Morgunblaðið - 22.01.2011, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 22.01.2011, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2011 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Fundað var með fulltrúum hags- munasamtaka í Ráðherrabústaðnum í gær um áform stjórnvalda um nýtt at- vinnuvegaráðuneyti og ráðuneyti um- hverfis- og auðlindamála. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins kom m.a. fram að ekkert væri búið að ákveða endanlega um sameiningu ráðuneyta og kom sumum fundar- mönnum á óvart að heyra hve óljós staða þessara mála væri. „Mér fannst þessi fundur einkenn- ast af vandræðagangi,“ sagði einn fundarmanna við Morgunblaðið. Ragnhildur Arnljótsdóttir, ráðu- neytisstjóri í forsætisráðuneytinu, stýrði fundinum en á honum voru einnig ráðuneytisstjórar þeirra ráðu- neyta sem til stendur að sameina, að undanskildu sjávarútvegs- og land- búnaðarráðuneytinu. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins kom fram að það ráðuneyti hefði ekki tekið þátt í undirbúningi fundarins, sem átti að marka upphaf á samráðsferli með hagsmunaaðilum um málið. Ráðuneytisstjóra sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins var boðið til fundarins en ráðherrann, Jón Bjarnason, mun hafa lagst gegn því að hann færi á fundinn. Tveir fulltrú- ar úr ráðuneyti Jóns voru þó við- staddir fundinn. Fram kom í Morgunblaðinu sl. mið- vikudag að Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra hefðu á sérstökum fundi upplýst Jón um að sameiningarferli ráðuneytanna væri hafið og fyrsta skrefið væri þessi kynningarfundur sem fram fór í gær. Kallað eftir afstöðu Ríkisstjórnin hefur haft uppi áform um að sameina ráðuneyti iðnaðar, sjávarútvegs og landbúnaðar í eitt at- vinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti og flytja auðlindamál undir nýtt um- hverfis- og auðlindaráðuneyti. Á fundinum voru m.a. fulltrúar frá Sam- tökum atvinnulífsins, Samtökum iðn- aðarins, LÍÚ, Bændasamtökunum, Samtökum ferðaþjónustunnar, Sam- tökum fiskvinnslustöðva, Samorku, Samtökum verslunar og þjónustu, Samtökum rafverktaka og Samtök- um sprotafyrirtækja. Fulltrúum frá ASÍ mun ekki hafa verið boðið eða frá samtökum í mjólkur- og kjötiðnaði. Kallað var eftir afstöðu þessara að- ila til hugmynda um ný ráðuneyti og hvaða væntingar þeir hefðu. Sam- kvæmt upplýsingum Morgunblaðsins kom fram eindregin andstaða frá fulltrúum sjávarútvegs og landbúnað- ar við nýtt atvinnuvegaráðuneyti og þá var einnig lýst andstöðu við að færa auðlinda- og nýtingarmál undir umhverfisráðuneytið. Sumir lýstu þó stuðningi við þær hugmyndir. Fundurinn stóð yfir í tæpa tvo tíma en frekari fundahöld voru ekki boðuð með formlegum hætti. Sameining ráðuneyta óljós  Fundur með hagsmunasamtökum um sameiningu ráðuneyta  Tekið var fram að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra tók ekki þátt í undirbúningi fundarins Jón Bjarnason heimilaði ekki ráðuneytisstjóra sínum að sitja kynningarfundinn. Það var heldur óvenjuleg sjón sem blasti við á ísilögðu Hafravatni í gær en þar voru kafarar frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins að leiðbeina köf- urum frá sérsveit ríkislögreglustjóra við köfun undir ís. „Það var maður frá okkur sendur til Colorado í Bandaríkjunum á nám- skeið í köfun undir ís og hann er að kenna hinum núna,“ sagði Sigurjón Hendriksson, vaktstjóri hjá slökkviliðinu. Hann sagði skylduæfingar vera hjá köfurum slökkviliðsins, lögreglunnar og Landhelgisgæslunnar í hverj- um mánuði og upplagt að nýta sér það að vatnið væri nú ísi lagt. Kafað undir ísilagt Hafravatn Fjöldi gæsa hefur sést spóka sig í sótsvartri Vatnsmýrinni í kjölfar sinubrunans sem varð þar fyrir stuttu. Einhverjum þykir það ef- laust furðulegt að gæsir sæki þang- að. Raunin er sú að aðstæður í Vatnsmýrinni hafa sjaldan verið eins hagstæðar fyrir gæsir á þess- um tíma árs. „Þarna hafa gæsirnar mögulega séð matarholu í hinu nýbrennda graslendi og fæðu sem þær hefðu annars ekki getað nýtt sér ef sinan hefði verið yfir öllu,“ segir Ólafur Karl Nielsen, fuglafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands. „Sin- an er eins og þykkt teppi yfir þessu. Ef þú brennir hana í burtu situr eins konar salatbar eftir.“ Flestar gæsir fljúga suður á bóg- inn yfir vetrartímann. Um þúsund verða þó eftir. Gæsir eru grasbítar og í sverðinum finna þær grænt gras. Ólafur segir að þær gæsir sem eru hér yfir vetrartímann nærist helst á brauðgjöfum og grænu grasi sem þær finna venjulega aðeins á blettum sem eru slegnir yfir vetr- artímann. gislibaldur@mbl.is Salatbar fyrir gæsir eftir sinubruna í Vatnsmýrinni Morgunblaðið/Ómar Leita að grænu í svörtu Gæsir rífa upp grænt gras í sverðinum í Vatnsmýr- inni. Sinubruninn kom þeim að góðu þar sem væn matarhola myndaðist.  Sinan eins og teppi yfir fæðu „Það þýðir að við erum búin að komast yfir það rannsóknarefni sem þurfti að klára áður en hann yrði látinn laus,“ sagði Ólaf- ur Þ. Hauksson, sérstakur sak- sóknari, við Morgunblaðið í gærkvöldi aðspurður hvers vegna Sigurjón Þ. Árnason, fyrrum banka- stjóri Landsbankans, var látinn laus úr gæsluvarðhaldi. Jafnframt er Halldór J. Kristjánsson, sem starf- aði honum við hlið, laus úr farbanni. Nokkur fjöldi manna var kallaður til yfirheyrslu í gær vegna rann- sóknar á millifærslum af reikningi Landsbankans og kaupum bankans á verðbréfum af sjóðum Landsvaka eftir lokun sjóðanna hinn 6. október 2008. Þá voru menn einnig yf- irheyrðir vegna meintrar markaðs- misnotkunar, rannsóknar sem emb- ættið tók fyrir í síðustu viku. Unnið var samhliða í málunum tveimur og að einhverju leyti hafa menn verið yfirheyrðir vegna beggja mála. gislibaldur@mbl.is Nokkur fjöldi í yf- irheyrslu Sigurjón Þ. Árnason  Sigurjóni Árnasyni sleppt úr haldi í gær Karlmanni er haldið sofandi í önd- unarvél á gjörgæsludeild Landspít- ala í Fossvogi eftir alvarlegt vinnu- slys í Borgarleikhúsinu. Um er að ræða dansara í Íslenska dansflokknum en flokkurinn var við æfingar þegar slysið varð. Af þess- um sökum var sýningu á leikritinu Ofviðrinu frestað í gærkvöldi, en hún er samstarfsverkefni Borg- arleikhússins og Íslenska dans- flokksins. Magnús Geir Þórðarson, leik- hússtjóri, staðfesti þetta við Morg- unblaðið í gærkvöldi en sagði að ekki væri hægt að greina nánar frá til- drögum slyssins að svo komnu. Haldið sofandi eftir slys í Borg- arleikhúsinu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.