Morgunblaðið - 09.12.2010, Blaðsíða 14
ÚR BÆJARLÍFINU
Skapti Hallgrímsson
Akureyri
Líkur eru á að gefin verði út sam-
eiginleg kort fyrir öll skíðasvæðin
við Eyjafjörð; Akureyri, Dalvík,
Ólafsfjörð og Siglufjörð. Flott hug-
mynd.
Margt smátt gerir eitt stórt og
falleg hugsun gerir líka sitt. Nem-
endur 10. bekkjar í Glerárskóla
héldu árlegt ball í síðustu viku í
tengslum við söngkeppni skólans,
Gleróvisjón. Hagnaður af dans-
leiknum hefur alltaf farið í ferðasjóð
nemenda en í ár ákváðu krakkarnir
að upphæðin rynni í styrktarsjóð
fyrir Helgu Sigríði Sigurðardóttur,
stúlkuna sem veiktist illa á dögunum
og var flutt á sjúkrahús til Svíþjóðar.
Það var söguleg stund í Hofi síð-
asta laugardag þegar systkinin Sig-
rún Hjálmtýsdóttir, Diddú, og Páll
Óskar héldu sameiginlega tónleika í
fyrsta skipti. Ótrúlegt en satt. Þessir
aðventutónleikar þeirra og Sinfóníu-
hljómsveitar Norðurlands voru sér-
lega skemmtilegir, eins og reikna
mátti með.
Systkinin eru bæði frábærir
listamenn og hljómsveitin er okkur
sveitamönnum til mikils sóma.
Toppurinn var líklega þegar Diddú
söng Ó, helga nótt í lokin. Magnað.
Bæjarstjórn Akureyrar hefur
samþykkt tillögu að breytingu á
aðalskipulagi við Hlíðarenda ofan
bæjarins. Þar mun SS Byggir því
geta reist mjög umfangsmikla frí-
stundabyggð.
KEA styrkti Hjálparstarf kirkj-
unnar á Akureyri í vikunni um 500
þúsund krónur. Féð er ætlað til að
kaupa matvæli til styrktar skjól-
stæðingum hjálparstarfsins. Halldór
Jóhannsson, framkvæmdastjóri
KEA, afhenti féð.
Jón Oddgeir Guðmundsson
veitti gjöfinni viðtöku og sagði að á
annað hundrað manns í Eyjafirði og
Þingeyjarsveit leiti um þessar
mundir eftir aðstoð hjá Hjálpar-
starfi kirkjunnar, auk þess hafi
stofnunin samband við einstaklinga
sem hún telur hjálparþurfi og bjóði
fram aðstoð sína.
Afkoma bæjarsjóðs Akureyrar,
allrar samstæðunnar, verður jákvæð
um rúmar 146 milljónir króna á
næsta ári, miðað við fjárhagsáætlun
sem lögð var fram í vikunni og var til
fyrri umræðu í bæjarstjórn. Þess má
geta að reiknað er með að bæjar-
félagið og fyrirtæki þess greiði rúm-
lega 8 milljarða króna í laun.
Hinir árlegu jólasöngvar Kórs
Akureyrarkirkju undir stjórn Ey-
þórs Inga Jónssonar verða á sunnu-
daginn kl. 17 og aftur kl. 20. Aðgang-
ur er ókeypis og allir velkomnir.
Upplagt að æfa jólalögin í fallegu
umhverfi.
Hljómsveitin Dikta heldur
tvenna tónleika á Græna hattinum
um helgina, á föstudags- og laugar-
dagskvöld.
Sögulegir og góðir tónleikar
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Glæsilegt Systkinin Páll Óskar og Sigrún Hjálmtýsdóttir ásamt stjórn-
andanum, Guðmundi Óla Gunnarssyni, eftir aðventutónleika SN í Hofi.
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 2010
RADISSON BLU
HÓTEL SAGA (Harvard II)
Föstud. 10. des. kl. 8-10
Fundarstjóri: Bolli Héðinsson
Vilhálmur Bjarnason viðskiptafræðingur
og framkvæmdastjóri Samtaka fjárfesta
Vala Valtýsdóttir héraðsdómslögmaður,
yfirmaður skatta- og lögfræðisviðs hjá Deloitte
Fulltrúaráð verkalýðsfélaganna í
Reykjavík afhendir Hjálparstarfi
kirkjunnar styrk að upphæð
500.000 kr.
Hjálparstarf kirkjunnar veitir
fjölmörgum ungum barna-
fjölskyldum aðstoð með matar-
úthlutun og einnig stuðning til að
börn geti haldið áfram í tómstunda-
starfi og námi þegar fjölskyldan er
mjög tekjulág eða hefur orðið fyrir
fjárhagslegu áfalli.
Styrkja fjölskyldur
Í fyrradag fékk Slysavarnaskóli
sjómanna afhenta 10 flotgalla frá
VÍS. Gjöfin er liður í þriggja ára
forvarnasamstarfi um bætta örygg-
ismenningu um borð í fiskiskipum
og um auknar forvarnir gegn slys-
um meðal sjómanna.
Í tilkynningu segir að í rúmt ár
hafi Slysavarnaskóli sjómanna og
VÍS unnið með útgerðum, sem
tryggðar eru hjá VÍS, í því að koma
á bættri öryggismenningu um borð
í fiskiskipum og gera störf sjó-
manna þannig öruggari en þau eru
í dag. Þetta hefur verið gert með
sameiginlegri skuldbindingu út-
gerða og sjómanna um að stuðla að
breyttu viðhorfi og aukinni áherslu
á öryggismál sjómanna. Gert er
áhættumat um borð í fiskiskipum
auk þess sem tekin er upp skipuleg
atvikaskráning á slysum og öllum
atvikum þar sem legið hefur nærri
slysum. Margar útgerðir hafi stigið
sín fyrstu skref í að bæta öryggis-
menningu sjómanna um borð í sín-
um fiskiskipum í samvinnu við VÍS
og Slysavarnaskóla sjómanna.
Góð gjöf Hlynur Angantýsson, deildarstjóri fyrirtækjaviðskipta VÍS, og Hilmar Snorra-
son, skólastjóri Slysavarnaskóla sjómanna, auk nemenda skólans í hinum nýju göllum.
Gaf Slysavarnaskóla sjómanna 10 flotgalla
til að bæta öryggismenningu í fiskiskipum
Í dag, fimmtudag, verður efnt til
ljósagöngu og samstöðu á Ráð-
hústorgi í tilefni af alþjóðlegu 16
daga átaki gegn kynbundnu of-
beldi. Gengið verður með kyndla
og kerti frá Akureyrarkirkju kl.
16:30. Flutt verður stutt ávarp og
ljóðalestur auk þess sem söng-
hópurinn Ungar raddir tekur
nokkur lög.
Í tilkynningu um átakið segir
að hópar og samtök um allan
heim hafi nýtt 16 daga átakið til
að krefjast aðstoðar og stuðnings
til handa brotaþolum, til að
styrkja forvarnarstarf og þrýsta
á um breytingar á löggjöf til að
bæta réttarstöðu þeirra. Margt
hafi áunnist undanfarin ár í bar-
áttu gegn kynbundnu ofbeldi; ís-
lensk stjórnvöld hafa gert ýt-
arlega aðgerðaráætlun gegn
ofbeldi á heimilum og kynferðis-
ofbeldi og aðgerðaráætlun gegn
mansali. Brýnt sé að fyrirhug-
aður niðurskurður bitni ekki á
framkvæmd þessar áætlana því
vitað sé að efnahagsþrengingar
geta leitt til aukins kynbundins
ofbeldis og bitni oft harðar á
konum.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Kyndilganga gegn
kynbundnu ofbeldi
Í kvöld, fimmtudag kl. 20:00, verður haldin samvera fyr-
ir syrgjendur í Grafarvogskirkju. Að samverunni standa
Landspítalinn, Þjóðkirkjan, Karitas – hjúkrunar- og ráð-
gjafaþjónusta og Ný dögun, samtök um sorg og sorg-
arviðbrögð, en þessir aðilar hafa mörg undanfarin ár
staðið fyrir samveru sérstaklega ætlaða þeim sem hafa
misst ástvin og vilja staldra við á aðventunni.
Aðventan og jól eru oftast erfiður tíma fyrir þá sem
syrgja. Hinar margvíslegu jóla- og fjölskylduhefðir sem
tengjast þessum árstíma gera sorgina og missinn jafnvel
sárari þegar skarð hefur verið höggvið í hópinn.
Að þessu sinni verður samveran fyrir alla fjölskylduna og er öllum opin.
Valgerður Hjartardóttir djákni og séra Halldór Reynisson leiða sam-
veruna. Jólasálmar verða fluttir og ljós tendruð til að minnast látinna ást-
vina. Hamrahlíðarkórinn flytur tónlist og að lokum verður boðið upp á
veitingar. Samveran verður túlkuð á táknmáli.
Samvera í kvöld fyrir syrgjendur
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
hefur opnað síðu á samskiptavefn-
um Facebook.
Tilgangurinn með því er að auka
og efla upplýsingamiðlun frá lög-
reglunni til almennings, einkum
þeirra sem búa, starfa og dvelja á
höfuðbogarsvæðinu. Síðan verður
notuð til að vekja athygli á fréttum
og tilkynningum frá lögreglunni,
forvörnum gegn afbrotum og sam-
bærilegu efni.
Þeim sem hafa áhuga á því að
gerast góðkunningjar lögreglunnar
á facebook er bent á slóðina:
http://www.facebook.com/pages/
Logreglan-a-hofudborgarsvaed-
inu/123603131036577
Löggan á Fésbók
STUTT