Morgunblaðið - 22.01.2011, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 22.01.2011, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2011 Virðing Réttlæti VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS Hefur þú áhuga á að starfa í forystu VR? Samkvæmt 20. gr. laga VR auglýsir kjörstjórn eftir einstaklingsframboðum í stjórn VR. Jafnframt auglýsir kjörstjórn eftir einstaklingsframboðum á lista uppstillinganefndar í trúnaðarráð félagsins. Um er að ræða formann félagsins, 7 aðalmenn í stjórn, 3 varamenn í stjórn og 82 í trúnaðarráði. Áhugasamir geta gefið kost á sér með því að senda inn skriflegt erindi til kjörstjórnar á skrifstofu VR. Skrifleg meðmæli 50 félagsmanna þarf vegna framboðs til formanns, 10 vegna framboðs til stjórnar og 5 vegna framboðs til trúnaðarráðs. Framboðsfrestur er til kl. 12:00 á hádegi fimmtudaginn 3. febrúar 2011. Frambjóðendum er bent á að kynna sér nánari upplýsingar á heimasíðu VR, www.vr.is. Kjörstjórn Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Íslandsbanki mun í næstu viku kynna viðskiptavinum sínum hvernig staðið verður að endurreikningi húsnæðis- lána í erlendri mynt. Er þetta gert til samræmis við það samkomulag sem náðist milli stjórnvalda og fjármála- fyrirtækja og þau lög sem samþykkt voru á Alþingi í kjölfarið. Samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins hyggst bankinn ganga lengra en lögin segja til um og end- urreikna öll erlend lán með veði í íbúðarhúsnæði, óháð því hvort um eigið húsnæði er að ræða. Þannig get- ur þetta einnig náð til þeirra er tóku lán til viðhalds eða annarra nota. Þá mun viðskiptavinum Íslandsbanka gefast kostur á að velja áfram höf- uðstólslækkun á erlendu láni, ef það kemur betur út en endureikningur. Getur lækkað um 25-40% Hvora leiðina sem fólk velur er lán- unum breytt í íslenskar krónur. Ef endurreikningur skilar betri útkomu er hægt að velja á milli vaxtakjara Seðlabankans og vaxta Íslandsbanka, verðtryggðra eða óverðtryggðra. En sé höfuðstólslækkun valin þá hefur viðkomandi lántaki ekki rétt á seðla- bankavöxtunum. Getur höfuðstóll lánanna lækkað um 25-40%, allt eftir því hvernig lánin eru samsett og hve- nær þau voru tekin. Um 100 starfsmenn Íslandsbanka vinna nú að endurreikningi lána, að sögn Guðnýjar Helgu Herbertsdótt- ur, upplýsingafulltrúa bankans, en til þessa hafa á bilinu 20-30% lántakenda með erlend íbúðalán hjá bankanum nýtt sér úrræði með höfuðstólslækk- un. Munu lán þeirra einnig verða end- urreiknuð, sem og þau lán sem hafa verið yfirtekin eða uppgreidd, en stefnt er að því að birta fyrsta hluta endurreiknings fyrir 25. febrúar nk. Íslandsbanki mun einnig bjóða upp á 110% aðlögun húsnæðislána fyrir þá sem eiga rétt á slíku úrræði, þ.e. lán í íslenskum krónum, hvort sem slíkt lán var tekið í upphafi eða erlendu láni breytt í íslenskt. Eru húsnæðis- skuldir þá lagaðar að 110% af mark- aðsvirði eignar eða fasteignamati, hvort sem hærra er. Úrræðið mun fyrst beinast að þeim viðskiptavinum sem eru með verð- tryggð íslensk húsnæðislán, enda þarf endurútreikningi á erlendum lánum að vera lokið áður en hægt er að fara í 110% leiðina. Geta einstaklingar fengið allt að fjórar milljónir niðurfelldar, gegn því að leggja fram skattframtöl síðustu þriggja ára og undirrita yfirlýsingu þess efnis að þeir eigi engar aðrar að- fararhæfar eignir. Hjón og einstæðir foreldrar eiga rétt á allt að sjö millj- ónum. Íslandsbanki er einnig með sér- tæka skuldaaðlögun fyrir þá við- skiptavini sem ekki dugar almenn úr- ræði, sem hægt er að fara í til þriggja ára. Eru skuldirnar þá að lágmarki færðar niður í 100% af markaðsvirði veðhæfra eigna, bæði bíla og húsnæð- is. Miðar bankinn við að í byrjun sé hægt að greiða af a.m.k. 70% mark- aðsvirðinu. Öll erlend lán endurreiknuð  Íslandsbanki hyggst ganga lengra í endurreikningi íbúðalána en lög kveða á um Endurreikningur » Frumvarp efnahags- og við- skiptaráðherra um geng- isbundin lán varð að lögum í lok nýliðins árs. » Fengu lánastofnanir þá 60 daga frest til endurreiknings á erlendum bíla- og íbúðalánum. Morgunblaðið/Samsett mynd Höfuðstólslækkun í 110% úrræðinu Dæmi um hússnæðisskuldir hjóna sem lækkaðar eru í 110% af marksvirði eignar. 35 30 25 20 15 10 5 0 M ill jó ni r kr . Markaðsvirði fasteignar Áhvílandi húsnæðisskuldir Skuldir eftir höfuðstólslækkun 25 milljónir króna 32 milljónir króna 27,5 milljónir króna Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurð- aði í gær 23 ára gamlan karlmann og tvo 17 ára pilta til að sæta áfram- haldandi gæsluvarðhaldi til 28. jan- úar nk. Þeir eru grunaðir um aðild að fjölmörgum innbrotum á höf- uðborgarsvæðinu, og liggja játn- ingar fyrir að hluta. Mennirnir voru handteknir sl. laugardagskvöld í tengslum við inn- brot í Mosfellsbæ kvöldinu áður. Á sunnudeginum voru þeir úrskurð- aðir í gæsluvarðhald til 21. janúar. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fór fram á það að þeir yrðu áfram í haldi og varð héraðsdómur við þeirri kröfu í þágu rannsóknarhagsmuna. Var gæsluvarðhaldið framlengt um viku. Árni Þór Sigmundsson, aðstoð- aryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, sagði í sam- tali við fréttavef Morgunblaðsins, mbl.is, að játningar lægju fyrir að hluta um aðild að tugum innbrota á höfuðborgarsvæðinu. Málið væri umfangsmikið en að rannsókn máls- ins miðaði vel áfram. Rannsókn lögreglu beinist að inn- brotum í heimahús í Reykjavík, Hafnarfirði og í Mosfellsbæ. Rann- sókn málsins nær til október í fyrra. jonpetur@mbl.is Innbrots- þjófar enn í varðhaldi  Umfangsmikið mál Innbrot Ungu mennirnir játuðu að hluta tugi innbrota á höfuðborgarsvæðinu. Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Vatns- og fráveitugjöld eru nú til umfjöllunar hjá borginni eftir að borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðis- flokks og Vinstri grænna lögðu fram fyrirspurn um málið á borgarráðs- fundi í fyrradag. Mikil óánægja er með þessi gjöld og innan Orkuveitu Reykjavíkur er tekin til starfa kæru- nefnd vatns- og fráveitumála sem hægt er að skjóta málum til. Ósanngjarnt fyrirkomulag Í fyrirspurn minnihlutans kemur fram að Orkuveita Reykjavíkur hafi rekið fráveituna frá árinu 2006 en sveitarfélög hafa séð um innheimtu vatns og fráveitugjalda sem hlutfall af fasteignamati þar til á þessu ári. Gjaldið sé ekki miðað við notkun heldur fermetrafjölda og slíkt viðmið geti augljóslega verið ósanngjarnt, t.d. fyrir lagerhúsnæði. Borgarfulltrúarnir óska eftir upp- lýsingum um verkferla Orkuveitu Reykjavíkur við innheimtu vatns og fráveitugjalds, um kostnað félagsins vegna innheimtunnar og spyrja hver hlutur innheimtukostnaðar sé af vatns- og frá- veitugjaldinu. Einnig er óskað upplýsinga um verkferla félags- ins ef til greiðslu- falls kemur, upp- lýsinga um uppbyggingu gjaldskrár og hversu mikið vatns- og frá- veitugjald hækkar á þessu ári á þjón- ustusvæði Orkuveitu Reykjavíkur. Aukinheldur er spurt hvort breytt viðmið gjaldsins orsaki mikla hækk- un einstakra greiðenda og hugsan- lega lækkun annarra? Gengur ekki Júlíus Vífill Ingvarsson, borgar- fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir að borgarfulltrúar verði að fara mjög vel yfir þetta mál og endurskoða það. Gjaldskrárhækkanir verði að meta heildrænt og OR hafi þegar hækkað gjaldskrár sínar um allt upp í 40% of- an á þær hækkanir á gjaldskrám og sköttum sem meirihluti borgar- stjórnar hafi tekið ákvörðun um. „Greiðslugeta sumra er á þrotum.“ Fjallað um vatn- ið í borgarráði  Kærunefnd fráveitumála til starfa hjá OR Júlíus Vífill Ingvarsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.