friðrik Stein-
grímsson í léttum dúr:
Davíðs frosið djásnið var
drenginn fátt því prýddi,
en sólarylur Sigrúnar
sinina hans þíddi.
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af fjöllum og blómum